Morgunblaðið - 02.10.1991, Side 20

Morgunblaðið - 02.10.1991, Side 20
20 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1991 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1991 21 44 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Áfgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Fækkun kjarnorku- vopna og Reykjavík- urfundurinn Tillögum Georgs Bush, for- seta, um einhliða fækkun á kjarnorkuvopnum í vopna- búri Bandaríkjanna hefur verið fagnað víða um heim. Enda gefa þær vonir um, að áfram- hald verði á fækkun og eyðingu kjarnorkuvopna með gagn- kvæmum samningum stórveld- anna og hugsanlega með ein- hliða ákvörðunum forustu- manna kjarnorkuveldanna. Bretar tilkynntu þegar eftir ræðu Bush, að þeir myndu fylgja í kjölfarið með fækkun í kjarnorkuvopnabúri sínu. Athyglin beinist þó fyrst og fremst að viðbrögðum Sov- étríkjanna og þau hafa verið mjög jákvæð. Aðstoðarut- anríkisráðherrann, Vladimir Petrovskij, lýsti yfir því, að Sovétmenn væru reiðubúnir að ræða tillögur Bush með opnum huga og án tafar. Mikilvægast væri að láta ekki viðræður nægja heldur taka sem fyrst til hendinni. Varnarmálaráð- herrann, Jevgeníj Shap- osníkov, fagnaði ræðu Bush og kvað mikilvægast að Bandaríkin litu ekki lengur á Sovétríkin sem helzta óvin sinn. Samkvæmt þessu má telja fullvíst, að Sovétmenn láti ekki sitja við orðin tóm og muni fylgja fordæmi Banda- ríkjamanna um niðurskurð á kj arnorkuvopnabúnaði. Fyrstu viðbrögð Mikhails Gorbatsjovs við ræðu Bush voru varfærin, enda hefur stjórnmálaþróunin í Sovétríkj- unum breytt miklu um stöðu hans sjálfs og lýðveldanna. Þau gera sum hver kröfu til þess að fá yfirráð yfir þeim kjarn- orkuvopnum, sem staðsett eru innan landamæra þeirra. Sú kenning hefur heyrzt, að ótti Bandaríkjamanna um, að Sov- étstjórnin kunni að missa full yfirráð yfir kjarnorkuvopna- búrinu hafi verið einn hvatinn að ákvörðun Bandaríkjamanna' um einhliða fækkun kjarnorku- vopna. Gorbatsjov sagði um helg- ina, þegar hann fjallaði um til- lögur Bush, að Sovétríkin hefðu lagt til á leiðtogafundi hans og Reagans í Reykjavík, að kjarnorkuvopnum yrði út- rýmt og á Reykjavíkurfundin- um hefði verið lagður grunnur- inn að hugmyndum um róttæk- an niðurskurð slíkra vopna. Þetta er ekki í fyrsta sinn, sem Gorbatsjov minnist á Reykjavíkurfundinn með þess- um hætti og ljóst er, að hann telur hann hafa skipt sköpum fyrir samninga risaveldanna um fækkun kjarnorkuvopna, sem fylgdu í kjölfarið. Þessi afstaða Gorbatsjovs er sérstaklega athyglisverð í ljósi þess, að eftir leiðtogafundinn í Reykjavík var hann almennt talinn hafa verið árangurslítill af fréttamönnum og frétta- skýrendum. Stjórnmálamenn víða um heim lýstu vonbrigðum sínum með niðurstöðuna í Reykjavík. I ljósi þessa er ekki úr vegi að rilja upp ummæli úr Reykjavíkurbréfi Morgun- blaðsins, sem birtist 11. októ-- ber 1986, eða við upphaf leið- togafundarins. Þar segir m.a.: „Á þessari stund er ekkert hægt að segja um niðurstöður viðræðna Reagans og Gorb- atjovs í Höfða. Sumir eru bjart- sýnir á, að þær greiði a.m.k. fyrir