Morgunblaðið - 11.10.1991, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991
Leikritið Þétting eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson var frumsýnt á Litla sviði Borgarleikhússins í gær. Að
sýningu lokinni var höfundurinn kallaður fram og fögnuðu frumsýningargestir honum með lófataki. Til
hægri við Sveinbjörn á myndinni eru þeir Ögmundur Þór Jóhannesson, sem annast lýsingu, Stefán S.
Stefánsson, höfundur tónlistar ásamt Sveinbirni, Jón Þórisson, sem sér um leikmynd og búninga og Hallm-
ar Sigurðsson, leikstjóri.
Forsætisráðherra um fargjaldamál SAS:
Gagnrýni ekki samgönguráð-
herra fyrir ákvörðun hans
Hefði átt að gæta hagsmuna neytenda, segir Jón Baldvin
Forsætisráðherra í stefnuræðu á Alþingi;
Gerðir verði skyn-
samlegir samningar
sem tryggi kaupmátt
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína á Alþingi
í gærkvöldi. Forsætisráðherra sagði meðal annars í ræðu sinni að
áríðandi væri að nota þá möguleika, sem aukinn stöðugleiki og lækk-
andi verðbólga veittu, „og að samið verði skynsamlega um kaup og
kjör í komandi kjarasamningum, innan þeirra marka, sem erfiðar
aðstæður leyfa”. Hann sagði að með þeim hætti yrði velferðin tryggð
í sessi og skapaður grundvöllur fyrir framfarasókn í framtíðinni.
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra segist ekki gagnrýna sam-
gönguráðherra fyrir þá ákvörð-
un að hafna umsókn SAS-flugfé-
lagsins um 6 nátta fargjald til
Norðurlanda á sama verði og
Flugleiðir bjóða 3ja nátta og 4
daga helgarferðir. Forsætisráð-
herra sagði að hann hefði þó
ekki kynnt sér málið rækilega.
„Þarna verða menn að stíga var-
lega til jarðar. Mitt álit er að
slík afskipti hins opinbera eru
vandmeðfarin, því minni sem þau
eru því betra,” sagði Davíð. Jón
Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra sagði það sitt álit að í
þessu máli hefði fyrst og fremst
átt að gæta hagsmuna neytenda.
„Samgönguráðherra taldi sig
hafa rök fyrir því að þessi undirboð
SAS væri óeðlileg samkeppni og
því vildi hann ekki leyfa það,” sagði
Davíð.
„Neytendur á íslandi gjalda þess
að við erum í litlu þjóðfélagi með
miklar einokunartilhneigingar. Það
vantar samkeppni. Ég hefði talið
rétt að gæta fyrst og fremst hags-
muna neytenda en vek athygli á
að ef tekst að ná samningum um
Evrópskt efnahagssvæði, erum við
þar að opna fyrir gjörbreytta sam-
keppnismöguleika. Það er ekki ein-
hliða, því það er mat okkar að flug-
rekstraraðilar hér geti nýtt sér þá
sér til ávinnings. Þetta á alla vega
að þýða að samkeppnin tryggi neyt-
endum lægra verð vegna ferðalaga
og sem eru sambærileg við það sem
þegnar grannþjóða okkar búa við,”
sagði Jón Baldvin.
I stefnu og starfsáætlun ríkis-
stjómarinnar segir að hún vilji
stuðla að greiðum flugsamgöngum
Davíð sagði að eftir væri að ganga
frá þessu með formiegum hætti en
gengið væri út frá að breytingin
tæki gildi um áramót þegar Öryggis-
málanefnd verður lögð niður. „For-
sætisráðuneytið er lítið mannað og
eins og þróun mála hefur verið er
nauðsynlegt að það hafi yfir sérfræð-
ingi í þessum málum að ráða,” sagði
innanlands og gæta fyllstu hag-
kvæmni í skipulagi flugmála.
„Löggjöf og reglugerðir um áætlun-
ar-, leigu og fraktflug verða teknar
til endurskoðunar. Reynt verður að
tryggja í senn eðlilega samkeppni
í flugrekstri og halda uppi sem
bestri þjónustu við almenning og
atvinnulíf.”
Davíð.
í stéfnuyfirlýsíngu ríkisstjómar-
innar kemur fram að starf sérstaks
efnahagsráðunauts ríkisstjórnarinn-
ar verður lagt niður en efnahags-
ráðgjöf Þjóðhagsstofnunar nánar
tengd forsætisráðuneytinu. Sam-
komulag er um þetta á milli stjómar-
flokkanna en aftur á móti er ekkert
Steingrímur Hermannsson, for-
maður Framsóknarflokksins, sagði
í umræðum um stefnuræðuna að
ríkisstjórnin ætlaði sér ekki að að-
stoða atvinnulífið í erfiðleikum þess.
„Ég er sannfærður um að hún er
fyrsta ríkisstjórnin á íslandi, sem
gerir það ekki,” sagði Steingrímur.
