Morgunblaðið - 21.08.1991, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
3
VALDARANIÐ I KREML
Eistland lýsir yfír sjálfstæði
Tallinn, Moskvu, Helsinki, Stokkhólmi. Reuter, The Daily Teleg^aph.
ÞINGIÐ í Eistlandi lýsti í gærkvöldi yfir fullu sjálfstæði landsins sem
tæki gildi þegar í stað og tilkynnti um leið að þingkosningar yrðu
haldnar í landinu á næsta ári á grundvelli nýrrar stjórnarskrár.
Að sögn Eve Tarm, talsmanns
utanríkisráðuneytisins, samþykktu
þingmennirnir yfirlýsinguna ein-
róma á þingfundi seint í gærkvöldi.
Fundurinn var haldinn í víggirtu
þinghúsinu í Tallinn, höfuðborg
Eistlands.
Eistland var, líkt og hin Eystra-
saltsríkin tvö, Lettland og Litháen,
innlimað í Sovétríkin árið 1940.
Landið lýsti yfir fullveldi innan
Sovétríkjanna árið 1988 og á
síðasta ári samþykkti þingið að
stefnt skyldi að því að landið hlyti
algjört sjálfstæði, en tekið var fram
að slíkar breytingar þyrftu aðlögun-
artíma og samráð yrði að hafa við
stjórnina í Moskvu.
Ástandið ekki eðli-
legt en fólk æðrulaust
- segir Hildur Guðrún Eyþórsdóttir í Moskvu
„ASTANDIÐ er ekki eðlilegt, en fólk virðist taka þessu af æðru-
leysi,“ sagði Hildur Guðrún Eyþórsdóttir, sem situr nú þing bóka-
safnsfræðinga í Moskvu, er Morgunblaðið ræddi við hana um ástand-
ið þar eftir valdatöku harðlínukommúnista. Hún sagði að allt hefði
verið kyrrt þar sem hún fór um borgina í gærkvöldi en fyrr í gær
þurfti hún að klöngrast yfir götuvígi til þess að sækja fyrirlestra á
þinginu.
Hildur Guðrún Eyþórsdóttir
sagði að í gærmorgun hefði ekki
verið hægt að komast akandi frá
Hótel Belgrad, þar sem hún býr,
til ráðstefnustaðarins vegna
götuvígja. „Þeir sögðu að ekki yrði
komist í rútum og urðum við því
að fara fótgangandi frá hótelinu,"
sagði Hildur Guðrún. „Á leiðinni
þurftum við að klöngrast yfir
götuvígi, sem ungt fólk hafði gert
úr götusteinum og öðru lauslegu."
Hildur Guðrún sagði að mennirnir
við götuvígið hefðu hins vegar ekki
verið ógnvekjandi: „Þeir brostu og
hjálpuðu gangandi vegfarendum að
komast yfir tálmann."
Að sögn Hildar Guðrúnar reyna
Sovétmenn að láta fyrirlestrahald
ekki falla niður og ráðstefnan sjálf
gengur nokkurn veginn samkvæmt
áætlun. Hins vegar hefðu fallið nið-
ur skoðunarferðir á vegum Intúríst,
sem fara átti í gær.
Hildur Guðrún sagði að nokkurs
óróleika gætti meðal erlendra ráð-
stefnugesta, sérstaklega þeirra
enskumælandi. Þó virtust menn
ekki ætla að yfirgefa ráðstefnuna
fyrr en henni lyki. „Bandaríkja-
mennimir og Kanadamennirnir
hafa haft samband við sendiráð sín
og fylgjast grannt með áætlunar-
flugi frá Moskvu," sagði Hildur
Guðrún. „En ég veit ekki til þess
að nokkur hafi farið. Við förum
sennilega minna út á kvöldin en við
hefðum gert ef allt hefði verið með
felldu. Eins og ástandið er núna
förum við beint heim á hótel þegar
móttökum og öðru slíku lýkur.“
Um 1.100 erlendir og 400 sov-
éskir bókasafnsfræðingar sækja
þingið, sem stendur fram að helgi.
