Morgunblaðið - 11.10.1991, Side 19
MÓRGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991
19
■ AÐALFUNDUR Öryrkja-
bandalags íslands verður haldinn
í dag, föstudag 11. október, og
hefst kl. 16 í Borgartúni 6. Auk
venjulegra aðalfundarstarfa verður
rætt um ýmis brýn hagsmunamál
samtakanna. Laugardaginn 12. okt.
efna svo Gigtafélag íslands og
Öryrkjabandalag íslands til ráð-
stefnu um málefni gigtasjúkra og
hefst hún kl. 9.15 á sama stað. Þar
munu fjölmargir fyrirlesarar reifa
málefnið hver frá sínu sjónarhomi.
Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki.
■ FÉLAGIÐ MÍR hefur um ára-
bil staðið fýrir kvöldnámskeiðum í
rússnesku fyrir almenning. Kennar-
ar og leiðbeinendur hin síðari ár
hafa verið Rússar með mikla
reynslu í kennslu málsins erlendis.
Dregist hefur að hefja rússnesku-
námskáið MIR að þessu sinni vegna
þess að seinkun varð á komu kenn-
arans Andrei Samarévs hingað til
landsins. En nk. laugardag 12.
október kl. 14 verða námskeið vetr-
arins kynnt á fundi í húsakynnum
MÍR, Vatnsstíg 10, og jafnframt
verða þátttakendur skráðir. Gert
er ráð fyrir að kennt verði bæði í
flokkum byijenda og framhalds-
nema. Eins og áður verður þátttök-
ugjald mjög í hóf stillt. Allir sem
áhuga hafa eru velkomnir á kynn-
ingarfundinn á laugardaginn ki. 14
á Vatnsstíg 10.
■ BJÖRGUNARSKÓLI Lands-
bjargar, (Landsbjörg, nýstofnað
landssamband björgunarsveita
sem áður voru Landssamband
Hjálparsveita skáta og Lands-
samband flugbjörgunarsveita),
heldur námstefnu fyrir leiðbeinend-
ur í skyndihjálp dagana 12.-13.
október nk. Tilgangurinn er að leið-
beinendur hittist og ræði ýmis atr-
iði skyndihjálparfræðslu fyrir björg-
unarmenn sem og að leiðbeinendur
haldi við og auki þekkingu sína. Á
þessari námstefnu verða ýmsir fýr-
irlestrar og má þar nefna Sorg og
sogarviðbrögð, sem Sigfinnur Þor-
leifsson sjúkrahússprestur flytur
og Aðkoma á slysstað og björgun
úr bílflökum, sem Þorgrímur Guð-
mundsson lögregluvarðstjóri flyt-
ur. Kynnt verður ný reglugerð um
eiturefni. Þessi kynning verður á
hendi Daníels Viðarssonar sem
er forstöðumaður hjá Hollustuvernd
ríkisins. Þá verður fjallað um
vökvagjöf, en um þann þátt sér
Sigríður Jakobsdóttir læknir.
Einnig verður íyrirlestur um sjúkra-
flug sem Jón Baldursson læknir
flytur og Rafn Ragnarsson læknir
verður með fyrirlestur um bruna
og brunaslys. Námstefnan verður
að þessu sinni haldin í Garðabæ og
er stjórnandi hennar María Har-
aldsdóttir yfirkennari skyndihjálp-
ar og almannavarnasviðs björgun-
arskólans. Þátttöku ber að tilkynna
á skrifstofu Landsbjargar.
Einar Aðalsteinsson
■ VETRARSTARF Guðspekifé-
lagsins mun hefjast nú um helgina
með opinberum fundi föstudaginn
11. október kl. 21.00 í húsi félags-
ins, Ingólfsstræti 22. Meðal fyrir-
lesara í vetur ná nefna Einar Aðal-
steinsson, Guðrúnu Bergmann,
Jón Arnalds, Guðlaug Bergmann,
Kristján Fr. Guðmundsson,
Gunnlaug Guðmundsson, Rögn-
vald Finnbogason og Úlf Ragn-
arsson. Sú nýbreytni verður í starf-
seminni að á mánudaginn 14. októ-
ber kl. 21.00 hefst nýtt 8 vikna
námskeið í hugrækt fyrir byrjendur
í umsjón Einars Aðalsteinssonar
deildarforseta félagsins. Farið verð-
ur í helstu atriði hugræktar og
hugleiðslu. Fjórir gestafyrirlesarar
munu fræða um sérstakar hliðar
hugræktar og jóga á síðari hluta
námskeiðsins. Námskeiðið er ætlað
almenningi og aðgangur er ókeypis.
■ DÚETTINN Bandamenn spila
fyrir dansi föstudags og laugar-
dagskvöld í Garðakránni, Garða-
torgi, Garðabæ. Dúettin skipa þeir
Gunnar Jónsson á hljómborð og
Ómar Hlynsson sem syngur og
leikur á gítar.
TZutancv
Heílsuvörur
nútímdfólks
10, 11 og 12 ára skólabarna í Reykjavík
11. október til 24. október 1991
UMFERÐ OG FÓLK
TEIKNISAMKEPPNI
Nýja Sendibílastöðin, í samvinnu við undirritaða aðila efnirtil
Teiknisamkeppni meðal skólabarna í Reykjavík á aldrinum
10,11 og 12 ára. Viðfangsefnið er Umferð og fólk, séð með augum
barnanna. Myndefnin verða 4, og tengjast árstíðunum,
vetri, sumri, vori og hausti.
28 glæsileg verðlaun eru í boði, samtals að verðmæti kr. 175.640.00.
Dómnefnd, skipuð fulltrúum undirritaðra aðila tekur til starfa að lokinni keppni. Verðlaunafhending
fer fram með viðhöfn og verða úrslit keppninnar birt í Morgunblaðinu.
Keppnisreglur: 1. Blaðstærð mynda má ekki vera minni en A-4.
2. Notið sterka og skíra liti. 3. Merkið myndir á bakhlið með: Nafni, aldri, heimili og síma.
ATH. Ekki merkja myndir að framan. 4. Keppendur geta skilað inn fleiri en einni mynd.
Myndum skal skila til: Nýja Sendibílastöðin Knarrarvogi 2 S. 685000 104 Reykjavík
Skilafrestur er til 24. október.
SAMTOK AHUGAFOLKS
UM BÆTTA
UMFERÐARMENNINGU
ri
UMFERÐAR
RÁÐ
Góða skemmtun
og gangi ykkur vel.
SÓUVHUG
-Lælur hjólin snúast
Skautar og þotur
Fjallahjól og hlaupahjól
CASIO.
20 aukaverðlaun
CASIO FX-82 tölvurfrá
FRÍSTUND í Kringlunni, hver
að verðmæti kr. 1.990.00.
Gangbrautir og endurskinsmerki
4 fyrstu verðlaun, vöruúttekt
hjá ÚTILÍF og L.A.- GEAR í
Glæsibæ, hver að verðmæti
kr. 25.000.00.
útiUf"
l.r. seagj
4önnurverðlaun,
HEXAGLOT tungumálatölvur
frá FRÍSTUND í Kringlunni og
I. GUÐMUNDSSYNI
hver kr. 8.960.-
0exqqlot
BOBnHHHHl mt mci«uiic
Hjálmar og hjólabretti