Morgunblaðið - 11.10.1991, Side 1

Morgunblaðið - 11.10.1991, Side 1
80 SIÐUR B/C/D 231. tbl. 79. árg._________________________________FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Hermaður úr júgóslavneska sambandshernum á tali við liðsmann króatísku þjóðvarðliðasveitanna við herstöð sambandshersins í Zagreb í gær. Króatísku sveitirnar afléttu í gær umsátri um herstöðvar sambandshersins í lýðveldinu og hafnbanni Júgóslavíuhers gegn Króatiu var aflétt. Armenar þjóðnýta sovésk hergögn Baku. Reuter. ÞING Azerbajdzhan samþykkti í gær að þjóðnýta hergögn Rauða hers- ins sem væru staðsett í lýðveldinu til þess að sjá nýjum lýðveldisher fyrir vopnum. Hótuðu þingmenn að reisa vegtálma til þess að koma í veg fyrir að stjórnin í Kreml léti flytja vopnin á brott. Jafnframt samþykkti þingið í Bakú að leysa 140.000 Azera undan herskyldu í Sovéthernum og kallaði þá til þjónustu í lýðveldishernum nýja. Einnig var skorað á azerska foringja í Rauða hemum að ganga til liðs við nýjan lýðveldisher Az- erbajdzhans. Talið er að ákvörðun azerska þingsins verði til þess að auka spennu milli í samskiptum við Arm- eníu. í íjögur ár hafa lýðveldin tvö tekist á með vopnum um yfirráð yfir Nagorno-Karabakh, sjálfs- stjórnarhéraði byggt Armenum inn- an Azerbajdzhan, og hafa um 800 manns fallið í þessum átökum. Hermt er að þingið í Bakú hafi sett yfirstjórn nýs lýðveldishers og borgaralegra varnarsveita undir stjóm Ajaz Mútalíbovs forseta. Þingfundurinn var lokaður og ein- stökum atriðum samþykktarinnar haldið leyndum en hermt er að ákveðið hafi verið að stefna sveitum nýja lýðveldishersins að armensku landamærunum og til annarra hugsanlegra átakasvæða. Samkomulag forseta Serbíu og Króatíu á sáttafundi EB í Haag: Sambandsherínn fari frá Króatíu innan mánaðar Azerbajdzhan er fyrsta lýðveldið sem rís gegn einingu Rauða hersins með þessum hætti og töldu stjórn- málaskýrendur að ákvörðunin gæti orðið öðrum lýðveldum til eftir- breytni. Rækjusala Færeyinga: „Þjóðernið” breytist ekki við pillun Kaupmannahöfn. Frá fréttaritara Morg- unblaðsins, N.J. Bruun. FÆREYINGAR hafa selt löndum Evrópubandalagsins (EB) kana- díska og sovéska rækju fyrir um hálfan inilljarð kr. undir því yf- irskini að hún væri færeysk. Þeir greiddu því engan toll af henni en á kanadískri og sovéskri rækju er allt að 18% tollur. Er þetta nið- urstaða rannsóknarnefndar, sem EB sendi til Þórshafnar tii að kanna hvernig á því stæði, að rækjuútflutningur Færeyinga var nokkrum þúsundum tonna meiri en þeirra eigin afii. Leivur Gregersen, tollstjóri í Þórs- höfn, segir rétt vera, að mistök hafí átt sér stað en neitar því, að um sé að ræða vísvitandi svindl. Segir hann ástæðuna vera flóknar tollareglur og nefnir sem dæmi, að rækjan sé fær- eysk ef hún er veidd af færeysku skipi, jafnvel þótt á kanadískum mið- Forsetamir heita að leysa deilur Serba og Króata með pólitísku samkomulagi á sama tíma Haag, Moskvu, Zagreb. Reuter. FORSETAR Króatíu og Serbíu, Franjo Tudjman og Slobodan Mi- losevic, og fulltrúar júgóslavnesku sambandssljórnarinnar, sam- þykktu á sáttafundi með fulltrúum Evrópubandalagsins (EB) í Haag í Hollandi í gær, að sambandsher Júgóslavíu yrði á brott frá Króatíu innan mánaðar, að