Morgunblaðið - 21.08.1991, Side 2
(
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
Fargjaldastríð flugfélaga í Ameríkuflugi:
15% lækkun á fargjöldum
Flugleiða yfir Atlantshaf
AÐ sögn Péturs Eiríkssonar hjá Flugleiðum, mun verðstríðið sem
hófst í farþegaflugi yfir Atlantshaf í síðustu viku, lítil áhrif hafa á
afkomu og rekstur félagsins, en aðeins um 4% farþega þeirra ferð-
ast á leiðinni milli Bretlands og Bandaríkjanna. Flugleiðir munu þó
fylgja lækkunum stærri keppinauta, og lækka fargjöld sín á þessari
flugleið um allt að 15%.
„Þau flugfélög sem lengst hafa
gengið í þessum lækkunum, eru
United Airlines, sem keypti Bret-
landsflug Trans World Airlines, og
Delta Air Lines, sem keypti Bret-
landsflug PanAm-flugfélagsins, til
að vinna nafni sínu framgang á
breska markaðinum,“ segir Pétur
Eiríksson, framkvæmdarstjóri
markaðssviðs Flugleiða, „og hafa
lækkað verðið um allt að 25%. Að-
eins 4% farþega okkar ferðast á
leiðinni milli Bretlands og Banda-
ríkjanna, svo að þessi markaður
skiptir okkur ekki höfuðmáli." Pét-
ur segir að Flugleiðir munu leggja
megináherslu sem fyrr á Mið-Evr-
ópu og Skandinavíu, og þar muni
koma til venjulegra haustlækkana,
en verðstríðið hefur ekki teygt anga
sína inn á þann markað. Sökum
stærðar sinnar, leiða Flugleiðir ekki
verð í Atlantshafsfluginu, en munu
fylgja stærri flugfélögunum til að
mæta samkeppni og lækka fargjöld
þeirra farþega sem fara til og frá
Bretlandi um allt að 15%, að því
tilskyldu að sömu skilyrðum verði
fylgt og í verðstríðinu.
„Flugfélögunum hefur tekist
þessi lækkun með því að setja sem
skilyrði að fólk kaupi farmiðann
fyrir 15. október, og það munum
við einnig gera. Lægstu gjöldin
lækka ein, hin hærri eru óbreytt.
Hvað gerist eftir miðjan október er
óvíst.“ Pétur spáir því að aðeins
sterkustu flugfélögin geti staðið af
sér verðstríðið, en staða margra
þeirra er bág eftir fargjaldastríðið
á síðasta ári og átökin við Persa-
flóa. „Næstu mánuðir munu líkleg-
ast ráða úrslitum um hvaða félög
haldi velli á þessum markaði, og
hvaða félög detti upp fyrir,“ segir
Pétur að lokum.
Skák:
Sveit MH sigr-
aði í 12. sinn
SKÁKSVEIT Menntaskólans við
Hamrahlíð varð Norðurlanda-
meistari í tólfta sinn á Norður-
landamóti framhaldsskóla í Finn-
landi um helgina. Sveitin hlaut
sextán og hálfan vinning af tutt-
ugu mögulegum.
Frá því að þetta mót var fyrst
haldið 1973 hafa íslenskir fram-
haldsskóiar þrettán sinnum borið
sigur úr býtum. Sveit Svía varð í
öðru sæti með tólf og hálfan vinn-
ing.
Utkoma einstakra skákmanna
sveitarinnar í þeim fímm viðureign-
um sem háðar voru var sem hér
segir: Þröstur Þórhallsson, sem
tefldi á fyrsta borði, hlaut fjóra og
hálfan vinning, Þröstur Árnason á
2. borði þijá og hálfan, Sigurður
Daði Sigfússon á 3. borði fimm
vinninga og Snorri Karlsson á 4.
borði hlaut þrjá og hálfan vinning.
Svíar urðu í öðru sæti með tólf
og hálfan vinning. í þriðja sæti
varð A-sveit Finna, með tíu og hálf-
an vinning, Danir höfnuðu í fjórða
sæti með 10 vinninga og B-sveit
Finna í því fimmta með 6. Norð-
menn ráku lestina með fjóra og
hálfan vinning.
Leitað að mengun á Heiðarfjalli
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Þessa dagana stendur yfir rannsókn á vegum Umhverfisráðuneytisins
á gömlu sorphaugum Vamárliðsins á Heiðarfjalli. Niðurstöður munu
væntanlega liggja fyrir skömmu eftir að mælingum lýkur í lok vikunn-
ar. Að sögn Ágústs Sigurðssonar, sem stundar rannsóknirnar ásamt
Snorra Páli Snorrasyni, em mæld lífræn efni m.a. olíuefni og lífræn
leysiefni með jarðgasleitartæki. „Við skönnum svæðið og göngum úr
skugga um það hvort og þá hve mikil mengun af þessum toga sé að
ræða. Enn er ekkert hægt að segja um það,“ sagði Ágúst í samtali
við Morgunblaðið.
