Morgunblaðið - 11.10.1991, Síða 41

Morgunblaðið - 11.10.1991, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991 41- var að læra af ýmsar góðar venjur. Brynjólfur kom til Reykjavíkur haustið 1941 og hóf nám í laga- deild Háskólans, en stúdentspróf tók hann þá um vorið. Á Akureyri hafði hann stundaði íþróttir með skólafélögum sínum og var þegar kominn í röð bestu hiaupara iands- ins. Brynjólfur þurfti nú að velja sér íþróttafélaga til að keppa með og svo vildi til að í KR störfuðu þá allmargir hæfileikamenn, sem unnu af kappi við að efla félagið á þessu sviði. Fremstir í þessum flokki voru þeir Benedikt Jakobs- son, vel menntaður íþróttakennari, og Jóhann Bernharð, sem var m.a. íjölfróður í íþróttasögu og hafði kynnt sér sérstaklega lög þau og reglur, sem fremstu íþróttaþjóðir störfuðu eftir við framkvæmd íþróttamóta. Brynjólfur ákvað að ganga til liðs við þessa menn og varð fljótt einn af forustumönnum fijálsíþróttadeildarinnar. Einnig gerðist hann meðritstjóri Jóhanns að árbók íþróttamanna, sem kom út í fyrsta skipti 1943 og hafði þegar í stað mikil áhrif til eflingar áhuga ungmenna fyrir íþróttum. Sama árið var lögð nú hlaupabraut á Melavellinum undir leiðsögn Benedikts og var Brynjólfur einnig þátttakandi í þeim framkvæmdum, sem gerbreyttu aðstöðunni til mótahalds í höfuðborginni. Þannig rak hver atburðurinn annan til hagsbóta fyrir íþróttirnar. Þegar ég mætti til að taka þátt í vetra- ræfingunum, þrekþjálfuninni, hjá Benedikt snemma árs 1944, mundi Brynjólfur eftir langa stráknum að austan og bauð mér í hópinn sem æfði með honum í útiæfingum um vorið. Þessu héldum við áfram í nokkur ár og störfuðum jafnframt í nefndinni sem annaðist undirbún- ing móta og samskipti við önnur félög, en þau samskipti voru mik- il, mörg mót haldin og fundir til að samstilla kraftana. Brynjólfur dró sig í hlé frá íþróttakeppni að mestu leyti haustið 1946. Lokapróf í lögum var framundan og jafn- framt hafði hann kynnst ungri og fallegri stúlku, Helgu Sigurðar- dóttur, sem átti hug hans allan. Þau giftu sig árið 1947, sama árið og hann lauk prófi í lögfræði. Margs er að minnast frá þessum árum með Brynjólfi og öðrum ágætum mönnum sem þátt tóku í fijálsíþróttastarfseminni þegar <.hún blómstraði hvað mest. Brynj- ólfur var einn þeirra sem best vann að þessu og hafði gott lag á að laða unglinga að íþróttum. Hann var talsverður skapmaður, en félagar hans litu ekki á þann eigin- leika sem galla því sigrar á íþrótta- velii vinnast ekki án skapfestu. Þótt leiðir skildu höfðum við Brynjólfur jafnan nokkurt sam- band. Hann var ætíð brosmildur þegar gamla félaga bar að garði og tilbúinn að ræða málin hvort sem þau tengdust íþróttum eða öðru sem ofarlega var á baugi. Hans er því saknað af gömlum vinum. Ég þakka ævilanga vináttu. Helgu, börnunum og afkomend- um öðrum sendum við Ragnheiður innilegar samúðarkveðjur. Páll Halldórsson Kær íþróttafélagi og vinur, Brynjólfur Ingólfsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, lést í Reykjavík 3. október sl. Brynjólfur var Áust- firðingur, fæddur að Vakursstöð- um í Vopnafirði 10. maí 1920. Fjölskylda Brynjólfs flutti til Seyð- isfjarðar þar sem hann átti sín góðu æskuár. Brynjólfur stundaði nám við Menntaskólann á Akur- eyri og varð stúdent 1941 og átti því 50 ára stúdentsafmæli á sl. vori. Hann lajgði stund á lögfræði við Háskóla Islands og lauk prófi 1947. Brynjólfur Ingólfsson hóf störf í samgönguráðuneytinu 1. júlí 1947 sem fulltrúi. Hann var ráðu- neytisstjóri þess í 21 ár uns hann lét af störfum að eigin ósk 1. mars 1973 vegna heilsubrests. Þeir sem kynntust störfum Brynj- ólfs í stjórnarráðinu eru sammála um að þar hafi farið frábær