Morgunblaðið - 28.11.1991, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NOVEMBER 1991
35
Eining og Félag verslunar- og skrifstofufólks:
Tvö stærstu verkalýðsfélögin afla
sér heimildar til verkfallsboðunar
TVÖ af stærstu verkalýðsfélögunum í Eyjafirði hafa boðað til funda
þar sem fyrirhugað er að afla heimilda til stjórna og trúnaðarmannar-
áða til verkfallsboðana. Þetta eru verkalýðsfélögin Eining og Félag
verslunar- og skrifstofufólks. Forsvarsmönnum félaganna þykir hægt
miða við gerð kjarasamninga og segja óþolinmæði farið að gæta á
meðal félagsmanna. Rúmlega 5.000 manns eru félagsmenn í þessum
tveimur verkalýðsfélögum.
Björn Snæbjörnsson varaformað-
ur Einingar sagði að haldnir yrðu
fundir í öllum deildum félagsins á
næstu dögum þar sem staða samn-
ingamála yrði kynnt auk þess sem
á dagskrá væri að afla heimildar til
verkfallsboðunar.
Fyrsti félagsfundur Einingar
verður í kvöld, fimmtudagskvöld, í
Hrísey, en eftir helgi verða haldnir
fundir á Grenivík á mánudagskvöld,
2. desember, þá á Dalvík á þriðju-
dagskvöld, á Akureyri á miðviku-
dagskvöld og loks í Ólafsfirði á
fímmtudagskvöld að viku liðinni.
„Vlð höfum ekki áður boðað til
svo margra funda af þessu tilefni,
en ástæða þess að við gerum það
nú er að við vilja fá fleira fólk á
fundina, heyra sjónarmið þess og fá
fleiri til þátttöku,” sagði Björn. „Það
er sérstaklega nauðsynlegt fyrir
okkur núna, að heyra hvað fólki
fínnst um stöðuna.”
Hann sagði að mönnum fyndist
hægt miða í viðræðum um sérkjara-
samninga, nauðsynlegt væri að fara
að taka á málum og spurning hversu
langan tíma ætti að gefa áður en
til aðgerða kæmi. „Þó svo að við
séum að afla heimildar til verkfalls-
boðunar, þá munum við að sjáfsögðu
ekki grípa til þess að boða verkfall
meðal okkar félagsmanna nema að
vel athuguðu máli,” sagði Björn.
Fundur hefur verið boðaður í
Félagi verslunar- og skrifstofufólks
á Akureyri í kvöld, fimmtudagskvöld
VIKING Brugg hefur hafið fram-
leiðslu á Löwenbrau Premium, en
það er áttunda bjórtegundin sem
framleidd er hjá fyrirtækinu. For-
ráðamenn verskmiðjunnar segja
það mikla viðurkenningu að Löw-
enbrau í Þýskalandi skuli veita
fyrirtækinu leyfi til að framleiða
þennan bjór, en hann er flaggskip-
ið í framleiðslu þeirra í Miinchen.
Undirbúningur vegna framleiðslu
á Löwevbrau Premium hefur staðið
yfir frá því í maí síðastliðnum og
hefur fyrirtækið fjárfest í nýjum
tækjabúnaði til að gera framleiðsluna
mögulega. Magnús Þorsteinsson,
framkvæmdastjóri Viking Brugg,
sagði að fjárfestingar næmu um 25
milljónum króna í heild, en nauðsyn-
legt hefði verið að kaupa þessi tæki
til að unnt væri að framleiða um-
ræddan bjór. í kjölfarið væri bjór-
verksmiðjan orðin ein sú fullkomn-
asta á landinu.
þar sem leitað verður eftir heimild
til stjórnar og fulltrúaráðs til verk-
fallsboðunar. Jóna Steinbergsdóttir
formaður félagsins sagði að mikillar
óþolinmæði væri farið að gæta hjá
félagsmönnum, fólki fyndist afar
hægt miða við gerð kjarasamninga,
en nú væri liðið á þriðja mánuðu frá
því samningar voru lausir.
