Morgunblaðið - 02.10.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTOBER 1991
19
Grætur marsvínið
Reuter
Ungur piltur frá New York-borg tárast við hræ marsvínskálfs sem var meðal 17 marsvína er drápust er
tugir hvala hlupu á land við Þorskhöfða í MasSachusetts í fyrradag. Björgunarmönnum tókst að koma
flestum hvalanna á flot aftur.
Yíkingaskipin þijú
sigla til Delaware
DuPont-verksmiðjurnar greiða kostn-
að af þessari lykkju á leið skipanna
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
VIÐKOMUSTÖÐUM víkingaskipanna þriggja, sem varpa akkerum
í Washington 9. okt. nk. á degi Leifs Eiríkssonar í Bandaríkjunum,
hefur nú fjölgað um einn. Á siðasta áfanganum sigla skipin inn eft-
ir Delaware-flóanum og eiga nokkurra klukkustunda viðdvöl í New-
castle og hátið verður haldin í Wilmington til heiðurs öllum þeim
sem að ferð þeirra standa.
Major sagður ákveðinn að
bíða með kosningar til vors
Brighton, Englandi. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, hefur ákveðið að efna
ekki til þingkosninga fyrr en næsta vor, að því er haft hefur verið
eftir allra nánustu ráðgjöfum hans. Fulltrúar á ársþingi Verkamanna-
flokksins er stendur yfir í Brighton á suðurströndinni brugðust
hart við fregninni og sökuðu Major um hugleysi.
ær sem er á kjörtímabilinu ákveðið
að íjúfa þing og boða til nýrra kosn-
inga.
Það eru DuPont-verksmiðjurnar
sem standa að baki þessari lykkju
á leið skipanna og greiða allan
kostnað hennar vegna og hátíða-
halda sem fram fara.
Dr. Örn Aðalsteinsson, sem er
einn af framkvæmdastjórum hjá
DuPont, tjáði fréttaritara Morgun-
blaðsins að með þessu vildi fyrir-
tækið lýsa stuðningi sínum við til-
gang ferðarinnar og einnig sýna
helsta stuðningsmanni hugmynd-
arinnar, skipakónginum Knut Ut-
stein Kloster, vinarvott því líklegt
er að verksmiðjurnar framleiði
fjölda hluta í hið glæsilega nýja
farþegaskip hans, Phoenix World
City, sem nú er á stokkunum.
Lúðrasveit DuPont-verksmiðj-
anna leikur síðasta hálftímann fyrir
landtöku skipanna en þau varpa
akkerum í Newcastle á hádegi 5.
október. Sendiherrar íslands og
Noregs flytja ávörp ásamt Knut
Kloster. Síðan verða leiknir þjóð-
söngvar íslands, Noregs og Banda-
ríkjanna. Að þessu loknu svarar
leiðangursstjórinn Ragnar Torseth
og 24 manna áhöfn hans spurning-
um almennings varðandi ferðina
yfir hafið til minningar um afrek
víkinganna.
I grein sem upplýsingadeild Du-
Pont-verksmiðjanna sendi til fjöl-
miðla er skipunum nákvæmlega
lýst og þess getið að unnt hafi ver-
ið að gera nákvæmar eftirlíkingar
af skipum víkinganna vegna þess
að slík skip hefðu verið grafin upp-
í Noregi. Sagt er frá búnaði eftirlík-
inganna og að þessi víkingaskip
nútímans hafi siglt frá Noregi til
Ameríku. Aðeins einu sinni er
minnst á nafn íslands í þessari
grein; sagt að íslenska ríkið hafí
tekið þátt í kostnaði við framkvæmd
hugmyndarinnar. Ekki er minnst á
að skipin hafi haft viðkomu á ís-
landi né heldur að Leifur Eiríksson
hafi verið íslenskur.
Major er sagður
vilja veðja _ á að
fylgi við íhalds-
flokkinn aukist í
vetur þegar Bretar
komast út úr efna-
hagskreppu sem
þeir hafa átt við
að gh'ma undan-
farin misseri. Þeg-
ar eru komin fram
merki um efnahagsbata og benda
allar spár til þess að hann verði
meiri síðar á þessu ári og því næsta.
Ihalds- og Verkamannflokkurinn
hafa hlotið mjög svipaða útkomu
Major
úr könnunum sem gerðar hafa ver-
ið á afstöðu kjósenda til bresku
flokkanna síðustu vikur. Þykir það
benda til þess að færu kosningar
fram í nóvember næstkomandi ætti
Verkamannaflokkurinn um þessar
mundir betri möguleika á sigri í
þingkosningum en nokkru sinni frá
.því íhaldsflokkurinn undir forystu
Margaret Thatcher, fyrrum forsæt-
isráðherra, komst til valda 1979.
