Morgunblaðið - 02.10.1991, Blaðsíða 4
Morgunblaðið/Hallgrímur Magnússon
Vænn fengur úr sjó
Grundarfirði.
Gísli Kristjánsson og Lárus Guðmundsson komu fyrir skömmu að
landi með tvær lúður, u.þ.b. 100 kg hvor. Báðar lúðurnar fengu þeir
á sama staðnum. Gísli var skipstjóri í ferðinni. Hann gjörþekkir öll
fiskimið þar í nágrenninu en var þögull sem gröfín þegar hann var
spurður um veiðistaðinn og hafði til öryggis fyrirskipað að miðinn
með lórantölunum skyldi rifinn. Á myndinni sjást lúðurnar tvær ásamt
föngurum þeirra. T.v. við þær er Lárus Guðmundsson og Gísli Kristj-
ánsson hægra megin. Með þeim á myndinni eru þrír verðandi sjó-
menn þeir Bjöm Þór, Tómas Logi og Friðþjófur.
- Hallgrímur.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1991
Búsljóri þrotabús HÖ
krefst riftunar samning'a
Ekki lengur hægt að bíða með sölu eigna þrotabúsins
í SKÝRSLU sem Jóhann H. Níelsson hrl., bústjóri þrotabús Hraðfrysti-
húss Ólafsvíkur hf., lagði fram á skiptafundi í búinu á mánudag er
sagt að hann muni krefjast riftunar á nokkrum samningum sem forráð-
amenn hússins gerðu fyrir gjaldþrotið. Er hér um að ræða riftun á
sölu Garðars II. SH-164 til Utgerðarfélags Tungufells, riftun á sölu
hlutabréfa í Varakolli hf. og riftun á ráðstöfun á skuldabréfi frá Sölum-
iðstöð hraðfrystihúsanna til Lóndranga hf. Þá kemur einnig fram í
skýrslu bústjóra að ekki verði lengur beðið með að halda nauðungarupp-
boð á fasteignum þrotabúsins og hefur bæjarfógetanum í Olafsvík
borist beiðni um það.
Eins og fram hefur komið í fréttum
var það skoðun Landsbankans, að-
alkröfuhafa í þrotabúið, að ýmsar
athafnir forráðamanna frystihússins
fyrir gjaldþrot kynnu að bijóta í bága
við hagsmuna-og hlutafjárlög. Fyrir
utan söluna á Varakolli hf. og úrsögn
frystihússins úr SH var þar aðallega
um að ræða sölu á skipunum Tungu-
felli og Tindafelli og yfirtaka Útgerð-
arfélags Tungufells hf. á eigum
Björns & Einars sf. en meðal eigna
þeirra var Garðar II. Hefur bæjarfóg-
etinn á Ólafsvík nú skotið málum
þessum til rannsóknar hjá Rannsókn-
arlögreglu ríksins.
Bústjórinn hefur ráðið Þorvald
Þorsteinsson endurskoðanda við End-
urskoðunarmiðstöðina N. Mancher tii
að fara yfír bókhald Hraðfrystihúss
Ólafsvíkur og er honum falið að
kanna viðskipti félagsins við Lóndr-
anga hf., Útgerðarfélagið Tungufell,
Varakoll, Fiski- og sfldarmjölverk-
smiðjuna hf. og Sjóbúðir hf. Skýrsla
Þorvaldar mun síðan send Rannsókn-
arlögreglu ríkisins.
í skýrslu sinni gerir bústjóri grein
fyrir riftunarmálum þeim sem hann
fer fram á. Kemur þar m.a. fram
hvað varðar sölu hlutabréfa í Vara-
kolli hf. að upphaflega átti Hrað-
frystihús Ólafsvíkur 45% hlutafjár en
með kaupsamningi dagsettum 15.
júní eignaðist húsið 45% í viðbót eða
hlut Hauks Sigtryggssonar og Stein-
unnar Þorsteinsdóttur. Sama dag
selur hraðfrystihúsið svo Útgerðarfé-
lagi Tungufells allan sinn hlut eða
90% hlutafjár, þ.e. kaupandi yfirtekur
kaupsamning frá Hauki og Stein-
unni, en hin 45% eru seld á sama
nafnverði en með lakari kjörum.
