Morgunblaðið - 02.11.1991, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NOVEMBER 1991
Hvíti víkingurinn frumsýndur
Morgunblaðið/Sverrir
Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar, Hvíti víkingur-
inn, var frumsýnd í Háskólabíó í gær. Meðal gesta
var Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands, sem hér
sést heilsa aðalleikurunum tveimur, þeim Gottskálk
Degi Sigurðarsyni og Maríu Bonnevie.
Sjá einnig umfjöllun um kvikmyndina á bls. 14.
Borgarráð:
Sex arkitektar skipu-
leggja Borgartorg
BORGARRÁÐ hefur ákveðið að fela sex arkitektastofum að vinna
að tillögum um útfærslu og skipulag Borgartorgs í miðbæ Reykjavík-
ur. Hverri stofu verða greiddar alls 350 þúsund kr. fyrir verkefnið.
Leitað verður til eftirtalinna arki-
tektastofa til að gera tillögur að
skipulagi ásamt hugmyndum um
notkun og útfærslu Borgartorgs,
(Steindórsplans og Hótel íslands
plans), með hliðsjón af staðfestu
skipulagi miðbæjarins: Elínu
Kjartansdóttur, Helgu Benedikts-
dóttur og Haraldi Erni Jónssyni,
Hjördísi Sigurgísladóttur og Gísla
Sæmundssyni, Jóni Ólafssyni og
Sigurði Einarssyni, Knúti Jeppesen,
Kristni Ragnarssyni og Manfreð Vil-
hjálmssyni.
Fimm manna dómnefnd verður
skipuð til að fjalla um tillögumar. í
henni eiga sæti þrír menn kosnir af
borgarráði og tveir tilnefndir af
stjórn Arkitektafélags íslands. Trún-
aðarmaður og starfsmaður dóm-
nefndar verður Ólafur Jensson fram-
kvæmdastjóri Byggingaþjónustunn-
Salmonella finnst í kjúklingnm:
Fráleit vinnubrögð að
innkalla ekki vöruna
- segir formaður Neytendasamtakanna
JÓHANNES Gunnarsson, for-
maður Neytendasamtakanna,
segir það fráleit vinnubrögð að
Aflasamdráttur:
Fyrirtækin stöðvast ef ein-
göngu verða veitt afurðalán
- segir Arnar Sig’urmundsson, for-
maður Samtaka fiskvinnslustöðva
KOMI til þess að Landsbankinn veiti eingöngu afurðalán til þeirra
fyrirtækja í fiskvinnslu og útgerð, sem eru í viðskiptum við bank-
ann, mun það leiða til stöðvunar fjölmargra fyrirtækja víðsvegar
um land, að sögn Arnar Sigurmundssonar, formanns Samtaka
fiskvinnslustöðva. „Það mun ekki ganga og síst í þeim erfiðleikum
sem núna eru af völdum kvótasamdráttar og hallarekstrar að
veita eingöngu afurðalán,” sagði hann. Tryggvi Pálsson, banka-
stjóri Islandsbanka, segir að ekki sé að vænta neinna stórra yfir-
lýsinga af hálfu bankans vegna fyrirsjáanlegs aflasamdráttar í
sjávarútvegi á næsta ári. Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóri
LIÚ, vildi ekki tjá sig um málið að sinni.
í frétt í Morgunblaðinu í gær, Arnar að ef svo færi kæmi til
er haft eftir Sverri Hermannssyni stöðvunar hjá fjölmörgum físk-
bankastjóra Landsbankans, að vinnslu- og sjávarútvegsfyrirtækj-
samdráttur í sjávarafla leiði til um á næstu vikum og mánuðum.
þess að bankinn muni eingöngu Erfitt væri að spá fyrir um hversu
veita fyrirtækjum afurðalán. Sagði mörg fyrirtæki væri um að ræða
en bankinn er með rúmlega 70%
sjávarútvegsfyrirtækjanna í við-
skiptum.
