Morgunblaðið - 02.10.1991, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. OKTÓBER 1991
37
VELVAKAMDf
SVARAR í SÍMA
891282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . ..
Týndur trefill
Vilhjálmur auglýsir eftir trefli
sem hann týndi mánudaginn 23.
september eftir hádegi. Hann tel-
ur að hann hafi tapað treflinum
nálægt biðskýlinu á mótum Suð-
urgötu og Hjarðarhaga. Um er
að ræða fínan trefíl úr kasmírull,
vínrauðan að lit með kögri. Merk-
ið Crombie er stimplað inn í hann.
Finnandi vinsamlegast hafí sam-
band í síma 24428.
Vantar upplýsingar um
ástarkvæði
Ingibjörg Guðmundsdóttir spyr
hvort einhver kannist við eftirfar-
andi ástarkvæði sem hefst á þess-
um línum:
Hann Hjálmar á blómskreyttri brekkunni
stóð
er burtfarar nálgaðist tíð.
Hann átti að fara á feðranna slóð
mót íjandmannahernum í stríð.
• Ingibjörg segist hafa heyrt
þetta hjá móður sinni en hún hafí
aldrei vitað eftir hvern það var.
Þetta væri mikið tilfínningaljóð
og afar dramatískt en hún væri
því miður búin að týna niður hluta
þess.
Fundið úr
Stórt ferkantað stálúr með
svartri leðuról fannst fyrir nokkru
við gatnamót Laugavegar og
Snorrabrautar. Upplýsingar fást
í síma 604545 milli kl. 8 og 16 á
daginn.
Skipulagsnefnd borgarinnar
til rangra borga
Gömul kona hringdi og sagðist
hafa séð það að skipulagsnefnd
borgarinnar væri á förum til Prag,
Búdapestar og Vínar til þess að
kynna sér varðveislu gamalla
borgarhiuta. Hún spyr hvað þetta
sé stór nefnd, hvort nefndarmenn
borgi fyrir sig sjálfír eða hvort
þessi ferð sé farin á vegum
borgarinnar. Að auki spyr hún
afhveiju nefndin sé ekki send til
hafnarborga eins og Hamborgar
þar sem fyrrgreindar borgir eigi
ekkert sameiginlegt með
Reykjavík.
Austurstræti áfram
göngugata
Björgvin, starfsmaður
Reykjavíkurborgar, sagðist vera
alfarið á móti því að opna
Austurstræti fyrir umferð. Það
yrði til dæmis mun óhagstæðara
fyrir gamalt fólk og þá sem væru
fatlaðir. Björgvin vildi meina að
menn gætu keyrt annars staðar
og að Austurstræti ætti að vera
svona í "þúsund ár. Hann sagði
líka að ekki ætti eingöngu að
skammast út í lætin í unglingum
í Austurstræti á kvöldin því hinir
fullorðnu ættu þar einnig hlut að
máli.
Svartur dömujakki
Svartur dömujakki var tekinn
af stólbaki sunnudaginn 22.
september á Hótel Sögu á árshátíð
íslenskra leikara. Jakkinn er úr
terlyne-efni, hnepptur, í millisídd.
Sá sem kannast við málið er
vinsamlegast beðinn að hafa
samband í eftirfarandi númer:
39425.
Ísland/EES:
Ogeðfeld afskiptasemi Belga
Einhver Dr. Joseph Curran skrif-
ar hugleiðingar um ísland og EES,
rétt eins og að honum komi það
sérstaklega við hvort ísland ánetjist
þessu bandalagi hans eða ekki.
Hann segist hafa áhyggjur af því
að verði ekki svo, þá muni ísland
skipa sér á bekk meðal þjóða þriðja
heimsins.
Hvaðan kemur Belganum þessi
viska? Kemur hún úr herbúðum ein-
hverra Evrókrata?