„Okkar fólki fínnst það hafa farið
afar illa út úr þjóðarsáttinni og það
Hjá Viking Brugg starfar háskóla-
menntaður þýskur bruggmeistari
með víðtæka reynslu í bjórgerð, auk
þess sem þar starfa matvælafræð-
ingar menntaðir á sviði efna- og ör-
veirufræði. Þjálfað starfsfólk, gott
hráefni, nútímatækni og síðast en
er óánægt, enda ekki skrýtið þegar
kaupmáttur hefur að meðaltali auk-
ist um 2,8%, en hvað afgreiðslukon-
ur varðar hefur hann lækkað í kring-
um 2%,” sagði Jóna. „Þetta fólk er
með mjög lélega samninga og finnst
það hafa setið eftir, aðrir hópar hafa
ýmist bónus, premíu eða einhvern
kaupauka að viðbættu taxtakaupi,
en afgreiðslukonur sitja eftir með
beinharðan taxta.”
ekki síst hið hreina íslenska vatn
gerði fyrirtækinu kleift að framleiða
bjór í hæsta gæðaflokki, að sögn
Magnúsar.
Löwenbrau Premium er 5% sterk-
ur og mun hann koma á markaðinn
innan skamms.
Á leið
í langferð
Þessum myndarlegu kindum
hafði greinilega verið vel fyrir
komið í bifreið og líklegt þótti
að þær væru á leið í langt ferða-
lag. Hvert nákvæmlega förinni
var heitið er ekki vitað, en gets-
pökum mun eflaust detta-slát-
urhús í hug. Jón Oddgeir Guð-
mundsson á Akureyri tók þessa
mynd á flugvellinum í Reykja-
hlíð í Mývatnssveit fyrir
nokkru.
Lokasýning' á
O, Carmela
0, Carmela verður sýnd á vegum
Kvikmyndaklúbbs Akureyrar í
Borgarbíói í dag, fimmtudag, kl.
18.30. Þetta er lokasýning á
myndinni.
Leikstjóri myndarinnar er Carlos
Saura, en spænska leikkonan,
Carmen Maura, er hjartað og sálin
í myndinni. Hún leikur titilpersónu
myndarinnar, söng- og leikkonu,
sem ferðast um og skemmtir lýð-
veldissinnum ásamt Paolino og
málleysingja sem þau hafa hirt upp
af þjóðveginum.
(Úr fréttatilkynningu)
Viking Brugg:
Framleiðsla hafin á nýrri tegund bjórs
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Löwenbrau Premium er áttunda bjórtegundin sem Viking Brugg á
Akureyri framleiðir. Af þessu tilefni var haldin sérstök kynning á
bjórnum á veitingastaðnum Fiðlaranum í gær.
ísland og Evrópubandalagið:
Breytt viðhorf
Breytt viðhorf í viðræðunum
um Evrópskt efnahagssvæði
voru rædd utan dagskrár í gær.
Stjórnarandstaðan telur að Jón
Baldvin llannibalsson utanríkis-
ráðherra hafði kynnt ófrá-
gengna hluti sem niðurstöður og
óttast að fleiri dæmi eigi eftir
að koma fram.
Það var Steingrímur J. Sigfús-
son (Ab-Ne) sem fór fram á þessa
umræðu. Tilefnið var þau tíðindi
að Evrópubandalagið muni ekki
fallast á tilboð íslendinga í viðræð-
um um gagnkvæmar veiðiheimildir.
I hlut Islendinga eiga að falla
30.000 tonn af loðnu. En á móti
skal bandalagið fá 3.000 tonn af
karfaígildum. Bandalagið hafnar
því að veiðiheimildir þess skuli
verða að 70% til veiða á langhala
og 30% á karfa. Efnahagsbandalag-
ið vill fá að veiða karfa upp í allan
kvótann.
