Morgunblaðið - 02.10.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1991
17
Selásskóli við Selásbraut
Tvær nýjar viðbyggingar við grunnskóla teknar í notkun:
Nær milljarði varið árlega
í uppbyggingu grunnskóla
NÝJAR viðbyggingar við Selás-
skóla og Grandaskóla í Reykjavík
voru teknar í notkun er kennsla
hófst fyrir skömmu. Byggingu
Grandaskóla er þar með lokið og
þörf fyrir grunnskólarými vegna
nýbygginga í Vesturbæ að fullu
svarað. Einn áfanga á eftir að
reisa við Selásskóla og er áætlað
að honum verði lokið innan
tveggja ára. Að sögn Arna Sigfús-
sonar, formanns skólamálaráðs
Reykjavíkur, verður á næstunni
nær milljarði króna varið árlega
í uppbyggingu grunnskóla.
I Selásskóla við Selásbraut eru
350 börn á aldrinum sex til tólf ára
en kennarar eru 20 talsins. Fyrsti
áfangi skólans var tekinn í notkun
haustið 1986 og annar áfangi ári
síðar.
Þriðji áfangi skólans, sem nú er
verið að taka í notkun, er 803 fer-
metrar að stærð en heildarflatarmál
skólans er tæplega 2600 fermetrar.
í nýju viðbyggingunni er stjórnunar-
deild skólans auk heilsugæslu,
tveggja almennra kennslustofa og
raungreinastofu.
Fyrirhugað er að ijórða áfanga
Selásskóla verði lokið innan tveggja
ára en þar er gert ráð fyrir sam-
komu- og félagsrými ásamt sameig-
inlegum inngangi í þá áfanga sem
fyrir eru. Um þessar mundir er unn-
ið að hönnun þess rýmis ásamt sér-
byggðu íþróttahúsi sem tekið verður
í notkun á næsta ári.
Fyrsti áfangi Grandaskóla við
Keilugranda var tekinn í notkun
haustið 1986 en annar áfangi haust-
ið 1989. Nú eru í skólanum 460
börn á aldrinum sex til tólf ára en
kennarar eru 30 talsins.
Þriðji áfangi skólans og jafnframt
sá síðasti, sem nú hefur verið tekinn
í notkun, rýmir aðalinnkomu í fyrri
áfanga skólans auk stjórnunardeild-
ar, bókasafns og heilsugæslu. Þá eru
í tengibyggingu stofur fyrir raun-
greinar og tölvukennslu. Nýja við-
byggingin er 855 fermetrar að stærð
en heildarflatarmál skólans er rúm-
lega 2200 fermetrar.
Morgunblaðið/Sverrir
Kristín H. Tryggvadóttir, skólastjóri í Selásskóla, og Anna Guðrún
Jósefsdóttir, aðstoðarskólastjóri, sýna Arna Sigfússyni, formanni
skólarnálaráðs Reykjavíkur, og Ragnari Júlíussyni, forstöðumanni
kennslumáladeildar Skólaskrifstofu Reykjavíkur, nýju viðbygging-
una.
Tölvukennsla í Grandaskóla fer fram í nýju viðbyggingunni.
Fjárhagsáætlanir við verklok
skólanna stóðust allar.
„Afangarnir við Grandaskóla og
Selásskóla sem nú er verið að taka
í notkun eru aðeins h'till hluti þeirra
miklu framkvæmda sem unnið er að
við uppbyggingu skólamála hér í
borg,“ sagði Árni Sigfússon, í sam-
tali við Morgunblaðið. „Á næstunni
mun fara nær milljarður á hverju ári
í uppbyggingu grunnskóla borgar-
innar. Við stefnum að því að upp-
bygging skólanna taki mið af fjölgun
íbúa í hverfum þannig að taka megi
í notkun fyrsta áfanga þegar komin
er kjarnabyggð í hvert hverfi og þró-
unin í áfangabyggingu verði hröð
eftir það,“ sagði Arni.
HEIMILIS-
PÍANO
Ö£LA
1 IIMr^T
A
AÐEINS
kr. 139.000 stgr.
VIÐURKENND AF
FAGMÖNNUM
INNIFALIÐ:
TVÆR STILLINGAR
mm
EGILSSTOÐUM
SIMI 9712020
Heilsugæslustöðin Efra-Breiðholti
Nýr heimilislæknir
Ólafur Stefánsson, læknir, sérgrein: heimilis-
lækningar, hefur tekið til starfa á Heilsugæslu-
stöðinni Hraunbergi 6, Reykjavík.
Skráning fer fram á stöðinni.
Upplýsingar í síma 670200 kl. 08.00-17.00.
AKVEÐNIÞJA LFUN
Námskeið í sjálfsstyrkingu fyrir karl-
menn þar sem k^nndar eru og æfðar
aðferðir til að ná árangri í samskiptum.
Upplýsingar um helgar og öll kvöld
ísíma 93-71520
Ásþór Ragnarsson, sálfræöingur
Stýrimannaskólinn
* í Reykjavík
100 ára
Háttðardagskrá
/augardag7?m 5. október 1991
Kl. 12.00 Eldri og yngri nemendur skólans koma í
skólann, þar sem haldinn verður stuttur fund-
ur í hátíðarsal.
Kl. 12.45 Gengið frá Stýrimannaskólanum til fundarins
í Borgarleikhúsinu.
Kl. 13.00 Lúðrasveitin Svanur leikur við Borgarleikhúsið.
Kl. 13.30 Hátíðarfundur í Borgarleikhúsinu.
Kl. 19.00 Hátíðarkvöldverður og dansleikur í íþróttahús-
inu v/Digranesveg í Kópavogi.
Af mælishátíðin er að sjálfsögðu opin og ætluð öllum
fyrrverandi og núverandi nemendum skólans og
mökum þeirra.
Pöntun og sala aðgöngumiða á afmælishófið í
íþróttahúsi Digranesskóla fer fram hjá Farmanna-
og fiskimannasambandi íslands í Borgartúni 18,
sími 91-629933.
Það er peningur
í Egils gleri!
Allar glerflöskur frá Ölgerðinni eru
margnota með 10 króna skilagjaldi.
Ekki henda verðmœtum, hafðu tómt Egils gler
meðferðis þegar þú endurnýjar Egils birgðirnar
í næstu verslunar- eða sjoppuferð.
Það er drjúgur peningurl
Aftur og aftur og aftur!