Þingkosningar verða að fara
fram í síðasta lagi 9. júní á næsta
ári en þá verða liðin fimm ár frá
því Bretar gengu síðast að kjör-
borði. Forsætisráðherra getur hven-
Utanríkisráðherrar EB:
Tillaga um framtíð
EB lögð til hliðar
Brussel. Daily Telegraph-
TILLÖGU Hollendinga um sam-
bandsríki Evrópu þar sem gert
var ráð fyrir því að æðstu völd í
málum Evrópubandalagsins (EB)
lægju hjá framkvæmdastjórn EB
í Brussel og Evrópuþinginu í
Strasbourg var lögð til hliðar á
fundi utanríkisráðherra banda-
lagsins í gær.
Einungis Belgar studdu tillögu
Hollendinga sem þykja hafa mistek-
ist forystuhlutverk í Evrópubanda-
laginu. Roland Dumas, utanríkisráð-
herra Frakka, sagði flesta starfs-
bræður sína, eða 10 af 12, hafa
gagnrýnt tillöguna og hvatt til þess
að rykið yrði dustað af tillögum Lúx-
embúrgara um mynt- og pólitískt
bandalag frá því fyrr á þessu ári.
Italir tóku af skarið í gagnrýni á
tillögur Hollendinga og sögðu að
Bretar myndu aldrei verða til um-
ræðu um þær þar eð þær gengju
miklu lengra í því að færa alla
ákvarðanatöku til framkvæmda-
stjórnarinnar og þings bandalagsins
en Bretar yrðu nokkru sinni til um-
ræðu um. Douglas Hurd, utanríkis-
ráðherra Breta, sagðist sáttur við
niðurstöðu fundarins og sagði Breta
vilja stuðla að árangursríkum leið-
togafundi bandalagsins í Maastricht
í Hollandi í desember en þar verður
að undirrita samkomulag um pólit-
íska framtíð bandalagsins og gjald-
eyrisbandalag. Jacques Delors, for-
, aeti framkvæmdastjórnar EB, sagði
eftir fund utanríkisráðherranna að
enn væri engin málamiðlun í augsýn
um lykilatriði sem leiða þyrfti til
lykta fyrir leiðtogafundinn.
Tito fluttur
í kirkjugarð
Zrich. Frá Öiutu Bjarnadóttur, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
RÁÐAMENN í Belgrad, höfuð-
borg Serbíu, kæra sig ekki uni
að Josip Broz Tito, faðir sam-
bandsríkisins Júgóslavíu, hvíli
áfram í hvítri marmarakistu í
veglegu grafhýsi í Belgrad. Mil-
odrag Janic, borgarmálaráð-
herra Serbíu, segir að grafhýsið,
„Hús blómanna", hafi verið reist
í leyfisleysi árið 1980 þegar
gamli kommúnistaforinginn lést.
Nú stendur til að rifa það og
flytja leifar Titos í venjulegan
kirkjugarð.
Jovanka, ekkja Titos, ætlar ekki
að taka boði ráðamanna um að taka
við líkinu. Hún segir flutninginn
hápunkt íjölmiðlaáróðurs serbn-
eskra þjóðernissinna gegn manni
sínum. Hún kveður þá vilja sverta
minningu Titos af því að foreldrar
hans voru frá Króatíu og Slóveníu.
Jovanka og Tito bjuggu ekki saman
síðustu árin sem hann lifði.
ÚTI ER ÁLLTÁF ÁÐ SNJÖA A ÞAÐ ER DRAUMUR AÐ VERA MEÐ DÁTA A ÁLLT
k HÓTEL ÍSLAND OG STEINAR HF. KYNNA NÝJA STÓRSÝNINGU Á HÓTEL ÍSLANDI: >■
Sigrún Evo Árniannsdóftir
ISLENSKIR TONAR
í30ÁR1950-1980
Tugir laga frá gullöld íslenskrar
dœgurtónlistar fluttur af nokkrum bestu
dœgurlagasöngvurum landsins ásamt
Dœgurlagacombói Jóns Ólafssonar.
Sérstakir gestasöngvarar í október:
Þuríöur Sigurðardóttir
Ólafur Þórarinsson (Labbi í Mánum)
GuÖbergurA uÖunsson
Stjórnandi: Björn Emilsson • Handrit: Ómar Valdimarsson
• Kóreógrafía: Ástrós Gunnarsdóllir • Hljóðmeistari: ívar
Ragnarsson • Ljósameistari: Kristján Magnússon
• Sviðsstjóri: Ágúst Ágústsson
Kynnir: Útvarpsmaóurinn vinsœli,
Sigurður Pétur Harðarson, stjórnandi þáttarins „Landið og miðin
FÖSTUDAGSK
VÖLD OG
LAUGARDAGS
KVÖLD
Húsið opnað kl.
19.00
Borðhald hefst
kl. 20.00
Sýning hefst
kl. 22.00
C
c- leik urfyrir(íansl
&SS£tS5SS!*jy^
Otafurh’ai ElvQrHafsfoBra8aS0n. Hambi
Hor
LiLl
BORÐAPANTANIRISIMA687! 7 7
■ FLUGLESDIR
VERTU SÆT VIÐ MIG A STRAX í DAG A DISKÓ FRISKÓ A GÖNGUM YFIR BRÚNA
N)
s
r-
c
>
30