„Við höfum ekki rætt um hvem-
ig við munum bregðast við þessum
hugmyndum bankastjórans,” sagði
Arnar. Hann sagði að margsinnis
hefði verið bent á að fráleitt væri
að fiskvinnslu- og útgerðarfyrir-
tæki væru skuldbundin til að
greiða í verðjöfnunarsjóð. Þá hefði
verið bent á að lán úr atvinnu-
tryggingasjóði þyrfti að færa aftur
og jafnframt að lengja lánstímann.
Loks væru háir nafn- og raunvext-
ir að sliga fyrirtæki jafnt sem ein-
staklinga. „Ekkert hefur gengið
fram ennþá, en ég held að þessi
ummæli Landsbankastjórans, til
viðbótar því sem þegar hefur verið
bent á, ýti við stjórnvöldum um
að svona ganga hlutirnir ekki fyrir
sig,” sagði Arnar.
Hann sagðist ekki vera sammála
því að fiskifræðingar ættu sök á
hvemig komið væri. Fiskifræðing-
ar ættu að gera tillögur og rétt-
kjörin stjórnvöld að taka ákvörðun
í framhaldi af því. „Margir í okkar
röðum efast en ég tel að við höfum
ekki leyfi til að segja að þetta sé
tóm vitleysa,” sagði Arnar. „En
menn mega efast.”
„Við höfum rætt þennan vanda
við okkar viðskiptavini og við ger-
um ráð fyrir að þeir bregðist við
honum á réttan hátt, en íslands-
banki hyggur ekki á neinar sér-
stakar aðgerðir í bráð vegna
þessa,” sagði Tryggvi Pálsson.
íslandsbanki á töluverð viðskipti
við sjávarútvegsfyrirtæki á nokkr-
um stöðum á landinu, aðallega í
Vestmannaeyjum, á ísafirði og
Siglufirði. „Við í íslandsbanka höf-
um töluverðar áhyggjur af þeirri
þróun sem við blasir vegna afla-
samdráttar en hyggjum ekki á yfir-
lýsingar vegna hans,” sagði
Tryggvi.
innkalla ekki úr verslunum
kjúklinga úr sendingu sem
salmonella hafi greinst í. Eins
og greint var frá í Morgunblað-
inu í gær fannst salmonella í
sýnum sem tekin voru í ali-
fuglabúinu í Sveinbjarnargerði
í Eyjafirði, en ekki þótti ástæða
til að innkalla kjúklinga frá
búinu þar sem sú tegund salm-
onellu sem fannst var ekki talin
hættuleg mönnum.
„Það er okkar skoðun að í slíkum
tilfellum eigi skilyrðislaust að inn-
kalla vöruna. Hvers vegna ákvörð-
un um hið gagnstæða hefur verið
tekin í þessu tilfelli er óskiljanlegt,
og finnst mér það vera fráleit
vinnubrögð,” sagði Jóhannes.
Hann sagði að Neytendasam-
tökin gerðu þá sjálfsögðu kröfu
að matvæli í verslunum væru ætíð
hrein og góð, en hins vegar ráð-
legðu samtökin neytendum að
meðhöndla allt kjöt miðað við það
að hætta geti verið á að í því
væri salmonella.
*
Astand vega
almennt gott
ÁSTAND vega um allt Iand,
að hálendinu frátöldu, er al-
mennt mjög gott um þessar
mundir. AUir vegir eru færir
og snjó hefur tekið upp í þíð-
unni að undanförnu. Þetta
mun vera þriðja haustið í röð
sem ástand vega er með
þessu móti.
