Morgunblaðið - 11.10.1991, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 1991
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Skyttumar þrjár
Alfreð, Sigurðurog Kristján byrjaðirað hrella markverði
Morgunblaðið/IIAX
Alfreð Gíslason er sloppinn úr gæslu. Hann skoraði tíu
mörk gegn Víkingum.
SKYTTURIMAR þrjár - Sigurður
Sveinsson, Alfreð Gílason og
Kristján Arason, sem eru
komnir frá Spáni, hafa styllt
fallbyssur sínar og eru í hópi
markahæstu leikmanna í 1.
deildarkeppninni íhandknatt-
leik.
Alfreð Gíslason skoraði tíu
mörk fyrir KA í sínum fyrsta
leik - gegn Víkingum. Sigurður
Sveinsson hefur skorað fjórtán
mörk í tveimur leikjum og Kristján
Markahæstu menn
Þeir leikmenn sem hafa skorað mest í 1.
deildarkeppninni í handknattleik, eru:
Birgir Sigurðsson, Víkingi.......17/8
Karl Karlsson, Fram..............14
Gústaf Bjarnason, Selfossi.......14/8
Sigurður Sveinsson, Selfossi.....14/3
Einar G. Sigurðsson, Selfossi....13
Hans Guðmundsson, FH.............13/3
Kristján Arason, FH..............11/1
Páll Olafsson, Haukum............11/3
Alfreð Gislason, KA..............10
Gunnar Beinteinsson, FH..........10
Michal Tonar, HK.................10
Guðmundur Pálmason, UBK..........10/1
Petr Baumrik, Haukum.............10/2
L- Halldór Ingólfasson, Haukum.....10/2
Guðmundur Albertsson, Gróttu.....10/5
KNATTSPYRNA / ÞYSKALAND
Lerby tekur við Bayem
Jupp Heynckes, þjálfari Bayern
Miinchen, hefur verið rekinn frá
félaginu eftir slakt gengi liðsins í
þýsku úrvalsdeildinni. Daninn Sör-
en Lerby var ráðinn þjálfari liðsins
í hans stað. „Þetta er eitt leiðinleg-
asta verkefni sem ég hef staðið í,”
sagði Uli Höness, framkvæmda-
stjóri Bayern, sem hefur fram að
' þessu staðið með heynches gegnum
súrt og sætt.
Bayern er þekktasta lið Þýska-
lands og hefur unnið meistaratitil-
inn oftast allra liða, alls 12 sinnum.
Forráðamenn liðsins sætta sig því
ekki við slakt gengi liðsins, sem
hefur ekki byijað eins illa í sjö ár.
Heynckes, sem er 46 ára, hefur
þjálfað Bayem síðustu fjögur árin
og stýrt liðinu til sigurs í deildinni
bæði 1989 og 1990. Liðið olli hings
vegar vonbrigðum á síðasta keppn-
istímabili og það hefur gert það sem
af er. Samningur hans var til ársins
1993.
Sören Lerby, sem lék með Bay-
ern Munchen í þrjú ár; 1984 -1986,
hefur nú þegar tekið við stjórninni
og er með samning út þetta keppn-
istímabil. „Ég átti þijú góð ár hér
í Múnchen sem leikmaður og það
var því erfitt að hafna þessu til-
boði,” sagði Lerby. „Ef ég hefði
hafnaði þjálfarastöðunni gæti það
þýtt endalok fyrir mig í knattspyrn-
unni.”
Lerby fær 1,2 millj. ísl. kr. í laun
á mánuði og í bónus á hann að fá
3,5 millj. kr. ef Bayern verði meist-
ari eða bikarmeistari. Aðeins hætti
upphæð fær hann ef UEFA-bikar-
inn kemur til félagsins. „Þetta er
KNATTSPYRNA / VIÐURKENNINGAR
Arason ellefu. Sigurður hefur skor-
að átta af mörkum sínum úr víta-
köstum, en Kristján eitt.
Birgir Sigurðsson, línumaðurinn
knái úr Víkingi, er markahæstur
með 17 mörk, en hann hefur skorað
átta mörk úr vítaköstum. Birgir
skoraði sex mörk úr vítaköstum
þegar hann skoraði tólf mörk gegn
KA.
Sá leikmaður sem er langskytta
framtíðarinnar er án efa Karl Karls-
son hjá Fram, sem hefur skorað
fjórtán mörk I tveimur leikjum.
Karl var útnefndur besti ungi leik-
maðurinn í 1. deild sl. keppnistíma-
bil.
Tékkinn Michael Tonar, sem leik-
ur með HK, skoraði tíu mörk í sín-
um fyrsta leik, eins og Alfreð. Landi
hans Petr Baumruk hjá Haukum
hefur skorað tíu mörk í tveimur
leikjum með Haukum.
Bergsveinn hefur varið mest
Bergsveinn Bergsveinsson,
markvörður FH-liðsins, hefur varið
mest, eða 28/2 skot í tveimur Ieikj-
um. Sovétmaðurinn Alexander Re-
vine hjá Gróttu kemur næstur á
blaði, með 26/1 skot og Einar Þor-
varðarson, Selfossi, hefur varið 21
skot.
Reynir Þ. Reynisson hjá Víkingi
hefur aftur á móti varið 19/2 skot
í einum leik, en Brynjar Kvaran hjá
Stjömunni hefur varið 19/1 í tveim-
ur leikjum.
