Morgunblaðið - 30.01.1992, Síða 43
43
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 1992
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Kristján Arason sýndi enn einu sinni hversu öflugur hann er
FH-INGAR héldu áfram sigurgöngu sinni í 1. deildinni og nú
voru það Eyjamenn sem lágu, 28:25, eftir bráðfjörugan og
skemmtilegan leik í Hafnarfirði ígærkvöldi. FH heldur tveggja
stiga forskoti sínu á Víking í deildinni, en Víkingar eiga einn leik
til góða.
Gróttusigur
Grótta lagði Breiðablik, 14:17, í
miklum baráttuleik, sem var
lítið fyrir augað. Blikarnir byrjuðu
betur, en þegar
Pétur staðan var 3:1 datt
Hrafn botninn úr leik
Sigurðsson þeirra og skoruðu
skrifar þeir ekki nema eitt
mark í 15 mín. Gróttumenn náðu
yfirhöndinni, sem þeir héldu út leik-
inn. Ásgeir Baldurs var besti leik-
maður Breiðabliks - varði 18/1
skot, en Revine varði einnig-vel hjá
Gróttu, eða 14/2 skot.
Eyjamenn komu FH-ingum í
opna skjöldu á upphafsmínút-
unum, spiluðu sterka 4-2-vörn og
komu vel út á móti
Kristjáni Arasyni og
Þorigils Óttari ög
tók það FH-inga
smá tíma að ná tök-
um á sóknarleiknum.
Um miðjan fyrri hálfleik hafði
FH eins marks forystu 6:5, en þá
tóku Eyjamenn, eða öllu heldur
Ungverjinn Zoltan Belaniy, til sinna
ráða og gerði fimm mörk í röð og
breytti stöðunni i 6:10. Með góðum
endaspretti tókst FH að jafna leik-
inn fyrir hlé.
Eitthvað virtist teið, sem leik-
menn fengu í hálfleik, hafa farið
betur í FH-inga en Eyjamenn því
þeir tóku leikinn strax í sínar hend-
ur. Eftir það var ekki aftur snúið
og Eyjamenn áttu ekkert svar við
góðum leikkafla FH. Mestur var
munurinn 6 mörk, 27:21, þegar
skammt var til leiksloka og leyfðu
FH-ingar þá varamönnum að
spreyta sig. Eyjamenn voru fljótir
að ganga á lagið og skorðu 4 mörk
í röð og náðu að minnka muninn í
tvö mörk, 27:25, en tíminn var of
naumur. Sigur FH var öruggari en
lokatölurnar, 28:25, gefa til kynna.
FH-ingar léku vel en enginn þó_
betur en þjálfari þeirra, Kristján
Arason. Hann sýndi enn einu sinni
hversu öflugur hann cr. Bergsveinn
varði vel í markinu og Sigurður
Sveinsson átti góða spretti.
Sigmar Þröstur átti mjög góðan
dag í marki Eyjamanna og hélt
þeim á floti undir lokin með glæsi-
legri markvörslu. Zoltan Belaniy
sýndi einnig góð tiiþrif og Erlingur
Richardsson nýtti vel þau færi sem
hann fékk.
Ómar
Jóhannsson
skrifar
Morgunblaöið/Bjarni
Gunnar Andrésson, leikstjórnandi Framara, freistar þess að komast í gegnum vöm Vals. Það var ekki greið leið i gærkvöldi og hér eru það Brynjar Harðarson,
til hægri, og Ármann Sigurvinsson sem eru til varnar.
Klaufaskapur Framara
- voru tveimur mörkum yfir þegar sex mínúturvoru til leiksloka, en töpuðu
KLAUFASKAPUR leikmanna
Fram kom í veg fyrir að þeir
legðu Valsmenn að velli í gær-
kvöldi. Þeir voru tveimur mörk-
um yf ir þegar sex mínútur voru
til leiksloka er þeir þoldu ekki
spennuna og Valsmenn gerðu
síðustu fimm mörkin og sigr-
uðu 23:20.
Framarar léku illa í lokin ög það
var eins og þeir þyldu ekki
spennuna. Við lékum reyndar illa á
tímabili í síðari hálf-
Skúli Unnar leik en sem betur fer
Sveinsson tókst okkur að rífa
skrífar okkur upp,“ sagði
Þorbjöm Jensson
þjálfari Vals eftir leikinn og var að
vonum kátur enda hafði lið hans
þurft að leggja sig allt fram til að
sigra.
