Morgunblaðið - 04.09.1991, Side 47

Morgunblaðið - 04.09.1991, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 4. SBPTEMBER 1991 47 KNATTSPYRNA „Gaman að enda með sigurieik á Dönum“ - sagði Bo Johansson, landsliðsþjálfari, sem stjómar íslenska liðinu í síðasta sinn í kvöld „VIÐförum óhræddir íþennan leik. Við vitum að Danir eru með mjög gott lið, en strákarn- ir eru tilbúnir að leggja sig alla frarn," sagði Bo Johansson, landsliðsþjálfari, um leik ís- lands og Danmerkur sem hefst kl. 18.15 á Laugardalsvelli í dag. Þetta verður jaf nf ramt sfðasti leikur hans með íslenska landsliðið. Bo hefur fylgst með danska landsliðinu í gegnum árin og þekkir því nokkuð vel til þess. „Dan- ir eru með öflugt lið og sem dæmi um það hafa Svíar ekki unnið Dani nema tvívegis í síðustu tíu lands- leikjum þjóðanna. Þeir eru með öfluga vörn þar sem Kent Nielsen, Lars Olsen og John Sivebæk ráða ríkjum. Þetta eru allt gamlreyndir kappar. Á miðjunni og í framlínn- unni tefla þeir fram ungum og efni- legum strákum." Bo sagðist hafa séð leiki Dana á mótinu í Svíþjóð í júní. Þeir töpuðu þá fyrir ítölum óverðskuldað eftir framlengingu og léku við Svía um 3. sætið og töpuðu 4:0. „í þeim leik var danska liðið áhugalaust og hafði ekki að neinu að keppa og gefur sá leikur ekki rétta mynd af styrkleika liðsins. Það er mikið sem býr í danska liðinu en það er ekki ósigrandi," sagði Bo. „Við munum leggja upp svipaða leikaðferð og áður. Við veijumst þegar andstæðingurinn hefur bolt- ann og sækjum síðan hratt. Við reynum að vinna boltann framar- lega og byggja á skyndisóknum enda erum við með mjög fljóta framheija. Ég held að við séum með góða miðju, leikmenn sem eru baráttuglaðir." Hann sagði að það væri slæmt að Guðni Bergsson gæti ekki leikið og það hafí verið erfítt að finna leikmann í hans stað. „Við getum þó vel við unað og vonandi smellur Bo Johansson stjórnar stjómar íslenska liðinu í síðasta sinn gegn Dönum. þetta saman hjá okkur. Ég vona að við náum hagstæðum úrslitum og ég veit að allir ætla að gera sitt besta. Það væri gaman að enda ferilinn sem landsliðsþjálfari ís- lands með sigri á Dönum,“ sagði Bo Johansson. Líklegt byrjunariið Bo Johannsson tilkynnir byijunarlið íslands eftir hádegi í dag. En samkvæmt uppstillingu á æfíngu í gær má reikna með að liðið verði þannig skipað: Ólafur Gottskálksson verður í markinu. Valur Valsson aftasti maður í vörn - „sweeper“. Atli Eðvaldsson verður fyrir fram hann sem stoppari. Éinar Páll Tómasson hægri bakvörður og Sævar Jónsson vinstri bakvörður. Á miðjunni leika Þorvaldur Örlygsson, Sigurður Jónsson, Ólafur Þórðarson og Hlynur Stefánsson. Framheijar Eyjólf- ur Sverrisson og Arnór Guðjohnsen. Landsliðsþjálfari Dana í sjónvapsviðtali í gærkvöldi: Ekki stórsigur - aðeins 2-3 núll! Richard Moller Nielsen, landsl- iðsþjálfari Dana, sagði í við- tali við danska sjónvarpið f gær- kvöldi að Danir myndu ekki vinna stórsigur yfír íslendingum í Reykjavík. „Þetta verður aðeins tvö til þijú núll sigur.“ Eichard Moller hefur valið lið sitt sem leikur gegn íslendingum. Troels Rasmussen frá AGF leikur í markinu, en fyrir fram hann í stöðu „sweeper" verður Lars Olsen, Trabzonspor. Við hlið hans leika Marc Rieper, AGF og Ken Nielsen, Aston Villa. Miðvallarspilarar verða John Sivenæk, Mónakó, John Jensen, Bröndby, Kim Christofte, Bröndby, Per Frandsen, Lille og Jakob Fris Hansen, Lille. Framheijar verða þeir Frank Pingel og Peter Möller, AB. HG, Danmörku. HANDKNATTLEIKUR Leikið gegn Brasilíu Heimsmeistarakeppni 21 árs landsliða hefst í Grikklandi í dag ÚRSLIT Evrópukeppni bikarhafa Óðinsvé, Danmörku: OB - Galway (írlandi)..............4:0 Sten Nedergaard (35.), Leon Hansen (51.), Jacob Harder (81.), Jess Thorup (88.). 1.750 ■OB vann samanlagt, 7:0, og mætir Ban- ik Ostrava frá Tékkóslóvakíu í 1. umferð. England Leikir í 1. deild í gærkvöldi: Everton - Norwich..................1:1 Ward (49.) - Phillips (84.). 19.197. Leeds - Arsenal....................2:2 Strachan (66. - vítasp.), Chapman (86.) - Smith 2 (20., 48.). 29.396. Notts County - Sheff. Wed..........2:1 Johnson 2 (7. - vítasp., 85.) — Pearson (25.). 12.297. ■David Hirst hjá Sheff. Wed. meiddist á ökkla og var fluttur á sjúkrahús. „Stjórinn" Trevor Francis tók stöðu hans. Oldham - Coventry..................2:1 Adams (31.), Henry (63.) — Furlong (73.). 12.996. Sheff. United - Chelsea............0:1 - Wise (56.). 