markverðu samkomulagi á næsta fundi, sem hugsanlega verður síðar á þessu ári, en aðrir eru efins um að fundurinn breyti miklu. Það væri mjög ánægjulegt fyrir alla jarð- arbúa, ef fundurinn leiddi til samdráttar í vígbúnaði, og það væri sérstaklega ánægjulegt fyrir íslendinga í þeim skiln- ingi, að nafn höfuðborgarinnar yrði þá tengt bættu andrúms- lofti í heiminum." Víða heyrðust þær raddir, að Reykjavíkurfundurinn hefði verið mishéppnaður og kom það ekki sízt fram í heimsblöð- unum. Morgunblaðið sá þá ástæðu til að fullyrða, að fund- urinn væri eftirminnilegur og markaði ef til vill tímamót á þann hátt, að Reykjavík hefði þokað sér inn í heimssöguna. Hér í blaðinu var mikið rætt um fundinn eftir að honum lauk og lögð áherzla á mikil- vægi hans, hvað sem erlendum sérfræðingum liði. Þær vonir, sem við hann voru bundnar og ijallað er um í ofannefndri rit- stjórnargrein Morgunblaðsins rættust til fulls. Reykjavíkur- fundurinn er nú að áliti allra þeirra, sem um hann fjalla, upphaf að stórsögulegum tíma- mótum á okkar dögum. Verið að þyrla upp pólitísku moldryki, segir Eiður Guðnason MINNIHLUTI umhverfisnefndar Alþingis ásakar umhverfisráðherra um að leyna nefndina upplýsingum um mengunarákvæði í tengslum við starfsleyfi fyrir álbræðslu Atlantsál á Keilisnesi. Auk þess er ráðherrann gagnrýndur fyrir að hafa ekki framlengt frest til athuga- semda við opinbera kynningu á starfsleyfinu en frestur þessi rann út nú um mánaðamótin. Eiður Guðnason umhverfisráðherra ségir að hann skilji ekki hvað minnihlutinn sé að fara og augljóslega sé verið að Jjyrla upp pólitísku moldvirði í þessu máli. Á blaðamannafundi sem þau Kristín Einarsdóttir Kvennalista, Valgerður Sverrisdóttir Framsókn- arfloþki og Hjörleifur Guttormsson og Ólafur Ragnar Grímsson Al- þýðubandalagi efndu til í gærdag kom fram að þessir fulltrúar í um- hverfisnefnd telja að um alvarlegt mál sé að ræða. Þau benda á að við athugun á starfsleyfistillögunni hafi komið í ljós að í ýmsum þýðing- armiklum atriðum sé vísað til ein- stakra greina aðalsamnings um ál- bræðslu á Keilisnesi, en aðalsamn- ingurinn eða drög að honum hafi ekki legið fyrir til þessa. Er þau hafi leitað eftir upplýsingum hjá umhverfisráðherra um nánari upp- lýsingar um þessi atriði hafi þau engin svör fengið. Atriðin sem hér um ræðir eru m.a. liður 1.3 í drögum að starfs- leyfi sem kveður á um að ný lög og reglugerðir eigi við um Atlantsál nema þau samrýmist ekki réttind- um og skyldum Atlantsáls sam- kvæmt aðalsamningum eða þeim takmörkunum á losun mengunar- efna út í umhverfið eða öðrum skil- málum þessa starfsleyfis eins og tekið er fram á útgáfudegi þess. Einnig liðir 1.4 og 1.9 sem annars- vegar kveða á um að ágreiningur sem skotið sé til dómsstóla skuli leystur sanikvæmt ákvæðum aðal- samnings um lausn ágreiningsmála og hinsvegar að endurskoða megi starfsleyfið í samræmi við ákvæði aðalsamnings. Kristín Einarsdóttir segir að þau telji mörg ákvæði starfsleyfisins svo óljós að óeðlilegt geti talist og því hafi verið óskað eftir að frestur til athugasemda