Morgunblaðið - 11.02.1992, Síða 27

Morgunblaðið - 11.02.1992, Síða 27
m 27 vþpi Vi^ní]í|^ia jj MffðAdíJljfflíf'í ðlt'íAiíöíí-UöflOlí MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 1992 Fjármál Ýmislegt mælir með Islandi sem fjármálamiðstöð — segir Michael Lafferty, forstjóri Lafferty Group sem er umsvifamikið útgáfufyrirtæki á sviði banka- og fjármála „ÞAÐ er ljóst að smæðin er engin hindrun í vegi fyrir árangri á fjár- málamörkuðum. Lúxemborg, Liechtenstein og aðrar alþjóðlegar fjár- málamiðstöðvar eins og eyjan Mön hafa byggt upp fjármálaþjónustu með góðum árangri. Hagstætt umhverfi í skatta- og lagalegum skiln- ingi hefur m.a. átt þátt í þessu. Það er engin ástæða til þess að ísland geti ekki fylgt fordæmi þeirra,“ segir Michael Lafferty, forstjóri Laf- ferty Group London. Hann hefur dvalið hér á landi undanfarna daga til að kanna kosti þess að halda hér alþjóðlega fjármálaráðstefnu með um 200-500 þátttakendum en einnig hefur hann áhuga á að athuga möguleika á að ísland verði alþjóðleg fjármálamiðstöð. Fyrirtækið Lafferty Group sér- hæfír sig í útgáfu á fréttabréfum, bókum og uppsláttarritum um banka- og fjármál auk þess sem það heldur árlega fjölda ráðstefna um þetta efni víða um lönd. Lafferty er löggiltur endurskoðandi að mennt en hann starfaði sem blaðamaður Tryggingar * Ahugi á íslenskum trygginga- markaði Það er víðar en á Norðurlönd- um, að áhugi er á vakna á ís: lenska tryggingamarkaðnum. í nýlegu aukablaði Financial Ti- mes um fjárfestingarmöguleika erlendis er það haft eftir fram- kvæmdastjóra breska trygg- ingafélagsins Oaklife Assur- ance, að íslenski líftrygginga- og lífeyrisakurinn bíði þess að- eins að vera erjaður. í fréttinni er sagt undan og ofan af aðstæðum hér á landi og meðal annars, að þjóðin sé ekki nema 260.000 manns og því verði að vega málið og meta mjög vand- lega áður en ákveðið verður að hefja starfsemi hér. Á það er hins vegar minnt, að íslensk lög og reglur um fjármagnsflutninga landa í millum séu miklu frjáls- legri en áður var. „Við yrðum líklega að kenna Islendingum að þekkja ýmsa „vöruflokka“ eða tryggingar, sem algengar eru í Bretlandi,“ sagði Dan Dane, framkvæmdastjóri Oaklife, en hans hugmynd er sú, að rekstur og fjárfestingarstjórn verði í Bretlandi en íjórir eða fímm sölumenn verði að störfum í Reykjavík og öðrum helstu bæjum. IMGK rafkerti um árabil hjá Financial Times og sérhæfði sig í banka- og fjármálaf- réttum. Michael Lafferty kynnti hugmyndir sínar fyrir ýmsum ís- lenskum athafnamönnum á fundi sl. þriðjudag m.a. um þær hræringar sem framundan eru á evrópskum fjármálamörkuðum en einnig ræddi hann möguleika íslands til að verða alþjóðleg fjármálamiðstöð. Hann sagði að enda þótt sam- keppnin milli fjármálamiðstöðva ætti eftir að aukast væru engir sérstakir annmarkar á því að setja upp slíka starfsemi hér á landi umfram aðra staði og að sumu leyti mælti ýmis- legt með Islandi. Benti hann á að sums staðar gætu slíkar fjármál- amiðstöðvar ekki tekið við auknum viðskiptum eða væru nálægt því marki þrátt fyrir að líklega myndi eftirspurnin fara enn vaxandi. Það væru takmörk fyrir því hversu lítið land gæti annað miklum viðskiptum. FJÁRMÁL — Michael Lafferty, forstjóri Lafferty Gro- up London. Hann hefur dvalið hér á landi undanfarna daga til að kanna kosti þess að halda hér alþjóðlega fjármálaráð- stefnu með um 200-500 þátt- takendum en einnig hefur hann áhuga á að athuga möguleika á að ísland verði alþjóðleg fjár- málamiðstöð. Lafferty kvaðst telja að þróað nki eins og ísland þar sem stöðugleiki ríkti og menntun væri á háu stigi gæti tekið við hluta af þessari um- frameftirspurn. Lafferty var inntur eftir því hvort sá óstöðugleiki í verðlagi sem ríkt hefur hér á landi gæti ekki verið hindrun í vegi fyrir því að alþjóðleg fjármálastöð yrði sett á laggirnar. Hann kvað svo ekki vera þar sem