Morgunblaðið - 04.09.1991, Síða 22

Morgunblaðið - 04.09.1991, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1991 Franski kommúnistar: Reuter Barist fyrir takmörkun byssueignar Ástralskir mótmælendur ganga í átt að þingi Nýja Suður-Wales í Sydney og krefjast þess að mönnum verði bannað að eiga hálfsjálfvirka riffla. Mótmæli þessi fylgja í kjölfarið á fjöldamorði, sem framið var á verslunartorgi í Sydney í síðasta mánuði. Þá myrti óður byssumaður átta manns. Heitar umræður í miðstjóm flokksins París. Reuter. auðvaldssinna sem leiðir hörg- ultíma, atvinnuleysi, félagslegt ranglæti og veikleika yfir þjóðina," sagði Lajoine. „Flokkurinn neitar að gefast upp fyrir auðvaldinu." Umbótasinnar í miðstjórninni, sem eru í minnihluta, voru óánægð- ir með umræðurnar. „I skýrslunni kemur ekkert nýtt fram,“ staðhæfði Charles Fiterman, sem á sæti í miðstjórninni. Umbótasinnarnir sögðu að þeir hefðu ekki gert sér vonir um að merkjanlegar breyting- ar yrðu gerðar á stefnu flokksins á fundinum, sem búist er við að standi í tvo til þijá daga. Fiterman sagði að hann myndi kreijast þess að meirihluti miðstjórnarinnar segði af sér. í síðustu viku sagði hann að flokkurinn ætti á hættu að hverfa alveg ef hann gerði ekki róttækar breytingar á stefnu sinni. HARÐAR deilur áttu sér stað í gær á meðal umbótasinna og harðlín- umanna í miðstjórn franska kommúnistaflokksins (PCF) á sérstökum fundi sem haldinn var í höfuðstöðvum flokksins til að ræða hrun kommúnismans í Sovétríkjunum. Leiðtogi flokksins, hinn gamal- reyndi Georges Marchais, lýsti yfir þeim ásetningi sínum að halda áfram á sömu braut og hingað til. „Ég hef aldrei verið meiri kommún- isti en nú og ég held að landið þarfn- ist kommúnistaflokks.“ Hann sagði einnig að helstu mis- tök flokksins hefðu verið að fylgja stefnu sovéska kommúnistaflokks- ins of náið. En hann sagði að horf- ið hefði verið frá því fyrir sextán árum. „Við gerðum mistök, en við sáum að okkur,“ sagði hann. Harðlínumaðurinn Andre Lajoine flutti ítarlega skýrslu á fundinum. Hann vísaði á bug allri gagnrýni á flokkinn og aftók að sérstöku neyð- arráði yrði komið á fót, eins og kröfur höfðu verið gerðar um. „Þró- unin í Sovétríkjunum ... stangast á engan hátt á við það sem flokkur okkar stendur fyrir né markmið okkar,“ sagði hann. Síðan kvað hann uppúr með það að ef eitthvað ætti að breytast, ætti það að vera Frakkland, ekki kommúnistaflokk- urinn. „Ekkert er mikilvægara en að beijast gegn stefnu sjórnvalda og Sovétríkin: Efnahagsbandalag með Austur-E vr ópuríkj um? Moskvu. Reuter. Leiðrétting í frétt um veitingu bjartsýnis- verðlauna Brestes í blaðinu í gær var sagt frá listaverkasýningu sem Asbæk-galleríið efnir til í tengslum við afhendingu verðlaunanna. Sagt var að þar yrðu sýnd verk þriggja íslenskra listamanna en þeir munu vera trjórir. Helgi Gíslason mynd- höggvari, sem hlýtur Broste-verð- launin í ár, mun eiga nokkur verk þar auk þeirra þriggja sem nefndir voru í fréttinni. ÞÝSK stjórnvöld ítrekuðu í gær kröfu sína um að Sovétmenn framseldu Erich Honecker, fyrr- um leiðtoga