emb- ættismaður. Um það efast ekki sá sem þessar línur skrifar, þó að kynni okkar hafi verið á öðrum vettvangi. Eitt merkasta verk hans í samgönguráðuneytinu var stjórn hans á samvinnu og síðan samein- ingu Flugfélags íslands og Loft- leiða. Þar komu vel í ljós hæfileik- ar hans og lagni í því erfiða og viðkvæma máli. Brynjólfur var einn af frum- kvöðlum Fijálsíþróttasambands ís- lands og átti stóran þátt í góðum undirbúningi að stofnun þess ásamt mörgum öðrum góðum mönnum. Á vettvangi fijálsíþrótta hófust kynni okkar og samvinna. Mér er það enn í fersku minni hve það gladdi mig þegar Brynjólfur kom að máli við mig og spurði hvort ég væri fáanlegur til að taka sæti í stjórn Fijálsíþróttasambands íslands undir hans fprystu haustið 1954. Það var mikil gæfa og lær- dómur að fá að starfa með Brynj- ólfi, slík var þekking hans og áhugi. Sá áhugi var ávallt til stað- ar löngu eftir að hann lét af störf- um sem formaður 1960. Alltaf var jafn skemmtilegt og fróðlegt að hitta Biynjólf á vellinum og taka hann tali. Áður en Brynjólfur hóf félagsmálastörf á vettvangi íþrótt- anna var hann einn af bestu sprett- hlaupurum landsins. Ekki get ég stillt mig um að geta ánægjulegra stunda árin sem við Brynjólfur áttum saman í Garðabæ. Skemmtilegar göngu- ferðir um þann fallega bæ, kaffi- spjall að þeim loknum og samstarf- ið í Rotaryklúbbnum. Alltaf fór maður ánægður og fróðari af fund- um með þessum ágæta vini og samstarfsmanni. Nú þegar komið er að kveðju- stund er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast Brynjólfi. Við hjónin sendum Helgu Sigurðardóttur, eiginkonu Biynj- ólfs, bömum þeirra og íjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð veri minning Brynjólfs Ingólfssonar. Örn Eiðsson Guðnmndur Vilbergs- son - Kveðjuorð Guðmundur Vilbergsson, starfs- maður á tæknideild Borgarspítal- ans, andaðist á heimili sínu 25. sept- ember sl., 66 ára að aldri. Guðmundur hafði átt við erfið veikindi að stríða síðustu mánuðina en vann sitt starf svo lengi sem þrekið leyfði. Þó vitað væri að hveiju stefndi kom kallið að óvör- um. Hann kaus að vera á heimili sínu í faðmi fjölskyldunnar er loka- stundin nálgaðist og lýsir það best æðruleysi hans og rósemi. Það var ekki hans vani að kvarta þó sárþjáð- ur væri. Ég kynntist Guðmundi fýrst árið 1948 að mig minnir. Það var á þeim árunum, sem jassinn var í hávegum hafður hér á landi sem annars staðar í heiminum. Guð- mundur hafði þá þegar haslað sér völl sem einn allra besti jassleikari þessa lands. Trompetinn var hans aðalhljóðfæri og að auki spilaði hann á harmoniku. Þá var KK-sext- ettinn ein af vinsælustu hljómsveit- um landsins og Guðmundur varð sjálfkjörinn í þá hljómsveit. Spilaði hann með þeirri hljómsveit í allmörg ár á hinum ýmsu danshúsum Reykjavíkur, en einnig spilaði Guð- mundur með hljómsveit Aage Lor- ange. Mér eru einnig minnisstæðir jasstónleikar, sem þá voru tíðir hér á höfuðborgarsvæðinu. Einnig voru ,jam-sessionirnar” svonefndu haldnar reglulega hér í Reykjavík, einkum í gömlu Breiðfírðingabúð í bakhúsi við Skólavörðustíginn. Þar komu allir bestu jassleikarar lands- ins saman reglulega og spiluðu af fingrum fram helstu gullkorn jass- ins án nokkurs undirbúnings. Þarna naut Guðmundur sín og spilaði ljúfa tóna á trompettinn sinn svo undir tók í Þingholtunum. Ég fékk mikinn áhuga á þessu hljóðfæri og varð mér úti um trompet. Gerðist svo djarfur að hringja í „meistarann” og spyija hvort hægt væri að fá kennslu hjá honum. Var það auð- sótt mál og man ég alltaf enn þann dag í dag hversu vel hann tók mér, er ég kom til hans í fyrsta sinn á Njálsgötuna. Síðan skildu leiðir og Guðmundur flutti aftur til Flateyrar með ljölskyldu sinni, þar