Morgunblaðið - 02.10.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 02.10.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1991 Island komið með góða forystu í sínum riðli á heimsmeistaramótinu í brids: Er hreinleg’a orðlaus yfir velgengninni það sem af er ~ segir Björn Eysteinsson, fyrirliði íslenska liðsins Frá Guðmundi Hermannssyni, blaðamanni Morgunblaðsins í Yokohama. ISLENSKA landsliðið vann þrjá sigra í gær á heimsmeistaramótinu í brids í Japan og er á góðri leið með að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum mótsins þótt riðlakeppnin sé enn ekki hálfnuð. íslenska landsliðið leiðir sinn riðil og munar 23 stigum, eða nærri heilum leik, á Islandi og Bretum sem eru í 2. sæti. Þá eru nú 40 stig niður í 5. sætið, en fjögur efstu liðin í riðlinum komast áfram í mótinu. íslenska landsliðið í brids, sem nú keppir í Japan. Frá vinstri: Örn Arnþórsson, Guðmundur Páll Arnarson, Þorlákur Jónsson, Jón Baid- ursson og Aðálsteinn Jörgensen, Björn Eysteinsson, fyrirliði og Guðlaugur R. Jóhannsson sitja fyrir framan. Vestur Norður Austur Suður Þorákur Balski Guðm. Brown „Ég er hreinlega orðlaus yfir hvað hefur gengið vel. En liðið hefur verið að spila sinn besta brids,“ sagði Björn Eysteinsson fyrirliði íslenska liðsins eftir 6. umferðina í gærkvöldi. Þá höfðu íslendingar unnið Venezúela 25-3, en fyrir leik- inn voru Venezúelamenn í öðru sæti í riðlinum. Bjöm sagði að mörg liðanna hefðu greinilega verið ryðguð fyrstu tvo dagana, þó sérstaklega þann fyrsta, og Island hefði þá fengið mun fleiri stig en markið hefði fyrir- fram verið sett á. „Það er greinilegt að undirbúningur okkar hefur skil- að sér vel,“ sagði Björn. íslending- amir komu til Japan, fyrst liða, til að venjast tímamuninum vel, og einnig spiluðu þeir tvo æfingaleiki eftir komuna til að ná úr sér hrollin- um, eins og liðsmennirnir orðuðu það. Þegar Björn var spurður hvort honum fyndist spilamennskan á mótinu almennt lakari en hann hafði búist við, sagði hann að það væri erfitt að meta. „Því er þó ekki að leyna, að margir af þessum er- lendu stórspilurum, sem maður hef- ur heyrt af og lesið um, eru ekkert betri en íslensku landsliðsmennirn- ir. Það er ljóst, að bestu spilarar okkar hafa yfir mjög góðum brids að ráða; þetta er spurning um að nýta þá hæfileika sem í þeim búa sem best,“ sagði Bjöm. Fyrsti sigur gærdagsins var á Ástralíumönnum, sem hafa oft spil- að á mótum sem þessum. Aðal- steinn Jörgensen og Jón Baldursson tóku reyndustu spilara Ástrala, þá Paul Marston og Paul Lavings, hreinlega í kennslustund og Ástral- arnir voru heldur niðurdregnir að leik loknum. Þetta er eitt besta blað sem við höfum átt í háa herrans tíð,“ sagði Jón eftir leikinn. Guð- mundur Páll Arnarson og Þorlákur Jónsson voru hins vegar daufir í dálkinn þegar þeir komu út úr spila- salnum og töldu leikinn tapaðan. Það hýrnaði þó yfir þeim þegar leið á samanburðinn við Jón og Aðal- stein og í ljós kom, að þeirra fram- lag nægði til af vinna leikinn 24-6. „Þú sérð að það hefur verið erfitt að spila með spilin ykkar. Og þið spiluðuðu rriiklu betur en þeir,“ sagði Jón hughreystandi við Guð- mund Pál. ísland græddi 16 keppnisstig á þessu spili: Norður ♦ 109543 ♦ K6532 ♦ 8 Vestur *D3 Austur ♦ 82 ♦ KG7 ♦ G104 ♦ Á87 ♦ G965 ♦ KD743 ♦ Á1096 Suður ♦ 84 ♦ ÁD6 ♦ D9 ♦ Á102 ♦ KG752 Vestur Norður Austur Suður Marston Aðalst. Lavings Jón — — 1 tígull 1 grand 2 tíglar 4 tíglar dobl 4 spaðar Fjórir tíglar Aðalsteins báðu Jón að velja geim í hálit og Jón valdi spaðann. Vestur spilaði úr tígli sem Jón drap með ás. Hann spilaði laufi á drottningu sem hélt, og hjarta á drottniríguna sem einnig hélt slag. Síðan spilaði hann laufkóng sem vestur drap með ás. Vestur spilaði tígli, sem Jón trompaði í blindum. Hann spilaði hjarta á gosa vesturs, sem enn spil- aði tígli sem Jón varð að trompa. Nú svínaði hann spaðadrottningu og trompaði lítið lauf