Morgunblaðið - 21.08.1991, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
VA L DA RANIÐ I KREML
Vongóð um að neyðar-
nefndin beiti ekki valdi
— segir sovéska skáldið Irína Ratúsjinskaja
ÍRÍNA Ratúsjinskaja, eitt virtasta skáld okkar daga á rússneska
tungu, var slegin óhug þegar hún frétti af því að Míkhaíl Gorbatsj-
ov, forseta Sovétríkjanna, hefði verið steypt. Hún kvaðst hins vegar
í viðtali við Morgunblaðið í gær vera vongóð um að neyðarnefndin
myndi ekki beita valdi til að þagga niður í Borís Jeltsín, forseta
Rússlands, og öðrum andstæðingum hennar.
„Þetta eru
hryllilegir at-
burðir og
sennilega
ástæða til að
örvænta en
þeir sem ég hef
rætt við í
Moskvu í dag
virtust satt að
segja bjartsýn-
ir og kátir. Ég
talaði við vin
minn, sem er
þingmaður, í
Moskvu áðan og eftir orðum hans
að dæma var ástandið við þjóðþing-
ið þannig að meiri von er til að
ætla að friður haldist en fréttamenn
breska sjónvarpsins segja," sagði
Ratúsjinskaja þegar tal náðist af
henni í íbúð hennar í London síðdeg-
is í gær. Þetta var skömmu eftir
að neyðarnefndin sendi herafla að
þinghúsi rússneska þjóðþingsins.
„Ég er vongóð um að ekki komi tii
átaka,“ sagði hún.
Ratúsjinskaja kvaðst fá stöðugar
fréttir frá Moskvu og hljóðið í vinum
sínum þar væri gott. Hún kvaðst
hafa heimildir fyrir því að Jeltsín
bættist stöðugt liðsauki. Sveit
Spetznatz-manna hefði komið til
vamar lýðræðissinnum í þinghúsinu
og einnar stjömu herforingi, Levit
að nafni, hefði komið til leiks með
sveit manna.
„Ég veit að þessu er ekki lokið,
en ég geri mér vonir um að ekki
komi til blóðsúthellinga," sagði
Ratúsjinskaja. „Jeltsín og stuðn-
ingsmenn hans munu ekki gefast
upp.“
Ratúsjinskaja kvaðst telja að
Moskvubúar væru reiðubúnir til að
bjóða herstjórninni byrginn og
tækju hana hæfilega alvarlega.
„Til marks um það heyrði ég að
lýðræðissinnar hefðu gert áttmenn-
ingana í neyðarnefndinni útlæga.
Þeir prentuðu veggspjöld með
myndum af þeim þar sem fólk er
beðið að handtaka þessa útlaga sjá-
ist þeir á götu.“
Ratúsjinskaja var fyrst handtek-
in fyrir andóf í Sovétríkjunum árið
1981. Hún var handtekin aftur ári
síðar og dæmd til sjö ára vinnu-
þrælkunar fyrir að grafa undan
stjórnvöldum árið 1983. Þegar hún
hafði verið í fangabúðum í þrjú ár
var hún látin laus og send úr landi.
Meðan á ofsóknunum gegn henni
stóð komu ljóð hennar fyrir augu
Sovétmanna í flugritum andófs-
manna, en á Vesturlöndum voru
þau iofuð af gagnrýnendum og
gefin út í enskri þýðingu bæði á
Bretlandi og í Bandaríkjunum sem
og í vestrænum tímaritum á rússn-
esku.
Sovéska skáldið
Irína Ratúsjinskaja.
Sovétfáninn lagfærður
Andstæðingur áttmenningaklíkunnar sem rænt hefur völdum í Sovétríkjunum heldur á sovéskum fána.
Búið er að klippa tákn kommúnismans, hamarinn og sigðina, úr fánanum. í baksýn eru þúsundir manna
sem tóku þátt í útifundi er haldinn var við rússneska þinghúsið í gær til að mótmæla valdaráninu.
Atta dagblöð voru gefin út
segir Peter Vassílíev hjá Interfax
PETER Vassílíev, hjá óháðu
fréttastofunni Interfax í Moskvu,
sagði í samtaii við Morgunblaðið
að mikil spenna væri í borginni,
óvissa væri rikjandi og framvind-
an gæti orðið á hvern veg sem
væri. Hann sagði að átta dagblöð
hliðholl nýju valdhöfunum hefðu
verið gefin út í gær en til marks
um ritskoðunina sagði hann að
ehkert ‘hefði enn verið greint
opinberlega frá blaðamanna-
fundi sem Edúard Shevardnadze,
fyrrverandi utanríkisráðherra,
hélt í fyrradag.