17.400. ■Vinny Jones lék með Chelsea, fimm dög- um eftir að félagið keypti hann frá Sheff.' Utd. á 575 þús. pund. Wimbledon - Man. Utd...............1:2 Fashanu (82.) - Blackmore (25.), Pallister (43.). 13.824. ■Steve Bruce misnotaði vítaspymu fyrir United á 88. mín. — skaut á þverslá. 2. DEILD: Bamsley - Watford................0:3 Cambridge - Southend.............0:1 Ipswich - Swindon..........i......1:4 Portsmouth - Sunderland..........1:0 Tranmere - Charlton..............2:2 Wolves - Port Vale...............0:2 Heimsmeistarakeppni 21 ára landsliða í handknattleik hefst í Aþenu í Grikklandi í dag. íslenska liðið, sem leikur í D-riðli, leikur þá gegn Brasilíu og Sovétmenn mæta Dönum í hinum leiknum í riðlinum. Þijú efstu liðin í riðlinum komast í milliriðil og leika þar gegn þremur efstu liðunum í C-riðli: Svíþjóð, S-Kórea, Þýskaland og Grikkland. Aðrar þjóðir sem taka þátt í heimsmeistarakeppninni, eru: A-riðill: Júgóslavía, Kína, Rúmenía og Tyrkland. B-riðill: Spánn, Ungveijaland, Frakkland og Egyptaland. ÍHémR FOLK ■ PAUL Walsh var í gær settur á sölulista hjá Tottenham fyrir að lemja Ray Clemence, fyrrverandi markvörð liðsins. Walsh lék á mánudaginn með varaliðinu og Clemence skipti honum útaf og var kappinn óhress með það og sló markvörðinn fyrrverandi með fyrr- greindum afleiðingum. ■ FRANK Rijkaard, leikmaður AC Mílan á Ítalíu, hefur ákvefnd að gefa kost á sér í hollenska lands- liðið. Rijkaard iýsti því yfir fyrir ári síðan að hann myndi ekki leika oftar fyrir Holland, eða eftir að hann var rekinn af leikvelli í leik Hollands og Vestur-Þýskalands eft- ir að hafa hrækt á Rudi Völler. Holland leikur gegn Póllandi í næstu viku og verður Rijkaard væntalega í liði Hollands. ■ RUUD GuIIit, hollenski lands- liðsmaðurinn hjá ÁC Mílan, vill að leikmenn í ítölsku deildinni fari í eins dags verkfall ef ólæti á áhorf- endabekkjum, eins og voru í fyrstu umferð, haldi áfram. Alls voru 48 knattspyrnubullur handteknar.-í Tórínó og Verona í fyrstu umferð á sunnudaginn eftir átök við lögreglu. ■ RONNIE Whelan, fyririiði Li- verpool, gekkst undir uppskurð á hné á mánudag og verður frá keppni í allt að tvo mánuði. ■ ERNESTO Paulo, sem stjórnar brasilíska landsliðinu gegn Wales í Cardiff í næstu viku, hefur kallað á fimm leikmenn úr HM-Iiði Bras- ilíu. Þá Romario, Careca, Mozer, Ricardo Gomes og Jorginbo. Hann hefur einnig valið Bebeto sem stakk af frá landsliðinu í keppninni um Suður-Ameríku bik- arinn. Raulo segist ætla að stilla þeim Careca, Romario og Bebeto upp í fremstu víglínu. ■ MILAN Macala, þjálfari tékk- neska landsliðsins, getur ekki stillt upp sínu sterkasta liði gegn Frökk- um í kvöld. Tékkar verða að vinna til að eiga möguleika á að komast í úrslitakeppni Evrópumótsins, en vinni Frakkar hafa þeir þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppninni. Tékkar verða án Skuhravy, Ivan Hasek og Miroslav Kadlec, sem allir eru meiddir og Lubos Kubik sem er í leikbanni. Macala aldrei náð að tefla fram sínu sterk- asta liði í Evrópukeppninni vegna meiðsla leikmanna. Hann hefur notað alls 37 leikmenn í síðustu 10 leikjum, þar af eru 21 sem leika með erlendum liðum. ■ BERTI Vogts, landsliðsþjálfari Þjóðverja, hefur valið Stefan Kuntz, fyrirliða Kaisersiautern, í landsliðshópinn sem mætir Eng- lendingum í vináttuleik á Wem- bley í næstu viku. Kuntz, sem er 28 ára og var valinn besti leikmað- ur þýsku Bundesligunnar á síðasta keppnistímabili, er eini nýliðinn í þýska hópnum. ■ GRAHAM Taylor, landslið- seinvaldur Englands, tilkynnti lifío sem mætir Þjóðveijum á mánudag. Hann valdi fimm nýliða í 22 manna hópinn. Þeir eru: Paul Stewart (Tottenham), Paul Merson (Arse- nal), Keith Curle (Man. City), David Burrows (Liverpool) og Tony Daley (Aston Villa). Nokkrir lykilmenn eru meiddir þ.á.m. John Barnes, Mark Wright, Lee Sharpe og Des Walker. ■ JEAN Sadoul, forseti frönsku deildarinnar í næstum 25 ár, lést um helgina. Hann var 79 ára. ■ XINMEI Sui, kínveski kúlu- varparinn, sem sigraði á Heimsleik- um stúdenta í Sheffield í Bretlandi í júlí, féll á lyfjaprófi og verður svipt gullverðlaununum og fer líklega í keppnisbann. Hún hafði notaði „anabolic" stera. Sui varpaði kúlunni 19,94 metra á leikunum. Svetlana Kriveleva frá Sovétríkj- unum varð önnur með 19,62 metra og fær hún því gullverðlaunin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.