Austur-Þýskalands, sem dvelst nú í Sovétríkjunum. Sovétríkin: Sendiherra kvaddur frá Svíþjóð Stokkhólmi. Reuter. SOVÉSKI sendiherrann í Sví- þjóð, Nikolaj Uspenskíj, hefur verið kallaður heim til Moskvu til skrafs og ráðagerða. Ummæli Uspenskíjs meðan á valdaráninu stóð hafa þótt vera valdaræningjunum hliðholl. Síðar sagði hann að hann hefði hlotið villandi upplýsingar um atburðina í Moskvu. Að sögn talsmanns í sovéska sendiráðinu í Stokkhólmi fékk Uspenskíj senda heimkvaðningu frá Moskvu í gærmorgun og hann flaug þangað samstundis. Uspenskíj varð sendiherra í Svíþjóð á síðasta ári. „Við fengum ekki að vita um ástæður heimkvaðningarinnar, en allir í sendiráðinu vona að hann muni snúa til baka,“ sagði blaðafull- trúi sendiráðsins, Alexej Grúshkó. LEIÐTOGAR rússneska lýðveld- isins kynntu í gær hugmyndir um að stofnað verði efnahags- bandalag fullvalda ríkja, sem næði til sovéskra lýðvelda og Austur-Evrópulanda. Borís Jeltsín, forseti Rússlands, sagði á fundi sovéska fulltrúaþings- ins að leiðtogar flestra lýðveldanna Klaus Blech, sendiherra Þýska- lands í Moskvu, gekk á fund Vlad- ímírs Petrovskíjs, aðstoðarutanrík- isráðherra Sovétríkjanna, og árétt- aði kröfuna. Talsrhaður þýska sendiráðsins, Enno Barker, sagði að viðbrögð Petrovskíjs „lofuðu því miður ekki góðu“ og bætti við: „Hann sagði aðeins að þeir myndu kanna málið.“ Honecker er 79 ára að aldri, var við völd í Austur-Þýskalandi þegar Berlínarmúrinn var reistur árið 1961 en hrökklaðist frá i lýðræðis- byltingunni 1989 sem varð til þess að múrinn hrundi. Hann á yfir sér réttarhöld í sameinuðu Þýskalandi vegna meintrar spillingar og fyrir- mæla um að skotið yrði á fólk sem reyndi að flýja yfir til Vestur- Þýskalands. Hartnær 200 manns voru skotnir til bana við landamæri þýsku ríkjanna á valdatíma hans. Sovétmenn fluttu Honecker leyn- ilega til Moskvu í mars sl. er þýsk yfirvöld bjuggu sig undir að hand- taka hann og sækja til saka. Hann gekkst undir skurðaðgerð í Sovét- ríkjunum og talið er að hann dvelj- ist á hersjúkrahúsi skammt frá Moskvu. Enno Barker sagði að með því að flytja Honecker frá Þýskalandi hefðu Sovétmenn brotið samning, sem þeir gerðu við Þjóðveija um brottflutning sovéskra hermanna frá austurhluta Þýskalands, þar sem í honum væri ákvæði um að þeir virtu þýsk lög. fimmtán, sem hafa tilheyrt Sov- étríkjunum, væru reiðubúnir að undirrita efnahagssamning til að koma í veg fyrir efnahagslegt hrun í lýðveldunum á meðan samið yrði um framtíð Sovétríkjanna. ívan Sílajev, forsætisráðherra Rússlands, gekk jafnvel lengra og lagði til að stofnað yrði efnahags- bandalag sem næði frá Balkan- skaga til Kyrrahafsins. Sílajev er formaður nefndar sem var falið að annast stjóm efnahagsmála í Sov- étríkjunum til bráðabirgða eftir misheppnað valdarán sovéskra harðlínumanna fyrir tveimur vikum. „Við ættum ekki að takmarka okkur við sjö, níu eða fimmtán lýð- veldi,“ sagði Sílajev á fulltrúaþing- inu. „Það er engin ástæða til að útiloka þann möguleika að önnur lönd, svo sem Búlgaría, Pólland og Tékkóslóvakía, hafi áhuga á slíku efnahagsbandalagi.