í blindum og austur yfirtrompaði með gosa. Nú var sama hveiju austur spilaði og raunar prufaði hann hjartaásinn, sem Jón trompaði heima. Þegar báðir fylgdu í trompásinn gat Jón lagt upp. Við hitt borðið voru Ástralirnir alveg úti að aka: — — 1 tígull dobl 2 tíglar dobl 3 tíglar 3 grönd pass 4 tíglar pass 5 lauf dobl pass pass pass Norður ætlað að koma sömu skilaboðum áleiðis og Aðalsteinn áður með 4 tíglum en staðan var greinilega loðin. Þorlákur bætti gráu ofan á svart með því að dobla 5 lauf og fékk 800, þegar spilið fór fjóra niður. Guðlaugur R. Jóhannsson og Örn Arnþórsson komu inn fyrir Guð- mund og Þorlák gegn Japönum í 5. umferð. í japanska liðinu spilar eina konan í opna flokki mótsins, en einnig er keppt í sérstökum kvennaflokki. íslenska liðið komst lítið áleiðist með Japana og leikur- inn var fremur bragðdaufur, vannst samt sem áður 17-13. í þriðja leiknum spilaði ísland við Venezuela eins og áður sagði, og Guðmundur og Þorákur skiptu aftur við Guðlaug og Örn. Jón og Aðal- steinn áttu í nokkrum erfiðleikum við sitt borð, og þótt blaðið þeirra væri þokkalegt voru þeir ekki sér- lega ánægðir. Guðmundur og Þorlákur spiluðu við gamalreynda spilara, þá Alberto Calvo og Alberto Dhers, en Calvo er í utanríkisþjónustu Venezúela og hefur meðal annars verið sendiherra í Japan. Guðmundur og Þorlákur áttu nú svipaðan leik og Jón og Aðalsteinn höfðu átt gegn Áströl- um. Meðal annars komu 34 keppn- isstig samtals í tveimur síðustu spil- unum. Eftir að liðið hafði borið saman blöðin sín og í ljós kom að leikurinn hafði unnist 25-3, nýtti Jon sér nýfengna kunnáttu sína í japönskum kurteisisvenjum og hneigði sig djúpt fyrir Guðmundi. Guðmundur átti mestan heiður- inn af sveiflunni í þessu spili. Norður ♦ Á2 ♦ 96 ♦ K98753 ♦ 732 Vestur Austur ♦ K10987654 ♦ DG3 ♦ 105 ♦ ÁK8 ♦ 10 ♦ ÁD42 + KG Suður +ÁD10 ♦ - ♦ DG7432 ♦ G6 ♦ 98654 Islenska esperantósambandið: Vona að húsnæðið efli starf esperantista - segir Hallgrímur Sæmundsson ISLENSKA esperantósambandið eignaðist fyrir skömmu sitt fyrsta húsnæði, að Skólavörðustíg 6b í Reykjavík. Þar með hafa esperantistar hér á landi fengið aðstöðu til námskeiðahalds og funda. Hallgrímur Sæmundsson, formaður esperantósambands- ins, sagði í samtali við Morgunblaðið að húsnæðiskaupin hefðu tekist með samstilltu átaki félagsmanna og vonandi yrði nú unnt að kynna betur og efla starfsemi sambandsins. Esperantó er alþjóðlegt tungu- mál, en höfundur þess var pólski augpilæknirinn Zamenhof. Árið 1887 kynnti hann tungumálið, sem sótti orðaforða sinn til fjöl- margra tungumála, en hefur síðan þróast sem bókmennta- og sam- skiptamál. Fyrsta íslenska kennslubókin í esperantó, eftir Þorstein Þorsteinsson, kom út árið 1909. „Starfsemi íslenskra esperantista hefur verið óslitin hér á landi síðan og árið 1944 var stofnað esperantistafélagið Aur- oro í Reykjavík," sagði Hallgrím- ur. „Félagar í því eru um 60, en á landinu öllu eru um 100 esper- antistar.“ Hallgrímur sagði að veikasti hlekkurinn í starfseminni hér á landi hefði verið að kynna starfíð og ná þannig til fleira fólks en félagsmanna. „Esperantó hefur að vísu verið kennt sem valgrein I menntaskólunum við Hamrahlíð, á Laugarvatni og á Akureyri, þeg- ar næg þátttaka hefur fengist. Auk þess höfum við haldið nám- skeið. Nýja húsnæðið gerir okkur kleift að vinna frekar að slíkum kynningum. Við söfnuðum lengi í hússjóð og félagsmenn lögðu mikið af mörkum. Einn þeirra, Vilhjálmur Sveinsson, lagði til dæmis fram 500 þúsund krónur.