yrði framlengdur. Þau geri hinsvegar ekki efnislegar athugasemdir við starfsleyfið held- ur málsmeðferðina. Valgerður Sverrisdóttir segir að umhverfisnefndin öll hafi verið sammála um að fara nánar í saum- ana á starfsleyfinu og að það yrði ekki gefið út fyrr en að loknum umræðum um það á Alþingi. Hjörleifur Guttormsson bendir á að samkvæmt upplýsingum frá Noregi telji Norsk Hydro sig geta komið flúorhreinsun niður í 0,3-3,5 kg á tonn sem ársmeðaltal. í starfs- Morgunblaðið/KGA leyfinu sé gert ráð fyrir að magn þetta megi vera 0,75 kg en samt sé lagt upp með að ítrustu kröfur séu gerðar í mengunarvörnum hér- lendis. Ólafur Ragnar Grímsson segir að ekki hafi öll spil verið lögð á borðið í málinu og því var beðið um frestinn. í starfsleyfinu sé vikið að ákvæðum í aðalsamningi en þeinrí hinsvegar meinaður aðgangur að ákvæðum þessum. Ólafur segist ekki skilja af hveiju nefndin fái ekki umbeðnar upplýsingar frá umhverfisráðuneytinu. Eiður Guðnason umhverfisráð- herra segist ekki skilja þennan málatilbúning minnihlutans á ann- an veg en verið sé að þyrla upg pólitisku nioldvirði út af engu. „í fyrsta lagi er málið ekki þingmál á þessu stigi og ekki á forræði nefnd- arinnar þótt hún geti að sjálfsögðu skoðað það,“ segir Eiður. „Nefnd- inni voru veittar allar umbeðnar upplýsingar sem voru í okkar valdi að veita og engu leynt. Hvað varð- ar texta í aðalsamningi þá höfum við hann ekki undir höndurn enda hefur sá samningur ekki verið gerð- ur ennþá.“ Eiður segir að ráðuneyti hans hafi staðið að kynningu starfsleyfis- ins eins og lög og reglur gera ráð fyrir enda gagmýni minnihluti um- hverfisnefndar ekki kynningu þess efnislega. Hvað varðar neitun hans á að framlengja frest til athuga- semda segir Eiður að sú beiðni hafi komið fram aðeins nokkrum klukkustundum áður en hinn upp- haflegi sex vikna frestur rann út. Því hafi bæði tíminn verið naumur og hann ekki séð nein efnisleg rök þess efnis að framlengja frestinn. iviorgu n oiaoio/ iuj a Nýr útvarpsstjóri kominn til starfa „Ríkisútvarpið er sú íslandsklukka, sem „kallar oss heim til sín“ frá ystu eyjum og efstu dölum og hvaðanæva á milli," sagði séra Heim- ir Steinsson er hann í gær tók við embætti útvarpsstjóra. Myndin að ofan var tekin er Hörður Vilhjálmsson, settur útvarpsstjóri, af- henti Iieimi lyklavöldin. „Undanfarin ár hefur klukkan mikla eign- ast dætur, sumar ungar, en bráðgjörvar, Rás 2 og landshlutastöðvarn- ar. Sjónvarpið er elsta dóttirin, fullvaxta nú og ber bjarta mynd og styrkan róm inn á íslensk heimili upp til hópa. Þannig er íslands- klukka Ríkisútvarpsins orðin að klukknaturni. Þaðan heyrast, margvís- legir ómar og vonandi finna flestir þar nokkuð við sitt hæfi. En klukk- urnar í turninum eiga sér samhljóm lifandi íslenskrar menningarar- fleifðar. Sá samhljómur er hátíðin mesta og eflist vonandi á hverri nýrri tíð,“ sagði útvarpsstjóri meðal annars er hann tók við embætti í gær. Flugráð: TillögTim fhigmálastjóra nm kennslufyrirkomulag hafnað FLUGRÁÐ hafnaði á fundi sínum í gær framkomnum tillögum