Morgunblaðið - 30.01.1992, Page 26

Morgunblaðið - 30.01.1992, Page 26
Ferðamálafélag Eyjafjarðar: Oskað eftir stnðningi Héraðsnefndar við upplýsingamiðstöð FERÐAMÁLAFÉLAG Eyjafjarðar sem stofnað var fyrir nokkru mun á næstunni eiga fund með fulltrúum ferðamálafélaga í Þingeyjarsýsl- um þar sem rætt verður um hugsanlega stofnun ferðamálasamtaka á Norðurlandi eystra. Megintilgangur Ferðamálafélags Eyjafjarðar er að beita sér fyrir eflingu ferðaþjónustu sem atvinnugreinar. Starfssvæði félagsins er Eyjafjarðarsýsla, Akureyri, Dalvík, Olafs- fjörður og Svalbarðsstrandarhreppur og Grýtubakkahreppur I Suður-Þingeyjarsýslu. Jón Gauti Jónsson, Akureyri, var kjörinn formaður félagsins, en aðrir í stjórn eru Hreiðar Hreiðarsson, Eyjafjarðarsveit, ritari, Stefán Kristjánsson, Grýtubakkahreppi, gjaldkeri og meðstjórnendur eru Sigurður Aðalsteinsson, Akureyri, og Júlíus Snorrason, Dalvík. Stofnfundur félagsins var vel sóttur og skráðu sig í félagið tæp- lega 60 manns, en hægt er að ger- s ast stofnfélagi til 1. mars næstkom- andi með því að skrá sig hjá ein- hveijum stjómarmanna. Jón Gauti sagði að fyrsta verk- efni hins nýstofnaða félags væri þegar farið af stað, en farið hefði verið fram á að Héraðsnefnd Eyja- fjarðar stofni þriggja manna starfs- hóp til að kanna á hvern hátt megi efla upplýsingamiðstöð fyrir ferða- menn á Ákureyri. Félagið teldi það mikið framfaramál fyrir Eyjafjarð- arsvæðið. „Þetta er ekki bara hagsmuna- mál fyrir þetta svæði heldur fyrir landið allt, því Akureyri er ein af fjórum innkomuleiðum erlendra ferðamanna til landsins," sagði Jón Gauti. Fleiri skipakomur til Akureyrar: Landaður afli jókst um rúm 11 þúsund tonn milli ára Tekjuaukningin nemur rúmum 10 milljónum króna LANDAÐUR afli á Akureyri jókst um rúm 11 þúsund tonn á síð- asta ári miðað við fyrra ár. Þá fjölgaði skipakomum til hafna á Akureyri nokkuð, en þetta gerði það að verkum að tekjur Hafnar- sjóðs urðu rúmum 10 milljónum króna meiri en áætlað hafði verið. Skipakomur á síðasta ári urðu 872, en voru 825 á árinu 1990. Nokkru fleiri fiskiskip komu til hafna hér á liðnu ári, eða 438 á móti 413 á árinu á undan. Komum vöruflutningaskipa fækkaði nokk- uð, en þær voru 311 á móti 327, en jafnmörg skemmtiferðaskip komu til Akureyrar árin 1990 og 1991, eða 18 talsins. Mikil aukning varð í komu feija, en feijur, eink- um Sæfari komu alls 100 sinnum til hafna á liðnu ári miðað við 47 árið á undan. Aftur á móti fækk- aði komum annarra skipa, s.s. varðskipa og rannsóknarskipa úr 20 í 5 á milli ára. Á liðnu ári var landað 17.029 tonnum af bolfiski á Akureyri, sem er nokkru minna en var á árinu á undan, þegar landað var 17.489 tonnum. Aukning varð hvað fryst- an fisk varðar, en árið 1990 var landað 6.890 tonnum á móti 9.827 tonnum í fyrra. Þá var einnig land- að meira af rækju, eða 2.910 tonn- um á móti 2.050 tonnum, en mestu munar um loðnuna. Á síðasta ári var landað 9.077 tonnum af loðnu á Akureyri á móti 1.272 tonnum árið 1990. Samtals var landað 38.843 tonnum á síðasta ári, en á árinu á undan var landað 27.701 tonni. „Þetta gerir það að verkum að tekjur okkar sem áætlaðar voru 66,3 milljónir króna á liðnu ári urðu 76,5 milljónir. Þessa tekju- aukningu má einkum þakkað því að frystum fiski er landað hér í auknum mæli og má segja að bæði Samheiji og Útgerðarfélag Akureyringar eigi þar hlut að máli. Togarar Samheija hafa land- að meira hér heima en áður og eins hefur bæst við nýtt frystiskip í flota ÚA,“ sagði Guðmundur Sigurbjörnsson hafnarstjóri. Kammerhljómsveit Akureyrar: Tvennir Yínartón- leikar í febrúar TVENNIR Vínartónleikar verða á vegum Kammerhljóinsveitar Akur- eyrar í febrúar, en slíkir tónleikar hafa hlotið góðar undirtektir og metaðsókn áheyrenda á Akureyri síðustu tvo vetur. mmmíM Morgunblaðið/Rúnar Þór Spáð í spilin Nokkuð fjölmennur hópur eldri borgara hittist reglulega í Húsi aldraðra á Akureyri til að spila og er þá ævinlega glatt á hjalla. Eldri borgurum stendur til boða fjölbreytt félagsstarf sem bæði fer fram í Húsi aldraðra og í þjónustumiðstöðinni við Víðilund, en á þessa staði sækir fólk gjarnan og á saman góða stund við ýmsa tómstundaiðju. Lítur hljómsveitin og stjórn henn- ar svo á að vinsældir Vínartónleik- anna endurspegli áhuga Norðlend- inga fyrir slíkum