Morgunblaðið - 02.11.1991, Page 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 2. NÓVEMBER 1991
UM HELGINA
Handknattleikur Laugardagur Bikarkeppni karla: Digranes HK - FH ...kl. 16.30
éeltjarnam. Gróttab-HKNb.... ...kl. 14.00
Vestm. ÍBVb-Fram kl. 14
2. deild karla: Seljask. Ögri - Völsungur ...kl. 14.00
Sunnudagur Evrópukeppni meistaraliða: kl. 17
1. deild kvenna: Höllin KR-Fram ...kl. 21.15
2. deild karla: Keflavík HKN - Völsungur ...kl. 14.00
Körfuknattleikur Laugardagur Pressuleikur: Kaplakriki Pressan-Landsliðið.. ...kl. 13.30
1. deild karla: Egilss. Höttur-Víkverji ...kl. 14.00
■—-sL deild kvenna: Grindavík UMFG-KR ...kl. 15.30
Seljaskóli ÍR-Haukar ...kl. 17.00
Sund
Unglingameistaramót Islands í sundi fer
fram í Sundhöll Reykjavíkur í dag, laugar-
dag, og sunnudag. Keppni hefst báða dag-
ana kl. 14.
Badminton
Jafnréttismót TBR í badminton verður
haldið í húsi TBR í dag og á morgun.
Keppni hefst kl. 14 í dag og kl. 10 á sunnu-
dag. Keppt verður í einliða-, tvíliða- og
tvenndarleik í meistaraflokki, A- og B-
flokki. Konur og karlar keppa í sömu flokk-
um.
Keila
Laugardagsmót KFR og Öskjuhlíðar
verður í kvöld kl. 20. Á morgun verður
mót KR og KFR kl. 12 og Reykjavíkurmót
unglinga hefst kl. 13. Mótin fara öll fram
' jri Óskjuhlíð.
ínémR
FOLK
■ GERALD 1 Vanenburg, hol-
lenski landsliðsmaðurinn í knatt-
ðpyrnu sem leikur með PSV, mun
líklega missa af leik Hollands og
Grikklands í Evrópukeppninni 4.
desember vegna hnémeiðsla. Hann
gekkst undir aðgerð í gær.
■ MICHAEL Chang frá Banda-
ríkjunum, sem hefur ekki átt mik-
illi velgengi að fagna á tennisvellin-
um frá því hann vann opna franska
meistaramótið 1989, sigraði Tékk-
ann Petr Korda, 7:5 og 6:1, í 4.
umferð á opna Parísarmótinu inn-
anhúss í gær. Chang sló Stefan
Edberg út úr keppninni í 3. umferð
og virðist til alls líklegur.
■ PETE Sampras frá Bandaríkj-
unum sigraði Alexander Volkov,
Sovétríkjunum, 6:2 og 6:3 í gær
2»og er kominn í undanúrslit. Sampr-
as, sem er 20 ára, sagði eftir leik-
inn að hann vonaðist til að komast
í bandaríska Davis Cup liðið eftir
þessa frammistöðu.
■ GUY Forget frá Frakkiandi
vann Omar Camporese frá Italíu
í þriggja lotu leik, 6:1, 3:6 og 6:3.
Forget mætir Svíanum Jonasi
Svensson í undanúrslitum, en Sví-
inn vann Karel Novacek frá
Tékkóslóvakíu 6:4 og 6:2, í gær.
I JEANNIE Longo frá Frakk-
landi, ein fremsta hjólreiðakona
heims, bætti í gær heimsmet sitt í
5 km hjólreiðum innanhúss í
Grenoble. Longo, sem átta sinnum
Jiefur unnið heimsmeistaratitil og á
umm heimsmet, hjólaði á 6.16.60
mínútum og bætti eldra metið frá
því 1986 um rúmar fimm sekúnd-
ur. Hún er 32 ára og stefnir nú að
vinna fyrsta Ólympíugullið í Bare-
elona á næsta ári.
IÞROTTAMANNVIRKI
Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs í Kópavogi:
Ekkerl bendir til þess að
íþróttahöllin verði byggð
GUNNAR Birgisson, oddviti
Sjálfstæðismanna og formaður
bæjarráðs í Kópavogi, segir að
eins og staðan er í dag bendi
ekkert til þess að fyrirhuguð
íþróttahöll — sem byggja átti
fyrir heimsmeistarakeppnina í
handknattleik 1995 — verði
byggð. Hann segir Kópavogs-
bæ ekki geta byggt húsið án
þess að hlutur ríkisins verði
meiri en þær 300 milljónir sem
samið var um á sínum tíma,
segir ríkið greinilega alltaf hafa
verið á móti byggingunni, og
vegna fyrri reynslu af sam-
skiptum við rikið í samningum
af þessu tagi geti bæjarfélagið
ekkitreyst ríkinu.