því er Hans van den Broek, utan- ríkisráðherra Hollands, tilkynnti í gærkvöldi. Jafnframt hétu forsetarnir því að reyna að leysa deilur sínar með pólitísku samkomulagi innan mán- aðar og á niðurstöðum þeirra til- Jeltsín snýr úr sumarleyfí Moskvu. Reuter. TALSMAÐUR Borís Jeltsíns Rússlandsforseta vísaði því á bug í gær að forsetinn ætti við veik- indi að stríða og TASS-frétta- stofan sagði að hann hefði snúið til Moskvu í gærkvöldi eftir hálfs mánaðar leyfi við Svartahaf. Hreyfíng komst á fjármálamark- aði i gær vegna orðróms um að Jeltsín væri veikur, en í fjarveru hans hófst valdabarátta innan rússneska stjórnkerfisins sem sagt er stjórnlaust fyrir vikið. Þá er sov- étherinn sagður í upplausn vegna valdabaráttu. Sjá „Upplausn og valdabarátta innan hersins” á bis. 24. rauna myndi EB taka ákvörðun um hugsanlega viðurkenningu þeiira lýðvelda júgóslavneska ríkjasambandsins sem vildu öðlast sjálfstæði. Tudjman og Milosevic sögðu að samkomulagið sem náðst hefði á sáttafundinum í Haag ætti að geta gengið eftir en gert væri ráð fyrir að framlengja mætti frest til að flytja sambandsherinn frá Króatíu og ljúka pólitísku samkomulagi um deilur Serba og Króata um mánuð til viðbótar. Fulltrúar EB sem fylgjast með framgangi vopnahlés, sem sam- komulag varð um á þriðjudags- kvöld, skýrðu frá því í gærkvöldi að króatískar sveitir hefðu létt umsátri um herbúðir júgóslav- neska sambandshersins í Króatíu og sambandsherinn væri byijaður að aflétta hafnbanni í lýðveldinu. Með þessu jukust á ný vonir um að síðasta vopnahléssamkomulag- ið, hið áttunda í röðinni, yrði var- anlegt. Fyrr um daginn kom til harðra átaka milli sambandshersins og króatískra sveita með þeim afleið- ingum að fulltrúar EB settu stríð- andi fylkingum úrslitakosti en þá höfðu þær virt vopnahléssam- komulagið að vettugi í tvo daga. Að minnsta kosti níu féllu og 32 slösuðust vegna bardaga í gær- morgun í borginni Vukovar. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti blandaði sér í gær í deilurnar í Júgóslavíu með því að bjóða for- setum -Serbíu og Króatíu til friðar- viðræðna í Moskvu. Vladímír Tú- markínm, talsmaður Sovétforset- ans, gaf ekki til kynna hvort Tudj- man og Milosevic hefðu þegið boð Gorbatsjovs. um sé. Ahöfnin verður hins vegar að vera færeysk að þremur fjórðu en Gregersen segir, að á því hafi að vísu verið nokkur misbrestur. Um sovésku rækjuna sagði Greg- ersen, að Færeyingar hefðu haft þær upplýsingar frá Danmörku, að rækj- an skipti um „þjóðerni” við að vera pilluð, þ.e.a.s. að sovésk rækja yrði færeysk eftir meðferðina. Fulltrúar EB vilja þó ekki við þetta kannast, segja að sovésk rækja sé sovésk og því verði að greiða af henni toll. Bush fær líkan af skipi Kólumbusar Á næsta ári verður þess minnst að 500 ár verða liðin frá siglingu Kristófers Kólumbusar til Amer- íku en Spánveijar og ítalir munu minnast þess með ýmsu móti. í gær gengu fulltrúar þessara þjóða á fund George Bush Bandaríkjaforseta og afhentu honum líkan af Sankti Maríu, skipi Kólumbusar, við athöfn í Hvíta húsinu í Washington. Til vinstri er spænskur aðmíráll sem er sagður vera afkomandi Kól- umbusar og heitir Cristobal Col- on. Reuter

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.