Sören Lerby
mikil áhætta hjá okkur. Lerby hefur
enga reynslu sem þjálfari, en éh
hef trú á því að hann komi með
nýtt blóð til okkar,” sagði Höness.
Háttvísir knattspyrnumenn verdlaunaðir
Knattspyrnusamband íslands og Visa ísland gengust fyrir átaki varðandi háttvísi í knattspyrnu á nýliðnu keppnistímabili. í gær voru veittar viðurkenningar
fyrir 13.-18. umferð í 1. deild, 2. deild og 1. deild kvenna. FH var prúðasta lið Samskipadeildar, Þór Akureyri prúðasta lið 2. deildar og Breiðablik prúðasta lið 1.
deildar kvenna. Á myndinni eru frá vinstri: Eggert Magnússon, formaður KSÍ; Marteinn Geirsson Fylki, prúðasti þjálfari 2. deildar; Lúðvík S. Georgsson frá
knattspyrnudeild KR; Gunnar Skúlason KR, prúðasti leikmaður 1. deildar; Þórir Jónsson, formaður knattspymudeildar FH; Ólafur Kristjánsson, fyrirliði FH;
Ólafur .Jóhannesson, þjálfari FH á tímabilinu; Jóhannes Jóhannesson frá knattspyrnudeild Þórs; Sigrún Óttarsdóttir, fyrirliði 1. deildarliðs kvenna hjá UBK;
Árni Guðrrjundssoni ^ormnður jínatljspymudeildar UBKj^Hn^lfJur lngóIfsson -ÍA, prúðasti leikmaður 2. deildar og Þórihir Jónsson frá Viga íriandi._
STAÐAN
Fj. leikja U J T Mörk Stig
FH 2 2 0 0 53: 34 4
VIKINGUR 2 2 0 0 53: 43 4
SELFOSS 2 1 1 0 56: 48 3
STJARNAN 2 1 1 0 45: 39 3
FRAM 2 1 1 0 45: 44 3
HK 1 1 0 0 31: 20 2
HAUKAR 2 0 1 1 47: 55 1
KA 1. O 0 1 26: 27 0
ÍBV 1 0 0 1 20: 21 0
VALUR 1 0 0 1 24: 32 0
GRÓTTA 2 0 0 2 34: 51 0
UBK 2 0 0 2 29: 49 0
ÍH&mR
FOLK
■ GUÐNI Bergsson hóf leik
Tottenham gegn Swansea í deild-
arbikarkeppninni á miðvikudaginn
sem hægri bakvörður, en eftir að
David Tuttle meiddist var Guðni
færður í stöðu miðvarðar, þar sem
hann vill helst leika.
■ TREVOR Francis, fram-
kvæmdastjóri og leikmaður Sheffi-
eld Wednesday, kom inn á sem
varamaður gegn Leyton Orient í
deildarbikarkeppninni og skoraði
tvívegis í 4:1 sigri. Wednesday er
handhafi bikarsins.
■ ALFRED Riedl, landsliðsþjálf-
ari Austurríkis sagðist myndu
bjóðast til að segja af sér, eftir að
lið hans tapaði 0:3 á heimavelli fyr-
ir Danmörku í Evrópukeppninni.
Lið hans var afspyrnuslakt í leikn-
um.
■ JOHN Aldridge gerði 15. mark
sitt fýrir Tranmere Rovers í fyrra-
kvöld er liðið sló Chelsea út úr
deildarbikarkeppninni. Hann gerði
markið úr víti og leikmenn 1. deild-
arliðsins urðu ævareiðir yfír því
hvernig hann fór að því — Aldridge
hljóp að knettinum, en hægði svo
verulega á sér til að koma mark-
verðinum úr jafnvægi áður en hann
skaut.
■ TERRY Yorath, landsliðsþjálf-
ari Wales, hefur áhyggjur af því
að tveir lykilmenn í liðinu eru á
sjúkralista fyrir Evrópuleikinn gegn
Þýskalandi næsta miðvikudag.
Varnamennirnir Dave Phillips,
Norwich og Mark Aizlewood,
Bristol City eru meiddir, en þeir
léku með liðinu er það vann Þýska-
land 1:0 í fyrri leik liðanna í Card-
iff í maí. „Þetta er mjög slæmt
fyrir okkur. Mark hefur leikið mjög
vel og er lykilmaður í vörninni,”
sagði Yorath.
■ CARLO Mazzone -var í gær
ráðinn þjálfari Cagliari í ítölsku
knattspyrnunni. Cagliari er þriðja
1. deildarliðið á Italíu sem skiptir
um þjálfara á innan við tveimur
vikum.
■ IAN Wright, sóknarmaður
Arsenal, gæti misst af leik Eng-
lands og Tyrklands í næstu viku
vegna ökklameiðsla. Wright, sem
lék áður með Crystal Palace, hefur
verið í miklu stuði hjá Arsenal og
gert 6 mörk í síðustu fjórum leikjum
liðsins. Félagi hans, Tony Adams,
á einnig við meiðsli að stríða og
ekki víst að hann geti leikið með
gegn Tyrkjum.
■ RAYMOND Göthals, þjálfari
Marseille, sem stýrði liðinu í úrslit
í Evrópukeppninni á síðasta keppn-
istímabili, sagði í gær að hann ætl-
aði að hætta eftir þetta keppnis-
tímabil. Hann er sjötugur og hefur
verið tæknilegur ráðunautur Júgó-
slavans Tomislav Ivic þjálfara liðs-
ins í vetur._____________1