“ Sílajev viðurkenndi þó að slíkar hugmyndir kynnu að mæta and- stöðu. Nokkur sovétlýðveldi vilja sjálfstætt efnahagskerfi og eigið myntkerfi. Þá hafa Austur-Evrópu- ríki beint sjónum sínum til Vestur- SOVÉSKIR kommúnistar sögðu í gær að flokkur þeirra sætti ólöglegum ofsóknum og vöruðu við því að tillögur um umfangs- miklar breytingar á stjórnskipan Sovétríkjanna, sem lagðar hafa verið fyrir fulltrúaþing landsins, yrðu til þess að ganga af sovéska ríkinu dauðu. Sagnfræðingurinn Roj Medvedev sagði á fulltrúaþinginu, æðstu lög- gjafarsamkundu Sovétríkjanna, að stjórnvöld hefðu beitt sömu kúgun- araðferðum og tíðkuðust áður í landinu með því að banna starfsemi landa og einkum Evrópubandalags- ins hvað efnahagssamvinnu varðar en ekki til Sovétríkjanna. kommúnistaflokksins í síðustu viku og gera eignir hans upptækar. Medvedev sætti sjálfur ofsóknum sovéska kommúnistaflokksins áður en Míkhaíl Gorbatsjov komst til valda. Alexander Zhuravljov, þingmað- ur frá Hvíta-Rússlandi, lýsti því yfir að hann myndi hvergi hvika frá hugsjónum kommúnismans og hvatti þingið til að samþykkja ekki tillögumar um breytingar á stjóm- skipan Sovétríkjanna. Hann sagði að tillögurnar væru dauðadómur yfir sovéska ríkinu. Forseti sænska herráðins: Sovésk ógnun enn fyrir hendi OWE Wiktorin, herráðsforseti í Svíþjóð, segir að valdaránið misheppnaða í Sovétríkjunum kunni að breyta varnarforsendum á Eystrasalti þegar fram líður en Svíum standi þó enn veruleg ógn af Sovétrílgunum. Wiktorin segir í samtali við Svenska Dagbladet að öðlist Eystrasaltsríkin þijú sjálfstæði mynduðu þau frá hernaðarlegu sjónarmiði séð hlutlaust belti milli Sovétríkjanna og Svíþjóðar. Yrði sovéski flotinn neyddur til að yfír- gefa flotastöðvar við Eystrasalt minnkuðu möguleikar risaveldis- ins á leynilegum kafbátaferðum við strendur Svíþjóðar. Wiktorin segir að á þessu stigi sé framtíð sovéskra varnarmála óljós og sömuleiðis liggi ekki fyrir hvernig öryggismálum Eystra- saltsríkjanna verður háttað. Úr- slitum muni ráða hvort og hversu margar flotastöðvar ríkjasam- bandið fær að starfrækja í ríkjun- um þremur og hvort þar verði áfram sovéskar herstöðvar. Frá sænsku vamarsjónarmiði hafí sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna engar breytingar í för með 'Sér verði flotastöðvum Sovétríkjanna þar ekki lokað. „Verði Sovétmenn að kalla her- sveitir sínar frá Eystrasaltsríkjun- um og loka flotastöðvum sínum þar vitum við ekki hver hættan verður fyrr en fyrir liggur hvert þær sveitir og sá floti fer. Þá fyrst getum við metið hvaða hemaðar- legu afleiðingar það hefur fyrir okkur. Ég er bjartsýnn á að sjálf- stæði Eystrasaltsríkjanna verði okkur hagstætt og þau myndi hlutlaust belti með svipuðum hætti og myndast hefur í Mið-Evr- ópu eftir að völd kommúnista liðu Owe Wiktorin undir lok í Póllandi, Tékkóslóvak- íu og Ungveijalandi," segir Wikt- orin í viðtalinu við Svenska Dagbladet. Sovétríkin og Þýskaland: Krafan um framsal Honeckers ítrekuð Moskvu. Reuter. Kommúnistar mót- mæla „ofsóknum“ Moskvu. Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.