Jafnræði var lengst af leiksins
en í upphafi síðari hálfleiks náði
Valur undirtökunum 17:14. Vörrt
Fram, sem hafði verið mjög slök,
hrökk þá í gang og þeir gerðu fimm
mörk í röð og komust 19:17 yfir.
Lokakaflinn var síðan afieitur hjá
þeim og Valsmenn gerðu síðustu
fimm mörk leiksins og þar af fjögur
úr hraðupphlaupum.
Valur lék 3-2-1 vörn með ágæt-
um árangri en 6-0 vöm Fram var
afleit og markvarslan í samræmi
við það. I fyrri hálfleik varði vörnin
eitt skot og markverðirnir saman-
legt jafn mörg skot. Hinum megin
varði Guðmundur ágætlega og
gerði það gæfumuninn.
Hjá Val var Guðmundur ágætur
í markinu og allir léku vel í vörn-
inni. I sókninni var Valdimar ógn-
andi að venju og þeir Ólafur og
Dagur voru einnig sprækir.
í sóknaraðgerðum Fram var Karl
sterkur, sérstaklega í fyrri hálfleik
og Gunnar stóð fyrir sínu. Ragnar
var ágætur á línunni en Finnur
gætti hans þó mjög vel. Leikmenn
liðsins gerðu sig seka um skot úr
afleitum fæmm undir lokin og
hefðu með skynsamlegum leik átt
að ná að sigra. Þeir eru með ungt
lið og ef þeir lenda í svipaðri að-
stöðu eftir tvö ár verður þéssi leik-
ur þeim vonandi minnisstæður —
þeirra vegna.
Sigurð-
urlék
við
hvem
sinn '
fingur
SELFYSSINGAR höfðu sæta-
skipti við Stjörnuna í 1. deild
eftir að hafa unnið þá síðar-
nefndu 26:24 í Garðabæ í gær-
kvöldi. Leikurinn var jafn og
spennandi allan tímann, en
barátta Selfyssinga reið
baggamuninn ílokin.
Selfoss byrjaði leikinn betur og
hafði oftast frumkvæðið í fýrri
hálfleik, en Garðbæingar voru aldr*»-
ei langt undan. Þeg-
ValurB. ar innan við sjö mín-
Jónatansson útur voru til leiks-
skrifar loka var staðan jöfn,
22:22 og allt á suðu-
punkti. Garðbæingar gerðu þá af-
drifarík mistök í sókninni hvað eft-
ir annað og Selfyssingar nýttu sér
það og gerðu fjögur mörk á móti
einu marki heimamanna.
Patrekur og Skúli voru bestu
leikmenn Stjörnunnar og unnu vel
saman. Patrekur gerði sjö mörk og^.
átti fjórar línusendingar á Skúla
sem gáfu mörk. Magnús Sigurðsson
átti ágætan leik og Einar Einarsson
lék vel í fyrri hálfleik. Garðbæingar
verða að gera betur ætli þeir sér
að vera með í toppbaráttunni. Það
var eins og alla leikgleði vanaði í
liðið og það kann ekki góðri lukku
að stýra.
Sigurður Sveinsson fór á kostum
í þessum leik, gaf línusendingar
eins og honum einum er lagið og
gerði falleg mörk. Hann skoraði 9
mörk, átti fimm línusendingar sem
gáfu mörk og fiskaði eitt vítakast.
Það er gremjulegt að geta ekki
notið krafta hans í íslenska landslið-
inu. Gústaf Bjarnason, Einar Guð-^.
mundsson og Einar Gunnar Sig-
urðsson voru góðir og Stefán Hall-
dórsson, sýndi gamla góða takta.
Selfoss er með stemmningslið og á
góðum degi ætti það að geta unnið
hvaða lið sem er í deildinni.
„Við unnum þennan leik fyrst
og fremst á baráttunni og með
skynsamlegum leik,“ sagði Sigurð-
ur Sveinsson. „Við þurfum að laga
vamarleikinn því við skorum alltaf
okkar mörk. Ef það tekst þá ættum
við að eiga möguleika á að vinna
efstu liðin og vel það.“
Aðspurður sagðist Sigurður vera
búinn að gefa landsliðssætið alveg
upp á bátinn. „Ég er alveg pass.
Það verður að gefa ungu mönnunfc-
um tækifæri,“ sagði Sigurður.
Sigurganga FH heldur áfram