Fulltrúar eistlenskra yfirvalda
tjáðu Aeuíers-fréttastofunni í gær-
kvöldi að valdataka harðlínumanna
í Sovétríkjunum á mánodag hefði
haft það í för með sér að lýðveldið
gæti ekki endurheimt sjálfstæði sitt
með samningaviðræðum við mið-
stjórnina í Moskvu.
Eystrasaltsríkin þrjú veittu í gær
þremur háttsettum mönnum umboð
til að mynda útlagastjórnir erlendis
og mæltu svo fyrir að þeir skyldu
dvelja erlendis ef svo færi að so-
vésk stjórnvöld reyndu að taka völd-
in í löndunum.
Mennimir þrír eru Dainis Ivans,
varaforseti Æðstaráðs Lettlands,
Algirdas Saudargas, utanríkisráð-
herra Litháens, og Lennart Meri,
utanríkisráðherra Eistlands. í gær
var Meri í Finnlandi og Saudargas
í Varsjá í Póllandi. Ekki var vitað
hvar Ivans var niðurkominn.
Þessi tilkynning barst frá Eystra-
saltslöndunum í gær en þar var
mikill viðbúnaður sovéska hersins.
í Eistlandi bámst fréttir af því að
um 100 brynvagnar hefðu ekið um
Tallinn til herbúða handan borgar-
innar. Sovéski herinn stöðvaði einn-
ig samgöngur til landsins frá lofti
og af sjó.
í Lettlandi og Litháen, þar sem
ráðamenn hafa fordæmt valdarán-
ið, héldu hersveitir enn sjónvarps-
og útvarpsstöðvum en ekki kom til
ofbeldis. í Riga, höfuðborg Lett-
lands, hernámu sveitir símstöðina
og samband slitnaði við umheiminn
um stundarsakir. Samgönguleiðir
til og frá landinu voru áfram lokað-
ar.
í fyrrinótt felldu sérsveitir inn-
anríkisráðuneytisins bílstjóra í Lett-
landi og var hann fyrsta fórnarlamb
valdaránsins í Moskvu. Óstaðfestar
fréttir sögðu að annar maður hefði
verið í bílnum og hefði hann særst.
Þrátt fyrir viðbúnað sovéska
hersins í lýðveldunum þremur virð-
ast hermennirnir ekki reiðubúnir
að beita valdi. Háttsettir embættis-
íslendingar í Sovétríkj-
unum eru sagðir óhultir
ÓLAFUR Egilsson sendiherra
íslands í Moskvu segir að á ann-
an tug Islendinga séu nú staddir
í Sovétríkjunum. Ekkert mun
ama að fólkinu og eru sumir
Islendingarnir á heimleið.
Fimm íslendingar, Þorsteinn
Tómasson forstjóri Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins, Ólafur
„ÁKVARÐANIR varðandi mót-
töku flóttamanna frá Sovétríkj-
unum hingað til lands eru í hönd-
um stjórnvalda, en komi til
fjöldaflótta þaðan og verði
ákveðið að taka við flóttamönn-
um hingað til lands er Rauði
kross Islands innilega tilbúinn
að verða þeim til aðstoðar á
hvern þann hátt sem verða má,“
sagði Hannes Hauksson, fram-
kvæmdastjóri RKÍ, í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Fulltrúar frá RKÍ eru nú að halda
á árlegan fund norrænna Rauða
Guðmundsson varaforstjóri stofn-
unarinnar, Gunnlaugur Júlíusson
hagfræðingur Stéttarsambands
bænda og Jón Loftsson skógrækt-
arstjóri voru staddir í Magadan í
Síberíu í embættiserindum. Með
þeim í för var sonur Þorsteins á
sautjánda ári. Fimmmenningarnir
fóru til Alaska í gærkvöldi. Þá var
kross félaga, þar sem ástandið í
Sovétríkjunum verður í brennidepli.