fjárfestar myndu fyrst og fremst fjárfesta í eignum í öðrum myntum en íslensku krónunni og væru því ekki háðir efnahagslífinu hér á landi. Það væri hins vegar lykilatriði að hér á landi ríkti stöðugleiki í stjórn- málum. Þá taldi hann að aðilar á fjármagnsmarkaði ættu að'standa að því undirbúa stofnun alþjóðlegrar fjármálamiðstöðvar fremur en full- trúar hins opinbera. Þá varaði hann sterklega við því að Seðlabankinn kæmi nærri slíkum undirbúningi. ENDURSKIPULAGNING OG SPARNAÐUR Endurskipulagning og spamaður eru lykilorð hjá vel reknum fyrirtækjum og stofnunum. SECURITAS h/f, ræstingardeild, hefur á annan áratug tekið að sér ræstingar fyrir fyrirtæki og stofnanir á stór- reykjavíkursvæðinu. I viðskiptmn við okkur em mörg virtustu fyrirtæki á íslandi. Þjónusta okkar nær yfir alla þætti ræstinga. Ræstingardeildin býður fram þjónustu sína til endurskipulagningar á ræstingarmálum fyrirtækja. Þjónusta sem örugglega skilar árangri. Við gerum þér tilboð án skuldbindinga! RÆSTINGARDEILD Sími 687600 Sorphirða Kaupmenn semja við Gámaþjónustuna Stefnt að lágmarksúrgangi og endurvinnslu sorps KAUPMANNASAMTÖK ís- lands hafa gert samning við Gámaþjónustuna um ráðgjöf og þjónustu við losun sorps félags- manna á sérstökum kjörum, auk leigu á geynislugámum fyrir sorp. Helsta markmið samtak- anna með samningnuin við Gámaþjónustuna er að stuðla að lágmarks úrgangi og auka endurvinnslu sorps, skv. því er kemur fram í frétt frá samtök- unum. Innan ramma þessa heildar- samnings verður hver og einn fé- lagsmaður Kaupmannasamtak- anna og gera sérstakan þjónustu: sámning við Gámaþjónustuna. í staðinn fá kaupmennirnir afslátt en ráðgjöf er veitt samningsaðilum endurgjaldslaust. I frétt frá Kaupmannasamtök- unum segir að þau hafi látið sig umhverfismál miklu varða og hafi þau til dæmis stofnað til sam- starfs við Landverd um sölu á plastburðarpokum á þann hátt að helmirigur af _ söluvirði pokanna rennr í sjóð. Úr þeim sjóði hefur verið úthlutað til umhverfis- og gróðurverkefna um land allt. Veröld Eigna- og skuldastaða ekki ljós INNKÖLLUN í þrotabú Ferðam- iðstöðvarinnar Veraldar hf. var birt fyrir nokkru. Engum kröfum hefur enn verið lýst í búið en Brynjólfur Kjartansson bústjóri þrotabúsins sagði í samtali við Morgunblaðið að reynslan væri sú að kröfur kæmu yfirleitt seint á innköllunartíma. Eigna- og skuldastaða fyrirtæk- isins liggur ekki fyrir fyrr en um miðjan apríl að sögn Brynjólfs og þá jafnframt hveijir verða helstu kröfuhafar. Þeir sem telja sig eiga kröfu í búið hafa 2 mánuði til að lýsa kröfu en skiptafundur verður haldinn 27. apríl nk. 2 LADA UMB0ÐIÐ VETRARSK0ÐUN 1. Athuga ástand ökutækis. 2. Athuga olíu á vél, stýrisvél og vökva á rafgeymi, kælikerfi, rúðusprautum, bremsum og kúplingu. 3. Mæla frostlög og bæta á efþarf. 4. Mæla rafgeymi og hleðslu og hreinsa geymasambönd. 5. Hreinsa síurí bensíndælu og blöndungi. 6. Athuga og skipta um, efþarf, þétti, platínur, kveikjuhamar, kveikjulok, kertaþræði, '*' kerti, loftsíu og viftureim. 7. Athuga ventlalokspakkningu. 8. Strekkja tímakeðju og tímareim efþarf. 9. Stilla kveikju og blöndung. 10. Athuga sviss, startara, mæla, kveikjana, þurrkur og miðstöð. 11. Athugaöll Ijós. 12. Stilla Ijós. 13. Athuga hurðir og smyrja læsingar. 14. Stilla kúplingu og herða á handbremsu. 15. Stilla slag í stýrisgangi og hjólalegu efþarf. 16. Hemlaprófa. Varahlutir sem notaðireru við almenna vetrarskoðun eru seldirmeð 10%afslætti. Verðá vetrarskoðun Lada Samara 8.183 kr. Aðrir Lada bíiar 9.443 kr. ofangreinl verð miðast við velrarskoðun án eíniskostnaðar. Einnig tökum við Lada bíla íreglulegar 10.000 km. skoðanir BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR HF. Suðurlandsbraut 14108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36 Beinn sími á verkstæði 3 97 60

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.