Aðspurður um hvernig væri að
starfa við slíkar kringumstæðar að
fréttaöflun sagði Vassílíev: „Ég á
von á því að það verði enn þrengt
að okkur, en ég vil ekki fara nánar
út í það.“ Hann sagði að ein frjáls
útvarpsstöð væri starfandi í borg-
inni, Moskva Eco, og tvær óháðar
fréttastofur, Interfax og Rússneska
upplýsingaþjónustan, sem komið
var á laggirnar af stuðningsmönn-
um Borís Jeltsíns, forseta Rúss-
lands. Vassílíev kvaðst ekki hafa
heyrt um að sovéskir borgarar
hefðu flúið land, enn sem komið
væri, og ekki vissi hann til þess að
reynt hefði verið að stöðva ferðir
þeirra sem færu í ferðalög til út-
landa.
Yfirlýsingar nýju valdhafanna:
Neyðamefndin segist hlynnt
umbótum og markaðsbúskap
Moskvu. Reuter.
Á FRÉTTAMANNAFUNDI í Moskvu á mánudag sagði Gennadíj
Janajev, sjálfskipaður forseti Sovétríkjanna, að neyðarnefndin sem
steypti Míkhaíl Gorbatsjov af forsetastóli myndi vinna áfram að því
að koma á umbótum í átt til lýðræðis og markaðsbúskapar. Janajev
sagði einnig að ekki hefði verið látið af áformum um að undirrita
nýjan sambandssáttmála, en fólki gæfist kostur á að 'ræða málið
frekar. Hér fer á eftir, nokkuð stytt, útvarpsávarp neyðarnefndarinn-
ar til sovésku þjóðarinnar, en hluti þess birtist í Morgunblaðinu í
gær, þnðjudag.
Ágætu samlandar! íbúar Sov-
étríkjanna! Við ávörpum ykkur nú
á þessari örlagastund þar sem fram-
tíð landsins og íbúa þess eru að
veði. Mikil hætta vofir yfir hinni
miklu ættjörð okkar!
Umbótastefna Míkhaíls Gorb-
atsjovs, sem hugsuð var sem leið
til að tryggja framþróun landsins
og koma á lýðræðislegu þjóðfélagi,
hefur, ýmissa orsaka vegna, beðið
skipbrot. Þær væntingar og vonir
sem bundnar voru við hana í upp-
hafi hafa látið undan síga fyrir
vantrú, sljóleika og örvæntingu.
Ibúarnir hafa misst trúna á öll yfir-
völd. Hið opinbera hefur ekki sýnt
umhyggju fyrir framtíð landsins og
fólksins vegna stjómmálavafsturs.
Kaldhæðni hefur grafið um sig í
ríkisstofnunum. Ekki er í raun
hægt að stjóma landinu lengur.
Troðið á „græðlingum
lýðræðis"
Öfgafull öfl, sem færa sér í nyt
frálsræðið sem komist hefur á, og
troða á græðlingum lýðræðis sem
rétt hafa skotið upp kollinum, hafa
fylgt stefnu sem hefur það að mark-
miði að tvístra Sovétríkjunum, að
stuðla að falli ríkisins, og þau hafa
beitt öllum meðulum til að taka öll
völd í sínar hendur.
Þau hafa lítilsvirt þjóðarat-
kvæðagreiðslu um einingu ættjarð-
arinnar. Þau hafa höfðað á kald-
hæðinn hátt til tilfinninga þjóðar-
innar og notað sér þær til fram-
dráttar, aðeins til að hylma yfir því
að verið var að svala eigin metorða-
gimi. Hvorki núverandi erfiðleikar
þjóðarinnar né framtíð hennar
skipta þessa pólitísku tækifæris-
sinna nokkm máli.
Þeir hafa innleitt andrúmsloft
sálrænnar og pólitískrar hræðslu
og ætla sér að beita trúgirni fólks
til að leyna tilgangi sínum. Þeir
gleyma því að til þeirra banda, sem
þeir hafa skorið á og vanvirt, var
stofnað til af miklu víðara trausti
almennings en þeir njóta og böndin
hafa þar að auki staðið af sér próf-
raunir sögunnar.
Nú er hins vegar að því komið
að þeir sem hafa unnið að því að
kollvarpa stjórnarskránni verða að
svara til saka frammi fyrir feðrum
og mæðmm hinna mörg hundruð
fórnarlamba þjóðernisátaka sem átt
hafa sér stað innan Sovétríkjanna.
Þeir hafa á samvisku sinni að hafa
eyðilagt líf hálfrar milljónar flótta-
manna. Þeim má þakka það að tug-
milljónir Sovétborgara, sem fyrir
skömmu voru hluti af samhentri
fjölskyldu, eru í dag útlagar í eigin
landi, hafa glatað ró sinni og glað-
værð.
Orðaflaumur og hafsjór yfirlýs-
inga og loforða hafa einungis undir-
strikað fátækt og máttleysi aðgerða
þeirra. Ásælni í aukin völd, sem er
öllu öðm hættulegri, er að slíta land
okkar og samfélag í sundur.
Hver einasti Sovétborgari finnur
fyrir vaxandi óvissu um morgun-
daginn og kvíða fyrir framtíð barna
sinna. Valdakreppan hefur haft
hörmuleg áhrif á efnahagslífið.
