Morgunblaðið - 28.11.1991, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER M91
^39
VINNUVERND
Áhrif hreyf-
ingarleysis
Má bjóða yður að standa á fætur?
eftir Lárus Jón
Guðmundsson
„Til sængur er mál að ganga,
sæt verður hvíldin eftir vegferð
stranga,” orti Örn Arnarson og
eru það orð að
sönnu. Skáldið
hefur þó vafa-
lítið haft árris-
ulan lesanda í
huga, sem
tekst á við
amstur dagsins
frískur og
ferskur eftir
næturhvíld.
Þessi grein
ljallar hinsvegar um þá sem hvíla
sig of mikið og of lengi og of
oft. Hvaða áhrif skyldi langvar-
andi hreyfmgarleysi hafa á líkam-
ann?
Fölur og fár
Með langvarandi hreyfingar-
leysi er átt við rúmlegu svo vikum
skiptir eins og gjarnan vill verða
þegar lagst er á spítala eða þegar
öldungur leggst í rúmið á elliheim-
ili. Þeir heilbrigðu sem eru fram
úr hófí værukærir og eru gefnir
fyrir að „liggja á meltunni” ættu
þó að lesa þessa grein af athygli.
Til þess eru vítin að varast þau.
Ein afleiðing hreyfíngarleysis
er minnkað þol. Súrefnisupptaka
blóðsins verður minni og hjarta-
vöðvinn slappast. Viðkomandi ein-
staklingur mæðist fyrr og hefur
minna úthald til að sinna störfum
sem hann sinnti áreynslulaust
áður. Hann þreytist fyrr og er lík-
legri til að gera fleiri mistök ef
starfið sem hann sinnir er þess
eðlis, t.d. ef um er að ræða ná-
kvæmnisvinnu.
Slappur hjartavöðvi leiðir til
þess að hjartað þarf að erfíða
meira til að skila sömu afköstum
og áður. Starf hjartans er að
dæla súrefnismettuðu blóði til
vefja líkamans. Hjartavöðvinn
dregst taktfast saman og því
sterkari sem hann er því betur
nær hann að tæma hjartahólfin
sem hann umlykur. Vefir líkam-
ans (hjartað meðtalið) vilja sitt
súrefni og engar refjar og ef súr-
efnismettun er minnkuð þá fer
minna súrefni til vefjanna í hveij-
um hjartslætti. Hjartað þarf því
að slá fleiri slög til að skila sama
súrefnismagni á tiltekinni tíma-
einingu (venjulega miðað við mín-
útu). i stuttu máli, hjartslátt-
ur/minútu í hvíld verður hraðari.
Blóðmagn í líkamanum minnk-
ar, maður verður „blóðlaus” og
fölur. Blóðið þykknar og rennur
hægar og tregar. Þetta er meðal
annars skýringin á ökklakreppum
og -réttum sem legusjúklingar á
spítölum eru látnir gera daginn
út og inn. Þykkra blóð getur auk-
ið líkur á blóðtappa og þeir eru
ekki eftirsóknarverðir.
Slappir vöðvar, stífir liðir
Áhrif langvarandi hreyfinga-
leysis eru augljósust þegar horft
er á vöðva líkamans. Þeir sem
hafa verið svo óheppnir að bijóta
útlim, t.d. lærbein og voru í gifs-
umbúðum í nokkra mánuði hafa
væntanlega orðið fyrir áfalli þegar
umbúðirnar voru fjarlægðar. Lær-
vöðvar brotna lærbeinsins höfðu
rýrnað umtalsvert. Langvarandi
hreyfingarleysi hefur rýrandi
áhrif á alla vöðva líkamans og
eins og það sé ekki nóg þá vilja
þeir gjarnan styttast, liðamót
stirðna og viðkomandi einstakl-
ingur á almennt erfiðara með að
hreyfa sig.
Svonefnd bláæðapumpa í fót-
leggjum starfar verr sem aftur
eykur hættu á blóðtappa því blóð-
ið rennur hægar um bláæðarnar.
