Morgunblaðið - 21.08.1991, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1991
27
Inga Ólafs sýnir hönnun sína í
Naustkjallaranum annað kvöld
INGA Ólafs, tískuhönnuður,
sýnir í fyrsta sinn á íslandi
hönnun sína í Naustkjallaran-
um, fimmtudaginn 22. ágúst kl.
21.30. Þar sýnir hún sérhannað-
an fatnað sem liún hefur hann-
að og útfært sjálf. Stúlkur úr
Módelsamtökunum munu sýna.
Inga Olafs er 24ra ára gömul
og hefur nýlokið námi frá fremsta
tískuhönnunarskóla Kaupmanna-
hafnar, Margrétar-skolen. Við út-
skriftina í vor frá Márgrétar sko-
len var haldin stór tískusýning á
lokaverkefnum nemendanna og
þar vakti fatnaður Ingu mikla at-
hygli og var meðal annars sýndur
í danska^ sjónvarpinu.
Inga Ólafs mun sýna lokaverk-
efni sitt frá skólanum ásamt fötum
sem hún hefur gert nú í sumar
er höfða til vetrartískunnar
1991—92 og vor ’92. Sýningin
mun innihalda ullarkápur,
regnkápur og einnig mun hún sýna
kvöldkjóla o.fl. Öll fötin verða til
sölu á staðnum eftir sýninguna
og einnig hjá hönnuðinum fyrir
25. ágúst.
Helga Bjarnadóttir íslands-
meistari í hárgreiðslu frá hár-
greiðslustofunni Carmen í Hafnar-
firði sér um hár stúlknanna.
Naustkjallarinn verður skreytt-
ur í stemmningu við sýninguna
af Blómálfinum, Vesturgötu 4.
Inga Valborg Ólafsdóttir
Nefnd endur-
skoðar kvik-
myndalög *
Menntamálaráðherra hefur
skipað nefnd til þess að endur-
skoða kvikmyndalög.
í nefndinni eru: Eiríkur Thor-
steinsson, formaður Félags kvik-
myndagerðarmanna, Hrafn Gunn-
laugsson, formaður Félags kvik-
myndaframleiðenda, Kristín Jóhann-
esdóttir, formaður Félags kvik-
myndaleikstjóra, Helgi Jóhannesson,
hdl., tilnefndur af fjármálaráðuneyt-
inu, Knútur Hallsson, ráðuneytis-
stjóri, sem jafnframt er formað.ur
nefndarinnar.
ATVIMMU 'GÍ YSINGAR
Framreiðslu-
menn/aðstoðarfólk
Óskum að ráða framreiðslumenn eða vant
fólk í sal. Um er að ræða vaktavinnu.
Upplýsingar á staðnum milli kl. 13 og 18.
Hótel Borg
Okkur vantar fólk í brauðskurð og pökkun.
Vinnutími frá kl. 19-24 og 7-15.
Einnig í tiltekt á pöntunum.
Vinnutími frá kl. 5-8 og 5-13.
Upplýsingar hjá verkstjóra.
Brauð hf.,
Skeifunni 19.
Frá Fræðsluskrifstofu
Reykjavikurumdæmis
Vegna forfalla vantar kennara við Grunn-
skóla Reykjavíkur í almenna bekkjarkennslu,
ensku, myndmennt, handmennt, tónmennt,
heimilisfræði, sérkennslu og starf á skóla-
safni.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni í síma
621550.
Fræðslustjórinn í Reykjavík.
Rafvirkjar,
rafiðnfræðingar,
raftæknifræðingar
Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi vant-
ar kennara í rafvirkjun.
Upplýsingar eru veittar í síma (93)-12544.
Fatahreinsun
Starfsfólk óskasttil starfa strax, hálfan daginn.
Efnalauginn Snögg,
Suðurveri,
sími 31230.
Verksmiðjustörf
Óskum eftir að ráða fólk til starfa nú þegar4-
á lager (vaktavinna) við plastflöskufram-
leiðslu (vaktavinna) og einnig við átöppun.
Nánari upplýsingar gefur starfsmannastjóri
í síma 607500.
Skólameistari.
Verksmiðjan Vífilfell hf.
HÚSNÆÐI í BOÐI
Námsfólk á leið til Parísar!
Til leigu allan septembermánuð stór 3ja herb.
íbúð í miðri París með öllum húsbúnaði. Til-
valin fyrir fólk, sem er að leita sér að íbúð.
Upplýsingar í sfma 18103.
ATVINNUHÚSNÆÐI
Atvinnuhúsnæði
Okkur vantar nú þegar ca 100 fm skrifstofu-
húsnæði í austurhluta borgarinnar. Vatn og
aðstaða til að útbúa myrkvaherbergi verður
að vera til staðar.
