Morgunblaðið - 21.08.1991, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2\. ÁQÚST 1991
fclk f
fréttum
Ríkharður Ríkharðsson sigraði
í einstaklingskeppninni, lék á 75
höggum, en ritstjóri Víkurfrétta
og sigurvegarinn frá því í fyrra,
Páll Ketilsson, varð að sætta sig
við annað sætið. í keppninni með
forgjöf sigraði Skúli Unnar
Sveinsson af Morgunblaðinu, lék
á 66 höggum nettó en annar varð
Ríkharður.
GOLF:
Ríkisútvarpið sigraði í sveitakeppninni
Meistaramót fjölmiðlanna í
golfi fór fram laugardaginn
10. ágúst á Jaðarsvelli á Akur-
eyri. Sveit Ríkisútvarpsins sigraði
í keppni án forgjafar og Ríkharður
Ríkharðsson af Degi á Akureyri
sigraði í einstaklingskeppninni án
forgjafar.
Það viðraði vel á fjölmiðlamenn
þegar Lúðvík Geirsson, formaður
Blaðamannafélags íslands sló
fyrsta höggið í mótinu, að sjálf-
sögðu nokkuð til vinstri. Þegar
leið á keppnina rigndi þó tölvert
en fjölmiðlafólkið lét það ekki hafa
áhrif á sig.
Sveit Ríkisútvarpsins notaði
einu höggi færra en sveit Morgun-
blaðsins í keppni sveita án forgjaf-
ar og varðveitir því farandbikarinn
an-nað árið í röð. Þeim tókst hins
vegar ekki að veija titilinn í sveita-
keppninni með forgjöf því þar sigr-
aði Morgunblaðið nokkuð örugg-
lega. Sveit DV varð í J>riðja sæti
á báðum vígstöðvum. I sveit Rúv
voru Friðþjófur Helgason, Elías
Magnússon, Gísli Amar Gunnars-
son og Logi Bergmann Eiðsson,
sem var „fyrirliði“ og taldi ekki.
Fjölmiðlamennimir voru mjög
mislangt komnir í íþróttinni.
Nokkrir góðir kylfingar voru með-
al keppenda, með forgjöf frá 5 til
9 en nokkrir höfðu sjaldan komið
nálgæt golfí og að minnsta kosti
einn hafði aldrei slegið golfbolta.
Sá er Kjartan „Golli“ Þorbjörns-
son ljósmyndari af Degi. Hann
Þátttakendur á Meistaramóti fjölmiðlanna sem fram fór á Akureyri.
Ljósmynd/GolU
vann þó það afrek að vera næstur
holu á 11. braut, en þar stöðvaðist
boltinn hans aðeins 45,5 senti-
metra frá holunni. Skapti Hall-
grímsson af Morgunblaðinu fékk
mesta æfingu þennan daginn, not-
aði eitthvað vel á annað hundrað
högg og fékk farandgrip að laun-
um ásamt byrjendanámskeiði hjá
Sigurði Péturssyni golfkennara
hjá GR.
Engum tókst að fara holu í
höggi í mótinu, en fyrir að gera
slíkt á 18. brautinni var golfferð
í verðlaun með Samvinnuferðum
Landsýn til Mallorka þar sem
Kjartan L. Pálsson verður farar-
stjóri en hann fékk einmitt golf-
bakterínuna í fjölmiðlamóti sem
þessu fyrir nokkuð mörgum árum.
Ágúst Ingi Jónsson, fréttastjóri á
Morgunblaðinu fékk einnig áhuga
á golfí í slíku móti og hann var
næstur holu á 18. flötinni og fékk
að launum málsverð á Argentínu
fyrir tvo.
