Morgunblaðið - 21.08.1991, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
Safnar eitt þúsund
tonnum af brota-
járni o g bílum
KRISTINN Svansson starfsmaður íslenska stálfélagsins hefur ver-
ið á ferðinni um Norðurland í rúman mánuð í þeim tilgangi að
pressa brotajárn og bíla. Afrakstur ferðarinnar verður sóttur í
"*íiust, fluttur suður til Hafnarfjarðar í stáibræðslu félagsins og
járnið brætt upp aftur. Þegar hefur Kristinn unnið um 600 tonn,
en hann bjóst við að heildarmagnið yrði hátt í 1.000 tonn er ferð
hans um norðlensk sveitarfélög lyki.
Kristinn var að störfum á Þórs-
höfn í gær, en hann sagði að þar
væri mikið magn sem pressa þyrfti,
líklega um 80-100 bílar auk ann-
ars eða um það bil 100 tonn af
járni. Kristinn hóf ferðina á Reyk-
hólum, fór síðan til Hvammstanga,
Blönduóss, Skagastrandar, Sauð-
FSA og Akureyrarbær:
Sameiginlegt
skóladag-
heimili í
Þórsheimilinu
TIL stendur að Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri og Ak-
ureyrarbær muni í sameiningu
reka skóladagheimili í hluta af
Hamri, félagsheimili íþróttafé-
lagsins Þórs. Stefnt er að því
að sameiginlegur rekstur þar
hefjist 1. október næstkomandi,
en pláss verður fyrir 30 börn á
heimilinu.
Ingi Björnsson framkvæmda-
stjóri FSA sagðist vera mjög
ánægður með að bærinn gengi til
samstarfs við sjúkrahúsið um
rekstur skóladagheimilis. „Þetta
er góð lausn fyrir okkur, við höfum
lengi verið á hrakhólum með skóla-
dagheimili okkar, verið í leiguhús-
næði hingað og þangað um bæinn.
Það er að sjálfsögðu ekki yfirlýst
stefna sjúkrahússins að reka
skóladagheimili, en við höfum tal-
To okkur þurfa það til að fá fólk
til starfa,“ sagði Ingi.
Skóladagheimilið verður rekið í
austurhluta félagsheimilisins, þar
verður til umráða stór salur og
íbúð. Stefnt er að því að hinn sam-
eiginlegi rekstur hefjist 1. okto-
ber, fáist samþykki bæjarstjórnar
Akureyrar. Þar verður rúm verði
fyrir 30 börn og mun FSA fá til
umráða helming plássanna á móti
bænum.
STEFAMIA
AKUREYRI
Hausttilboð
Gisting í 2ja
manna herbergi
fró kr. 2.650.-
pr. mann.
Frábærar steikur.
Gott veró.
Hótel Stefcmía,
restaurant,
sími 96-1 1400.
árkróks, Hofsóss og Mývatnssveit-
ar, en þegar verkinu á Þórshöfn
lýkur heldur hann til Raufarhafn-
ar, Kópaskers og Húsavíkur. Þegar
hafa safnast um 600 tonn af járni
í ferðinni, en Kristinn bjóst við að
magnið yrði um 1.000 tonn í heild-
ina.
Íslenska stálfélagið vinnur verk-
ið í samvinnu við sveitarfélögin á
hverjum stað og liggur fyrir samn-
ingur milli áðurnefndra sveitarfé-
laga og félagsins, en sveitarfélögin
sjá um að safna brotajárninu á
einn stað. Þar til gerður bíll er
notaður í ferðina, en hann er notað-
ur til að pressa járnið. í haust er
síðan ætlunin að senda skip eftir
járninu og það verður síðan flutt
í stálbræðslu félagsins í Hafnar-
firði, þar sem það verður brætt
upp að nýju og flutt utan.
