Morgunblaðið - 24.08.1991, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
IÞRÓTTIR
LAUGARDAGUR 24. AGUST 1991
47
SUND/EMÍAÞENU
Morgunblaðifi/Árni Sæberg
Ragnheiður Runólfsdóttir hefur setti þijú íslandsmet á Evrópumeistaramótinu í Aþenu.
Ragnheiður í 9. sæti
og setti íslandsmet
Ingibjörg bætti metið í 800 metra skriðsundi.
íslenska landsliðið hefur sett 9 íslandsmet
ÍSLENSKA sundlandsliðið gerir
það ekki endasleppt á Evrópu-
meistaramótinu í Aþenu. í gær
bætti Ragnheiður Runólfsdóttir
íslandsmetið í 100 metra
bringusundi og Ingibjörg Arn-
ardóttir í 800 m skriðsundi.
Alis hafa 9 íslandsmet fallið á
mótinu, sem lýkurá sunnudag.
Ragnheiður bætti íslandsmet
sitt í í undanrásum, synti á
1:11.89 mínútum og varð í 9. sæti
og því aðeins einu sæti frá því að
komast í A-úrslit. Gamla metið var
1:12.33 mín. og var það sett á
Smáþjóðaleikunum á Kýpur 1989.
í B-úrslitum synti hún á 1:11.94
mín. og kom fyrst í mark.
„Ég er ánægð með að hafa bætt
íslandsmetið, en það hefði verið
gaman að komast í A-úrslit því það
munaði ekki nema 0,19 sekúndum.
Þetta er búið að ganga mjög vel
hjá okkur enda íslandsmetin orðin
níu talsins,“ sagði Ragnheiður.
Ingibjörg Arnardóttir bætti ís-
landsmet Hugrúnar Ólafsdóttur í
800 metra skriðsundi, synti á
9:07.30 mín. og bætti eldra metið
um tæpar 4 sekúndur. Hún hafnaði
í 15. sæti af 21.
Arnþór Ragnarsson keppt í 200
m bringusundi og hafnaði í 23.
sæti af 26 á tímanum 2:23.67 mín.
Hann var aðeins 0,06 sek. frá ís-
landsmeti sínu.
Sovéskar stúlkur urðu í tveimur
efstu sætunum í 100 m bringu-
sundi. Elena Rudkovskaya
(1:09.05) og Svetlana Bondarenko
(1:09.99). Tania Dangalkova frá
Búlgaríu varð þriðja á 1:10.12 mín.
Sovéska karlasveitin setti Evr-
ópumet í 4X100 metra skriðsundi,
synti á 3:17.11 mín. og bætti eldra
metið sem sovéska sveitin setti á
ÓL í Seoul 1988 um 1.22 sek.
Nick Gillingham frá Bretlandi
sigraði í 200 m bringusundi karla
á 2:12.55 mín. Nobert Roza, Ung-
veijalandi, varð annar á 2:12.58
mín. og Spánveijinn Sergio Lopez
í þriðja sæti á 2:13.40 mín.
Catherine Plewnski, Frakklandi,
varð Evrópumeistari í 100 m flug-
sundi kvenna á 1:00.32 mín. Inge
De Bruijn, Hollandi varð önnur (
1:01.64) og Therese Lundin frá
Svíþjóð þriðja (1:02.01).
Evgeni Sadovyi frá Sovétríkjun-
um sigrað í 400 m skriðsundi karla
á 3:49.02 mín. Artur Wojdat, Póll
andi, varð annar (3:49.09) og Gi-
orgio Lamberti, Ítalíu, þriðji á
3:50.46 mín.
KNATTSPYRNA / 2. DEILD
KORFUKNATTLEIKUR
ísland í Ipr
keppni ÓL
ÍSLENSKA landsliðið í körfu-
knattliek mun taka þátt í for-
keppni fyrir Ólympíuleikana í
Barcelona á Spáni næsta ár.