flug- málastjóra, sem hann lagði fram á fundi Flugráðs 24. september sl., að Flugtak hf. sitji eitt að bóklegri og verklegri kennslu hér á landi til atvinnuflugprófs og ætlar að fjalla um málsmeðferð alla á næsta fundi sinum. Hefur það óskað eftir því að skólameistari Fjölbrautar- skólans á Suðurnesjum verði á fundinum og menntamálaráðuneytið sendi einnig sinn fulltrúa. Flugmálastjórn og Fjölbrautaskóli Suður- nesja hafa ákveðið að fella niður nám á flugliðabraut við fjölbrautar- skólann um ótiltekinn tíma og er ástæðan sögð „illviðráðanlegar að- stæður í launamálum kennara". I samþykkt Flugráðs í gær sem var samþykkt samhljóma var talið óhjákvæmilegt að ráðið tæki án taf- ar afstöðu til tillagna flugmála- stjóra. Flugniálaráð taldi eðlilegt að reglugerðir um flugskóla og skírteini gefin út af Flugmálastjórn verði teknar til endurskoðunar og lagfær- ingar. 10 aðilar hafi nú leyfi Flug- málastjórnar til flugkennslu, þar af sex með réttindi til verklegrar þjálf- unar undir atvinnuflugpróf. Leyfin gilda til ársloka 1991. I samþykkt- inni segir: „Flugráð telur óhjá- kvæmilegt að hugsanleg breyting á fyrirkomulagi bóklegrar og verk- legrar kennslu til atvinnuflugprófs sem leitt geti til skerðingar núver- andi kennsluréttinda sumra flug- skóla, verði rædd og kynnt með nægjanlegum aðdraganda þannig að fram komi öll sjónarmið í málinu. Með hliðsjón af framangreindu telur Flugráð rétt að þeir aðilar sem áhuga hafa á að annast flugkennslu hér á landi fái áfram slík leyfi svo framarlega sem þeir fullnægja ákvæðum hlutaðeigandi íslenskra laga og reglugerða og fellst því ekki á tillögu þess efnis að einum aðila í Reykjavík verði nú með örstuttum fyrirvara falin öll kennsla til atvinnu- flugprófs. Flugráð leggur höfuðá- herslu á að bóklegt nám til atvinnu- flugprófs komist nú þegar í eðlilegan farveg innan íjölbrautarskólakerfís- ins þar til annað yrði ákveðið." Nám við flugliðabraut átti að helj- ast á morgun og höfðu 32 nemendur skráð sig til náms og greitt náms- gjöld. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins hafði hvorki Flugmála- stjórn né Fjölbrautarskólinn á Suð- urnesjum óskað eftir fjárveitingu vegna flugliðabfautar fyrir þetta skólaár. Hjálmar Árnason skólameistari Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum sagði að þeir sem hefðu sinnt bók- legri kennslu á flugliðabraut hefðu allir gert það í aukastarfi og ljóst væri að menn hefðu þá lítinn tíma til að sinna þróunarstörfum. Óform- legur vinnuhópur aðilja sem tengjast þessum málum hefði endurskipulagt námsbrautina með það í huga að tengja hluta af verklega þættinum í kennslu til atvinnuflugmannspróf bóklega þættinum. 