Morgunblaðið - 02.11.1991, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991
Hafin bygging á
67 íbúðum í ár
HAFIN var bygging á 67 íbúðum á Akureyri á þessu ári, en á síð-
asta ári var byrjað að byggja 108 íbúðir í bænum og árið 1989 voru
þær 66.
íbúðimar 67 skiptast þannig að
9 eru í einbýlishúsum, 21 í raðhús-
Um og 37 í fjölbýlishúsum. Lang-
flestar þeirra eru í hinu nýja Gilja-
hverfi, en einnig eru þær við Vest-
ursíðu.
Jón Geir Ágústsson bygginga-
fulltrúi segir að ákjósanlegast væri
að hafin yrði bygging á um 100
íbúðum á ári í bænum, um 60-70
íbúðir sé ekki nóg.
Auk íbúðabygginga eru nokkur
stór verkefni í gangi, nýlega er lok-
ið við að reisa íþróttahús KA, þá
eru tvö stórhýsi í byggingu í mið-
bænum, viðbygging veitustofnana
við Rangárvelli og skrifstofuhús-
næði rafveitu við Þórsstíg eru og í
byggingu auk fleiri verkefna.
I yfirliti yfír óveittar íbúðarhúsa-
lóðir og veittar lóðir sem lagt var
fram í bygginganefnd fyrir nokkru
kemur fram að óbyggðar eru 35
einbýlishúsalóðir, 93 raðhúsalóðir
og 70 ljölbýlishúsalóðir á veittum
og óveittum lóðum.
■ SIGRÍÐUR Halldórsdóttir
flytur fyrirlestur hjá Styrk, sam-
tökum krabbameinssjúklinga og
aðstandenda þeirra á mánudags-
kvöld. Sigríður Halldórsdóttir er
^hjúkrunarfræðingur og forstöðu-
maður heilbrigðisdeildar Háskól-
ans á Akureyri. Fyrirlestur hennar
nefnist: Upplifun fyrrum sjúklinga
á umhyggju og umhyggjuleysi á
sjúkrahúsum. Fyrirlesturinn verður
fluttur í húsnæði Háskólans á
Akureyri við Glerárgötu 36 2.
hæð og hefst hann kl. 20.
■ KFUM OG K, kristniboðsfélög-
in á Akureyri, efna til samkomu-
viku, sem hefst á morgun, sunnu-
daginn 3. nóvember. Kristilegar
samkomur verða haldnar á hveiju
kvöldi í húsakynnum KFUM og K
í Sunnuhlíð. Helgi Hróbjartsson
kristniboði mun tala, syngja og sýna
myndir frá kristniboðinu, öll kvöld
vikunnar. Helgi hefur starfað sem
kristniboði í Senegal, en var áður
prestur í Hrísey og kristniboði í
Eþíopíu. Ragnar Gunnarsson sem
starfað hefur ásamt fjölskyldu sinni
við íslensku kristniboðsstöðvarnar
í Kenýa mun boða Guðs orð og
kynna kristniboðið í máli og mynd-
um. Þá mun Margrét Jónsdóttir
forstöðukona á Löngumýri tala eitt
kvöldið. Samkomurnar hefjast kl.
20.30 og laugardagskvöld 9. nóv-
ember er ráðgert að halda miðnæt-
ursamkomu sem hefst kl. 23.30.
■ OLE Kristiansen band frá
Grænlandi heldur tónleika á
skemmtistaðnum 1929 annað
kvöld, sunnudagskvöld 3.nóvember
kl. 21.30. Hljómsveitin er kennd við
Ole Kristiansen, 26 ára gamlan
Grænlending sem helgað hefur
tónlistinni krafta sína allt frá því
fyrsti geisladiskur hans kom út árið
1989. Hljómsveitin var á tónleika-
ferð um vesturströnd Grænlands í
sumar og í fyrra tók hún þátt í
Hróarskelduhátíðinni. Nýlega
komst nýr diskur með Ole í efsta
sæti grænlenska vinsældalistans og
á tveimur mánuðum seldist hann í
um 6.000 eintökum. Vonast er til
að _ tónleikaferð hljómsveitarinnar
til Islands ryðji brautina fyrir frek-
ari samskiptum landanna á þessu
sviði, en grænlensk tónlist og tón-
listarflutningur eru Islendingum
að mestu ókunn enn sem komið er.
Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn
Dröfn Friðfinnsdóttir opnar sína fjórðu einkasýningu í Gamla Lundi
í dag, laugardag.
