Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992 13 Blautir bak við eyrun eftir Bjarna Olafsson Sjónvarpsáhorfendur fylgdust ný- lega með menntamálaráðherra eftir að hann hafði heimsótt útifund skóla- nema á Lækjartorgi. Stöð tvö sýndi áhorfendum eggjablaut föt ráðherr- ans og fylgdi honum upp í alþingis- hús þar sem við fengum að sjá bak við annað eyrað á honum. Hráblaut eggjaklessa blasti við alþjóð. Þetta eru daprir dagar fyrir ráð- herrann. Hann hittir fyrir foreldra, kennara og nemendur og enginn virðist eiga hrósyrði í fórum sínum handa þessum æðsta yfirmanni menntamála. Þess vegna er það skilj- anlegt að hann sé bæði sár og reiður þegar hans lægstu undirsátar bijóta á honum alla mannasiði á útifundi sem hann lætur þó svo lítið að ávarpa. Von er að menn í uppnámi láti sér ýmislegt vanhugsað um munn fara. Enginn sá samt vanstillingu á hin- um æfða stjórnmálamanni þegar hann sneri sér að sjónvarpsvélunum. Á leiðinni úr ræðustóli út að bíl sínum hafði honum tekist að finna söku- dólga: kennarana. Þeir áttu ekki aðeins að hafa veitt börnunum rang- ar upplýsingar um niðurskurð í skól- um landsins heldur einnig gefið æskulýðnum frí til þess að fara í mótmælagöngu. Þess vegna bæru þeir ábyrgð á eggjakastinu. Ráðherr- ann lét þess getið að greinilega þyrfti eitthvað að athuga kennaramenntun- ina betur í ljósi þessara atburða. Með orðum sínum gaf ráðherrann tóninn í fordómafullum haturskór. Nægilega margir virðast haldnir svo beisku heiftarþeli í garð kennara að dugar til að halda símalínum glóandi klukkustundum saman á kjaftaþátt- um útvarpsstöðvanna. Eftir gefnu merki ráðherrans tókst að breyta friðsamlegum mótmælum ungmenn- anna í æsingar ila uppalins lýðs sem kennarar hafa att til óhæfuverka. Það er undarlegur starfsstíll sem pólitískir forystumenn menntamála á þessu landi hafa valið sér. Þegar keppikefli venjulegra stjórnenda er að halda frið við undirmenn sína fara Ólafur G. Einarsson og aðstoð- arráðherra hans með dylgjur og svigurmæli í garð kennarastéttarinn- ar hvenær sem færi gefst. Góðir stjórnendur vilja efla samstarf við sitt fólk en menntamálaráðherra læt- ur betur að senda út tilskipanir mönnum að óvörum. Það fylgir lýðræðisskipulagi að oft þarf að skipta um ráðherra. Nýkjör- inn þingmaður getur staðið frammi fyrir því — eftir ákvörðun flokks- formanns síns eða makk í þingflokki — að eiga að stjórna ráðuneyti sem hann hefur aldrei leitt hugann að fyrr. Þess hefur ekki ijeyrst getið að tilvonandi ráðherra hafi beðist undan tigninni vegna þess að hann teldi sig ekki til þess bæran. En nýliða í ráðherrahópi er í lófa lagið að velja sér aðstoðarráðherra sem væri öllum hnútum kunnugur í mál- efnum ráðuneytisins. En Ólafur G. hafði þann hátt á að hafa með sér í ráðuneytið ungan starfsmann þing- flokks Sjálfstæðisflokksins. Þekking hans á menntamálum er ekki áður kunn en hann hefur þó verið óragur við yfirlýsingar út og austur um þau efni. Menntamálaráðherra er í klípu. Hann situr í ríkisstjórn sem gerir sér ekki grein fyrir því að síst af öllu má kollvarpa menntakerfi ef efna- „Góðir stjórnendur vilja efla samstarf við sitt fólk en mennta- málaráðherra lætur betur að senda út til- skipanir mönnum að óvörum.