Morgunblaðið - 21.08.1991, Side 7
MORGUNBLAÐHp, MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚSI 1991
--,----------------------------:--í—i----
7
Ágætt í Selá
Hörður Óskarsson, umsjónar-
maður sölu veiðileyfa í Selá, sagði
í samtali við Morgunblaðið að
Selá hefði nú gefið rúmlega 600
laxa og væri það vel viðunandi,
sérstaklega vegna þess að reyndir
Selármenn hefðu reiknað með því
að niðursveifla myndi verða í veið-
inni í sumar. Holl sem nýlega
voru á neðra veiðisvæðinu fengu
rúma 50 laxa og annað 36 laxa.
Eitt til um 40 laxa. Veiðin hefur
verið síst lakari á Leifsstaðasvæð-
inu, efra svæðinu, þar sem veitt
er á þrjár stangir. Nýlega var þar
holl sem var komið með 22 laxa
eftir tvo daga. Mikill lax var sagð-
ur víða á svæðinu. Hörður sagði
að brögð hefðu verið að því að
neðri hluti árinnar „héldi ekki
fiski“ eins vel og áður, eins og
hann orðaði það. Gamlir og góðir
veiðistaðir hefðu sumir lítið gefið
þar eð laxinn virtist bruna í gegn
og inn á efri svæði í ánni. Nefndi
hann Langhyl, Bleikjupoll og einn
frægasta veiðistað Selár, sjálfan
Vaðhylinn. Það er mest smálax
sem kemur á land um þessar
mundir og sumt af því undirmáls-
fiskur, 3 til 4 pund. „Það þykja
tittir hér,“ sagði Hörður.
Meira úr Leirvogsá
Meira reyndist hafa veiðst í
Leirvogsá heldur en fram kom í
Morgunblaðinu um helgina. Guð-
mundur í Leirvogstungu, formað-
ur veiðifélagsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið að þar væru nú
komnir 270 laxar á land. Mikill
fiskur er um alla á og reiknaði
Guðmundur með þvi að áin færi
ekki undir meðalveiði síðustu tíu
ára. „Það er enn talsvert áf laxi
að ganga, það komu til dærnis
13 laxar á land á mánudaginn og
flestir þeirra voru grálúsugir,"
sagði Guðmundur.
Hérogþar ...
Það er farið að veiðast og veið-
ast vel í Laxá í Dölum. Það vant-
aði bara vatnið í ána. Morgunblað-
ið sló á þráðinn til Árna Baldurs-
sonar sem var að veiða í ánni í
gær, hann var við annan mann
og höfðu þeir fengið 15 laxa á
einum og hálfum degi. Eitt hollið
sem lauk sér af fyrir skömmu
fékk 140 laxa.
Lausleg talning bendir til þess
að rúmlega 300 merktir laxar
hafi veiðst í Laxá í Kjós í sumar.
Eru það heimtur úr sleppingu
30.000 gönguseiða síðasta sumar
og menn telja að mikið sé af hin-
um merkta laxi í ánni. Margt af
laxinum er smátt, 3 til 4 pund,
þeir stærstu 5,5 pund, en þeir eru
einnig til alveg niður í rúm 2
pund. Leigutakar árinnar vonast
til þess að að minnsta kosti annað
eins veiðist af merktu löxunum,
en þess má geta, að í vikubyrjun
-var heildarveiðin úr Laxá í Kjós
og Bugðu komin i um 1.200 laxa.
Markrnið sleppingarinnar á sínum
tíma var að sjálfsögðu að auka
veiðina í ánni og það hefur tek-
ist. Án sleppingarinnar næmi
veiðin aðeins um 900 löxum.
gg
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Yrðlingur í hásæti
Á hveiju vori fara grenjaskyttur af stað til að vinna greni. Tilgangur-
inn með veiðunum er að halda refastofninum niðri að einhveiju leyti
og koma í veg fyrir hagsmunaárekstra við mannskepnuna. Á mynd-
inni er lítill yrðlingur sem náðist úr greni í Arnarfirði. Því er ekki
að neita að yrðlingar eru fallegir, sérstaklega svona litlir.