Steingrímur J. Sigfússon greindi
frá því að samstarfsnefnd atvinnu-
rekenda í sjávarútvegi hefði sent
frá sér fréttatilkynningu, þar kæmi
m.a. fram að samtökin féllu frá
stuðningi við samninga um Evr-
ópskt efnahagssvæði þangað til all-
ar upplýsingar lægu fyrir í rituðu
máli.
Steingrímur sagði að hlutirnir
sem gengið hefði verið útfrá sem
gefnum hefðu reynst með öðrum
hætti heldur en látið hefði verið í
veðri vaka. Hann óttaðist að þess
mætti vænta að svo kynni einnig
að reynast í fleiri hlutum. Hann
innti eftir því hvort nýjustu tíðindi
breyttu afstöðu ríkisstjórnarinnar.
Einnig vildi hann hann fá að vita
hvers vegna utanríkisráðherrann
hefði ekki greint utanríkismála-
Ummæli Davíðs Oddssonar í
fjölmiðlum síðastliðinn þriðjudag
voru m.a. á þá leið að slæmt væri
að menn féllu í þá freistni að ræða
þyrlukaup og slá sig þar með til ridd-
ara í skugga þeirra hörmungarat-
burða er urðu við Hópsnes. Aðspurð-
ur sagði forsætisráðherra að þar
væri t.a.m. átt við Inga Björn Al-
bertsson (S-Rv) og margt af því sem
hann hefði sagt hefði verið afspyrnu
smekklaust og ekki viðeigandi.
í upphafi 35. fundar Alþingis í
gær kvaddi Ingi Björn Albertsson
(S-Rv) sér hljóðs um þingsköp og
greindi frá „þeim leiða atburði að
Davíð Oddsson forsætisráðherra
hefði viðhaft „ósmekkleg, ódrengileg
og óviðeigandi” ummæli í sjónvarps-
og útvarpsstöðvum. Þar hefði for-
sætisráðherrann vegið að æru nok-
kurra þingmanna, og sérstaklega að
hans. Undir þessu gæti hann ekki
setið.
Ingi Björn sagðist hafa farið fram
nefnd frá þessu reiptogi sem hefði
verið háð um nokkurt skeið.
Jón Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra vísaði því að bug
að hann hefði gefið villandi upplýs-
á utandagskrárumræðu um þessi
ummæli. Salome Þorkelsdóttir, for-
seti Alþingis, hafði samband við for-
sætisráðherra sem taldi ekki vera
efni til umræðu utan dagskrár. Ingi
Björn vísaði til þingskapalaga þar
sem ekki er neitt kveðið á um
ákvörðunarvald ráðherra um slíka
umræðu. Þingmaðurinn sótti það
fast að fá þessi ummæli og önnur
atriði sem fram hefðu komið í máli
forsætisráðherra rædd. Var hann
studdur í þessu af nokkrum öðrum
þingmönnum í kröftugri umræðu
undir liðnum þingsköp. Salome Þor-
kelsdóttir þingforseti leysti að lokum
þennan vanda, með því að fresta
fundi stundarkorn og nýtti þann
tíma til viðræðna við málsaðila. Varð
það að ráði að Ingi Björn skyldi
mæla fyrir máli sínu síðar um dag-
inn.
í máli sínu lagði Ingi Björn Al-
bertsson (S-Rv) áherslu á að hann
hefði allar götur síðan 1987 unnið
ingar. Viðhorf reáðherrans koma
nanar fram í viðtali á miðopnu
blaðsins í dag.
