Morgunblaðið - 28.11.1991, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
9
Góð ávöxtun í október Raunávöxtun fyrir október var sem hér segir:
Kjarabréf. .8,2%
Markbréf. 8,6% .
Tekjubréf. .8,1%
Skyndibréf. .6,4%
<22? X < > X c- 5
VERÐBRÉFAMARKAÐUR FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF >
HAFNARSTRÆTI, S. (91) 28566 - KRINGLUNNI, (91) 689700 - AKUREYRI, S. (96)11100
256 Grátóna myndlesari
fyrir IBM samhæfðar tölvur
39.900,-
Umboósmenn um land allt.
MTÆKNIVAL
Skeifan 17-128 Reykjavik - Sími 91-681665 - Fax 91-680664
I skugga „fortíðarvandans": frá ráðherraskiptum í fjár-
málaráðuneytinu 1991.
Yfirdrætti breytt íer-
lendar skuldir!
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhags-
stofnunar, sagði í viðtali við Morgunblað-
ið síðastliðinn laugardag, að takmarka
yrði yfirdrátt ríkissjóðs í Seðlabankanum,
það eð hann væri „upphafið að erlendri
lántöku”. Sex og hálfs milljarðs yfirdrátt-
ur ríkissjóðs hjá bankanum í lok nóvem-
ber á næstliðnu ári var „færður niður að
núlli um síðustu áramót með erlendri
lántöku”. Staksteinar staldra við forystu-
grein Alþýðublaðsins í gær, sem skrifuð
er utan um þetta Morgunblaðsviðtal.
11.000 m.kr.
yfirdráttur
Alþýðublaðið segir i
forystugrein:
„Um síðustu mánaða-
inót var yfirdráttur ríkis-
sjóðs hjá Scðlabankanum
rúmlega 11 milljarðar
króna. I fréttum hefur
komið fram, að það sem
af er þessum mánuði hef-
ur upphæðin sveiflast
nokkuð upp og niður en
til jafnaðar ekki farið
neðar en nemur um-
ræddum 11 milljörðum.
Vaxtagreiðslur ríkissjóðs
vegna þessa yfirdráttar
nema nú rúmlega miRj-
arði ki'óna á árinu. For-
ráðamenn Seðlabankans
hafa lýst því yfir, að þess-
um mikla yfirdrætti
verði seimilega mætt
með erlendum lántökum.
Yfirdrátturinn endur-
speglar uppsafnaðan
vanda ríkissjóðs frá því
fyrir áramót en gefur
ennfremur mynd af halla
ríkissjóðs í dag. Staða
ríkissjóð á aðalreikningi
Seðlabankans um síðustu
áramót var 8 milljörðum
verri en hún var á sama
tima í fyrra. Um mánaða-
mótin október/nóvember
á síðast ári nam yfir-
drátturinn rúmlega 3
milljörðum króna en fór
síðan í 6,5 milljarða i lok
nóvember. Yfirdráttur-
iim var færður niður að
núlli um síðustu áramót
með erlendri lántöku.
Ríkissjóður hefur heim-
ild í aukafjái'lögum til að
taka erlend lán til að
koma yfirdrættinum nið-
ur um þessi áramót”
Forsenda stöð-
ugleika í verð-
lags-oggeng-
ismálum
Síðan segir Alþýðu-
blaðið:
„Þórður Friðjónsson,
forsljóri Þjóðhagsstofn-
unar, segir í viðtali við
Morgunblaðið sl. laugar-
dag, að mikilvægt sé að
aðgangur ríkissjóð að
lánsfé í Seðlabakanum
verði takmarkaður, þar
sem yfirdráttur ríkis-
sjóðs sé upphafið að er-
lendri lántöku. Þórður
segir í viðtali við blaðið,
að þetta beri að gera með
því að afneina í áföngum
aðgang ríkissjóðs að
sjálfvirkri. Iántöku eða
yfirdrætti lyá bankanuin.