„Þetta er mikil hreinsun fyrir
landið, hvarvetna hafa bílhræ verið
fólki til ama í umhverfinu, en nú
hverfur það allt,“ sagði Kristinn,
en ætlunin er að félagið muni að
jafnaði koma á staðina einu sinni
á ári. Þessi ferð er sú fyrsta sem
félagið fer eftir brotajárni út á
landsbyggðina. „Þetta er tilraun
og hún hefur gefist mjög vel,“’
sagði hann. „Ferðin hefur gengið
vel, vissulega getur þetta starf
verið þreytandi, bíllinn fer hægt
yfir og vegirnir eru ekki upp á það
besta alls staðar, en ég kann vel
við þetta starf, koma á nýja staði
og kynnast fólki og ekki spillir
fyrir að gera gagn í leiðinni.“
Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn
Vaxandi áhugi á innibandý
Áhugi fyrir innibandý fer ört vaxandi á Akureyri, en um skeið hefur hópur sænskra unglinga sem íþrótt-
ina leika þar ytra verið í bænum og miðlað áhugamönnum af þekkingu sinni. Unglingarnir eru frá Vast-
erás, vinabæ Akureyrar í Svíþjóð og hafa þeir gefið góð ráð, liðsinnt og kennt akureyrskum unglingum
sem hug hafa á að stunda íþrótt þessa, sem er nokkuð stunduð í framhaldskólum bæjarins.
Skýrsla Rectus/Elas:
Vantar fjölbreyttari afþreyingn
til að laða að yngri ferðamenn
„Á Akureyri sjálfri er í raun fátt sem dregur erlenda ferðamenn
til bæjarins og í heildina er hótelrými á Akureyri lítið miðað við
fjölda ferðamanna yfir ferðamannatímanna," segir í skýrslu sænska
ráðgjafafyrirtækisins Rectus/Elas, en fyrirtækið gerði úttekt á at-
vinnulífinu í bænum fyrir atvinnumálanefnd. Eitt af því sem fyrirtæk-
ið lagði til að gert yrði til að efla atvinnulífið í bænum væri að
stofna ferðaskrifstofu með megináherslu á mótttöku ferðamanna.
í skýrslunni segir að ísland veki
fyrst og fremst áhuga eldra fólks
frá Evrópu og Norður-Ameríku, en
möguleikar ættu að vera á að laða'
Ferðaskrifstofan Nonni hf.:
Undarleg vinnubrögð að ein-
angra okkur frá umræðunni
segir Helena Dejak sljórnarformaður
HELENA Dejak stjórnarformað-
ur Ferðaskrifstofunnar Nonna á
Akureyri segist vera undrandi á
þeirri tillögu sænska ráðgjafa-
fyrirtækisins Rectus/Elas að
stofnuð verði mótttökuskrifstofa
fyrir ferðamenn, er hafi það að
markmiði að laða ferðamenn til
bæjarins. Ferðaskrifstofan
Nonni hafi verið stofnuð árið
1989 og þetta að aðalmarkmiði.
Helena hefur sent frá sé athuga-
semd þar sem þetta kemur fram,
en skýrsla Rectus/Elas var kynnt
í síðustu viku. Sænska fyrirtækið
vann að skýrslunni fyrir atvinnu-
málanefnd Ákureyrar.
„Ferðaskrifstofan Nonni hf. sem
stofnuð var 1989 hefur þetta ein-
mitt að aðal markmiði. Það er bágt
til þess að vita, að atvinnumála-
nefnd hafi ekki séð ástæðu til þess,
að hinn sænski ráðgjafi heimsækti
skrifstofuna og kynnti sér starfsemi
hennar, sem þegar- hefur skilað þó
nokkrum árangri. Þetta eru undar-
leg vinnubrögð, ef miðað er við það
vægi, sem ferðamálin hafa í skýrsl-
unni og allri umræðu um atvinnu-
mál síðustu missera,“ segir Helena
í athugasemd sinni.