Dr. Magni Guðmundsson segir
m.a. í svargrein í Morgunblaðinu
24. september sl.: „Hitt virðist fara
fram hjá honum hversu dýrt spaug
það gæti orðið EB-löndunum sjálf-
um, ef þau misstu af íslands-físki,
sem myndi fara á aðra markaði.
Fiskverð í EB-löndunum myndi
hækka við slíka skerðingu fram-
boðs.“ Dr. Mgngi Guðmundsson
segir ennfremur, „Mörgum geðjast
hreinlega ekki að aðferðinni, sem
Undirmál
Kvótakerfið
Það er fáránleg „fískveiðistjórn-
un“ við landið og árangurinn eftir
því. Um 1970 var meðalvigtin á
togaraþorsk þrjú og hálft kíló. Núna
kemst meðalvigt jafnvel niður í 1,4
kg. Ef þessi fiskur fengi að vaxa í
friði, tvöfaldaði hann þyngd sína á
einu ári.
Ég hef verið á sjó, bæði á togur-
um og vertíðarbátum og spyr hvort
mönnum þyki meira vit í því að
drepa fískinn í 7-10 kg á vertíðar-
bát eða á togara þar sem þarf 4-5
físka til að ná sömu kílóatölu?
Svo er það líka stórfurðulegt að
línufiskur skuli vera hálftalinn fram
í kvóta frá nóvember til febrúar,
þ.e.a.s. tvö tonn eru talin sem eitt
í kvóta. Þessi fiskur er ekki stærri
en svo að hann rétt nær máli.
Sjómaður
EB-stórveldið beitir. Hún ber keim
af viðskiptastríði, án vopna vissu-
lega.
Boðskapurinn er í fáum orðum
þessi: Látið okkur í té auðlindir
ykkar, þar á meðal fískimiðin, að
öðrum kosti munum við gera kröfu
til milljarða króna tolla af afurðum
ykkar.“
Barnagæla
Margir hafa brugðist við kalli
J.B. sem auglýsti eftir fólki sem
kynni barnagælu er hún lærði í
æsku. Ekki eru allar útgáfurnar
samhljóða en Guðný Vigfúsdóttir
lærði vísuna þannig:
Hún amma, hún er mamma hennar mðmmu
og mamma er það besta sem ég á
en gaman væri að gleðja hana ömmu
og gleðibros á vanga hennar sjá.
í rökkrinu hún segir mér oft sögur
og svæfir mig þá dimma tekur nótt
hún syngur við mig sálmakvæðin fögur
sofna ég þá bæði blítt og rótt.
STJÖRNUKORT
Persónulýsing, framtíðarkort, samskiptakort.
Gunnlaugur Guðmundsson,
Stjörnuspekistöðin,
Miðbæjarmarkaðinum,
Aðalstræti 9, sími 10377.
HJÁ AIMDRÉSI
Karlmannaföt í úrvali á kr. 9.990 - 13.900,-
Vönduð efni, ný snið.
Mikið úrval af stökum buxum á kr. 2.480,— 4.400,-
Ullarfrakkar á kr. 10.500,-
Andrés, Skólavörðustíg 22a, sími 18250
Samfestingar í vinnuna á kr. 2.900,-
Kuldagallar á kr. 5.500 - 7.900,- og margt fleira.
Andrés - Fataval,
(opið frá kl. 13-17.30 mán.-föstud.),
Höfðabakka 9c, sími 673755.
Hver þekkir
barnagæiuna
Mikið yrði ég glöö Og fegin
eínhvpr tm*i mé
Guðný segir vísuna eftir Guðrúnu
Jóhannsdóttur frá Brautarholti á
Kjalarnesi og hafi hún ort hana til
dóttur sinnar. Guðný lærði vísuna
af Guðrúnu þegar hún var tíu ára
og passaði téða dóttur Guðrúnar.
Þetta er þörf hugvekja fyrir þá
sem tala um „Evrópuheimilið"
„samfélag Evrópuþjóða", o.s.frv.