“ hagserfíðleikar eru í uppsiglingu og jafnvel atvinnuleysi. Sjálfur vonast hann eftir því að skrefíð aftur á bak verði ekki til frambúðar. En hann veit varla hvort „sparnaði" í mennta- málum þarf að ná á hálfum vetri eða einum. Yfírherrar hans í ríkisstjórn- inni halda honum í óvissu svo að ekki er við því að búast að hann tali skýrt til forráðamanna skóla, kennara, foreldra eða nemenda. Og hvetjir eru hans faglegu ráðgjafar? Bjarni Ólafsson Aðstoðarráðherra hefur menn í lagagrúski í von um að finna leiðir til þess að neita fjölda 16 ára ungl- inga um skólavist næsta haust. Stundum er sagt um nýgræðinga í starfi að þeir séu „blautir bak við eyrun“ og mun það líkingamál eiga að minna á hálfkarað ungviði. Það er ljóst að þetta á við menntamálafor- ystuna í fleiri en einum skilningi. Sambandsleysi hennar við fólk og stefnuleysi í menntamálum verður æ berara eftir því sem ráðherra og aðstoðarráðherra koma víðar á mannamót. Hér má spyija hvort þeir góðu herrar hafi gert það upp við sig hver verði dreginn til ábyrgðar ef nokkur hundruð unglingar verða gerðir afturreka þegar þeir sækja um skólavist næsta haust. Væntan- lega verða þeir sem slakastan náms- árangur sýna á grunnskólaprófi fyrstir til að „fá frí“ til að stunda götuna og sækja um atvinnuleysis- bætur. Þá getur hugsast að þeir kumpánar, sem áður deildu borði á þingflokksskrifstofu Sj álfstæðis- flokksins, fái eitthvað biýnna að iðja en að stunda skítkast í garð kennara. Höfundur er framhaldsskólakennari. HONDA ACCORD ER I FYRSTA . . . sæti í Bandaríkjunum sem söluhæsti fólksbíllinn undan- farin þrjú ár og var heiðraður sem sá bíll sem eigendur voru ánægðastir með. Accord hlaut einnig verðlaunin um Gullna stýrið í sínum flokki í Þýska- landi. Það er ekki hægt að segja að Accord sé sportbíll, en hann er eins nálægt því.og hægt er að komast sem fjöl- skyldubíll. Það má því kannski segja að Accord sé fjöl- skyldusportbíll. Utlitshönnun Accord er sérlega vel heppnuð og innréttingar í alla staði vel úr garði gerðar. Accord er með sextán ventla, tveggja lítra vél og nýja hönnun á Isveifarás sem dregur mjög úr titringi. Accord er stórgóður bíll sem uppfyllir ströngustu kröfur sem gerðar eru til fjölskyldubíla. Accord ár- gerð 1992 er til sýnis að Vatnagörðum 24, virka daga kl. 9:00 - 18:00 og laugardaga kl. 11:00 - 15:00. Verð frá: 1.548.000,- stgr. Greiðslukjör við allra hæfi. 'árétín USMt' SIEMENS g Með SIEMENS heimilistcekjum verður lífið léttara! Traustir umboðsmenn okkar • Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6. • Borgarnes: Glitnir, Fálkakletti 13. • Borgarfjöröur: Rafstofan Hvítárskála. • Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir, Munaðarhóli 25. • Grundarfjöröur: Guðni Hallgrímsson, Grundargötu 42. • Stykkishólmur: Skipavík, Hafnargötu 7. • Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar, Brekkuhvammi 12. • ísafjörður: Póllinn hf., Aðalstræti 9. • Blönduós: Hjörleifur Júlíusson, Ennisbraut 1. • Sauðárkrókur: Rafsjá hf., Sæmundargötu 1. • Siglufjörður: Torgið hf., Aðalgötu 32. • Akureyri: Sír hf., Reynishúsinu, Furuvöllum 1. eru víðs vegar um landið! • Húsavík: Öryggi sf., Garðarsbraut 18a. • Þórshöfn: Norðurraf, Langholti 3. • Neskaupstaöur: Rafalda hf., Hafnarbraut 24. • Reyðarfjörður: Rafnet, Búðareyri 31. • Egilsstaöir: Raftækjav. Sveins Guðmunds., Kaupvangi 1. • Breiödalsvík: Rafvöruv. Stefáns N. Stefánss., Asvegi 13. • Höfn í Hornafirði: Kristall, Hafnarbraut 43. • Vestmannaeyjar: Tréverk hf., Flötum 18. • Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga, Austurvegi 4. • Selfoss: Árvirkinn hf., Eyrarvegi 29. • Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar, Heiðartúni 2. • Keflavík: Ljósboginn, Hafnargötu 25. c co ZJ gi: 0*0 3<Q 1=8 3 O* ÍS 3S: oS JSs Q Q' 3 qS =50 3 a
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.