Morgunblaðið - 28.11.1991, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1991
,, Auéi/ttaé b(jé~ég þcrátaé
/4 évö tátingahús viltci -/aiG?"
Ást er..
I2.-IB
... lifandi í glæðunum.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
© 1991 Los Angeles Times Syndtcate
Með
morgunkaffínu
V :
l■Ó-A >&:
w n Já, en mamraa, allir strákarn-
Ég vona að þú sért syndur, *r * bekknum eru búnir að fá
drengur minn. s®r svona!
HÖGNI HREKKVÍSI
„ 'OffMl ÞertTA VAft þéft ÚKT, HÖGNlf"
ÞJÓÐARSJÁLFSVÍG
Magnús Þorsteinsson bóndi
skrifar:
Þegar þjóð er útrýmt með því
að allir einstaklingar hennar eru
drepnir er það kallað þjóðarmorð.
Aftur á móti er það þjóðarsjálfsvíg
þegar þjóð útrýmir sér sjálf með
því að blandast svo mikið fólki af
óskyldum kynstofnum að flest
ættareinkenni hennar og menning
þurrkast út, en ættareinkenni og
menning aðkomufólksins ná yfír-
höndinni.
Margar glæsiþjóðir fyrri tíma,
flestar af kynstofni aría, hafa tor-
tímt sér á þennan hátt. Eitt dæmi
um það eru forn-Grikkir. Þeir voru
næstum hreinir aríar, hávaxnir,
ljóshærðir og bláeygðir langhöfðar
og eru þeir taldir hafa verið ein
gáfaðasta og glæsilegasta þjóð
sem hefur verið uppi, en eftir að
þeir höfðu blandast svo mikið
óskyldum þjóðum að ættarein-
kenni þeirra þurrkuðust út hnign-
aði þeim og menning þeirra leið
undir lok.
Önnur þjóð sem þannig leið
undir lok varu Tokkarar. Um þá
er minna vitað en forn-Grikki en
sennilega hafa þeir ekki síður ver-
ið merkileg þjóð. Tokkar voru ar-
ísk þjóð sem bjó í Turkestan og
voru til fram undir Krists burð.
Telja sumir að þeir hafi lagt drög
að kínverskri og egypskri menn-
ingu. Getið er um það í ævagöml-
um kínverskum ritum að þeir sem
sáu þessa bjarthærðu, hávöxnu
menn hafí bókstaflega fallið í stafi
yfír fegurð þeirra. Núna eru flest-
ar norrænar þjóðir á leiðinni til
sjálfsvígs með takmarkalausum
innflutningi fólks frá löndum
þriðja heimsins. Alls staðar er
þetta farið að valda alvarlegum
vandræðum og vilja allir losna við
það, en það er hægara sagt en
gert, áskóknin í að komast til
Vestiirlanda er óstöðvandi og
fólksfjölgunin ógnvekjandi meðal
þessara þjóða, til dæmis fjölgar
íbúum Bangladesh jafnmikið á
mánuði og allir íslendingar eru
margir.
Ef við göngum í EES með sam-
eiginlegum atvinnu- og búseturétti
er eins víst og tvisvar sinnum tveir
eru fjórir að þetta fólk muni þyrp-
ast hingað í þúsundatali og þá er
útrýming íslendinga yfírvofandi.
Jón Baldvin segir stjórnvöld geti
stöðvað flutning útlendinga inn í
landið ef þeim þyki of mikið af
þeim flykkjast inn í landið. En
hvenær stöðva stjórnvöld þann
innflutning? Eða gera þau það
nokkurn tíma eða þá ekki fyrr en
um seinan. Þegar þetta fólk er
komið inn í landið er ekki nokkur
leið að losna við það aftur.
Undanfarin ár hafa ættleiðingar-
börn frá löndum þriðja heimsins
verið flutt inn í hundraðatali á ári
og konur frá Tælandi og Filipps-
eyjum einnig í hundraðatali á ári
og ekki hafa stjórnvöld bannað
þennan innflutning sem augljós-
lega stofnar þó þjóðerni okkar í
stór hættu. Til marks um það hvað
steinblindir menn virðast vera á
þá hættu sem hér hefur verið lýst
má geta þess að í allri umræðu
um EES-samninga hefur ekki einn
einasti minnst einu orði á þessa
hættu. Meira að segja var talað
um það sem jákvæðan hlut að álíka
margir íslendingar mundu flytjast
úr landi og útlendingar inn í land-
ið og mundi það verða mest
menntamenn sem flyttu úr landi.
Þetta viðhorf lýsir fádæma
skammsýni og áhygaleysi fyrir
velferð þjóðarinnar. En það' er
augljóst mál hvað slæm skipti það
eru að missa úrval manna úr landi
en fá í staðinn ómenntað fólk
ættað frá Suður-Evrópu, Asíu og
Afríku. _
Við íslendingar eigum mikinn
auð í atgervi einstaklinganna. Það
er alveg stórkostlegt að jafn fá-
menn þjóð skuli geta keppt við
milljóna þjóðir á flestum sviðum,
og miðað við fólksfjökla stöndum
við flestum þjóðum framar og í
Ameríku hafa íslendingar getið
sér svo gott orð að þar þykir heið-
ur að því að vera íslendingur.