Ætli það sé ekki best fyrir okkur
íslendinga að eiga vinsamleg sam-
skipti við þetta „heimili", fremur
en að flytja þangað, inn á gafl.
Jóhannes R. Snorrason
Tvo athyglisverð haustboð
frá Stjórnunarfélagi Islands
Stjórnunarnám
Yfirgripsmikið nám, sem tekur á
öllum þáttum stjórnunar. Byggt er á
30 ára reynslu Stjórnunárfélagsins,
færum leiðbeinendum og valinkunn-
um stjórnendum úr íslensku at-
vinnulifi, sem skýra frá reynslu sinni
af stjórnun. Þetta nám er ætlað nú-
verandi og verðandi stjórnendum.
Efni:
Forystuhlutverkið
Opinber rekstur - einkarekstur
Tímaskipulagning og skrifstofu
stjórnun
Gagnasöfnun og grcining aðstæóna
Stefnumótun og markmiðasetning
Hvatning og frammistöðumat
Mikilvægi endurmats
Leiðbeinendur og gcstafyrirlesarar:
Ágúst Valgeirsson, rekstrar- og hag-
verkfræðingur
Eggert Hauksson, stjórnarformaður
Plastprents
Gunnar M. Hansson, forstjóri IBM
á Islandi
Haukur Haraldsson, TMI leiðbein-
andi
Jóhann Ingi Gunnarsson, sálfræð-
ingur
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri
Hagkaups
Magnús Pálsson, viðskiptafræðingur
Páll Kr. Pálsson, forstjóri Iðntækni-
stofnunar fslands
Reynir Kristinsson, rekstrarhag-
fræðingur
Thomas Möller, forstöóumaður
landrekstrardeildar Eimskips hf.
Þórður Sverrisson, framkvæmda-
stjóri flutningasviðs Eimskips hf.
Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri þróunarsviðs Eim-
skips hf.
60 stundir.
Skráning stendur yfir.
Fjármálanám
Þetta nám er fyrir alla þá, sem vilja
auka þekkingu sína á fjármálum og
fá leiðsögn í að hanna fjárhagsáætl-
anir með hjálp töflureiknis.
Námið er unnið eftir bandarískri
fyrirmynd frá „American Manage-
ment Association". Þar i landi heitir
námskeiðið „Finance for the non
financial manager" og hefur notið
mikilla vinsælda og er aðsóknartalan
nálægt hundrað þúsund þátttakend-
ur.
Efni:
Fjármálastjórnun
Bókhald
Núvirðisútreikningar
Lestur og greining ársreikninga
Fjárhagsáætlanir
Leiðbeinendur:
Ágúst Valgeirsson, rekstrar- og hag-
verkfræðingur
Sólmundur Jónsson, viðskiptafræð-
ingur hjá Þjóðhagsstofnun
Svanbjöm Thoroddsen, hagfræðing-
ur hjá Verðbréfamarkaði Islands-
banka.
33 stundir.
Námið hefst 14. október.
Nánarí upplýsingar
fást í síma 621066.
Stjómunarfelag íslands
Ánanaustum 15 Sími 621066
Bókhalds-
náim
Markmið námsins er að þátttakendur
verði fullfærir um að starfa
sjálfstætt við bókhald og
annast það allt árið.
ficittt' áftft- ftítfð étfééafiff
éð4ftt>t> 4 áétáffétt- pttttfttttdtttáéfrff/-.
Á námskeiðinu veiður eftírfarandi kennt
* Almenn bókhaldsverkefni
* Launabókhald
* Lög og reglugerðir
* ViroisaukasKattur
* Raunhæf verkefni, fylgiskjöl
og afstenuningar
* Tölvubókhald:
Fiárhagsbókhald
viðskiptamannabókhald
Launalbókhald
Hringdu og fáðu nánari upplýsingar.
Bladid sem þú vaknar vió!