Dröfn sýnir í Gamla Lundi
DROFN Friðfinnsdóttir opnar í dag, laugardag, sýningu á grafík-
verkum í Gamla Lundi við Eiðsvöll á Akureyri. Sýningin verður
opnuð kl. 14 og verður hún opin daglega frá kl. 14 til 18 fram til
sunnudagsins 10. nóvember.
Þetta er fjórða einkasýning
Drafnar, en hún hefur áður sýnt á
Akureyri og í Lathi 1 Finnlandi, auk
þess sem hún hefur tekið þátt í
fjölda samsýninga.
Dröfn stundaði nám við Myndlist-
askólann á Akureyri þar sem hún
var í málaradeild. Þá nam hún við
Myndlista- og handíðaskóla íslands
um eins árs skeið og einnig var hún
við nám í Finnlandi í eitt ár.
Á sýningunni eru 20 verk, trérist-
ur, sem öll eru unnin á þessu ári
og eru verkin öll til sölu.
iÁ Enn e STÁI Miðas og sýi 1EIKFÉLAG AKUREYRAR 96-24073
• STÁLBLÓM eftir Robert Harling Sýn. í kvöld lau. 2/11 kl. 20.30, fós. 8/1 í. kl. 20.30. r hægt að fá áskriftarkort. Rúmlega 30% afsláttur. BLÓM - TJÚTT & TREGl - ÍSLANDSKLUKKAN. alan er opin alla virka daga nema mánudaga kl. 14-18 íingardaga fram að sýningu.
Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn
Seinkun á flugi til Dublin
Sjö tíma seinkun varð á beinu flugi frá Akureyri til Dublin á írlandi í gær en vegna þoku var ekki hægt
að lenda á Akureyrarflugvelli fyrr en eftir hádegið. Myndin var tekin þegar farþegarnir 170 komust loks
um borð í þotuna.
Ársfundur hafnarsambandsins:
Oskað eftir 30 millj. kr. til
kaupa á mengunarbúnaði
SAMÞYKKT var á ársfundi Hafnarsambands sveitarfélaga að óska
eftir 30 milljóna króna ríkisframlagi á næstu tveimur árum til að
koma upp viðbúnaði gegn mengun í höfnum. Fram kom sú tillaga
í nefnd sem fjallaði um málið á fundinum í fyrradag að réttast væri
að olíufélögin tækju þetta verkefni að sér. Fundurinn féllst í megin-
atriðum á tillögur nefndar sem skipuð var til að vinna að þessu
máli, en þar var lagt til að landinu yrði skipt upp í þjónustusvæði
og yrði búnaður hverrar hafnar miðaður við flokkun hennar.
Lagt var til að landshlutahafnir
yrðu 5 að tölu að þar yrði til full-
kominn búnaður til að hefta út-
breiðslu olíu og ná henni upp. Þá
yrðu 8 svæðishafnir með lágmarks-
búnað til olíuhreinsunar, en aðrar
hafniryrðu flokkaðarsem almennar
hafnir og þar myndi búnaði ekki
vera komið upp strax.
Á fundinum var samþykkt að
endanlegt skipulag innan hvers
þjónustusvæðis verði ákveðið í sam-
ráði við heimamenn og að hafnir á
hverju þjónustusvæði kjósi 3-5
manna starfsráð til að sjá um rekst-
ur búnaðarins og þjálfun manna í
meðferð hans í samvinnu við Sigl-
ingamálastofnun ríkisins.
Hafnarsambandið ætlar að óska
eftir 30 milljón króna framlagi frá
ríkinu á næstu tveimur árum til
þessa verkefnis, en helmingur þess
fjár, er í fjárlagatillögu Umhverfis-
ráðuneytisins fyrir árið 1992. Auk
þessa framlags er vænst framlags
til mengunarbúnaðar í höfðustöðvar
siglingamálastofnunar. Lagt er til
að framlaginu verði skipt eftir þjón-
ustusvæðum, en fari ekki til ein-
stakra hafna og að mótframlag til
kaupa á búnaði og reksturs komi
frá öllum höfnum svæðisins. Eðli-
Iegast sé þó að ríkið greiði stofnbún-
aðinn að fullu.
Nokkrar umræður urðu um þetta
mál á fundinum í gær, en fram kom
í máli nokkurra fundarmanna að
eðlilegast væri að oh'ufélögin
greiddu búnað til mengunarvarna.
Magnús Jónsson á Skagaströnd
sagði að það væru fyrst og fremst
olíufélögin sem yllu menguninni og
því starfi sem unnið hefði verið
vegna þessa væri illa varið í ljósi
þess að bæta ætti við verkefni hafn-
anna, sem þó væru ærin fyrir og
fé af skornum skammti.