sem hann starfaði næstu árin í vélsmiðju föð- ur síns. Fyrir um 10 árum bar fund- um okkar aftur saman, er Guð- mundur hóf störf á tæknideild Borgarspítalans, þar sem hann vann upp frá því og til dauðadags. Guðmundur sá um viðgerðir og við- hald á hinum ýmsu tækjum spítal- ans og var það einróma álit allra hér á Borgarspítalanum að það starf hafi hann unnið af stakri prýði, enda var Guðmundur með afbrigðum hagleikinn. Hef ég fyrir satt að með starfi sínu hafi hann sparað spítalanum mikla fjármuni, sem annars hefðu farið í kaup á nýjum tækjum. Slíkum starfskrafti sem Guðmundur var hefði mátt umbuna betur en gert var. Að leiðarlokum vil ég þakka Guðmundi fyrir tryggð og góða vin- áttu og sendi eiginkonu hans, böm- um og öðrum ættingjum innilegustu samúðarkveðjur. Daniel Guðnason t Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐIMI GESTSSON, Kirkjuvegi 11, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 1 2. október kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hins látna er bent á minningarsjóð Krist- jáns Ingibergssonar. Vigdís Pálsdóttir, Sveinn Guðnason, Guðbjörg Sigurjónsdóttir, Elín Guðnadóttir, Ellert Skúlason, Ingunn Guðnadóttir, Bjarni Jónsson, Gestur Guðnason, Oddrún Guðsveinsdóttir, Pálma Guðnadóttir, Eiríkur Ragnarsson, Kristín Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir okkar. KRISTÍN í. KRISTINSDÓTTIR frá Bæ, Höfðaströnd, andaðist á sjúkrahúsi Sauðárkróks 9. þ.m. Börnin. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ELFAR SKAPHÉÐINSSON, Bústaðavegi 73, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 14. október kl. 13.30. Ása Katrín Skarphéðinsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURJÓN JÓNSSON, Vestmannaeyjum (Sjonni frá Engey), andaðist í sjúkrahúsi Vestmannaeyja aðfararnótt 8. október. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardag- inn 12. október kl. 14.00. Sigríður Harpa Sigurjónsdóttir, Héðinn Konráðsson, Ragnar Sigurjónsson, r Hrönn Sigurjónsdóttir, Gestur Páll Gunnbjörnsson, Sigurjón Sigurjónsson, Erna Ólöf Óladóttir, Bylgja Sigurjónsdóttir og barnabörn. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SÉRA BJARNI SIGURÐSSON frá Mosfelli, verður jarðsunginn frá Mosfellskirkju laugardaginn 12. október kl. 14.00. Aðalbjörg Sigríður Guðmundsdóttir, Þórunn Bjarnadóttir, Ýr Þórðardóttir, Bjarki Bjarnason, Þóra Sigurþórsdóttir, Sif Bjarnadóttir, Ib Dan Petersen og barnabörn. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langa- langamma, AÐALHEIÐUR I. JÓNSDÓTTIR frá Morastöðum, Kjós, Hjarðarhaga 60, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 14. október kl. 15.00. Bergmann Gunnarsson, Jón Gunnarsson, Stella Gunnarsdóttir, Björg Gunnarsdóttir, Ingibjörg Gunnarsdóttir, Gróa Gunnarsdóttir, Ragnar Gunnarsson, Sveinn Gunnarsson, Sigrtður Gunnarsdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Hallbera Gunnarsdóttir, Sigþrúður Jóhannesdóttir, Guðmundur Valdimarsson, Bjarni Gunnarsson, Ragnar Halldórsson, Hetga D. Sæmundsdóttir, Hólmfríður Freysteinsdóttir, Þorsteinn Gíslason, Pétur H.R. Sigurðsson, Kristinn Skúlason, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall móð- ur okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SÓLBORGAR GUNNARSDÓTTUR frá Reyðarfirði. Ingi S. Erlendsson, Rannveig Gísladóttir, ErlendurÁ. Erlendsson, Vilborg Nikulásdóttir, Gunnar Þorkelsson, Erna Grétarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ÞÓRHEIÐAR G. SUMARLIÐADÓTTUR, Sunnubraut 22, Kópavogi. Starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítalans þökkum við sér- staka alúð og umhyggjul Björg Guðmundsdóttir, Ólafur Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.