Morgunblaðið - 30.01.1992, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1992
George Bush Bandaríkjaforseta klappað lof í lófa við upphaf stefnu-
ræðu hans í fyrrakvöld. Að baki forsetanum eru Dan Quayle varafor-
seti (t.v.) og Thomas Foley, þingmaður demókrata.
Viðræður boðaðar
um örlög Procordia
Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins.
SÆNSKA ríkisstjórnin, sem á þriðjudaginn lagðist gegn samruna fyrir-
tækjanna Procordia og Volvo, ákvað í gær að boða forystumenn þeirra
til viðræðna um framtíð Procordia. Ríkið og Volvo eru bæði stórir
hluthafar í Procordia en innan þeirrar samsteypu er meðal annars að
finna lyfjafyrirtæki og umsvifamikil matvælaframleiðslufyrirtæki á
borð við Felix og Pripps.
Það sem ríkisstjórnin vill ræða við
þá P.G. Gyllenhámmar, 'stjórn'ar-
formann Volvo, og Sören Gyll, for-
stjóra Procordia, er hvernig standa
beri á kaupum á hlutum í Procordia.
Á sama tíma er í gangi umræða inn-
an Volvo um hvort fyrirtækið eigi
að auka samstarf sitt við franska
Renault-fyrirtækið og jafnvel flytja
alla bifreiðaframleiðslu sína til
Frakklands.
Carl Bildt forsætisráðherra hefur
hvatt Gyllenhammar til að leggja öll
spil á borðið þegar viðræðurnar um
framtíð Procordia heíjast eftir nokkr-
ar vikur. Gyllenhammar sjálfur er
staddur á fundi í Washington þessa
stundina og vill ekki tjá sig frakar
um málið eins og stendur.
Bush Bandaríkjaforseti kynnir fjárlagafrumvarp sitt:
Utgjöld til vamarmála
lækka um 50 milljarða
dollara á fimm árum
Ekkert lát á raunum Bills Clintons og fjölskyldu:
Kallaði Cuomo „mafíuforingja“ og
mógðaði unnendur sveitatónlistar
gefa út nýjar reglugerðir sem hindri
hagvöxt. Lagt er að alríkisstofnun-
um að hraða sem mest þær mega
útgjöldum sem stuðla að hagvexti.
Áf öðrum aðgerðum sem Bush
boðar má nefna að Bandaríkjastjórn
muni áfram reyna að fá afnumda
tolla og niðurgreiðslur sem koma
niður á bændum og verkafólki.
Stefnt er að bættu skólakerfi og
er lagt til að skólayfii-völdum verði
veitt aukið svigrúm til að ákveða
New York. Ileuter.
EKKERT lát virðist vera á raunum Bills Clintons, sem til skamms
tíma var talinn sigurstranglegastur þeirra demókrata er sóttust
eftir útnefningu sem forsetaframbjóðandi flokksins. Clinton hefur
síðustu daga átt í vök að verjast vegna staðhæfinga konu, að nafni
Gennifer Flowers, þess efnis að hún hafi staðið í tólf ára löngu
ástarsambandi við hann. Og nú bætist við að hann hefur fengið
Mario Cuomo, ríkissljóra í New York, og söngkonuna Tammy
Wynette upp á móti sér og þar með stóran hóp bandarískra kjós-
enda.
Flowers hefur gert opinberar
segulbandsupptökur af símtölum
sem hún og Clinton áttu saman
þar sem Clinton lætur m.a. þau
orð falla að Cuomo sé „árásar-
gjarn, illa innrættur andskoti“ sem
hagi sér eins og „mafíuforingi".
Cuomo, sem er demókrati líkt og
Clinton, varð að vonum æfur þegar
þetta kom fram í dagsljósið. „Ef
þú talar svona dags daglega um
Bandaríkjamenn af ítölskum upp-
runa, hvemig talar þú þá um
svertingja, hvemig talar þú um
gyðinga, hvemig talar þú um kon-
ur . . . ,“ spurði hann Clinton í
gegnum ljölmiðla.
Clinton sjálfur neitaði ekki að
hafa látið þessi ummæli falla en
sagði þau ekki hafa verið illa
meint. I fyrstu reyndi hann að biðj-
ast afsökunar með því að segja
að hann hefði átt við að Cuomo
væri „verðugur andstæðingur og
harður í horn að taka“ en það
gerði Cuomo bara enn æfari. Sagð-
ist ríkisstjóri New York ekki skilja
hvemig það gæti farið saman að
tengjast mafíunni og vera „verðug-
ur andstæðingur“ og bætti við að
tilraun Clintons til afsökunar væri
meira móðgandi en upphaflegu
ávirðingarnar.