Helsta eign Varakolls er vélskipið
Gunnar Bjarnason SH-25. í skýrsl-
unni segir: „Má því segja að þau fjög-
ur skip sem hér hafa komið við sögu
hafi beint eða óbeint færst úr eignar-
haldi Hraðfrystihúss Ólafsvíkur til
Útgerðarfélags Tungufells á stuttum
tíma.“
Hvað varðar riftun á ráðstöfun á
skuldabréfi frá SH til Lóndranga hf.
eru málavextir þeir að haustið 1987
keyptu Ólafur Gunnarsson og fjöl-
skylda hans 52% hlutafjár í hrað-
frystihúsinu. Þetta var gert þannig
að Ólafur keypti hlutafé Lóndranga
hf. sem var í eigu hraðfrystihússins
á 8 milljónir króna. Með í kaupunum
fylgdi gamalt frystihús sem kallast
Hólavellir. Síðan keyptu Lóndrangar
52% hlut í hraðfrystihúsinu. Þá leigðu
Lóndrangar Hólavelli til hraðfrysti-
hússins. Hefur leigusamningur ekki
fundist en leigan fyrir 1990 var reikn-
uð 6,8 milljónir króna. Síðar ákváðu
forráðamenn hraðfrystihússins að
ganga úr SH og fá greitt stofnsjóðs-
framlag sitt, alls 22,6 milljónir króna
að frádregnum viðskiptaskuldum.
Þessi upphæð var borguð á þremur
veðskuldabréfum. Þessi skuldabréf
voru afhent Lóndröngum sem
greiðsla á húsaleigu sem var að hluta
talin gjaldfallin og að hluta greidd
fyrirfram. Skuldabréfin voru affölluð
um 30%. „Forráðamenn Lóndranga
hf. segjast hafa notað skuldabréfín
til að greiða fyrri eigendum hluta-
bréfa í Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur hf.
kaupverð þeirra og segjast aðspurðir
ekki hafa undir höndum neina pen-
inga til þess að endurgreiða andvirði
skuldabréfanna," segir í skýrslunni.
Bústjóri telur að þarna bijóti í bága
við gjaldþrotalög og leggur til mál-
sókn til riftunar á ráðstöfun skulda-
bréfanna.
Útvarp Reylgavík hf.
kaupir Aðalstöðina
HLUTAFÉLAGIÐ Útvarp Reykjavík hf. hefur keypt Aðalstöðina í
Reykjavík og tók við rekstri hennar í gær. Það er Baldvin Jónsson,
fyrrverandi markaðsstjóri Stöðvar 2, og fjölskylda hans sem standa að
hlutafélaginu. Hlutafé hins nýja félags er 500 þúsund krónur. Nafn
nýju stöðvarinnar er Útvarp Reykjavík-Aðalstöðin. Fyrri eigandi Aðal-
stöðvarinnar var Arnól hf.
Að sögn Baldvins verður frétta-
stofu ekki haldið úti fyrst um' sinn.
Til að byija með yrði áfram sent út
allan sólarhringinn en félagið hefði
þó Iíklega ekki burði til að senda
út nema frá klukkan sjö á morgnana
til miðnættis á virkum dögum í fram-
tíðinni. Jafnframt mun útsendingar-
svæðið verða bundið við Snæfells-
nes, um allt Reykjanessvæðið, og
austur til Víkur í Mýrdal. Áður sendi
Aðalstöðin út til Akureyrar en þær
útsendingar leggjast af.
Baldvin hefur starfað í eitt ár hjá
Stöð 2, en áður var hann auglýsinga-
stjóri Morgunblaðsins. Hann sagði
að þetta hefði borið mjög brátt að
og ekki verið ljóst fyrr en á mánu-
dag að hans tilboði hefði verið tekið
í útvarpstöðina. Sama kvöld hefði
hann sagt starfi sínu lausu á Stöð
2 og uppsögnin tekið gildi í gær. „Ég
hafði mikinn áhuga á að kynnast
Ijósvakamiðlunum og svo bauðst mér
að kaupa þessa útvarpsstöð."
