Morgunblaðið - 30.01.1992, Page 27

Morgunblaðið - 30.01.1992, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1992 Fyrirtækið býður aukna þjónustu við innflytjendur FLUGFRAKT Flugleiða er um þessar mundir að flytja starf- semi sína á athafnasvæði Toll- vörugeymslunnar að Héðins- götu, Tollstjóraembættið er að setja upp útibú í húsi fyrirtækis- ins og Landsbanki Islands er að stækka við sig og auka þjón- ustuna á svæðinu. Þetta gerist nú um það leyti sem fyrirtækið á 30 ára afmæli. Að sögn Helga K. Hjálmssonar, framkvæmdastjóra, mun það nú heyra sögunni til að innflytjendur þurfí að elta pappíra bæjarhluta í milli, því að í framtíðinni munu þeir fá lausn allra sinna mála á athafnasvæði Tollvörugeymslunn- ar. Þá segir Helgi að Tollvöru- geymslan bíði nú eftir leyfisveit- ingu fyrir frísvæði frá ijármála- ráðuneytinu, en nú þegar hefur Reykjavíkurborg gefið’ heimild til frísvæðis á athafnasvæði Tollvöru- geymslunnar. Þegar slíkt leyfi er í höfn eykur það enn möguleika innflytjenda á svæðinu. HelztU nýjungar í þjónustu Toll- vörugeymslunnar við innflytjendur eru flutningur Flugfraktar á at- hafnasvæðið, ráðgjöf og aðstoð vegna samninga við erlenda aðila, stór, nýtískuleg og fullkomin hillu- hús, þar sem aðeins er greidd leiga fyrir það magn vöru sem er inni hveiju sinni, fullkomin tollstöð, beintenging við tölvubirgðabók- hald og ný tækifæri við tilkomu frísvæðis. Morgunblaðið/Frímann Ólafsson Lögreglustjóri ásamt yfirmönnum og lögreglumönnum í Grindavík. Fyrir framan talið f.v.: Sigurður M. Ágústsson aðst. yfirlögregluþjónn, Jon Eysteinsson lögreglustjóri og Þórir Maronsson yfirlögregluþjónn. Fyrir aftan talið f.v.: Ásgeir Eiríksson aðalfulltrúi, Ægir Agústsson varðstjóri, Karl Hermannsson aðst. yfirlögregluþjónn, Sigurður Berg- mann varðstjóri og Hjálmar Hallgrímsson lögregluþjónn. Grindavík: Bæjarfógeti og lög- regla í nýtt húsnæði Grindavík. NÝTT húsnæði undir starfsemi bæjarfógetans og lögregluna í Grinda- vík var formlega vígt í hófi sem var haldið í nýja húsnæðinu á Víkur- braut 25 nýlega. Jón Eysteinsson bæjarfógeti ávarpaði gesti í upphafi og rakti for- sögu þess að ríkissjóður keypti fast- eignina sem áður hýsti útibú Lands- bankans í Grindavík. Það var árið 1986 sem sú hugmynd kom upp að flytja starfsemi lögreglu og skrif- stofu bæjarfógeta af Víkurbraut 42 og í núverandi húsnæðí og 1988 var gengið frá kaupum í byijun apríl. Húsnæðið stóð síðan ónotað þar til á síðasta ári að fjárveiting fékkst til nauðsynlegra breytinga á neðri hæð hússins og verkið var boðið út. Þórður Waldorff byggingameistari í Grindavík var ráðinn til verksins og skilaði verkinu í ágúst á síðasta ári en þá var ekki hægt að flytja inn ■ Á BORGARVIRKINU um ár- amótin urðu þær breytingar að kántrý-bandið Amigos tók til starfa. Amigos skipa þeir Viðar Jónsson sem er söngvari og gítar- leikari hljómsveitarinnar og Þórir Úlfarsson sem leikur á hljómborð. I febrúar kemur svo góður liðsauki sem er stálgítarleikarinn Pat Tenn- is. Pat var hér á íslandi á síðasta ári og kom þá fram með Björgvini Halldórssyni og lék inn á plötu með Geirmundi Valtýs. Borgarvirkið er með lifandi tónlist frá fimmtudegi til sunnudags og er eingöngu leikin