“ Islenska esperantósambandið Morgunblaðið/Sverrir Hallgrímur Sæmundsson, formaður íslenska esperantósambands- ins, skráir bókasafn sambandsins í nýju húsnæði þess að Skóla- vörðustíg 6b. er aðili að Alþjóðlega esperantó- sambandinu, sem er með aðsetur í Hollandi. „Stærsti atburðurinn í sögu íslensku hreyfíngarinnar var þegar við sáum um alþjóðaþing esperantista árið 1977 með um eitt þúsund erlendum gestum," sagði Hallgrímur. „Þá komu gest- ir frá tíu löndum í heimsókn til okkaí í sumar. Esperantó hefur aldrei verið alþjóðlegra samskipt- amál en einmitt nú, því félög hafa sprottið upp í ýmsum Afríkulönd- um undanfarna áratugi og víða í Asíu er öflug starfsemi esperant- ista, til dæmis í Japan og Kína. Um heim allan kemur út ótrúleg- ur ljöldi rita á esperantó og ís- lenska sambandið á ágætt bóka- safn.“ Skrifstofa íslenska esperantó- sambandsins að Skólavörðustíg 6b er opin frá kl. 16-18 virka daga og frá kl. 10-12 á laugardög- um. Við borð Aðalsteins og Jóns opn- aði suður á veikum tveimur í hjarta og Jón stökk í 3 spaða. Aðalsteinn spurði þá um ása og sagði sex grönd til að vernda gafflana sína í laufi og tígli fyrir útspili. Suður spilaði út laufí og þegar Jón lagði spilin sín niður sagði hann vonsvikinn: „Ekki bjóst ég við að verða blindur í þessu spili!“ Hann var þó ekki blindur lengi því Aðalsteinn lagði fljótlega niður spilin sín og tók 12 slagi. Við hitt borðið gekk meira á: Vestur Nordur Austur Suður Dhers Þorlákur Calvo Guðmun- d. — — — 3 hjörtu 3 spaðar 4 hjörtu 4 grönd 5 tíglari Pass Pass 7 grönd Pass Pass dobl Calvo og Dhers spila lítið saman og Guðmundur ákvað að nýta sér það. 4 grönd voru ásaspurning en bridspör segja á mismunandi hátt frá fjölda ása ef andstæðingarnir koma inn á. Það kom í ljós, að Calvo og Dhers voru ekki sammála. Dhers taldi sig neita ás með passinu en Calvo hélt að það lofaði einum ás og fór alla leið í alslemmu sem Þorlákur tók feginn á móti. Staðan í riðli íslands er þessi eftir 6 umferðir: ísland 224,25, Bretland 101, Venezúela 94, Bandaríkin 92,5, Argentína 82,75, Egyptaland 79,25, Japan 66, Ástr- alía 60,25. í hinum riðlinum leiðir Brasilía en Pólland, Bandaríkin B og Svíþjóð fylgja fast á eftir. í dag spilar ísland við Egypta í 7. leik. Að honum loknum hefia þjóðirnar aðra umferð en ekki verð- ur ljóst fyrr en þá hveija aðra Is- lendingar kljást við í dag. ■ ÍSLAND kemur á óvart í Bermúdakeppninni, sagði aðalfyrir- sögnin í mótsblaði heimsmeistara- mótsins á þriðjudaginn. „Þessir menn kunna ekkert í brids, fyrst þeir segja þetta,“ sagði Björn Ey- steinsson fyrirliði íslenska landsliðs- ins hneykslaður. H SEKTIN sem ísland fékk fýrir að fara fram yfír tímann í leiknum gegn Argentínu á mánudag reynd- ist einungis vera 0,75 stig í stað 1,5 stiga eins og fyrst var talið. Þegar keppnisstjóri las lengra kom í ljós, að sektin deilist á bæði lið, ef hvorugu er greinilega um að kenna. ■ ÍSLENSKA liðið setti sér stiga- markmið fyrir hvern dag riðla- keppninnar. Fyrsta daginn ásettu spilararnir sér að fá 40 stig og 50 st.ig annan daginn. Raunin varð hins vegar 68,2 stig fyrsta daginn og 76 stig annan daginn. ■ TVÖ kjördæmafélög innan Samstöðu, sem beitir sér gegn aðild íslands að EES og EB, voru stofnuð um helgina. Kjördæmafé- lag fyrir Austurland var stofnað á fundi á Egilsstöðum. Þar fluttu ávörp Jónas Pétursson, Kristjana Bergsdóttir, Kristín Einarsdóttir og Helgi Seljan. Á fundinum voru kosin í aðal- og varastjórn kjör- dæmisfélagsins Björn Vigfússon, Helgi Omar Bragason, Hrafn- kell A. Jónsson, Kristjana Bergsdóttir, Magna Gunnars- dóttir og Salome Guðmunds- dóttir. Kjördæmafélag Norður- lands vestra var stofnað á fundi á Sauðárkróki. Þar fluttu ávörp Gunnar Oddsson, Þórey Helga- dóttir, Konráð Gíslason, Matthías Bjömsson, Hörður Ingimundar- son, Bjami Einarsson og Jóhannes R. Snorrason. í stjórn kjördæma- félagsins vom kosin Gunnar Oddsson, Matthias Björnsson, Þórey Helgadóttir og Alfur Ket- ilsson og Sigtryggur Björnsson til vara. Kjördæmafélögin munu m.a. standa fyrir fundum í kjördæ- munum og halda utan um undir- skriftasöfnun í sínu kjördæmi gegn aðild íslands að EES og EB. Félög Samstöðu verða stofnuð í öðrum kjördæmum á næstunni. (Fréttatilkynning) Gódan daginn!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.