Gunnar telur forsögu málsins
ekki hafa komist nógu vel að
í þeirri umræðu sem verið hefur
um byggingu hallarinnar undanfar-
ið. „Bygging íþróttahallar í Kópa-
vogi var opinberuð í febrúar árið
1990, þremur mánuðum fyrir kosn-
ingar, og varð því að kosninga-
máli.” Þegar menn hafi farið kafa
ofan í málið hafi komið í ljós að
byggingarkostnaður var áætiaður
654 milljónir, en hefði aukist þar
sem í ljós kom að ekki var pláss
fyrir nógu marga áhorfendur. Og
enn hefði kostnaður aukist við að
breyta húsinu í skólahúsnæði eftir
keppnina. Að sögn Gunnars hefði
kostnaður í heild því orðið tæpur
milljarður á þáverandi verðlagi; tólf
til þrettán hundruð milljónir á nú-
virði. „Sjálfstæðismönnum í Kópa-
vogi þótti þetta ekki góður samn-
ingur og alla kosningabaráttuna
lýstum við því yfir að við viidum
byggja húsið en endurskoða samn-
inginn, af því að við teldum hann
ekki nægilega góðan.”
Kosningabomba
Gunnar segir að hægt hefði verið
að ná meiri peningum frá ríkisvald-
inu þegar samningurinn var gerður
á sínum tíma, en „þáverandi meiri-
hluti í Kópavogi sótti það svo fast
að fá húsið að það skipti engu
máli. Þetta átti að verða kosninga-
mál, og varð það. Átti að verða til
að tryggja þeim sigur í kosningun-
um. En það dugði þeim ekki, þeir
töpuðu kosningunum og nýr meiri-
hluti Sjálfstæðismanna og Fram-
sóknarmanna tók við. Og það sem
stendur upp úr í þessu máli er að
kosningabomban, sem átti að
tryggja fyrrverandi meirihluta sig-
ur, var allt of dýr. Það kom í ljós
þegar reykurinn var farinn af svið-
inu og menn fóru að skoða þetta.”
Gunnar segir að tvær verkfræði-
stofur hafí verið látnar skoða mál-
ið, eftir að nýi meirihlutinn tók við
völdum í bænum. „Þá kom í Ijós
að þessi upphaflega hugmynd —
Ji '■
Þiálfaranámskeið
KSÍ
Fræðslunefnd KSÍ heldur A-stigs þjálfaranám-
skeið 8.-10. nóvember og B-stigs þjálfaranám-
skeið 22.-24. nóvember nk. í fundarsal ÍSÍ í
Laugardal. Skráning er hafin á skrifstofu KSÍ,
sími 91-814444. Þátttökugjald kr. 7.500.
GÓÐ ÞJÁLFUN - BETRI KNATTSPYRNA
Fræóslunefnd KSÍ
sem var teiknuð á hálfum mánuði
og þannig fengin að íþróttahúsið í
Kaplakrika [hús FH í Hafnarfirði]
var tekið og stækkað — rúmaði
ekki 7.000 áhorfendur,” en það var
ein af kröfum alþjóða handknatt-
leikssambandsins (IHF). Hann segir
fleiru hafa verið ábótavant, kröfum
IHF um öryggissvæði og fleira hafí
ekki verið fullnægt, þannig að þeg-
ar kostnaðurinn við íþróttahúsið var
reiknaður aftur hafí hann verið
kominn upp í 760 milljónir. Fram-
reiknað séu það 890 til 900 milljón-
ir. Gunnar sagði að þegar þessar
tölur lágu fyrir hafi verið farið í
að leita annarra lausna og hætt við
þá hugmynd að hafa skóla inni í
byggingunni eftir keppnina. Víða
hafí verið leitað fanga, bæði í
Bandaríkjunum og á meginlandi
Evrópu, „og eftir það höfðum við
val upp á all marga möguleika.
Byggingarkostnaðurinn á þeim
möguleikum er í dag einhvers stað-
ar frá 650 til 800 milljónir, sem er
100 til 200 milljónum lægra en
gert var ráð fyrir í upphafi.”