Mörg góð fyrirtæki studdu við
bakið á fjölmiðlamótinu. Rolf Jo-
hansen studdi mótið rausnarlega
og sömu sögu er að segja af
Austurbakka, Macom, Vangi,
Glóðinni, Flughótelinu, KEA,
Bautanum, Sjallanum og Golf-
verslun David Barnwell á Akur-
eyri. Flugleiðir veittu öllum afslátt
af flugi og áður en menn lögðu í
hann veitti Vífílfell mönnum svala-
drykki.
Pressan gaf verðlaunagripi og
Morgunblaðið og Blaðamannafé-
lagið gáfu farandbikara sem veitt-
ir eru í sveitakeppninni.
0DEXION
MAXI-plastskúffur
varðveita smóhluti
TONLEIKAHALD
Sigrast á óorðinu
Margar stœrðir
og litir
fyrirliggjandi.
Það hefur reynst áhættusamt að
standa fyrir tónleikum er-
lendra rokkhljómsveita hér á landi.
Þeir sem hafa reynt hafa flestir
farið af stað með meira kappi en
forsjá og tapað stórfé. Slíkt tón-
leikahald hefur því fengið á sig
hálfgert óorð, enda fjölmargir tapað
fé á innflutningnum aðrir en tón-
leikahaldarar sjálfír. Það vakti því
nokkra athygli þegar nýstofnað fyr-
irtæki, Rokk hf., hélt mikla tónleika
í Kaplakrika og hafði af því nokk-
urn hagnað, m.a. fyrir skynsemi í
tryggingum, þrátt fyrir forföll
helstu hljómsveitarinnar. Skipu-
leggjendur þeirra tónleika voru fjöl-
margir, en þeirra fremstur í flokki
Englendingurinn Alan Ball.
Alan Ball segist hafa komið hing-
að til lands fyrir fjórum árum eftir
að hann kynntist íslenskri stúlku.
Honum var boðið að vera með í
skipulagningu tónleika rokkhljóm-
sveitarinnar Whitesnake og eftir
LANDSSMIÐJAN HF.
Verslun: Sölvhólsgötu 13
Sími (91)20680
Alan Ball
Morgunblaðið/KGA
það varð ekki aftur snúið. „Ég ætla
mér að eyða meirihluta ársins hér
á landi og þá setja upp þrenna tón-
leika á ári, en hluta vetrar mun ég
eyða sem tónleikaferðastjóri hjá
ýmsum erlendum hljómsveitum,
enda fátt sem ég get fengið að
gera hér á landi utan tónleika-
halds." Alan segir að tónleikahald
hér á landi hafí gengið misjafnlega
m.a. vegna þess að yfírleitt hafí
menn ætlað sér að græða stórfé á
skömmum tíma. „Rokk hf., sem ég
vinn hjá, hefur sett upp skrifstofu,
sem treystir sambönd erlendis, ekki
síður en hérlendis. Rokk hf. er rek-
ið eins og hvert annað fyrirtæki,
þó með lágmarksmannskap, sem
reynir að borga reikninga eftir því
sem þeir berast, en ekki með því
að halda einhvetja „stórtónleika"
sem eiga að borga allt í einú. Það
að við séum með skrifstofu allt ár-
ið, þar sem menn svara í síma og
svara símbréfum og fyrirspurnum,
þýðir að stórstjörnurnar verða til-
kippilegri að koma og spila. Við
eigum von um að hljómsveitir og
menn eins og Phil Collins, Paul
McCartney, sem léði máls á tónleik-
um hér á næsta ári, Eric Clapton
og Dire Straits komi hingað til lands
á næstu árum, en næsta verkefni
okkar er bandaríska þungarokk-
sveitin Skid Row. Það hafa margir
reynt að standa fyrir tónleikum
erlendra sveita hér á landi, en ekki
tekist, en ég er sannfærður um að
það sé hægt. Þetta er kannski ekki
stórgróðavettvangur, en það má
reka fyrirtæki með þokkalegum
hagnaði."
s
HAUSTUTS ALAISER
í örfáa daga — 30—70% afsláttur
Laugavegi 95, 2. hæð.