Að sögn Hjörleifs Ólafssonar
hjá Vegaeftirlitinu hefur sums
staðar örlað á aurbleytu í þeirri
þíðu sem verið hefur en hún
er ekki alvarleg og veldur ekki
vandræðum. „Þó allir vegir séu
nú færir teljum við hálendis-
vegina almennt ófæra en þess
ber að geta að við erum fyrir
nokkru hættir að fylgjast með
ástandi þeirra,” segir Hjörleif-
ur. „Haustið í ár, eins og haust-
in í fyrra og hitteðfyrra, hefur
verið mjög gott fyrir Vegagerð-
ina. Sá snjór sem kom í sept-
ember er horfinn að mestu.”
Dæmdttr í 18 mánaða fangelsi fyrir nauðgnn:
Rotaði konu o g
nauðgaði henni
27 ára gamall maður hefur verið dæmdur til 18 mánaða fangelsisvist-
ar fyrir nauðgun og líkamsárás á 33 ára gamla konu. Auk sakarkostnað-
ar er honum gert að greiða konunni 300 þúsund króna miskabætur.
Maðurinn framdi verknaðinn á hótelherbergi í Reykjavík í júlí síð-
astliðnum. Hann reif föt utan af konunni, sló hana svo hún missti
meðvitund og nauðgaði henni í því ástandi. Að því loknu sló hann
hana aftur með þeim afleiðingum að hún marðist mikið í andliti og
missti tvær framtennur.
Kvöldið sem atburður þessi varð
hittist fóikið á veitingastað í borg-
inni en það hafði ekki þekkst fyrir.
Ásamt fleirum var það að skemmta
sér um kvöldið en þegar leið á nótt-
Boðað verkfall á kaupskipum:
Sáttaumleitanir um helgina
SAMNINGANEFNDIR háseta á kaupskipum og kaupskipaútgerða
komu saman til formlegs fundar hjá ríkissáttasemjara um miðjan
dag í gær, en hásetar hafa boðað allsherjarverkfall á kaupskipaflot-
anum frá og með klukkan 13 föstudaginn 8. nóvember.
Fundinum lauk um kvöldmatar- en efna til annars formlegs fundar
leytið og var ákveðið að halda áfram á mánudag.
óformlegum viðræðum yfir helgina
ina tók maðurinn herbergi á City
Hóteli við Ránargötu með tveimur
rúmum. Þar sagðist konan ætla að
hvíla sig. Þegar hún vísaði atlotum
mannsins á bug brást hann við með
fyrrgreindum hætti. Síðan yfirgaf
maðurinn hótelið en kom á lögreglu-
stöð um nóttina og játaði sök sína
í þann mund sem konan kom þang-
að með leigubíl til að leggja fram
kæru. Framburði beggja aðila og
vitna bar saman um helstu atriði
málsins en ekki þótti sannað það
sem eitt vitnið hélt fram að maður-
inn hefði sagt að sig hefði lengi
langað til að fremja verknað sem
þennan.
Ingibjörg Benediktsdóttir saka-
dómari kvað upp dóminn.
Olli árekstri
á flótta und-
an lögreglu
TVEIR menn voru fluttir
á slysadeild eftir að bíll
sem þeir voru í ók á ann-
an á Vesturgötu í fyrri-
nótt. Þegar áreksturinn
varð voru mennirnir að
reyna að komast undan
lögreglu.
Lögregla stöðvaði bílinn í
Tryggvagötu og þegar öku-
maður gat ekki sýnt ökuskír-
teini var hann beðinn að aka
á lögreglustöðina við
Tryggvagötu. Hann lést ætla
að gera það, svo en ók þess
í stað á brott á miklum hraða.
Lögregla veitti manninum
eftirför.
í beygju vestan við Selja-
veg missti ökumaðurinn vald
á bíl sínum, sem skall á kyrr-
stæðri bifreið og hentist það-
an út fyrir veg. Ókumaðurinn
og farþegi hans voru fluttir
á slysadeild. Þeir voru ekki
taldir alvarlega slasaðir, en
talið var hugsanlegt að annar
væri kjáikabrotinn, að sögn
lögreglu.
Óvíst er hvers vegna mað-
urinn vildi komast undan lög-
reglu en hann var ekki talinn
öivaður.