Þ etta verður í fyrsta sinn sem
forkeppni fyrir ÓL er haldin í
körfuknattleik, en hingað til hefur
síðasta Evrópukeppni ráðið. Allar
bestu þjóðir Evrópu taka þátt í for-
keppninni, nema Spánveijar, sem
eru gestgjafar, og Júgóslavar, nú-
verandi heimsmeistarar.
Forkeppnin hefst á Spáni 22.
júní á næsta ári og stendur til 5.
júlí. Skipt verðiir í fjóra sex liða
riðla og tvær efstu þjóðirnar fara
áfram og taka með sér stigin úr
riðlinum. í lokariðlinum leika allir
við alla og fjórar efstu þjóðirnar
leika sfðan á ÓL síðar um sumari^
Landsliðið mun haga undirbún-
ingi sínum með þessa keppni í huga.
Liðið fer til Bandaríkjanna 4. sept-
ember og verður þar til 18. sama
mánaðar. Milli jóla og nýárs eru
fyrirhugaðir landsleikir hér heima
og einnig í janúar. í maí verður
síðan Norðurlandamótið haldið í
Osló og þangað fer íslenska lands-
liðið að sjálfsögðu.
GOLF / EM AHUGAMANNA
Siguijón og.
Úlfar úr leik
HVORKI Sigurjón Arnarsson
né Úlfar Jónsson komust í
gegnum fyrri niðurskurðinn í
Evrópukeppni áhugamanna
sem fram fer í Englandi.
Þetta er svolítið svekkjandi,
en það verður bara að hafa
það,“ sagði Úlfar í gærkvöldi. „Ég
lék á 84 og samtals á 157 en 156
högg sluppu áfram. Siguijón lék
á 83 og samtals á 161 höggi. Það
var frekar slakt skor í dag enda
var bijálað rok og mikil rigning,“
sagði Úlfar.
„Það fór allt í klessu hjá mér
á síðustu holunni. Ég lék hana á
þremur yfír pari, annars urðu
„slysin" fleiri en eitt og fleiri en
tvö,“ sagði Úlfar.
Hann nefndi sem dæmi um
slæmt skor að einn sem lék á 7íf
höggi fyrsta daginn kom inn á
91 höggi í gær. Einn leikmaður,
sem í gær kom inn á ótrúlega
góðu skori, 70, varð að taka þátt
í forkeppninni á miðvikudaginn
til að vinna sér rétt til þátttöku,
Þar lék hann á 80 höggum og
slapp inn.
KNATTSPYRNA
Gascoigne á Italíu
Paul Gascoigne er nú staddur í Róm á Ítalíu þar sem hann skoðar
aðstæður hjá Lazio. Hann sagðist vera að kanna hvort hann hafi
gert rétt með því að velja Lazio í stað frægari félaga á Ítalíu.
Gascoigne er enn að ná sér eftir uppskurð á hné sem hann varð að
gangast undir eftir bikarleikinn gegn Nottingham Forest í maí. Hann
sagðist reikna með að geta farið að leika með Tottenham í janúar.
Samningur milli Tottenham og Lazio var undirritaður 1. ágúst og hljóð-
aði hann upp á 8,8 milljónir dollara eða 540 milljónir ÍSK. Gascoigne
mun byija að leika með ítalska félaginu á næsta keppnistímabili.
Skagamenn komnir í 1. deild
LEIKUR Fylkis og ÍA er án efa
einn af bestu leikjum sumars-
ins þráttfyrir markaleysi. Bæði
lið léku skemmtilega knatt-
spyrnu en leikmenn beggja liða
voru ekki lánsamir við mörkin.
Akranes hefur með úrslitunum
tryggt sig upp í 1. deild en Fylk-
ir er eina lið deildarinnar ásamt Sel-
fossi sem örugglega verður í 2. deild-
inni á næsta ári svo
Frosti jöfn er baráttan um
Eiðsson hitt 1. deildar sætið.
skrífar Skagamenn voru
meira með knöttinn
en bæði lið sköpuðu sér fjölmörg
marktækifæri. Færi heimamanna
voru heldur opnari en Skagamenn
voru óheppnir að tryggja sér ekki
þijú stig í lokin. Arnar Gunnlaugsson
slapp innfyrir Fylkisvömina á lok-
amínútunni og renndi knettinum
framhjá Páli Guðmundsson, knöttur-
inn fór í stöngina og út. í sömu sókn
vildu Skagamenn fá vítaspyrnu þegar
Haraldi Hinrikssyni var brugðið en
ekkert var dæmt. Jafntefli varð því
staðreynd og voru það sanngjörn
úrslit miðað við marktækifæri lið-
anna.