Við samdrátt fótavöðva (sbr. ök-
klakreppurnar og eins þegar mað-
ur t.d. gengur) þá klemmast blá-
æðar, sem liggja um vöðvana,
saman og blóðið þrýstist áfram
upp fyrir næstu æðaloku. Ef vöðv-
arnir dragast ekki saman þá er
ekkert sem ýtir blóðinu áfram
nema þrýstingurinn í æðakerfinu
og stundum dugir hann ekki til.
Bilað púst
Lungun þenjast mest þegar
maður drengur andann uppréttur.
í legu þá er hætta á að smæstu
loftgöngin falli saman og öndun-
arrýmdin verður minni. Öndunin
verður grynnri. Það hefur svo í
för með sér að hver andardráttur
skilar minna súrefni til blóðsins
sem streymir um lungun. Öndunin
verður hraðari. Lungun hreinsa
sig ver (þau eru sjálfhreinsandi
eins og sumar tegundir bakara-
ofna ...) og það slím sem mynd-
ast losnar síður. Ef slímið er of
lengi ofan í lungunum fer að „slá
í’ða” og viðkomandi einstaklingur
getur fengið sýkingu og lungna-
bólgu. Lungnabólga ku vera eitt
algengasta dánarmein á íslandi
og því skulum við anda djúpt oft
á dag og helst alltaf. Það lengir
lífið.
Þeir sem liggja lengi verða
sumir afskaplega pirraðir og hafa
allt á hornum sér. Þeim líður illa
og langvarandi vanlíðan gerir
engum gott. Einhveijirgætu lagst
í þunglyndi og til fróðleiks má
geta þess að sjúkraþjálfarar nota
markvissa þoiþjálfun og hreyfingú
til að draga úr einkennum þung-
lyndis og geðlægðar.
Hreyfing er vinnuvernd
Áhrif langvarandi hreyfingar-
leysis er slæm, þol minnkar, súr-
efnisupptaka minnkar og hjartað
slappast. Blóðið þykknar og vöðv-
ar týrna, liðir stirðna og öndur-
rýmd minnkar. Við verðum geðst-
irð og streit,t. Það er því mikil-
vægt að vera sem hreyfanlegast-
ur, láta það ekki eftir sér að lúra
lon og don, t.d. yfír stórhátíðir
eins og jól og páska. Góð göngu-
ferð fyrir svefninn, sundsprettur
að morgni eða létt skokk eftir
vinnu getur breytt mikiu og gert
okkur hæfari til að mæta daglegu
amstri með bros út í bæði. Okkur
líður betur í starfi og leik og höf-
um meiri orku afgangs til að gera
það sem er skemmtilegast í lífinu.
Höfundur ersjúkraþjálfarí og
starfarað vinnuvernd.
Jólastarfa-
miðlun
stúdenta
JÓLASTARFAMIÐLUN hefur
tekið til starfa á skrifstofu stúd-
entaráðs Háskóla íslands. Próf
fara fram í háskólanum í fyrsta
sinn fyrir jól og almennu prófa-
tímabili lýkur um 20. desember.
Margir stúdenta hafa því tæki-
færi til að auka ráðstöfunartekjur
sínar með vinnu því skólinn byijar
aftur á bilinu 7.-15. janúar, segir í
fréttatilkynningu frá stúdentaráði.
Þar segir að með þessari þjónustu
vilji skrifstofa stúdentaráðs koma
til móts við þá stúdenta sem tre-
ysta sér til að vinna í jólafríinu.
Fjöldi starfskrafta sé þegar kominn
á skrá með margs konar reynslu
og menntun.
Laugav*gi 45 - s. 21 255
í kvöld:
Tónleikar
IN
mmim
Sigurvegararnir í
músíktilraunum '91
Föstudagskvöld:
Hörku dansleikur
SÍÐÁN
SNEIN
SÚL...