Eyjólfur Sæmundsson í Hafnar-
firði benti á að þeim er mengaði
bæri að borga og gætu hafnirnar
sent t.d. olíufélögum eða öðrum
reikning og væri viðkomandi þá
skylt að greiða hann.
í stjórn hafnarsambandsins voru
kjörnir, Sturla Böðvarsson, Stykkis-
hólmi, Hannes Valdimarsson,
Reykjavík, Guðmundur Sigur-
björnsson, Akureyri, Þorvaldur Jó-
hannsson Seyðisfirði og Hermann
Skúlason, ísafírði.
■ IIÚSMÆÐRA FÉLA G Reykja-
víkur heldur sinn árlega basar nk.
sunnudag, 3. nóvember, á Hall-
veigarstöðum við Túngötu. Að
venju er mikið úrval af allskonar
handavinnu s.s. sokkum, vettling-
um, peysum, húfum, prjónuðum
dýrum, jólatrésdúkkum, jólapóst-
pokum, jólasvuntum, jóladúkum,
pijónuðum og ísaumuðum dúkum,
púðum, o.fl. o.fl., að ógleymdum
lukkupokunum fyrir börnin. En í
þeim er að fínna ýmislegt smálegt
sem gleður unga fólkið. Þessi jóla-
basar Húsmæðrafélagsins er kjör-
inn vettvangur til þess að nálgast
góðar og vel gerðar jólagjafír á
sérlega lágu verði. Og enn sem
endranær er öllu verði mjög í hóf
stillt, segir í fréttatilkynningu frá
stjórn Húsmæðrafélagsins. Allur
ágóði af sölu basarmuna fer til líkn-
armála. Basarinn hefst kl. 14.00.
I ALÞJÓÐLEGI Dansdagurinn
verður sunnudaginn 3. nóvember
og ætla starfsfólk og nemendur
Dagnýjar Bjarkar danskennara
að halda daginn hátíðlegan. Hátíðin
fer fram að Smiðjuvegi 1 í Kópa-
vogi en þar er einnig starfandi lík-
amsrækt og verslun fyrir dansara.
Dagskrá dagsins verður sem hér
segir: Kl. 14.00. Danstími ætlaður
4-6 ára börnum. Kl. 15.00. Dans-
tími ætlaður öllu ungu fólki sem
æfír samkvæmisdans. Kl. 16.00.
Danstími í jazz, funki og hip hop.
Kl. 17.00. Danstími fullorðinna,
samkvæmis- og gömludansarnir.
■ Flugbjörgunarsveitin í
Reykjavík verður með sína árlegu
merkjasölu helgina 1.-3. nóvember.
Selt verður í helstu stórmörkuðum,
einnig ganga félagar sveitarinnar í
heimahús. Allt starf Flugbjörgunar-
sveitarinnar er unnið í sjálfboða-
vinnu og er merkjasalan ein helsta
tekjulindin.
■ HALDIÐ verður upp á 20 ára
afmæli Kirkjubæjarskóla á Síðu
laugardaginn 9. nóvember kl.
15.00. Þá er öllum boðið núverandi
og fyrrverandi nemendum, starfs-
fólki og öðrum aðstandendum skól-
ans boðið til kaffísamsætis. Meðal
annars munu afmælisárgangar
flytja ávörp og gestum boðið að
ganga um skólahúsnæðið og skoða
myndverk nemenda og myndasýn-
ingu úr starfi skólans sl. 20 ár. Þá
verður einnig opið Héraðsbókasafn.
■ HINN árlegi kirkjudagur Frí-
kirkjunnar í Hafnarfirði er á
morgun, sunnudag. Verður kvenfé-
lag kirkjunnar þá að venju með sína
vinsælu kaffísölu í Góðtemplara-
húsinu og hefst hún kl. 15.1 kirkj-
unni hefst dagurinn kl. 11 með
barnaguðsþjónustu. Almenn guðs-
þjónusta verður kl. 14. Umfjöllunar-
efni í guðsþjónustunni verður „Vin-
áttan” í tilefni þeirra daga í byijun
nóvember sem helgaðir eru vinátt-
unni. Þá munu nemendur úr Tón-
listarskóla Hafnarfjarðar flytja
tónlist. Það er von okkar að sem
flestir geti átt ánægjulega stund í
kirkjunni sinni á sunnudag og notið
góðra veitinga í Góðtemplarahús-
inu á eftir. Með þessum hætti get-
um við sannarlega lagt okkar af
mörkum í þágu vináttunnar um leið
og við eflum safnaðarstarfið, því
allur ágóði af kaffísölunni fer til
kirkjunnar.
Einar Eyjólfsson, Fríkirkju-
prestur.