Baldvin sagði að eðli málsins sam-
kvæmt yrðu einhveijar breytingar
gerðar á útvarpsstöðinni. „Mér
finnst þróunin í íslensku ljósvaka-
miðlunum á þessum fyrstu fimm
árum hafa verið afskaplega döpur
og hræðilegt að horfa til þess að
einkaframtakið skuli ekki sýna
meira frumkvæði í útvarpsrekstri en
það hefur gert. Ég vil að þetta verði
gott íslenskt útvarp og mun ieggja
mikla áherslu á allt sem íslenskt
er,“ sagði Baldvin.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG:Mjög hvöss norðan- og norðaustan átt.
Slydda eða rigning um allt norðanvert landið en skúrir syðra. Hiti
1-4 stig norðantil en allt að 8 stig suðaustanlands.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Minnkandi norðan- og norðvestan átt,
fyrst vestantil, éljagangur á Norður- og Austurlandi en léttskýjað
sunnanlands og vestan. Heldur kólnandi og víða næturfrost.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TAKN.
Heiðskírt
Lettskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
■* * *
* * * * Snjókoma
f‘Þ
10 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
[~<^ Þrumuveður
^ ______
Olafur H. Kjartansson
skipaður bæjarfógeti
FORSETI íslands hefur að tillögu
dómsmálaráðherra skipað Ólaf
Helga Kjartansson skattstjóra til
að vera sýslumaður í ísafjarðar-
sýslu og bæjarfógeti á ísafirði í
stað Péturs Kr. Hafstein, sem i
gær tók við embætti dómara við
Hæstarétt íslands.
Ólafur Helgi Kjartansson er 38
ára, fæddur í Reykjavík 2. september
1953, sonur Ágústu Skúladóttur og
Kjartans P. Ólafssonar vélfræðings.
Hann lauk lagaprófí frá Háskóla.
íslands 1978 og réðst að því loknu
sem dómarafulltrúi til Sýslumanns-
ins í Árnessýslu og bæjarfógetans á
Selfossi. Þar starfaði Ólafur Helgi
til 1984 er hann tók við embætti
skattstjóra á ísafirði. Því embætti
gegnir hann til 15. þessa mánaðar
er hann tekur við hinu nýja.
Ólafur Helgi Kjartansson er
kvæntur Þórdísi Jónsdóttur, og eiga
þau tvær dætur.
Ólafur Helgi Kjartansson
VEÐURHORFUR í DAG, 2. OKTÓBER
YFIRLIT: Skammt norður af Hornbjargi er 998 mb smálægð sem
hreyfist lítið í bili, en yfir Grænlandi er dálítil hæð. Langt suðvestur
í hafi er ört vaxandi iægð á norðausturleiö með stefnu á milli Is-
lands og Færeyja.
SPÁ Austlæg eða breytileg átt, gola eða kaldi. Rigning á Suðaust-
ur- og Austurlandi en skúrir í öðrum landshlutum, sizt á Vestur-
landi. Ört vaxandi vindur suðaustanlands undir kvöld. Hiti á bilinu
4-8 stig.
/ r /
/ / /
Heimild: Vefturslola íslands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
/ DAG kl. 12.00
Vfl / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 7 skýjað Reykjavík 8 alskýjað
Bergen 6 rigning
Helsinkí 14 léttskýjað
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk 0 skýjað
Osló 12 hálfskýjað
Stokkhólmur 11 skýjað
Þórshöfn 7 skúr
Algarve 22 heiðskírt
Amsterdam 13 rigning
Barcelona 22 léttskýjað
Berlín 15 léttskýjað
Chicago 8 aiskýjað
Feneyjar 21 þokumóða
Frankfurt 15 skýjað
Glasgow 10 skúr
Hamborg 12 alskýjað
London 16 léttskýjað
Los Angeles 19 heiðskírt
Lúxemborg 12 skýjað
Madrid 20 léttskýjað
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal vantar
NewYork 15 skýjað
Orlando 23 alskýjað
París 14 alskýjað
Madeira 23 hálfskýjað
Róm 24 skýjað
Vín 18 skúr
Washlngton 16 þokumóða
Winnipeg 8 alskýjað
VEÐUR