Orðrétt segir Þórður í
viðtalinu: „Ein af mikil-
vægustu forsendum stöð-
ugleika í verðlags- og
gengismálum er aðhalds-
söm stefna í ríkisfjármál-
um og hófsemi varðandi
erlendar lántökur sem
ríkissjóður stendur á bak
við. Það er afar mikil-
vægt að verulega sé
dregið úr halla ríkissjóðs
á næstunni til að veija
þau markmið sem menn
vilja stefna að."
Alþýðublaðið tekur
undir orð forstjóra Þjóð-
hagsstofnunar. Eitt mik-
ilvægasta markmið nú-
verandi ríkisstjórnar er
að koma böndum á sjálf-
virkni í ríkisútgjöldum
og leggja grunn að betra
og heilbrigðara atvinnu-
lífi, svo hagvöxtur megi
aukast í landinu.”
Pólitísk spill-
ing eða heil-
brigður
rammi um at-
vinnulífið
Enn segir Alþýðublað-
ið:
„Þetta tvennt gerir
ríkisstjórnin bezt með því
að sýna fullt aðhald í rík-
isútgjöldum, svo sem
með meiri hagræðingu i
ríkisrekstri og sölu ríkis-
fyrirtækja en einnig með
því að skapa atvinnulif-
inu sem bezt rekstarskil-
yrði. Ríkisstjórn Daviðs
Oddssonar hefur þegai-
skorið upp lierör gegn
sjóðakerfinu með aðhaldi
á Byggðastofnun og nið-
urlagningu Fram-
kvæmdasjóðs. Þetta em
rétt skref. En ríkisstjóra-
in á mikið tímamótaverk
fyrir höndum: Að losa
undirstöðuatvinnugrein-
amar úr klóm ríkisvalds-
ins, minnka í áföngum
ríkisstyrki og hið póli-
tíska og glórulausa
lánsfé úr ríkisbönkunum
og leggja þaimig drög
að heilbrigðri samkeppni
og efla eigin ábyrgð fyr-
irtækja. Kvótakerfið,
sem komið er út á glæp-
samlegar liliðarbrautir,
þarf að stokka upp og
innleiða sölu á veiðiheim-
ildum eða annað viðlíka
kerfi sem gerir allri út-
gerð jafnhátt undir höfði
í stað þess að hampa
sægreifum. Kjami
markmiða núverandi rík-
isstjómar Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks
er að eyða pólitískri spill-
ingu i atvinnugreinum,
stokka þjóðlífið upp á
nýtt og gera leikreglum-
ar jafnar og saimgjamar.
Til þess þarf sterka for-
ystu, því engir sérhags-
munahópar eða forrétt-
indaklíkur munu afsala
sér forskoti sínu á aðra.
Og til þess þarf ríkis-
stjórnin einnig kjark að
takast á við sjálfa sig:
Byija á sjálfri sér, eins
og yfirdráttur ríkissjóðs
hjá Seðlabankanum sýnir
óg samiar að full þörf er
á.”
Þannig keinst Alþýðu-
blaðið, málgagu Alþýðu-
flokksins, sem stóð bæði
að síðustu og núverandi
ríkisstjóm, að orði i for-
ystugrein í gær.
Dogný Leifsdóttir
viðskiþtofræðingur
HVER VILL EKKI
20% RAU NÁVÖXTU N ?
• ■■:
Elvar Guðjónsson
viðskifitafræðingur
Hafsteinn G. Einarsson
viðskiptafræðingur
Ef þú kaupir hlutabréf fyrir u.þ.b.
100.000* kr. átt þú möguleika á því
að lækka tekjuskattinn hjá þér um
u.þ.b. 40.000* kr. Ef miðað er við að
hvorki sé greiddur út arður né að
raunhækkun verði á hlutabréfum yfir
tveggja ára tímabil þýðir skattafslátt-
urinn einn og sér rúmlega 20%
raunávöxtun.
Leitaðu til ráðgjafa okkar í hluta-
bréfum í síma 689080.
*ofangreindar tölur tvöfaldast ef um hjón er að ræða
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki
Kringlunni 5, stmi 689080