Þegar leið á daginn rann hins
vegar reiðin af Cuomo og hann tók
afsökunarbeiðni Clintons loks til
greina.
En þar með var ekki raunum
Clintons lokið því á sama tíma og
honum hafði tekist að móðga alla
Bandaríkjamenn af ítölskum upp-
runa gekk eiginkona hans Hillary
fram af hinum ófáu unnendum
sveitatónlistar í Bandaríkjunum.
Washington. Reuter.
I RÆÐU sem George Bush Bandaríkjaforseti flutti í fyrrakvöld
boðaði hann 50 milljarða dala (2.900 milljarða ÍSK) niðurskurð á
útgjöldum til varnarmála á næstu fimm árum. Jafnframt boðaði
hann ýmsar aðgerðir til að glæða efnahagslífið, bæta skólakerfið
og lækka álögur á fjölskyldufólk. Næsta fjárlagaár hefst 1. október
og skorar Bush á Bandaríkjaþing að afgreiða fjárlagafrumvarpið
fyrir 20. mars.
Bush tilkynnti að hætt yrði fram-
léíðslu á torséðu sprengjuflugvél-
inni B-2 eftir að 20 slíkar hefðu
verið smíðaðar. Gert hafði verið ráð
fyrir að 75 flugvélar af þessari teg-
und vrðu 'smíðaðar. Þetta mun
spara 14,5 milljarða dala á fímm
árum. Frestað verður framleiðslu
lítílla langdrægra kjarnaflauga sem
mun spara einn milljarð dala á fimm
árum. Hætt verður framleiðslu
hýrra kjarnaödda í Trident lang-
drægar flaugar í kafbátum. Fréstað
verður gerð „sæljónsins", sem er
árásarkafbátur, og mun það spara
17,5 milljarða dala á fimm árum.
Jafnframt sagði Bush að ef Sovét-
ríkin myndu eyða öllum fjölodda
langdrægum kjarnaflaugum á ía.ndi
þá væru Bandaríkjamenn reiðubún-
ir til eftirfarandi niðurskurðár:
Eyða öllum MX-flaugum en þær
eru fimmtíu talsins. Þessi vopn eru
nýtískulegustu langdrægu kjarna-
flaugar Bandaríkjamarina á lahdi.
Fækkað yrði kjarnaoddum úr þrern-
ur í einn í Minuteman-3 flaugunum
sem eru 500 talsins. Ennfreinur
yrði fækkað um þriðjung kjarna-
oddum í kjarnaflaugum á hafi.
:' Samkvæmt frumvarpinu verða
útgjöld Bandaríkjanna til varnar-
mála 285,9 milljarðar daþa frá 1.
okt. 1992 til 1. okt 1993. Útgjöldin
eru áætluð 295,2 milljarðar dala á
yfirstandandi fjárlagaári.
Skattaívilnanir til
fjölskyldufólks
Aðgerðir þær sem Bush boðaði
í efnahagsmálum eru m.a.: Stærri
ráðuneytum og alríkisstofnunum er
bannað á næstu þremur mánuðum
eftir samþykkt frumvarpsins að
útgjöld. Hlúð verði að rannsóknum
og þróun nýrra atvinnugreina með
76 milljarða dala framlági og
skattaívilnunum. Skattafrádráttur
til barnafjölskyldna er hækkaður í
500 dali á barn. Skattur á fjár-
magnstekjur vegna sölu hlutabréfa
og annarra eigna er lækkaður úr
28% í 15,4%. Jafnframt fá þeir sem
kaupa húsnæði í fyrsta sinn 5.000
dala skattaafslátt.
Gert er ráð fyrir í fjárlagafrum-
varpi ríkisstjórnarinnar að ríkis-
sjóðshallinn á næsta fjárlagaári
verði 351,9 milljarðar dala en hann
verður að því er talið er 399,4 millj-
arðar dala á yfirstandandi fjárlaga-
ári. Heildarupphæð fjárlagafrum-
varpsins er 1.520 milljarðar dala.
Stefnuræða Bush gagnrýnd:
Megni vart að stöðva
efnahagskr eppuna
Washington. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti gerir sér von um að efnahagsráð-
stafanir sem hann boðaði í stefnuræðu sinni í fyrrinótt tryggi honum
endurkjör í forsetakosningunum í nóvember nk. en sérfræðingar í
efnahagsmálum sögðu í gær að ráðstafanirnar myndu vart duga til
þess að stöðva kreppuna. Hann muni þó altént geta álasað þinginu
eigi bati sér ekki stað. Segja stjórnmálaskýrendur innihald ræðu
Bush í hróplegu ósamræmi við það sem þjóðin hefði verið búin und-
ir að undanförnu.