Finnur Kolbeinsson var besti mað-
ur Fylkis og þá áttu þeir Anton Jak-
obsson og Órn Valdimarsson einnig
vel. Örn lék sem aftasti maður liðsins
í fyrsta sinn á ferlinum og komst vel
frá því hlutverki.
Lið ÍA er skemmtileg blanda af
yngri og eldri leikmönnum sem eiga
án efa eftir að setja skemmtilegan
svip á 1. deildina. Lið ÍA varð fyrir
áfalli í fyrri hálfleik þegar Þórður
Guðjónsson þurfti að yfirgefa völlinn
vegna meiðsla.
Maður leiksins: Karl Þórðarson, ÍA.
Heppnin með Þór
Þór frá Akureyri sigraði Selfoss
með einu marki gegn • engu á
Selfossi í gærkvöldi. Leikurinn fór að
mestu fram á miðju vallarins og var
Utið fyrir augað. Fyrri
Óskar hálfleikur var jafn og
Sigurðsson skiptust liðin á að
skrifar sækja án þess að
skapa sér umtalsverð
marktækifæri. Þórsarar skoruðu eina
mark leiksins á 4. mínútu. Þar var
að verki Lárus Orri Sigurðsson sem
skoraði eftir að hafa fengið góða send-
ingu inn í vítateig Selfyssinga frá
Arna Þór Ámassyni.
1 síðari hálfleik komu Selfyssingar
ákveðnir til leiks og náðu strax yfir-
höndinni. Á 55. mín. átti Gylfi Sigur-
jónsson þrumuskot af um 30 metra
færi en Friðrik Friðriksson varði í
horn. Besta færi Selfyssinga átti Gísli
Björnsson er hann fékk boltann inní
vítateig Þórsara en Friðrik náði að
veija skot hans á ótrúlegan hátt.
Heimamenn héldu áfram að sækja en
Þorsarar beittu hættulegum skyndi-
sóknum og upp úr einni slíkri fékk
Halldór Áskelsson gott færi en skaut
framhjá. Á síðustu mín. leiksins fengu
Þórsarar hornspyrnu og náði einn
áhangenda liðsins í boltann stillti hon-
um upp og kyssti hann. Þrátt fyrir
þessi tilþrif náðu Þórsarar ekki að
skora upp úr hornspyrnunni.
Bestur í liði Selfoss var Gylfi Sigur-
jónsson. Einnig átti Páll Guðmunds-
son ágætan leik. í liði Þórs var Frið-
rik Friðriksson bestur og bjargaði lið-
inu oft á síðustu stundu. Lárus Orri
Sigurðsson og Halldór Áskelsson
komust einnig vel frá sínu.
Maður leiksins: Friðrik Friðriksson, Þór.
Öruggt hjá Þrótti
Þróttur hoppaði upp í 3. sæti við
sigurinn á Tindastóli, 0:2, á
Sauðárkróki í
frekar slakur
Bjöm
Bjömsson
skrifar
gær. Leikurinn var
og ekki mikið um
marktækifæri. Gor-
an Micic skoraði fyr-
ir Þrótt í fyrri hálf-
leik og Sigfús Kára-
son bætti öðm marki
við þegar 10 mínútur voru liðnar
af síðari hálfleik. Þróttur var betri
allan leikinn og sigurinn verðskuld-
aður.
Feðgar spiluðu í fyrsta sinn í liði
Tindastóls. Það voru þeir Rúnar
Björnsson og Ingi Þór Rúnarsson.
Maður leiksins: Sigfús Kárason, Þrótti.
Sigurður Orri Sigurðsson gerði
sigurmark Þórs á Selfossi.