Hvers vegna eigum við ekki að
varðveita þennan auð með því að
koma á löggjöf um verndun ís-
lensk þjóðarstofns, en í þeirri lögg-
jöf þarf að felast bann við innflutn-
ingi fólks frá löndum þriðja heims-
ins, ekki síst ættleiðingarbarna og
kvenna frá Tælandi og Filippseyj-
um. Flestir stjórnmálamenn eru
miklir þjóðemissinnar þegar þeir
halda hátíðaræður og tala þá fag-
urlega um ágæti íslensku þjóðar-
innar. Þeir ættu að sýna þessa
miklu þjóðemisást í verki með því
að koma slíkri löggjöf á og forða
með því þjóðinni frá þjóðarsjálfs-
vígi.
Það er góður mælikvarði á
manngildi þjóða hvernig orð þær
fá í Ameríku, en þar hefur fólk
af norður-evrópsku þjóðemi getið
sér bestan orðstír, en svertingjar,
Mexíkanar og Suður-Evrópubúar
eru illa séðir. Þjóðir af norrænu
kyni hafa í krafti dugnaðar og
sköpunargáfu hrundið af stað nær
öllum framföram sem orðið hafa
á jörðinni til okkar daga. Væri það
óbætanlegur skaði fyrir mannkyn-
ið ef þessi kynstofn hyrfí af sjónar-
sviðinu. Ef svo færi má búast við
svipuðu ástandi alls staðar á jörð-
inni og það er núna í þeim löndum
sem ekkert norrænt kyn er í. Þar
er offjölgun, örbirgð, ómenning
og ógnarstjórn.
Skrifið eða hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 10 og 12,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa. Með-
al efnis, sem vel er þegið, eru
ábendingar og orðaskiptingar,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja öllu efni til þáttar-
ins, þó að höfundur óski nafn-
leyndar. Ekki verða birt nafnlaus
bréf sem eru gagnrýni, ádeilur
eða árásir á nafngreint fólk.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér í
dálkunum.
Víkveiji skrifar
Eftirfarandi bréf hefur borizt:
Ágæti Víkveiji.
í pistli þínum fimmtudaginn 21.
nóvember minntist þú á „að
íþróttafréttamönnum Sjónvarps
hafi tekist illa upp við val á leikjum
sem sýndir hafa verið beint frá
ensku knattspyrnunni í vetur”. Þá
er ennfremur sagt að hending sé
ef að skemmtilegur leikur komi á
skjáinn, enda ekki furða þar sem
Arsenal virðist vera í sérstöku
uppáhaldi.
Þar sem Víkveiji hefur góðan
skilning á íþróttum jafnt sem fjöl-
miðlum ætti hann að átta sig á
því að einstakir íþróttafréttamenn
RUV hafa lítið með það að segja
hvaða leikir eru sýndir og hveijir
ekki. Fjölmargar sjónvarpsstöðvar
sýna beint frá ensku knattspyrn-
unni (eins og þeirri ítölsku) og eru
sjónarmiðin mörg. Við höfum reynt
að samræma sjónarmið Norður-
landanna, sem byggjast fyrst og
fremst á því, að fá bestu liðin á
skjáinn. Að auki hafa sumar
íþróttadeildirnar í þessum hópi
verið að eltast við þarlenda leik-
menn, sem að keppa með liðum í
ensku knattspyrnunni, s.s. Chelsea
og Aston Villa, en þar er ekki á
vísan að róa eins og við höfum
margoft fengið að reyna með
Nottingham Forest, Arsenal og
Tottenham. Við era ekki alltaf
sælir með niðurstöðuna og hef ég
t.a.m. skrifað fyrirtæki því í Eng-
landi, sem sér um sölu leikjanna
og mótmælt harðlega vali á ein-
stökum leikjum. Það bréf var einn-
ig sent til annarra ríkissjónvarps-
stöðva á Norðurlöndum.
Annað vandamál er að ITV vel-
ur 18 leiki þennan vetur og færir
yfír á sunnudaga til beinnar út-
sendingar. Einatt er þar um að
ræða sérlega áhugaverða leiki.
Auðvitað er það slæmt, en við því
er einfaldlega ekkert að segja.
Það er næsta víst að ummæli
þín um aðdáun íþróttafréttamanna
á Arsenal falla um sjálf sig.
íþróttamennirnir fjórir hjá RUV
halda með Leeds, Liverpool, Manc-
hester United og Arsenal. Það er
síðan allt annað mál að Arsenal
er oft í fyrsta vali sjóvarpsstöðv-
anna vegna þess að hér er um lið
Englandsmeistanna að ræða.
Hvað framhaldið varðar þá læt
ég fljóta með yfirlit yfír leiki á
næstunni. Næstkomandi laugar-
dag keppa Manchester United og
West Ham og síðan koll af kolli.
Ekki er annað sýnilegt en að Ey-
jólfur hressist í desember.
Með knattspymukveðju,
Ingólfur Hannesson,
deildarstjóri íþróttadeildar 1
RUV.
XXX
Víkveiji þakkar bréf Ingólfs,
sem er skýrt og skorinort
eins og hans var von og vísa. Á
yfirliti því sem fylgdi bréfi Ingólfs
má ráða, að næstu leikir eru
áhugaverðari en þeir sem sýndir
hafa verið til þessa og ber að fagna
því.
xxx
Smávegis úr annarri átt. Fréttir
bárust af því í haust að starf- ,
semi Listasaftis Siguijóns Ól-
afssonar væri í hættu vegna fjárs-
korts. Skera átti niður framlög til
safnsins á fjárlögum og ekki annað
sýnna en loka þyrfti safninu. Lista-
safn Siguijóns er stórmerk stofnun
sem hlúa ber að. Vonandi ber fjár-
veitingavaldið gæfu til að tryggja
áframhaldandi rekstur safnsins.