Þar segir einnig að sífellt fleiri
sveitarfélög leggi áherslu á ferða-
mál til uppbyggingar atvinnu og
velsældar þegna sinna. Það sé því
lágmarkskrafa, að opinberir aðilar
á Akureyri reyni fremur að hlúa
að fyrirtækjum sem axla eftir
mætti uppbygginguna í ferðamál-
um, en hundsa þau og einangra frá
umræðum.
að yngra fólk með því að bjóða upp
á fjölbreytilegri afþreyingu. Hátt
verð á mat- og drykkjarvöru sé þó
neikvæður þáttur. ísland njóti helst
góðs af hinni stöðugu leit ferða-
manna eftir nýjum ferðaleiðum.
„Skemmtanalífið á Akureyri er
takmarkað og hindrar áhuga ung-
menna á að heimsækja bæinn. Nú
eru þrír dansstaðir í bænum, en
enginn þeirra heldur dansleiki í
miðri viku,“ segir í skýrslunni og
því bætt við að í raun sé það fátt
sem dragi erlenda ferðamann til
bæjarins og þar sé verslun og þjón-
usta takmörkuð vegna smæðar
hans.
Starf Rectus/Elas á Akureyri
leiddi til þess að kynni komust á
milli forráðamanna Golfklúbbs Ak-
ureyrar og sænskrar ferðaskrif-
stofu; Björk og Boström, sem sér-
hæfir sig í íþróttaferðum og en þar
á bæ hafa menn lýst sig reiðubúna
til að gerast umboðsaðilar fyrir
Artic Open golfmótið á Norðurlönd-
um næsta ár.
Atvinnumálanefnd Akureyrar:
Ferðaskrifstofan Nonni ekki hunds-
uð og einangruð frá umræðunni
, ATVINNUMÁLANEFND Akureyrar neitar alfarið að í umræðu um
eflingu ferðaþjónustu á Akureyri hafi Ferðaskrifstofan Nonni verið
hundsuð og einangruð frá umræðunni, eins og Helena Dejak stjórnar-
formaður Nonna fullyrðir. Nefndin, sem og þeir sem vinna að ferða-
málum fyrir bæinn, leggi sig þvert á móti fram við að vinna með
hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu.
I tilkynningu frá atvinnumála-
nefnd kemur fram að við athugun
Rectús/Elas á eflingu atvinnulífs á
Akureyri hefi verið ákveðið að
leggja ekki mikla áherslu á ferða-
þjónustu, þar sem starfshópur á
vegum nefndarinnar vann að
stefnumótun í ferðamálum fyrir
Eyjafjarðarsvæðið.
Viðræður um slíka skrifstofu
standi yfir og hafi Nonni sem og
aðrar ferðaskrifstofur verið upplýst
um gang mála. í tilkynningu nefnd-
arinnar er vitnað til bréfs frá starfs-
manni atvinnumálanefndar, sem
sent var til Ferðaskrifstofunnar
Nonna 1. ágúst sl.
„Eins og yður er kunnugt hafa
undanfarna mánuði staðið yfir við-
ræður hér á Akureyri þess efnis,
hvernig megi renna styrkari stoðum
undir móttöku ferðamanna hingað
til Norðurlands og þá einkum Akur-
eyrar. Á fundi vinnuhóps um þetta
verkefni sem haldinn var 25. júlí
sl. og var m.a. upplýst að nú er
fyrirhuguð hlutafjáraukning í
Ferðaskrifstofunni Nonna. Þá var
því ennfremur kastað fram, að
hagsmunaaðilar í ferðaþjónustu á
Eyjafjarðarsvæðinu nýttu sér þessa
hlutafjáraukningu með því að ge-
rast hluthafar í Ferðaskrifstofunni
Nonna og teysta þar með rekstur
hennar," segir í áðurnefndu bréfi.
Nánari upplýsinga er óskað fyrir
miðjan ágúst, en í tilkynningu at-
vinnumálanefndar segir að þær
hafi ekki borist enn.