Hannes sagði, að stjórnvöld á þeim
Norðurlöndum sem næst eru Sovét-
ríkjunum hefðu miklar áhyggjur af
mögulegum flóttamannastraumi
þaðan. „Ef koma skyldi til slíks
hafa Svíar rætt um að veita um
10 þúsund flóttamönnum hæli,“
sagði Hannes. „Það samsvarar því
að Island tæki á móti um 320 flótta-
mönnum, sem yrði að sjálfsögðu
langstærsti hópur flóttamanna sem
hingað hefur komið.“
einn maður, Trausti Eiríksson for-
stjóri Traust-verksmiðju hf., í við-
skiptaerindum á Sjakalín-eyju, þrír
menn frá sömu verksmiðju eru
staddir í litlum bæ, Ura-Guba, á
Kolaskaga við uppsetningu fisk-
vinnsluvéla.
Fjórir íslenskir ferðamenn eru
saman á ferðalagi í Sovétríkjunum
og komu tveir þeirra til Moskvu
frá Leníngrad_ í fyrradag. Höfðu
þeir, að sögn Ólafs, orðið varir við
mótmælafundi í Leníngrad, en ekki
orðið fyrir töfum á ferðalagi sínu.
Auk þeirra er ungur maður og
stúlka á ferðalagi í Sovétríkjunum,
nú stödd í Moskvu. Þá er leikkonan
Alexandra Kjuregej Argunova
stödd í Moskvu ásamt syni sínum,
Ara Magnússyni, þar sem þau taka
þátt í ráðstefnu rússneskra lista-
manna búsettra utan Sovétríkj-
anna, en Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, boðaði til ráðstefnunn-
ar á sínum tíma. Mæðginin hugð-
ust ekki gera breytingu á ferðaá-
ætlun sinni þrátt fyrir ástandið
heldur sitja ráðstefnuna til enda.
Flutningaskipið Svanur frá Nesi
hf. losnaði úr slipp í Stettín í Pól-
landi í fyrradag. Fyrirhugað var
að skipið héldi til Leníngrad til að
lesta þar timbur, en för skipsins
var frestað vegna ótryggs ástands
í Sovétríkjunum
Framkvæmdastjóri RKÍ:
Erum reiðubúin til að
hjálpa flóttamönnum
menn í Tallinn tjáðu Reuters-frétta- að þeir myndu ekki beita valdi gegn
stofunni að að hermennirnir sem í fólkinu jafnvel þótt skipun um það
borginni væru hefðu gefið í skyn bærist frá nýju valdhöfunum.
Lára Margrét og Jóliann-
es fara til Ríga síðdegis
ÞINGMENN-
IRNIR Lára
Margrét Ragn-
arsdóttir og Jó-
hannes Geir
Signrgeirsson
lögðu í morgun
af stað í funda-
ferð til Eystra-
saltslanda.
Ferð þeirra var frestað um
sólarhring, að tilhlutan Eyjólfs
Konráðs Jónssonar, formanns
utanríkismálanefndar, vegna
hins ótrygga ástands í Svov-
étrílqunum.
Lára og Jóhannes halda frá
Stokkhólmi til Ríga síðdegis í
dag. Þar slást þau að sögn Láru
í hóp 30-40 þingmanna frá Norð-
urlöndum, Þýskalandi og fieiri
löndum í Vestur-Evrópu. Ríki-
stjómir Eystrasaltsríkjanna buðu
þingmönnum frá
Vestur-Evrópu
að koma og
ræða ujn Eystra-
saltslöndin og
nýja Evrópu.
Fyrsti fundur
þingmannanna
er í Tallinn í dag
og þar á að sögn
Lára að taka ákvörðun um fram-
hald fundahalda. Ætlunin hefur
verið að hópurinn færi til Ríga
síðdegis, ræddist við þar á morg-
un og í Vilníus á föstudag.
Lára kveðst gera ráð fyrir að
fundirnir verði í þinghúsum höf-
uðborganna þriggja. Ekki sé þó
unnt að fullyrða neitt þar sem
ekki hafi náðst samband héðan
til Tallinn í gær. Fyrirhugað er
að þingmennirnir haldi heimleiðis
frá Litháen á laugardag.