Þijá mánuði hafði tekið að semja
tillögur Bush og þykja þær hófsam-
ar. Þungamiðjan í þeim eru tillögur
um skattalækkun sem þingið hefur
ítrekað hafnað, svo sem lækkun
skatta á fjármagnstekjur. „Ég fæ
ekki skilið hvers vegna reynt var
að skapa svo mikla eftirvæntingu,"
sagði Stephen Hess, stjórnmála-
skýrandi við Brookings rannsóknar-
stofnunina í Washington. „Þetta eru
aðallega gamlar lummur,“ sagði
hann um tillögur Bush.
David Mason, stjórnmálaskýr-
andi hjá Heritage-stofnuninni sem
kunn er fyrir pólitíska íhaldsssemi,
sagði að tillögurnar væru ótrúlega
veigalitlar. „Bush hefur haldið góð-
ar ræður í þijú ár en boðað vonda
stefnu. Það breyttist ekki að þessu
sinni,“ sagði hann.
„Ráðstafanir til þess að lækka
skatta miðstéttarfólks gætu hafa
orðið og hefðu átt að vera þungam-
iðja tillagna forsetans. í staðinn var
þeim bætt aftan við hinar tillögurn-
ar, svona eins og hann hefði fengið
bankþanka," sagði Stuart Eizen-
stat, fyrrum ráðgjafi Jimmy Carters
forseta í innanríkismálum.
Síðustu dagana fyrir stefnuræð-
una dreifðu aðstoðarmenn Bush
minnisblaði þar sem sagt var að
ræðan myndi marka þáttaskil á
forsetatíð hans. Til þess að aðstoða
við ræðuskrifin hafði verið kallað á
tvo menn sem höfðu lykilhlutverki
að gegna í kosningabaráttu hans
1988, Roger Ailes, sérfræðing í
kynningarmálum, og ræðuritarinn
Peggy Noonan.
Háttsettur repúblikani sem tók
þátt í kosningabaráttu Bush 1988
og óskaði nafnleyndar sagði eftir
stefnuræðuna að það hefði vantað
í hana allan innblástur, „þá örvun
sem ég held að þjóðin hafi beðið
eftir,“ sagði hann. „Ef Bush væri
í framboði til nemendaráðs þá held
ég að þessi ræða hefði ekki dugað
honum til að ná kosningu," bætti
hann við.
Stjórnmálaskýrendur voru sam-
mála að með því að setja þinginu
frest til að afgreiða frumvarpið
hefði Bush opnað fyrir þann mögu-
leika að skella skuldinni á þingið
yrði enginn efnahagsbati. Demó-
kratar hafa meirihluta í báðum
þingdeildum. Ymsir hagfræðingar
hafa spáð því að líklega hjarni efna-
hagslífið við með vorinu eða í sum-
ar af sjálfu sér og óháð sérstökum
aðgerðum, en verði sú ekki reyndin
hafi forsetinn tryggt sér undankom-
uleið í kosningabaráttunni. „Þingið
lætur sig tímatakmörkin engu
varða og því fær Bush ef til vill
tækifæri síðar meir til þess að beina
athyglinni frá því hvernig hann
heldur sjálfur á efnahagsmál-
unum,“ sagði Eizenstat.
Bill Clinton á kosningafundi. Á myndinni sést einnig eiginkona
hans Hillary.
Hillary studdi dyggilega við bakið
á bónda sínum þegar ásakanirnar
um meint framhjáhald hans komu
fram og sagði hún í einu viðtali
að hún væri ekki „einhver lítil
kona sem stæði við hlið eigin-
manns síns líkt og Tammy Wy-
nette“. Vísaði hún þar með til
frægasta lag söngkonunnar Wy-
nette sem ber heitið „Stand by
your man“ eða „Stattu við hlið
mannsins þíns“.
George Wynette, eiginmaður
Tammy, sagði hana hafa tryllst
eru hún heyrði þessi ummæli Hill-
ary og neitað að taka gilda afsök-
unarbeiðni sem kona stjórnmála-
mannsins bar fram í einkasamtali.
„Konan mín og aðdáendur hennar
voru mógðuð á opinberum vett-
vangi og þar á afsökunarbeiðnin
einnig að koma fram,“ sagði hann.