Gunnar segir að núverandi meiri-
hluti hafí alltaf lagt dæmið þannig
upp að hlutur Kópavogs ætti að
vera sá sem það mundi kosta að
byggja venjulegt íþróttahús, „sem
við munum byggja þarna hvort sem
er, en allt sem fer þar fram úr
ætti ríkið að borga. En ríkið er
ekki tilbúið í það og ráðherrar hafa
mótmælt því að greiða meira en
300 milljónir. Okkar kostnaður
gæti því orðið á bilinu 400-600
milljónir.” Þetta segir Gunnar að
Kópavogsbær ráði ekki við, en
„minnihlutinn aftur á móti hefur
haldið því fram að það hafí verið
hið besta mál að fá þessar 300
milljónir, og 354 milljónir að láni,
eins og þessir peningar væru bara
komnir inn í bæinn og búið að
byggja húsið og þyrfti aldrei að
borga þá til baka. En þegar við
sáum í hvað stefndi þá sáum við
að við gætum ekki sólundað skattfé
borgaranna svona.”
Ríkisstjórnin missti áhugann
Gunnar segir að strax eftir síð-
ustu sveitarstjórnarkosningar þeg-
ar kominn var nýr meirihiuti í Kópa-
voginn, hafí þáverandi ríkisstjórn
snarlega misst áhuga á málinu.
„Við fórum í marggang til forsætis-
ráðherra, sem er framsóknarmaður,
og marg ítrekuðum það hvort við
fengum ekki peninga á þessu ári.
Við vorum harðir á því að fara að
hefja framkvæmdir, vildum vera
tilbúnir. Út úr þessum viðtölum kom
það að ráðherrarnir misstu snarlega
áhugann og við fórum að heyra það
úr röðum Alþýðubandalagsins að
Svavar Gestsson ætlaði sér að
byggja ráðstefnu og fyrirlestrar-
miðstöð í Reykjavík og ekkert að
gera í Kópavogi. Tilgangurinn var
því augljós — þetta var eingöngu
notað sem kosningamál. Síðan fór-
um við að krefja þá um meira en
það komu engin svör.
Á fjárlögum fyrir 1991 var svo
gert ráð fyrir núll krónum í bygg-
ingu þessa húss; við komumst ekki
lengra með málið í þeirri ríkis-
stjóm. Það þýddi ekkert að ræða
það. Og þegar kom ný ríkisstjórn
þá hafði hún engu meiri áhuga,
ekki nokkum. Það var alveg ljóst
frá upphafi, eftir að borgarstjórinn
[Davíð Oddsson, núverandi forsæt-
isráðherra] var búinn að gefa yfir-
lýsingu um það að hann myndi
ekki byggja þetta hús fyrir einn
leik, og hann er enn á þeirri skoð-
un. Og kannski kristallast sú skoð-
un í gerð fjárlaga fyrir árið ’92 því
þá er einnig gert ráð fyrir núll krón-
Gunnar Birgisson
um. Ríkið hefur greinilega alltaf
verið á móti — alveg sama hvaða
litur er á ríkisstjóminni.”
Getum ekki treyst ríkinu
Hann segir að Kópavogsbær geti
ekki treyst ríkinu í þessu máli, og
nefnir nokkur dæmi af fyrri samn-
ingum við ríkið því til staðfesting-
ar: „Við eram með marga samn-
inga, fímm eða sex, allar götur frá
1983, undirskrifaða af fagráðherr-
um; ég nefni sem dæmi sundlaugina
í Kópavogi, mannvirki sem við emm
búnir að setja í 350 milljónir á nú-
virði. Hlutur ríkisins er yfir 100
milljónir en það hefur borgað
15.000 krónur. Við eram með heil-
sugæslustöð sem byggð var 1983
í miðbæ Kópavogs. Samið var um
þijár greiðslur, en ríkið hefur aðeins
greitt eina. Og við fáum enga vexti
af þeim peningum sem við eigum
inni. Það er ekki enn búið að gera
upp Digranes-húsið, og fleiri skóla-
byggingar i bænum. Það eru fag-
ráðherrar sem skrifa undir þetta
allt saman, þannig að við förum
ekki af stað með íþróttahúsið nema
að dæmið sé alveg tryggt. Við ger-
um ekkert með yfírlýsingar ráð-
herra. Það hefur verið mikill hávaði
í minnihlutanum út af þessu máli;
minnihlutinn vill bara fá höllina, en
vegna fyrri reynslu viljum við ekki
fara í gang með þetta.
Þegar við tókum við bæjarfélag-
inu var skuldastaðan slík að það
þoldi ekkert svona og mikið var af
öðrum verkefnum sem beið, svo sem
endurbygging gamalla gatna, lista-
safn og sundlaug svo eitthvað sé
nefnt, fyrir utan að við voruin að
byggja gervigrasvöll fyrir Breiða-
blik og mikið var af mannvirkjum
sem vora hálfkláruð, en við eram
nú að klára og taka í notkun. Þann-
ig að fjárútlát bæjarfélagsins upp
á 4-600 milljónir eða þaðan af
meira kom náttúrlega aldrei til
greina. Við höfum verið í viðræðum
við samninganefnd ríkisins og fag-
ráðherrar hafa gefíð það út að þeir
muni ekki greiða meira en þessar
300 milljónir og við erum komnir
að lokapunkti þeirra samninga. Og
ef svo fer sem horfir munum við
ekki hefja byggingu þessarar
íþróttahallar að óbreyttu. Þá er það
ríkisins að rifta samningnum eða
menn geri það með samkomulegi.