Lára Margrét
Jóhannes Geir
Ferðalög til Sovétríkjanna:
Hætt við vandræðum
breiðist verkföll út
segir Olafur Egilsson sendiherra
ÓLAFUR Egils-
son sendiherra í
Moskvu sagði í
gær í samtali
við Morgun-
blaðið að engar
orðsendingar
eða skilaboð
hefðu komið frá
nýjum valdhöf-
um í Sovétríkj-
unum til sendiráðsins. Einu skila-
boðin bærust með ritskoðuðum
dagblöðum sem leyft er að gefa
út. Ólafur sagði á annan tug ís-
lendinga stadda í Sovétríkjunum,
en ekkert benti til þess að för
þeirra myndi seinka; millilanda-
flug væri að því er hann best vissi
með eðlilegum hætti og samgöng-
ur innanlands sömuleiðis. Hann
sagði hugsanlegt að verkföll
breiðist út og þá gætu vandræði
orðið í samgöngumálum og verði
menn að meta það út frá erindum
sinum hvort þeir taki sér för á
hendur til Sovétríkjanna.
Ólafur sagði að ríkisstjórn Rúss-
lands hefði tekist að koma upp út-
varpsstöð í gær og væri stanslaust
útvarpað yfirlýsingum stuðnings-
manna Boris Jeltsíns forseta, auk
þess sem útvarpið væri notað til að
koma skilaboðum á milli manna.
Útvarpið er í byggingu stjórnarset-
urs Rússlands, skammt frá Kreml.
Ólafur kvaðst ekki telja að útvarps-
sendingarnar næðust langt út fyrir
borgarmörk Moskvu.
Hann sagði að flugsamgöngur
gengju eðlilega fyrir sig, að því er
hann best vissi, en þó hefði hann
haft óstaðfestar spurnir af töfum.
Samgöngur innan borgarinnar, svo
sem neðanjarðarlestakerfið, væra
með eðlilegum hætti. Hins vegar
væru einhveijar tafir á bflaumferð,
einkum vegna vegatálma sem mót-
mælendur hafa komið fyrir.
Ólafur sagði að síðdegis í gær
hefði tilkynning borist um að þriggja
daga ferð forstöðumanna sendiráða
í Sovétríkjunum til Novgorod í boði
sovéskra stjórnvalda hefði verið af-
lýst. Engar skýringar hefðu verið
gefnar á því.
Reuíers-fréttastofan greindi frá
því í gær að útvarpsstöð í Berlín,
Berliner Rundfunk, hefði hafið út-
sendingar á rússnesku ætlaðar sov-
éskum þegnum í austurhluta Þýska-
lands. Útvarpsstöðin sendir út frétt-
ir á rússnesku í fimm mínútur á
klukkustundarfresti.
Útsendingum
Sky og CNN
fram haldið
um óákveð-
inn tíma
FRÉTTASTOFUR Sjónvarps og
Stöðvar 2 hófu í fyrradag frétta-
útsendingar gervihnattastöðv-
anna Sky News og CNN til að
sinna fréttaþörf landsmanna
vegna atburðanna í Sovétríkjun-
um. Útsendingunum verður fram
haldið um óákveðinn tíma, á
meðan slík óvissa ríkir um þróun
mála þar í landi.
Sjónvarpið hóf útsendingar um
10-Ieytið í fyrradag. Að sögn Boga
Ágústssonar fréttastjóra var fyrst
í stað aðeins ætlunin að senda út
fréttir í einn dag en atburðirnir í
Sovétríkjunum þóttu gefa tilefni til
áframhaldandi útsendinga. Endur-
sögn á íslensku verður skotið inn
með reglulegu millibili.
Sigmundur Ernir Rúnarsson
varafréttastjóri á Stöð 2 sagði að
spilað yrði af fmgrum fram með
útsendingar CNN. Hann sagði að
miðað yrði við þær reglur sem stöð-
inni hefðu verið settar um endur-
sögn á íslensku og bann við auglýs-
ingum.
Ólafur Egilsson