tónleikum sem árvissum þætti skemmtanalífsins. Því er í ráði að gefa fleirum kost á að njóta Vínartónlistar og halda tvenna tónleika, þá fyrri í félags- heimilinu Ýdölum laugardaginn 15. febrúar kl. 16 og þá síðari í Iþrótta- skemmunni á Akureyri sunnudag- inn 16. febrúar kl. 17. Hljómsveitin er skipuð 55 hljóð- færaleikurum og verður stjórnandi hennar eins og á síðasta vetri, Páll Pampichler Pálsson. Hann er löngu landsþekktur sem stjórnandi Sin- fóníuhljómsveitar íslands og Karla- kórs Reykjavíkur, auk þess að vera afkastamikið og eftirsótt tónskáld. Einsöngvarar á tónleikunum verða þau Sigríður Gröndal, sópran og Óskar Pétursson, tenór. Sigríður stundaði söngnám í Reykjavík og síðar í Hollandi um 9 ára skeið og hefur víða komið fram bæði hér heima og erlendis. Óskar er búsett- ur á Akureyri og söng m.a. með hljómsveitinni á Vínartónleikum síðasta vetur. Á tónleikunum verða fluttir eld- fjörugir Vínardansar auk léttra og sígildra laga úr óperettum eftir Strauss, Offenbach, Schneider, Zi- ehrer, Romberg, Zeller, Lehar og fleiri. Forsala aðgöngumiða hefst 10. febrúar í Bókabúð Jónasar á Akureyri. (Fréttatilkynning) ------» ♦ ♦------ Rætt um hlut- verk lögreglu við dauðsföll DANÍEL Snorrason lögreglufull- trúi heldur fyrirlestur á fundi Samtaka um sorg og sorgarvið- brögð í Safnaðarheimili Akur- eyrarkirkju í kvöld, fimmtudags- kvöld kl. 20.30. í fyrirlestri sínum mun Daníel ræða um hlutverk lögreglunnar þegar dauðsföll bera að höndum. Er öllum velkomið að sækja fundi og fyrirlestra sem samtökin standa fyrir, en starfsemi þeirra hefur ver- ið öflug allt frá því þau voru stofn- uð fyrir fáum árum. Viðamikið vinabæja- mót hald- ið í sumar VIÐAMIKIÐ vinabæjamót verður haldið á Akureyri í sumar, dagana 22. til 26. júní, og er áætlað að um 200 gestir frá norrænu vinabæjunum Randes í Danmörku, Alasundi í Noregi, Vasteras í Svíþjóð, Lathi í Finnlandi og Narssaq í Grænlandi sæki mótið. Meginviðfangsefni vinabæja- vikunnar, sem kölluð er „NOVU ’92“ er bókmenntir. Nú standa yfir ijóða- og smá- sagnasamkeppnir í hveijum vina- bæjanna fyrir sig og munu sigur- vegarar verða á meðal fulltrúa á vinabæjavikunni. Þátttakendur verða flestir á aldrinum 14 til 20 ára, nema í bókmenntahópn- um þar sem þeir verða 16 til 25 ára. Þeim sem þátt ætla að taka í samkeppninni er bent á að skila þarf inn ljóðum og smásögum fyrir 10. febrúar næstkomandi til skrifstofu menningarmála, Strandgötu 19B á Akureyri. Auk bókmenntahóps taka þátt í vinabæjavikunni leik- og tónlist- arhópur, myndlistarhópur og hestamennskuhópur. Þá munu einnig mæta til leiks fulltrúar frá norrænu félögunum og fulltrúar bæjarstjórna í vinabæjunum og verður sérdagskrá fyrir þá með umræðufundum, kynnisferðum og fleiru. í upphafi vikunnar og í tengsl- um við hana verður opnuð sýning í Minjasafninu á prentiðnaði fyrr og nú. Öll kvöld vikunnar verður eitthvað um að vera í miðbænum fyrir þátttakendur sem og alla unglinga í bænum. ----» ♦ ♦--- Listasmiðja hefur starf- semi í Hrísey LISTASMIÐJA er að hefja starf- semi sína í Hrísey eftir helgina og verða í boði ýmiss konar nám- skeið. Aðsókn er góð og þegar hefur fjöldi fólks skráð sig á námskeiðin. Jón Örn Bergsson er leiðbeinandi á námskeiðum Listasmiðjunnar, en hann útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla íslands á síðasta ári. Hann sagði í samtali við Morgun- blaðið, að m.a. yrði boðið upp á námskeið í teiknun, málun og mót- un ýmissa efna, grafík og ljós- myndun. „Viðbrögðin eru mjög góð, betri en ég átti von á,“ sagði Jón Örn. Verður fólki skipt niður í hópa og má segja að eitthvað verði um að vera í Listasmiðjunni á hveiju kvöldi; en auk námskeiðanna mun Jón Örn einnig kenna börnum í Barnaskóla Hríseyjar myndmennt. Það er að frumkvæði Hríseyjar- hrepps sem Listasmiðjunni er kom- ið á fót og óhætt að fullyrða að eyjabúar hafi tekið þessu náms- framboði á heimaslóðum fagnandi. „Þetta er Listasmiðja sem ætti að verða stærri með hveiju árinu, hún er ætluð íbúum eyjarinnar sem tómstundagaman og þá er nauð- synlegt fyrir hreppinn að eiga góð tæki,“ sagði Jón Örn, en smiðjan hefur aðstöðu í húskynnum skól- ans. I lok námskeiðanna er stefnt að því að efna til sýningar á verkum þátttakenda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.