R. Schmidt.
Þjóðviljinn:
Starfsfólki
sagl upp
störfum
í TENGSLUM við greiðslustöðv-
un Bjarka hf., útgáfufélags Þjóð-
viljans, hefur öllu starfsfólki
blaðsins, um 40 manns, verið sagt
upp störfum.
Eins og greint var frá í Morgun-
blaðinu í.gær var Bjarka hf. á mánu-
dag veitt greiðslustöðvun til tveggja
mánaða. Ætlun stjórnenda blaðsins
er að endurskipuleggja rekstur þess,
og afia um 2000 áskrifta til að
tryggja áframhaldandi útgáfu.
Að sögn Halls Páls Jonssonar,
framkvæmdastjóra Þjóðviljans, hafa
engar viðræður farið fram um mögu-
lega sameiningu Tímans, Þjóðviljans
og Alþýðublaðsins en hugmyndir
hafa verið settar fram um það.
„Sameining blaðanna er vissulega
raunhæfur möguleiki, en hitt er ann-
að mál að okkur er fremst í huga
að ná fram áætlunum okkar um að
tryggja blaðinu. starfsgrundvöll,"
sagði hann. Hallur sagðist persónu-
lega ekki vera hlynntur sameiningu
blaðanna eins og á stendur.
Eldurvið ER SÚ GAMLA
bensíndælu ORÐIN LÉLEG?
LÖGREGLUNNI í Reykjavík var
tilkynnt um eld við bensíndælu á
bensínstöð Skeljungs á Bústaða-
vegi laust eftir miðnætti aðfara-
nótt sl. þriðjudags. Þegar
slökkvilið kom á vettvang logaði
í bensíni á tveimur stöðum við
eina bensíndæluna og gekk
greiðlega að slökkva eldinn. Að
sögn lögreglu hefði stórslys geta
hlotist af.
Maður sem átti leið á bensínstöð-
ina tilkynnti um eldinn sem hann
sagði að tveir menn sem keypt
höfðu bensín hefðu kveikt. Að sögn
lögreglu kvaðst annar maðurinn,
sá er valdur varð að eldinum, hafa
ætlað að kveikja sér í vindlingi með
kveikjara en misst hann niður á
jörðina með þeim afleiðingum að
það kviknaði í bensíni.
Vantar þig nýja útihurð?
Bjóðum glæsilegt úrval útihurða sem fara eldri húsum sérlega
vel.
Vandaðar hurðir byggðar á áratuga reynsiu okkar við framleiðslu
útihurða fyrir íslenska veðráttu.
Framleiðum aðeins alvöru útihurðir, útihurðir eru okkar sérgrein.
Komdu við í sýningarsal okkar og skoðaðu úrvalið, þú verður ekki
fyrir vonbrigðum.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíðum Moggans!
HYGGINN VELUR
HIKO-HURÐ
HURÐAIÐJAN
KÁRSNESBRAUT 98 - SÍMI43411
200 KÓPAVOGUR
BÍLATORG
BBTRIBÍLASALA
NÓATÚN 2 - SÍMI621033
TOYOTA LANDCRUSER VX 1991
Gullsans., sjálfskiptur, sóllúga, dráttarbeisli. Ekinn 8 þús. km.
FORD ECONOLINE 250 CLUBVAGON XLT1991
Hvítur, rafmagn í rúðum og læsingum, vél 351, sjálfskiptur,
vökvastýri, sæti fyrir allt að 12 manns.
Ekinn 6 þús. km. Verð 2.700.000,- Skipti.
Afbragös sogstykki ná til ryksins, hvar sem er
NILFISK er vönduö og tæknilega ósvikin vara, löngu
landsþekkt fyrir frábæra eiginleika og dæmalausa endingu.
Njóttu 3ja ára ábyrgðar op fullkominnar
varahluta-og viðgeröarþjonustu okkar.
Veröiö kemur þér þægilega á óvart, því NILFISK
kostar aöeins frá kr. 20.450,- (19.420,- stgr.).
JrQ nix
HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420_
NILFISKj
STERKA RYKSUGANl
Öflugur mótor meö
dæmalausa endingu.
Kónísk slanga,
létt og lipur.
Stillanlegt sogafl
á þægilegan hátt.
10 lítra poki og
frábær ryksíun.