Ekki klikka ó því
aó mæta
Lárus Jón Guð-
mundsson
rAdac/gí ysingar
TIL SÖLU
Tölvubúnaður til sölu
Orkustofnun vill selja notað VAX-11/750
tölvukerfi frá DEC, að hluta eða í heild. Þar
á meðal eru skjáir af ýmsum gerðum, skjá-
tengi, diskar og kælikerfi.
Verð og greiðslukjör eru eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um kerfið gefur Einar
Kjartansson í síma 696000 milli kl. 9 og 16.
HÚSNÆÐIÓSKAST
Selfoss
Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Suðurlandi
leitar eftir kaupum á hentugu húsnæði fyrir
vistheimili barna á Selfossi.
Um er að ræða einbýlishús á einni hæð,
160-200 m2 að stærð að meðtalinni
bílgeymslu.
Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, bygg-
ingarár og -efni, herbergjafjölda, brunabóta-
og fasteignamat, afhendingartíma og sölu-
verð, sendist eignadeild fjármálaráðuneytis-
ins, Arnarhvoli, 150 Reykjavík, fyrir 10. des-
ember 1991. .........
Fjarmalaraouneytio,
26. nóvember 1991.
I mmmmmmmtmmmmmmmmmmmmmmmmm .•mmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mm
Garðyrkjustöð
Til sölu er garðyrkjustöð í nágrenni Reykjavík-
ur. Stöðin er 2250 fm í góðu ásigkomulagi.
Vökvakerfi og áburðarblandari er í húsunum,
og lýsingarlampar fyrir uppeldi á grænmeti.
Brunabótamat stöðvarinnar er um kr.
26.000.000,-.
Þeir, sem áhuga hafa á kaupum á stöðinni,
vinsamlegast leggi inn nafn og síma til aug-
lýsingadeildar Mbl. fyrir 6. desember nk.
merktan: „Garðyrkja - 45”.
Einbýlishúsalóðir
Til sölu og afhendingar strax stórar einbýlis-
húsalóðir á besta stað í Setbergshlíð í Hafn-
arfirði. Frábært útsýni. Einstaklega hagstætt
verð og greiðsluskilmálar.
SH VERKTAKAR
Stapahrauni 4, Hafnarfirði, sími 652221.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 5= 1731128872 = E.T.
2 - SK.
St.St.599111287VII
Skipholti 50b, 2. hæð.
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega velkomn-
ir.
Hvítasunnukirkjan
Völvufelli 11
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Ræðumaður: Kristinn P.
Birgisson.
Allir hjartanlega velkomnir.
Jólafundur
Húsmæðrafélags Reykjavíkur
verður haldinn í Domus Medica
við Egilsgötu fimmtudaginn
5. desember kl. 20.00. Dagskrá-
in er fjölbreytt að vanda: Fluttur
verðurskemmtiþáttur. Danssýn-
ing. Glæsilegt jólahappdrætti.
Flutt verður jólahugvekja. Kaffi-
hlaðborð. Allir velkomnir meðan
húsrúm leyfir. Ágóði rennur til
liknarmála.
-----, /
KFUM
V
AD KFUM
Fundur í kvöld kl. 20.30 á Holta-
vegi. „Á ferðalagi með sirkus".
Willy Petersen segir þá sögu i
máli og myndum. Hugleiðing:
Gunnar J. Gunnarsson. Kaffi eft-
ir fund. Allir velkomnir.
I.O.O.F. 11 = 17311288V2 =
E.T.2.
Hjálpræðisherinn
Almenn samkoma i kvöld kl.
20.30. Majór Liv Astrid Krötö
talar. Verið velkomin.
VEGURINN
V Kristið samfélag
Gúttó, Hafnarfirði
Opin samkoma verður haldin í
Gúttó, Suðurgötu 7 i kvöld kl.
20.30. Lofgjörð, predikun orös-
ins, fyrirbænir. Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Vegurinn.
Samkoma verður i kapellunni í
Hlaðgerðarkoti i kvöld kl. 20.30.
Umsjón Gunnbjörg Óladóttir.
Samhjálp.
■C