Sjá einnig bls. 13.
Perlan:
12 brúðhjón
í mat á laug'-
ardagskvöld
TÓLF brúðhjón snæddu á
veitingastaðnum Perlunni á
Oskjuhlíð síðastliðið laugar-
dagskvöld. Halldór Skafta-
son, veitingastjóri Perlunnar,
staðfesti þetta í samtali við
Morgunblaðið í gær. „Það var
afskaplega gaman að hafa
allt þetta nýgifta og glæsilega
fólk hérna,“ sagði Halldór.
Hann sagðist hafa heyrt að
fmjmtán hjón hefðu verið gefin
saman í Reykjavík á laúgardag,
en vildi ekki ábyrgjast að sú
tala ætti við rök að styðjast.
„Það hefur verið nokkuð um
að brúðhjón snæði hjá okkur,
frá því að við opnuðum, en þó
hafa aldrei verið svona mörg
brúðhjón hjá okkur á einum
degi,“ sagði Halldór. 6-7 tilvon-
andi hjón hafa þegar tryggt sér
borð í Perlunni næstkomandi
laugardag.
4
^ VALDARÁNIÐ í KREML - Setið um þinghús Rússlands
Míkhaíl Astafíev, þingmaður á rússneska þinginu:
Verð að fara út og reyna
að stöðva hermennina
„ÉG hef mjög iítinn tíma til að
tala við þig. Herinn er í þann
veginn að ráðast á þinghúsið,"
sagði rússneski þingmaðurinn
Míkhaíl Astafíev er blaðamaður
Morgunblaðsins náði símasam-
bandi við hann í rússneska þing-
húsinu um klukkan sex síðdegis
að rússneskum tíma í gær. Nokkr-
um mínútum áður hafði Sergej
Stankevítsj, aðstoðarborgarstjóri
Moskvu, skipað öllum konum að
yfirgefa bygginguna. „Þingmenn
ætla út til móts við hermennina,
við ætlum að ræða við þá og biðja
þá um að skjóta ekki á fóikið.
Þess vegna má ég engan tíma
missa,“ sagði Astafíev.
„Moskva er full af skriðdrekaher-
deildum. Þeir hafa beðið í einn dag
á ýmsum stöðum í nágrenni þing-
hússins. Þingmenn hafa farið út á
meðal hermannanna, rætt við yfir-
menn þeirra og liðsforingja og beðið
þá um að skjóta ekki á almenning,"
sagði þingmaðurinn.
Hann var sjálfur einn þeirra þing-
manna, sem gengu um meðal her-
mannanna í fyrrinótt og báðu þá um
að óhlýðnast skipunum neyðar-
nefndarinnar og ganga í lið með
Borís Jeltsín Rússlandsforseta.
Astafíev, sem er formaður Lýðræðis-
lega stjórnarskrárflokksins, er
þekktur maður og vinsæll í Moskvu,
og sagðist hann hafa getað sann-
fært nokkra hermenn um að ganga
rússneskum stjórnvöldum á hönd.
„Allt fór friðsamlega fram á torg-
inu. Umleitanir okkar báru nokkurn
árangur og sumar herdeildimar, sem
eru okkur vinveittastar, yfirgáfu
Moskvu í morgun. í þeirra stað komu
hins vegar nýjar sveitir. Við vorum
nú að fá merki um að þessar nýju
hersveitir séu á leið til byggingarinn-
ar og ætli að ráðast til inngöngu."
Mikill kliður var í kring um
Astafíev, þar sem hann talaði í
símann á skrifstofu sinni í þinghús-
inu á Moskvubökkum. Á bak við
heyrðust menn hrópa og kalla.
Astafíev gerði hlé á samtalinu, hróp-
aði eitthvað á rússnesku og ræddi
við aðra menn í herberginu. Hann
kom aftur í símann og sagði, greini-
lega I geðshræringu: „Því miður, ég
Morgunblaðið/ÓÞS
Míkhaíl Astafíev. Myndin var
tekin fyrir þremur vikum er
blaðamaður Morgunblaðsins
hitti hann í Moskvu.
verð að fara. Ég verð að fara út á
torgið og reyna að stöðva hermenn-
Brýt bannið
og fer til
þinghússins
„ÉG er að búa mig, ætla að
fara út og niður að þinghúsi.
Ég er dálítið hræddur, hræddur
um að lögreglan stöðvi mig
vegna útgöngubannsins. En ég
fer samt,“ sagði Kíríll Alex-
androvítsj, rúmlega tvítugur
stúdent í Moskvu, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Kona Alex-
androvítsj á von á barni eftir
tvær vikur. „Ég vona að þegar
barnið okkar fæðist höfum við
sigrazt á harðlínumönnunum,"
sagði hann.
Alexandrovítsj sagðist vera
að hlýða kalli Jeltsíns forseta
og Popovs borgarstjóra til borg-
ara um að veija þinghúsið.
„Við búum okkur undir að
þurfa að veija þingið og Jeltsín
fyrir árás. Nóttin mun skera úr
um margt.“