Áhættan er Kópavogs
Þannig að eins og staðan er í dag
bendir ekkert til þess að höllin verði
byggð?
„Ekki eins og staðan er í dag,
nei. Og kannski er það mjög var-
hugarvert fyrir ísland, og sérstak-
lega þá Kópavog, miðað við það
hvernig efnahagsástandið er í dag
Það er dökkt framundan og alls
staðar er verið að skera niður. Rík-
ið er að skera niður og því spyr ég:
Fáum við peninga í þetta? Nei. Og
við Kópavogsmenn ætlum okkur
ekki að halda heimsmeistarakeppn-
ina. Ríkið hefur ekki áhuga á þessu,
og ég segi að eins og staðan er í
dag hefur ísland ekkert að gera
með þetta. Og það má nefna annað
dæmi: Framlag ríkisins er fast. Við
eram með alla áhættuna. Ef við
föram fram úr verður Kópavogur
að taka það á sig. I Lillehammer í
Noregi þar sem vetrarólympíuleik-
arnir verða 1994, var kostnaðará-
ætlun vegna leikanna upp á 1,8
milljarð norskra króna en kostnaður
er nú kominn yfír 8 milljarða og
þeir era ekki ennþá búnir. Svíarnir
sem halda heimsmeistaramótið í
handbolta 1993 og eiga fyrir stóra
íþróttahöllina í Stokkhólmi, eru í
miklum vandamálum vegna þess
að þeir sjá fram á verulegan halla
af keppninni.”
Og Gunnar spyr vegna fyrirhug-
aðrar heimsmeistarakeppni hér á
landi 1995: „Er réttlætanlegt að
landið greiði allt í kringum keppn-
ina sem þarf að borga. Hvað kostar
þetta? Liggur það fyrir? Það hefur
ekki verið gerð nein áætlun. Jón
Hjaltalín [Magnússon, formaður
HSÍ] hefur verið að flauta á okkur.
Ég get sagt að Jón Hjaltalín er að
mörgu leyti vel gerður maður en
það er eitt sem hann á ekki að
leggja í vana sinn; hann á ekki að
stunda fjármálaráðgjöf, hvorki fyrir
Kópavogsbæ né aðra. Hann hefur
gert áætlun þar sem hann gerir
meðal annars ráð fyrir svo og svo
miklum auglýsingatekjum. En það
segir í samningi milli Kópavogs og
HSÍ að það eigi eftir að semja um
það. Aðal auglýsingatekjurnar eiga
að vera af spjöldum í höllinni, það
er samkomulag milli þeirra sem
byggja húsið og HSÍ, og hans áætl-
unir eru því út í loftið. Og eins og
þetta stendur í dag horfir þetta
þannig að við munum ekki fara í
að byggja.
Svo er það náttúrlega með ólík-
indum að HSÍ, sem er með skuldir
upp á einhveija tugi milljóna, hafi
lýst því yfir að hluti þeirra skulda
sé til kominn vegna aðgerðarleysis
Kópavogsbæjar. Kópavogsbær blés
ekki til þessarar heimsmeistara-
keppni, þannig að allur sá kostnað-
ur sem HSÍ hafur lagt í vegna
keppninnar er okkur alveg óvið-
komandi.”
Gunnar segir alltaf hafa staðið
til að bjóða byggingu hússins út í
al-verktöku, en það leysi ekki mál-
ið. Þó það sé gert geti bæjarfélagið
alltaf fengið á sig aukakröfur. „En
það eru lausnir til í málinu. Það er
verið að byggja stórt flugskýli á
Keflavíkurflugvelli og má halda
keppnina þar með kannski ekki
miklum tilkostnaði.”
SKOTFIMI
Carl meistari
Carl J. Eiríksson, sem nú keppir
fyrir Aftureldingu, varð Is-
landsmeistari í riffílskotfími um síð-
ustu helgi. Hann hlaut 588 stig.
Mótið fór fram í Baldurhaga og
hafði Carl nokkra yfirburði, var 8
stigum á undan Auðunni Snorrasyni.
Gylfi Ægisson varð þriðji með 571
stig og Gunnar Bjarnason í fjórða
sæti með 567 stig. En keppendur
voru aðeins fjórir og voru þeir allir
frá Skotfélagi Kópavogs nema Carl.