Jón Baldvin Hannibalsson for-
maður Alþýðuflokksins sagði að
Island væri að dragast aftur úr
öðrum þjóðum. „Ég er ekki þeirrar
skoðunar að það sé bara vegna
þess að við eigum svona vonda
stjómmálamenn. Að hluta til er það
af því að atvinnuh'f okkar er ein-
hæft og sveiflukennt og hvílir á
veikum gmnni, en að öðra leyti er
það vegna þess að úrelt viðhorf og
úrelt kerfi einokunar, forréttinda
og pólitískrar fyrirgreiðslu er ráð-
andi of víða í íslenzku þjóðfélagi,”
sagði hann og tók sem dæmi að
landbúnaðarstefnan hefði leitt til
hæsta matvælaverðs í heimi á ís-
landi.
Ólafur Ragnar Grímsson formað-
ur Alþýðubandalagsins gagnrýndi
Sjálfstæðisflokkinn sérstaklega fyr-
ir að hafa ekki staðið við loforð um
skattalækkanir, heldur slægi hann
út hlutfall ríkisútgjalda í þjóðarbú-
skapnum og setti íslandsmet í
skattbyrði. „Jafnvel Morgunblaðið
getur ekki annað en sagt þjóðinni
frá því að á næsta ári verði opinber
minnst á stöðu alþjóðaráðgjafa í
stefnuáætluninni. Davíð sagði að
þetta væri fyrst og fremst mál for-
sætisráðuneytisins og ekki væri
venja að fjalla um einstakar stöður
af þessu tagi í stefnuskrá ríkisstjórn-
ar.
Davíð sagði aðspurður að alþjóða-
deild í forsætisráðuneytinu rækist
ekki á starfssvið utanríkisráðuneytis-
ins. „Það er ljóst að forsætisráðu-
neytið þarf eðli máls vegna að hafa
aðstöðu til að hafa ráðgjöf nálægt
sér. Það er mikið um alþjóðlega fundi
og þátttaka forsætisráðherra fyrr og
síðar í mótun utanríkisstefnu hefur
alla jafna verið mikil,” sagði hann.
gjöld verkamannafjölskyldunnar
aukin sem nemur hálfum mánaðar-
launum,” sagði Ólafur Ragnar.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem
talaði fyrir Kvennalistann, sagði að
ríkisstjórnin hefði varpað vandan-
um af ríkissjóði og yfir á barnafjöl-
skyldur. „Éngar tekjur af fjár-
magnsskatti era sjáanlegar... ekk-
ert hátekjuskattþrep, ekki hærri
virðisaukaskattur á' lúxusvörur,
ekkert, sem orða mætti við rétt-
læti,” sagði hún.
Ríkisstjórnin lagði fram á Alþingi
í gær lista yfir stjórnarfrumvörp,
168 talsins, sem ríkisstjórnin
hyggst flytja á yfirstandandi lög-
gjafarþingi.
Sjá stefnuræðu forsætisráð-
herra á bls. 26, 27 og 29.
63 milljóna
hagnaður
Flugleiða
HAGNAÐUR af reglulegri starf-
semi Flugleiða var rúmlega 63,2
milljónir króna fyrstu sjö mánuði
ársins. Á sama tima í fyrra var
hann 12,9 milljónir miðað við
verðlag þessa árs. Með reglulegri
starfsemi er átt við rekstrar-
afkomu að viðbættum fjármuna-
tekjum og gjöldum.
I frétt frá Flugleiðum segir, að
heildarhagnaður félagsins fýrstu
sjö mánuði ársins 1991 hafi verið
61,5 millj., en var á sama tímabili
í fýrra 347,4 millj. á verðlagi þessa
árs. Munurinn sem þama komi fram
sé vegna hagnaðar sem varð af
sölu flugvéla í fyrra. Söluhagnaður
fyrstu sjö mánuði þessa árs hafi
verið óverulegur.
Fram kemur að þó að afkoma
af reglulegri starfsemi sé betri en
í fyrra hafi rekstraráætlun fyrir
tímabilið ekki staðist. Gert var ráð
fyrir að í ár yrðu fluttir 466 þúsund
farþegar með félaginu á tímabilinu
janúar til júlí en í raun urðu þeir
424 þúsund. Rekstrartekjur urðu
því lægri en félagið gerði ráð fyrir
en þó um 5,7% hærri en fyrstu sjö
mánuði ársins 1990 á sambærilegu
verðlagi.
Eáðgjafi í alþjóðamálum til
starfa í forsætisráðuneytinu
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir að ákvörðun hafi verið tekin
um að setja upp alþjóðadeild innan forsætisráðuneytisins og að starfs-
maður Oryggismálanefndar verði forstöðumaður hennar og ráðgjafi
ráðherra í alþjóðamálum. Segir hann að forsætisráðherra hafi fyrr
og síðar tekið mikinn þátt í mótun utanríkisstefnunnar á hveijum tíma.
Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir að þetta hafi verið
gert án samráðs við sig en hann hafi heyrt um það í fréttum. Vildi
hann að öðru leyti ekkert tjá sig um málið.
Karpov og ívantsjúk unnu báðir
__________Skák_____________
Margeir Pétursson
NÆSTSÍÐASTA umferðin á
Heimsbikarmóti Flugleiða í gær-
kvöldi bauð upp á sviptingar í
skákunum átta. Efstu menn
höfðu báðir hvítt og unnu ör-
ugga sigra. Karpov vann Ehlvest
og ívantsjúk vann Andersson,
sem á hér eitt sitt slakasta mót
um árabil. Jóhann Hjartarson
tefldi frísklega gegn Lajos Port-
isch og komst með peði meira
út 1 endatafl, sem ekki var þó
hægt að vinna gegn öruggri
vörn. Þá gerðust það í barátt-
unni um 3. sæti að Júgóslavamir
Nikolic og Ljubojevic unnu báðir
og deila því með sér.
Það var annars fátt um óvænt
úrslit í gærkvöldi,- þeir, sem teflt
hafa vel á mótinu bættu stöðu sína,
en aðrir féllu niður í enn dýpri
öldudal. Þrír neðstu menn töpuðu
allir. Gúlko brenndi sig enn einu
sinni á því að reyna frumleg til-
þrif, eftir aðeins 20 leiki var hann
kominn með tapað tafl gegn Ni-
kolic og mátti gefast upp eftir 27.
Andersson er heillum horfinn og
fann sig aldrei í skákinni við ívant-
sjúk, sem tefldi af öryggi. Frá þvl
Jan Timman hóf komur sínar hing-
að til lands árið 1972 hafa íslensk-
ir skákáhugamenn aldrei séð hann
tefla jafn illa og nú. .Hann reyndi
vafasama byijun gegn Khalifman,
en sá aldrei til sólar og tapaði í
28 leikjum.
Viðureign þeirra Ljubojevic og
Seirawans var mjög mikilvæg fyrir
baráttuna um þriðja sætið. Þeir
hafa reyndar báðir teflt mjög vel
á raótinu, en í gær byggði JúgósJav-
inn upp góða stöðu með hvítu sem
hann bætti jafnt og þétt í tíma-
hraki andstæðingsins.
Staðan fyrir síðustu umferð:
1—2. Karpov og ívantsjúk 10 v.
3—4. Ljubojevic og Nikolic 8V2
v. 5. Khalifman 8 v.
6-7. Seirawan og Ehlvest Vh v.
8. Speelman 7 v.
9-10. Beljavskí og Portisch 6V2 v.
11. Jóhann 6 v. 12. Salov 5'/2v.
og biðskák
13. Chandler 5 v. og biðskák
14—15. Timman og Andersson 5
v.
16. Gúlko 4V2 v.
Karpov virðist nú hafa náð sér
fyllilega eftir tapið fyrir Ljubojevic.
Hann vann Ehlvest af sama örygg-
inu og hann sýndi af sér í upphafi
mótsins. Karpov beitti sama af-
brigði gegn Grúnfeldsvörn Ehlvests
og • hann notaði með góðum ár-
angri í síðasta heimsmeistara-
einvígi við Kasparov. í þessu af-
brigði þykir traustast á svart að
stefna strax að drottningaupp-
skiptum en Eistinn valdi þá óvenju-
legu áætlun að fara með drottning-
arriddara sinn upp á a4. Þetta
gafst ekki sérlega vel og eftir 20
leiki var staðan orðin öliu betri á
Karpov. Ehlvest fann þá ekki önn-
ur ráð til að ná mótspili en að
veikja kóngsstöðu sína með f7-f5,
en það bætti sízt úr skák. í tíma-
hraki fór hann síðan með drottning-
una úr vörninni og lék sig í mát:
Hvítt: Anatólí Karpov
Svart: Jan Ehlvest
Griinfeldsvörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 -
d5 4. cxd5 — Rxd5 5. e4 — Rxc3
6. bxc3 — Bg7 7. Be3 — c5 8.
Dd2 - 0-0 9. Rf3 - Rd7 10. Bd3
- Rb6 11. h3 r- Ra4 12. Hcl.-
He8 13. Bh6! - Bh8 14. Bc4 -
e6 15. 0-0 - Da5 16. Bb3 - b5
17. Hfel - Bb7 18. Df4! - Hac8
19. Bxa4 — bxa4 20. h4 — Dc7
21. De3 - Da5 22. Bf4 - f5 23.
ejcfö — cxd4 24. cxd4 — Dxf5
25. Re5 - Bd5 26. a3 - Bg7 27.
f3 - Df8 28. Hc5 - De7 29. Bg5
- Db7 30. Hecl - Hxc5 31.
Hxc5 - Db3 32. Hc3 - Dbl-i-
33. Kh2 - Bf8?
34. Rg4 - Bd6+ 35. Bf4 - Be7
36. Hc7 - Db3 37. De5 - h5 38.
Rf6+ og Ehlvest gafst upp.