Halldór Ásgrímsson (F- Al) lét
í ljós áhyggjur um að fleiri þræðir
kynnu að rakna. Óttaðist hann að
næstu fréttir yrðu þær að ekki lægi
fyrir nein niðurstaða varðandi salts-
íldarflökin. Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra sagði hafa
verið ljóst að samningsaðilar hefðu
nokkuð gagnstæðar óskir og það
væri eðlilegt að gera út um þau
atriði í samningum og til þess myndi
nokkurt tóm gefast. Nánar er rætt
við ráðherra um málið í miðopnu í
að því að fullkomin björgunarþyrla
yrði keypt. Hann rakti ummæli sem
forsætisráðherra lét falla í viðtali
við fjölmiðla og óskaði eftir því að
ráðherra gerði grein fyrir þeim.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að honum hefði þótt og þætti
enn að framkoma þingmannsins í
umræðunum sem fram fóru síðastl-
iðinn mánudag hefði verið þing-
manninum til vansa. Ingi Björn
Albertsson (S-Rv) sagði ummæli
forsætisráðherra dæma sig sjálf.
Þessu næst vildi þingmaðurinn
bénda á að í umræðum á mánudegin-
um hefði fagráðherrann, Þorsteinn
Pálsson, sagt að stefnan í þyrlukaup-
amálinu væri að fylgja eftir starfi
þyrlunefndar. En forsætisráðherr-
ann hefði verið með aðra stefnu í
viðtali á Stöð 2. Talið þyrlukost
Landhelgisgæslunnar og varnarliðs-
ins nægjanlegan. Að hugsanlega
mæti breyta herþyrlunum til þess
að þær uppfylltu skilyrði Landhelgis-
gæslunnar. Og í þriðja lagi hefði
forsætisráðherrann sagt að það
mætti skoða hvort ekki mætti fresta
þyrlukaupum. Þetta væri allgjörlega
blaðinu í dag.
Eyjólfur Konráð Jónsson
(S-Rv) fagnaði þessari bráðnauð-
synlegu umræðu. Hann lagði
áherslu á það sem hann hefði reynd-
ar fyrr bent á. í tilkynningunni frá
samstarfsnefnd atvinnurekenda í
sjávarútvegi segði m.a. að: „í ljós
hefur komið að eitt mikilvægasta
atriði sem lagt var til grundvallar,
þ.e. skipti á veiðiheimildum, er nú
túlkað með ítrustu hagsmuni Evr-
ópubandalagsins í huga.” Og það
væri ljóst að langt væri í land að
við fengjum allar upplýsingar til að
taka ákvarðanir.
á skjön við það sem dómsmálaráð-
herra hefði sagt. Ingi Björn kvaðst
bera virðingu og fyllsta traust til;
dómsmálaráðherrans.
Guðrún Helgadóttir (Ab-Rv)
vakti athygli á því að það hefði ekki
verið Ingi Björn Albertsson sem
hefði farið fram á utandagskrárum-
ræðuna um þyrlukaupamálið, heldur
hún, og það hefði hún gert af hjart-
ans einlægni. Guðrún spurði hvort
hún hefði þar með verið þinginu til
vansa. Steingrímur Hermannsson
(F-Rn) taldi ómaklega vegið að Inga
Birni og þinginu. Hann hefði ekkert
það heyrt í utandagsskrárumræðum
mánudagsins sem hefði verið ósæmi-
legt.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
ítrekaði að ummæli Þorsteins Páls-
sonar dómsmálarráðherra væru
stefna ríkisstjórnarinnar. Ingi Bjöm
Albertsson segðist bera fullt traust
til dómsmálaráðherra. Það gerði
hann líka. En þingmaðurinn hefði í
umræðunum síðastliðinn mánudag
fordæmt málflutning dómsmálaráð-
herrans; þess manns sem hann segð-
ist nú treysta.
Eftirmáli umræðna um þyrlukaup:
Stj órnarþing'maður telur að sér vegið
Ingi Björn Albertsson (S-Rv) telur að Davíð Oddsson forsætisráð-
herra hafi vegið að æru hans í viðtölum í fjölmiðlum. í gær voru
ummæli forsætisráðherrans rædd utan dagskrár.