Morgunblaðið - 28.11.1991, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
25
Það er mjög einstaklingsbundið
hve mönnum hættir til að verða
fíknir. Sumir eru nær alveg lausir
við þá tilhneigingu en aðrir hafa
hana í ríkum mæli og eru þá oft
fíknir í margt. Slíkir einstaklingar
eru oftast fíknir í áfengi en einnig
ýmiss konar ólögleg efni. Þeir mis-
nota jafnframt ýmis lyf, sérstaklega
þau sem virka á huga og líðan.
Þeir misnota m.a. kvíðastillandi lyf
og svefnlyf. Áfengi er þó það efni
sem flestir eru haldnir fíkn í og
flestir misnota.
Kvíðastillandi lyf
eru nauðsynleg
Kvíðastillandi lyf eru ekki ávana-
lyf eða fíknilyf og þau eru sjaldan
misnotuð. Þau hafa enga sérstöðu
hvað varðar ávana. Þau eru nauð-
synleg til að draga úr sjúkdómsein-
kennum margra sjúkdóma, sérstak-
lega kvíðasjúksóma.
Siðferðileg rangindi
Orsakir kvíðasjúkdóma eru
margþættar, líkamlegar og sálræn-
ar. Það á einnig við um fjölda ann-
arra sjúkdóma. Kvíðasjúkdómar eru
erfiðir og oft Iangvarandi. Þeir
valda alltaf verulegri vanlíðan og
oft alvarlegri fötlun. Að þessu leyti
eru þeir i engu frábrugðnir öðrum
sjúkdómum, t.d. hjartasjúkdómum
eða gigtsjúkdómum. Það er siðferði-
lega rangt að láta þá sem þjást af
kvíðasjúkdómum bera meiri kostn-
að af nauðsynlegri lyfjameðferð en
þá, sem líða af öðrum sjúkdómum.
Höfundur er yfirlæknir á geðdeild
Landspítalans.
■ FJÖL VA ÚTGÁFAN hefur
gefið út kristilega barna- og ungl-
ingabók, sem hún kallar Sköpun
heimsins - Undrasýn. Þetta er
svokölluð hreyfimyndabók. I kynn-
ingu Fjölva segir m.a.: „Fylgt er
réttilega í bókinni sköpunarsögu
hinnar helgu ritningar en með einni
hreyfingu gerbreytist myndin sem
fylgir og sýnir þannig kraftaverkið.
Þannig er jörðin auð og tóm, en allt
í einu klæðist Iandið jurtum og
grænum grösum. Eins situr Adam
einmanna innan um dýrin, en eins
og við kraftaverk stendur Eva for-
móðir okkar allra allt í einu hjá
honum.” Textinn er tekinn úr Bibl-
íunni, Þorsteinn Thorarensen rit-
stýrði. Michaela Reiner mynd-
skreytti. Bókin getur kallast 14 bls.
en hver þeirra er innihaldsríkari en
venjulegar blaðsíður. Bókin er
framleidd í Hong Kong og Kína.
Fjölvaútgáfan gefur líka út barna-
bókina Tinna litla er þæg og góð.
Bókin er samin og unnin í Peking,
höfuðborg Kína. Hún er eins konar
ávöxtur þíðunnar sem varð í þessu
fjölmennasta ríki veraldar fýrir
nokkrum árum, en þá komu fram
fijálslyndir höfundar eins og He
Yanrong, höfundur þessarar bókar,
og var reynt að afla henni markaða
á Vesturlöndum. Tinna er lítil og
snotur telpa sem fer í leikskóla og
er sýnt í gegnum alla bókina hvað
hún er kurteis og hjálpsöm og hirðu-
söm og gæti hún þannig orðið fyrir-
mynd allra barna. Bókin er 24 bls.
með fjölda litmynda. Þosteinn
Thorarensen þýddi en hún er
framleidd í Peking.
• •
I Teppalandi
færöu teppið
sem þú leitar aö
• Yfir 3300 gerðir af teppum sem ýmist eru til á
lager eða við sérpöntum.
• Mörg teppanna eru hönnuð af frægum
listamönnum
- sjón er sögu ríkari.
Þú sérpantar og í flestum tilfellum er teppið
komið á gólfið hjá þér eftir þrjár til fjórar vikur.
• Það sagði enginn að það væri auðvelt að
velja rétta teppið en það er auðvelt að velja
réttu búðina.
• •
Teppaland
- landið þar sem leitin endar.
Grensásvegi 13, sími 813577