200 flugstundir hefur þurft til að taka atvinnuflug- mannspróf, loftferðaeftirlitið og F’lugmálastjórn hefði óskað eftir því að fjórðungur þess, eða 50 tímar, yrði tengdur bóklega þættinum. Þá hafi kennarar á flugliðabraut verið mjög óhressir með launamálin. Kennarar væru flestir veðurfræðing- ar, flugumferðarstjórar, flugstjórar o.sv.frv., en þeir væru ekki viður- kenndir sem sérfræðingar á sínu sviði og heldur ekki sem kennarar og væru þess vegna metnir lágt til launa. Þeir sættu sig ekki við það lengur. „Það sem ég get boðið eru þessi stundakennaralaun, sem kenn- arar treysta sér ekki til að starfa á. Ef ég fæ ekki kennara get ég ekki haldið uppi kennslu. Ég veit að í dag verður skipaður vinnuhópur með fulltrúum samgönguráðuneytis, menntamálaráðuneytis og Flug- málastjórnar til að finna metnaðar- fulla’og hentuga lausn á þessu máli sem allra fyrst. Ég óttast alls ekki að við séum að missa þessa kennslu úr landinu,“ sagði Hjálmar. Morgunblaðið/KGA Theodore M. Hesburg flytur ræðu sína í dag Málþing um háskóla og háskólamenntun í Bandaríkjunum var sett í Odda í gær með ávörpum bandaríska sendiherrans, Charles E. Cobb, og Svein- björns Bjarnasonar háskólarektors. Að því loknu hélt Otto Butz, sem sést hér á innfelldu myndinni, fyrirlestur um viðskiptamenntun í Bandaríkjun- um. Fyrir setninguna hafði Beverly Totok - Storb flutt fyrirlestur um krabbameinsrannsóknir. í dag flytur Theodore M. Hesburg, fyrrum rektor Notre Dame-háskólans í Indiana, fyrirlestur um framhaldsmenntun i Bandaríkjunum. Fyrirlestur hans verður fluttur í stofu 101 í Odda og hefst klukkan 17.15. Minnihluti umhverfisnefndar Alþingis: Ráðherra sakaður um að leyna upplýsingum í álmáli Námsmenn mót- mæla við þing- setningu Námsmenn efndu til fjölmennrar mótmælastöðu á Austurvelli við setningu Alþingis í gær. Að mót- mælunum stóð Samstarfsnefnd námsmannahreyfinganna, en í henni eiga sæti fulltrúar Stúdenta- ráðs Háskóla íslands, Bandalags íslenskra sérskólanema og Sam- bands íslenskra námsmanna er- lendis. Námsmennirnir voru að mótmæla hugmyndum um skóla- gjöld og vexti á námslán. Fram- haldsskólanemar tóku þátt í mót- mælunum gegn skólagjöldum. Mótmælin fóru friðsamlega fram að öðru leyti en því að skömmu eftir að síðustu þingmennirnir voru gengnir í hús var tveimur eggjum kastað að Alþingishúsinu. Frá setningu 115. löggjafarþings í dag. Alþingi sett í gær VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands setti í gær Alþingi, 115. lög- gjafarþingið. í stuttu ávarpi til þingmanna minnist forsetinn m.a. þeirra orða Jóns Sigurðssonar forseta að Alþingi væri frækorn allra framfara. Setning Alþingis var með hefð- bundnum hætti að því frátöldu að þingið kemur nú saman tíu dögum fyrr en venja hefur verið. En það er í samræmi við þær breytingar á stjórnarskrá og lögum um þingsköp sem tóku gildi á síðasta þingi og gera ráð fyrir að Alþingi starfi eftir- leiðis í einni þingdeild. Alþingismenn gengu frá þinghúsi til guðþjónustu í Dómkirkjunni kl. 13.30. Viðstaddir guðþjónustuna voru auk þingmanna og ráðherra pg starfsmanna Alþingis, forseti ís- lands Vigdís Finnbogadóttir, biskup Íslands herra Ólafur Skúlason, ýms- ir háttsettir embættismenn, og enn- fremur fulltrúar erlendra ríkja. Í Dómkirkjunni predikaði Sigurð- ur Árni Þórðarson rektor Skálholts- skóla. Hann sagði frá atviki þegar hópur ofbeldisseggja hafði átölulítið barið prest í Tallinn í Eistlandi. Sá prestur lét sér ekki bregða.