Upplausn og stjórnlaust skrið í átt
að markaðsbúskap hafa valdið því
að eiginhagsmunahyggja hefur
sprengt af sér öll bönd - héraðs-
bundin, stofnanabundin, innan hópa
og á meðal einstaklinga.
Það er kominn tími til að segja
þjóðinni sannleikann: Ef ekki verður
gripið til gagngerra og afdráttar-
lausra aðgerða til að koma á jafn-
vægi í efnahaginum svo fljótt sem
auðið er blasir hungursneyð og enn
frekari fátækt við og þá er skammt
í að almenningur láti óánægju sína
í ljós með skelfilegum afleiðingum.
Einungis óábyrgt fólk getur sett
traust sitt á erlenda aðstoð í ein-
hverri mynd. Ölmusur munu ekki
leysa vanda okkar. Það er undir
okkur sjálfum komið að bjarga
málum. Kominn er tími til að hver
einstaklingur og samtök verði metin
og virt samkvæmt raunverulegu
framlagi sínu til þess að stuðla að
afturbata og þróun efnahags þjóð-
arinnar.
Særingaþulur um tillit til
einstaklingsins
Um langt skeið hafa særingar-
þulur um tillit til einstaklingsins og
umhyggju fyrir réttindum hans og
félagslegu öryggi kveðið við úr öll-
um áttum. í raun réttri hefur fólki
fundist það vera lítilsvirt og gengið
á hin sönnu réttindi þeirra og mögu-
leika, og það örvæntir vegna þessa.
Atorkusemi og áhrifamáttur allra
lýðræðislegra stofnana, sem mega
þakka tilurð sína vilja fólksins, eru
að ijara út frammi fyrir augum
okkar. Þetta má rekja til vísvitandi
aðgerða þeirra sem á svívirðilegan
hátt hafa hafa troðið á grundvallar-
lögum Sovétríkjanna og eru í raun
að að greiða stjómarskránni náðar-
högg með því að vinna að því að
koma á óbeisluðu einræði.
Héraðstjóraembætti og borgar-
stjóraembætti ásamt öðrum lög-
leysum eru í síauknum mæli og að
því er virðist eftir geðþótta að koma
í stað þess fyrirkomulags í Sov-
étríkjunum sem þjóðin hefur kosið.
Atlaga að réttindum verkafólks er
hafin. Réttinum til vinnu, til mennt-
unar, til heilsu, til að hafa þak yfir
höfuðið o.s.frv. hefur verið stefnt í
hættu. Jafnvel persónulegu öryggi
fólks hefur verið ógnað í æ ríkara
mæli.
Glæpir fara sívaxandi, þeir eru
að verða skipulagðir og þá má rekja
til pólitískra hagsmuna. Landið
stefnir hraðbyri í átt að hyldýpi
ofbeldis og stjórnleysis. Aldrei í
sögu þess hefur borið eins mikið á
áróðri í kynferðis- og ofbeldismál-
um sem lífi og heilsu komandi kyn-
slóða stendur ógn af.
Milljónir manna krefjast þess að
gripið verði til aðgerða gegn hinum
marghöfða þurs glæpa og hneyksl-
anlegs siðgæðis. Vaxandi upplausn
stjómmála- og efnahagskerfisins í
Sovétríkjunum er að grafa undan
stöðu okkar gagnvart umheiminum.
Sums staðar hafa raddir land-
heimtumanna heyrst og kröfur um
endurskoðun landamæra okkar
hafa verið lagðar fram. Jafnvel
hafa heyrst raddir sem kreijast
þess að Sovétríkin verði leyst upp
og að hugsanlega verði komið upp
alþjóðlegri vörslu á hagsmunum
einstaklinga og landsvæðum.
Niðurlæging Sovétborgarans
Þannig er bitur raunveruleikinn.
Fyrir skömmu fannst Sovétborgar-
anum, sem staddur var erlendis,
hann vera virtur borgari í áhrifa-
miklu og mikilsmetnu ríki. í dag
er hann annars flokks útlendingur
sem sætir viðmóti sem ber annað
hvort óbeit eða aumkun vitni. Stolt
og heiður Sovétborgarans verða að
endurheimtast að fullu.
Neyðarnefndin gerir sér fulla
grein fyrir umfangi kreppuástands-
ins í landinu. Hún tekur ábyrgð á
örlögum fóstuijarðarinnar á sínar
herðar og hún er staðráðin í að
grípa til hvaða aðgerða sem þörf
er á til að leiða ríkið og þjóðfélagið
úr kreppuástandinu svo fljótt sem
auðið er.
Við lofum að efna til víðfeðmrar
umræðu sem ná mun til landsins
alls um uppkastið að nýja sam-
bandssáttmálanum. Hverjum og
einum mun gefast kostur á að gagn-
rýna þetta gífurlega mikilvæga
skjal í rólegu andrúmslofti og
ákveða hvort hann sé fylgjandi því,
þar sem örlög ótal þjóðarbrota í
okkar gríðarstóra fósturlandi velta
á því hvað verður um sambandsrík-
ið.
Við ætlum okkur að koma aftur