kántrý-tónlist. Dúettinn Amigos, f.v. Viðar Jóns- son og Þór Úlfarsson. þar sem ekki var fjármagn til kaupa á húsgögnum, í uppsetningu síma og fjarskiptatækja svo og til þess að flytja starfsemi bæjarfógeta á efri hæð hússins um leið og lögregl- an flytti. JÓn gat þess að með hjálp góðra manna hafí tekist að útvega fjármagn til að ljúka við innréttingar og til kaupa á húsgögnum og tækjum til lögreglunnar þannig að hægt var að flytja í húsnæðið 19. desember á síðasta ári. Húsið er á tveimur hæðum og er skrifstofa bæjarfógeta á efri hæðinni ásamt aðstöðu fyrir rannsóknarlög- reglu, litlum dómsal og skrifstofu fyrir löglærða starfsmenn. Þar er gert ráð fyrir að lögskráning sjó- manna fari fram. Þá verður aðstaða fyrir Almannavamanefnd Grindavík- ur á efri hæðinni. Á neðri hæðinni er lögreglan til húsa og eru þar varð- stofa, skrifstofa aðstoðaryfirlög- regluþjóns, skýrslugerðarherbergi auk annarrar aðstöðu fyrir lögreglu- menn og 3 fangaklefar. í kjallara eru síðan snyrtiaðstaða fyrir lög- reglumenn og skjalageymsla. Embættinu bárust gjafír í tilefni tímamótanna og m.a. færði Eðvarð Júlíusson forseti bæjarstjómar í Grindavík lögreglunni loftmynd af Grindavík frá bæijastjóm til að lög- reglumenn ættu hægar með að rata um plássið. Nýja húsnæðið er bjart og vist- gott og er ekki að efa gamla Lands- bankahúsið mun gegna sínu nýja hlutverki með sóma. FÓ Tollvörugeymslan 30 ára: Fiskmarkaður Vestmannaeyja: Fyrsta fiskuppboð- ið verður á morgnn STEFNT er að fyrsta fiskuppboðið hjá nýstofnuðum Fiskmarkaði Vestmannaeyja hf., verði síðdegis á morgun, föstudag, að sögn Þorsteins Árnasonar, framkvæmdastjóra markaðarins. Fiskmarkaður Vestmannaeyja hf. var stofnaður 1. nóvember sl. Er stofnun markaðárins nú önnur tilraun til að koma á fót fiskmark- aði í Eyjum því markaður með sama nafni var stofnaður fyrir nokkrum árum en lagði fljótt upp laupana. Þrátt fyrir það er Þor- steinn bjartsýnn á starfsemi mark- aðarins nú. Fiskmarkaður Vestmannaeyja verður bæði gólf- og fjarskipta- markaður og eins er ætlunin að verða með fískmiðlun. Verður markaðurinn í Eyjum í sambandi við markaðina á landinu, Faxa- markað og Fiskmarkað Hafna- Qarðar. Fiskmarkaðurinn verður til húsa í Friðarhöfn, þar sem eitt sinn var Skipaafgreiðsla Vest- mannaeyja. Starfsmenn verða tveir fyrst um sinn en stefnt er áð ráðningu þess þriðja þegar starfsemin verður komin á fullan skrið. Fyrst um sinn verður fískur- inn boðinn upp síðdegis og er stefnt að uppboði daglega. - Grímur ij íJ-fU í grillsteikum Nautasteik.........kr.790.- m/bak. kartöflu, ‘kryddsmjöri og hrásalati Lambagrillsteik....kr.790.- m/sa/na Svínagrillsteik....kr.760.- m/sama KRINGLUNNI - SPRENGISANDI Ath. Hádegistilboð alla daga \WJ Jaríinn '■VEITINGASTOFA- Fresturinn er að renna út! Skandia r Island Ef þú ert með endurnýjunardag bifreiðatryggingar þinnar 1. mars ættir þú að segja upp núverandi tryggingu skriflega i síðasta lagi í dag eðaþ morgun! I Þannig hefur þú 4 vikur til að bera i saman iðgjöld tryggingafélaganna. Að sjálfsögðu er bíllinn tryggður á meðan! Við erum við símann 12 tíma á dag, frá 9 til 21. Sími 629011. Grænt númer 99 6290.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.