„Þeir skilja ekki að éger brynjaður." Skál- holtsrektor sagði kristna menn í þessum heimshluta hafa orðið að eiga sitt í dýptum og leynum en manngildi, trú og frumgildi menn- ingarinnar gæti ekkert ofbeldi ham- ið. Sigurður Árni ræddi um menning- una og þann styrk sem menn og þjóðir sæktu í hana. Ein vegamikil stoð í menningu okkar væri traust og trú á góðan hug og hönd Guðs. Prestur ræddi um það álag sem væri á Alþingismönnum í þeirra ábyrgðarmikla starfi. Langir og lýj- andi fundir og fáar stundir til tóm- stunda og samveru með_ fjölskyldu og ástvinum. Sigurður Árni varaði þingmenn við að láta erilinn og ann- irnar svipta sig öllum heillum, ham- ingju og þroska. Hann hvatti þing- menn til að vitja um lífshamingju sína og sinna. Grennslast fyrir um -hvar væri athvarf, skjól og brynju að finna. Skálholtsrektor endaði sína ræðu á 90. Davíðssálmi þar sem segir m.a: “Drottinn, þú hefur verið oss athvarf frá kyni til kyns.“ Að lokinni messugjörð var gengið úr kirkju til þingfundar í Alþingis- húsinu. Þar las forseti íslands upp forsetabréf dagsett 16. september um að Alþingi skyldi koma saman fyrsta dag októbermánaðar. Lýsti forseti Alþingi 115. löggjafarþingið sett. Forseti mælti nokkrum orðum til þingmanna. Hún ræddi m.a. þær kröfur sem þjóðin gerði til sinna lýð- ræðilega kjörinna fulltrúa. Fremst stæði sú krafa að þeir stæðu ævin- lega vörð um hag og menningu þjóð- arinnar en þjóðin gerði ekki þá kröfu til þingmanna að þeir væru ofur- menni eða væru allir á einu máli. En þjóðin ætlaðist til að hvert þjóð- þrifamál væri rætt og skoðað og til hlítar áður en ákvarðanir væri tekn- ar. Forseti ininnti á orð Jóns Sig- urðssonar forseta um að Alþingi væri frækorn allra framfara og blómgunar lands vors. Forseti ís- lands óskaði þingmönnum gifturíkra samræðna og farsællra ákvarðana eftir að allar hliðar mála hefðu verið kannaðar. Að svo búnu bað forseti þingmenn að minnast fósturjarðar- innar. Þingheimur tók undir hvatn- ingu Davíðs Oddsonar forsætisráð- herra og óskaði forseta vorum og fóstuijörð heilla með ferföldu húrra- hrópi. Forseti íslands bað aldurforseta Alþingis, Matthías Bjarnason, fyrsta þingmann Vestíjarða, um að taka að sér fundarstjórn uns forseti Al- þingis hefði verið kjörinn. Matthías Bjarnason bauð þingmenn og starfs- fólk Alþingis velkomið til starfa. Fundarstjóri lét í ljós þá von að sú mikla breyting sem nú yrði á starfs- háttum þingsins yrði til góðs og störf þess í vetur yrðu landi og þjóð til heilla. Ræðumaður minntist látins þingmanns, Hannibals Valdimars- sonar. Að lokum frestaði Matthías Bjarnason fundi til kl. 13.30 í dag. í dag verður forseti Alþingis og fjórir varaforsetar kjörnir, ennfrem- ur verður hlutað um sæti og kosið verður í fastanefndir. Líkindi eru til að ekki verði samstaða um val í for- sætisnefnd, en stjórnarflokkarnir hafa í hyggju að beita fullum þing- styrk og fá' í sinn hlut tvo varafor- seta auk forseta Alþingis. Einnig verður fruinvarp til flár- laga fyrir árið 1992 lagt fram á Alþingi í dag. v r

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.