Upplýsingar í síma 676555.
KENNSLA
Hótelstörf
Þann 2. september nk. verður efnt til kynn-
ingarnámskeiðs á Hótel Sögu fyrir fólk, sem
hefur áhuga á að sækja um störf á hótelinu.
Námskeiðið er einkum ætlað þeim, sem
hafa áhuga á matreiðslunámi, námi í fram-
reiðslu og störfum í gestamóttöku.
Námskeiðið stendur í 6 kvöld. Kennt er frá
kl. 19.00- 21.30.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í gestamót-
töku og hjá starfsmannastjóra hótelsins.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
Útboð
Hússjóður Dunhaga 11-13-15-17 í
Reykjavík óskar eftir tilboðum í vinnu á þaki
og þakrennum (skipta um járn, pappa, klæða
þakrennur o.fl.).
Útboðsgögn og nánari upplýsingar hjá Þor-
steini Kolbeins, Dunhaga 17, milli kl. 16-18
fimmtudaginn 22. ágúst.
Skilafrestur er til kl. 17 fimmtudag 29. ágúst.
augiysmgar
t FÉLAGSLÍF
FERÐAFELAG
© ÍSLANDS
ÖLOUGÖTU 3S11798 19533
Helgarferðir Ferða-
félagsins 23.-25. ágúst
1) Landmannalaugar -
Krakatindsleið - Hrafn-
tinnusker - Álftavatn.
Ekið til Landmannalauga og gist
þar fyrri nóttina. Á laugardag er
ekin slóð hjá Krakatindi og
Hrafntinnuskeri og vestan
Laufafells að Álftavatni og gist
þar. Forvitnileg leið um stórbrot-
ið landslag.
2) Þórsmörk/Langidalur.
Helgarferö til Þórsmerkur er góð
hvíld frá amstri hversdagsins.
Kynnið ykkur tilboð Ferðafélags-
ins á dvöl í Þórsmörk. Göngu-
ferðir við allra hæfi um Mörkina.
Gisting í Skagfjörðsskála er sú
besta í óbyggðum.
Ferðir Ferðafélagsins veita
ánægju - komið með.
Farmiöasala og upplýsingar á
skrifstofunni, Öldugötu 3.
Ferðafélag Islands.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Almenn samkoma í kvöld
kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Biblíulestur í kvöld kl. 20.30.
Gestir frá Kanada.
Allir hjartanlega velkomnir.
NYjJNG
Samvera fyrir fólk á öllum aldri.
Farið verður í gönguferö inní
Valaból. Mæting í Suöurhólum
35 kl. 20.00. Hugleiðing: Sveinn
Alfreðsson. Ungt fólk á öllum
aldri er velkomið.
Æm SAMBAND ÍSLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Kristniboðssamkoma á Háaleit-
isbraut 58 i kvöld kl. 20.30.
Ræöumaður: Séra Guðni Gunn-
arsson. Laufey Geirlaugsdóttir
syngur.
Allir velkomnir.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19S33
Kvöldferð miðvikudag
21. ágúst
Ki. 20.00: Viðey. Siglt frá Sunda-
höfn. Gengið um austureyjuna.
Verð kr. 600,-. Farmiðar við
brottför.
Ágústkvöld eru kjörin til útiveru
i góðum hóp.
Ferðafélag íslands.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLDUGÖTU3 S: 11798 19537
Landmannalaugar -
Þórsmörk
„Laugavegurinn"
Gengið á fjórum dögum milli
gönguskála Ferðafélagsins í
Hrafntinnuskeri, við Álftavatn og
á Emstrum. Takmarkaður fjöldi
í hverri ferð. Enn er tækifæri til
þess að ganga þessa leið með
Ferðafélaginu þessa daga:
23.-28. ágúst - brottför
kl. 20.00.
28. ágiist-1. sept. - brottför
kl. 08.00. Nokkur sæti laus.
28. ágúst-1. sept. verður
gönguferð með viðleguútbún-
að frá Eldgjá á Fjallabaksleið
nyrðri, um Strútslaug að Álfta-
vatni. Skemmtileg gönguleiðT
Gengið verður í næsta ná-
grenni við „Laugaveginn“ og
haldið til Reykjavíkur með rútu
frá Álftavatni á Fjallabaksleið
syðri.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofu Ferðafélagsins, Öldu-
götu. Gönguferðir eru sú
heilsubót sem nútímafólk þarf.
Gangið með Ferðafélaginu.
Ferðafélag íslands.