Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992 Pétur Einarsson fulltrúi - Minning Fæddur 6. júlí 1926 Dáinn 10. mars 1992 Sá einn sem reynir skynjar best og skilur, hve skin frá vinarhug er gott að finna. Þess vegna er í huga mér sár söknuður, er ég nú sendi vini mínum Pétri Einarssyni hinstu kveðju mína og með henni vil ég þakka honum fyrir ágætt samstarf og bróðurhug, bæði innan Oddfellowreglunnar og þó ekki síður fyrir 19 ára ágæt störf fyrir okkur í Hrafnseyramefnd, en hann var bókari nefndarinnar allt frá árinu 1973, lengst af án þess að taka nokkrum þóknun fyrir störf sín, sem þó vom oft umtalsverð. Sýnir það vel hug hans til góðra málefna ættjarðarinnar, en eins og þjóðin veit, er það hlutverk nefndar- innar að byggja upp og viðhalda minningu Jóns Sigurðssonar, for- seta og frumheija sjálfstæðis ís- lands, á fæðingarstað hans, Hrafns- eyri. Pétur var Eyfirðingur, fæddur að Hjalteyri 6. júlí 1926. Foreldrar hans vom hjónin Kristín Kristjáns- dóttir og Einar Jónasson. Þau eign- uðust fimm böm og var Pétur þriðja bamið í röðinni. Pétur gekk fyrst í Laugaskóla í Þingeyjasýslu, árin 1943—45, en 1947 útskrifaðist hann frá Sam- vinnuskólanum. 12. maí 1951 kvæntist Pétur sín- um ágæta lífsfömnaut Dagbjörtu R. Bjamadóttur frá Berserkseyri í Eyrarsveit á Snæfellsnesi. Þau eignuðust fimm böm og em fjögur þeirra á lífi, en þau eru: Yngvi, kvæntur Mörtu Konráðsdóttur, Kristín, ógift, Ásta Bjarney, gift Nicolai Jónassyni, og Linda Björk, heitbundin Stefáni Baldurssyni. Bamabömin era orðin sex. Ég mun ekki rekja sögu Péturs né lífsstarfs hans frekar, því það munu aðrir kunnugri gera, en þeg- ar ég lít til baka, er svo ótal margs að minnast, sem ekki verður rakið hér. Vegna starfa sinna fyrir Hrafns- eyrarnefnd, kom Pétur stundum með mér til Hrafnseyrar á haustin, þegar við lokuðum Minningarsafni Jóns Sigurðssonar 1. september, en safnið er aðeins opið um sumartím- ann. Þá fékk ég stundum þá ánægju að gista hjá hjónunum Pétri og Dagbjörtu í sumarbústað þeirra á Berserkseyri, en þar býr Hreinn Bjamason, bróðir Dagbjartar, rausnarbúi og hefur byggt ágætt íbúðarhús, svo þegar foreldrar þeirra féllu frá, fengu þau Dagbjört og Pétur gamla bæinn, þar sem þau hafa útbúið sér indælan sumarbú- stað og þar naut ég ánægjustunda, sem ekki gleymast. Fyrir hin ágætu kynni okkar á langri leið, þakka ég Honum, sem fyrstur réð tilvist okkar í þennan heim og ég veit að ég geri það með samhug eiginkonu og bama hans er ég segj: Drottinn, vér þökkum þína miklu náð, í þinni kærleikshönd er allt vort ráð. Þökk fyrir leiðsögn þína’ um lífsins braut, Ijós þitt, er skín í gep um hverja þraut. Þökk fyrir ást, er tengir hönd við hönd og hjartaþel, er knýtir bræðrabönd. Þökk fyrir góðan vin, er var oss kær, vináttu’, er lífi dýrast gildi fær. Þökk sé þér Guð! Lof sé þér Guð, sem veitir ljós og líf, líknandi höndum býrð oss skjól og hlíf, Lof sé þér fyrir vinar traust og tryggð, trú, von og kærleik, lífsins æðstu dyggð. Lof sé þér fyrir lögmál sannleikans, er leggur þú í vitund sérhvers manns. Lof sér þér fyrir gengin gleðispor, gæfurík minning fyllir hjörtu vor. Lof sé þér Guð. (Ágúst Böðvarsson „Ljóð og lausavísur".) Um leið og ég flyt Dagbjörtu, börnum hennar og fjölskyldu mínar innilegustu samúðarkveðjur, bið ég Guð að blessa þau og styrkja. Ágúst Böðvarsson. í dag verður til moldar borinn Pétur Einarsson. Hann lést á Land- spítalanum 10. mars sl. eftir erfiða sjúkdómslegu. Pétur var sonur hjónanna Kristínar Kristjánssonur og Einars Jónassonar, en þau era bæði látin. Hann fæddist 6. júlí 1926 á Hjalteyri við Eyjafjörð og var þriðji elstur í fimm systkina hópi. Ungur að ámm gekk hann að eiga Dagbjörtu Bjarnadóttur frá Berserkseyri og varð þeim fjögurra bama auðið. Þau em Yngvi, Krist- ín, Ásta Bjamey og Linda Björk. Pétur og Dæja byggðu sér fallegt og hlýlegt heimili á Rauðalæk 21 og þar var ávallt tekið á móti okk- ur af þeirri hlýju og einlægni sem einkenndi þau hjónin. Minnisstætt er hversu alla hlakkaði alltaf til jólaboðanna sem haldin vom á Rauðalæknum. Þar skemmtu sér allir, bæðir ungir og aldnir og bám þau húsráðendum vitni um gest- risni, alúð og vandaðan undirbún- ing. Við þökkum einlæglega fyrir þá vegferð sem okkur hlotnaðist að ganga með Pétri, hann er nú horf- inn til nýrra heimkynna en minning- in um hann lifir í hugum okkar. Þér, elsku Dæja mín, börnum ykkar Péturs og bamabörnum, sendum við okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Ebba. Kynni okkar Péturs hófust fyrir 25 ámm er hann gerðist félagi í Oddfellowreglunni, þá starfsmaður hjá Hafskip hf. Eftir fullnaðarpróf frá Samvinnuskólanum 1947 hóf hann störf hjá Sambandi ísl. sam- vinnufélaga þar sem hann vann í sjávarafurðadeildinni við sölu og sendingu á fiskafurðum, m.a. til Bandaríkjanna. Vann hann á veg- um þess í 20 ár samfleytt eða til ársins 1967. Pétur hafði gott vald á enskri tungu og mun það hafa stuðlað að því að hann var sendur til Bandaríkjanna til vinnu við dótt- urfyrirtæki SÍS, Coldwater við sölu og dreifíngu á íslenskum fískafurð- um. Dvöldust þau hjónin þar um 6 ára skeið en komu svo heim aftur 1967. Hann hélt áfram fyrra starfi sínu hjá SÍS en við heimkomuna frá Bandaríkjunum mun honum hafa fundist hagur sinn þrengjast frá því, sem var vestra og því leit- aði hann fyrir sér að breyta til og fékk starf sem flutningastjóri hjá Hafskip hf. Munu þeir Hafskips- menn hafa tálið sér feng í að fá til starfa jafn reyndan og kunnugan mann sem Pétur var. Þar vann hann svo í fimm ár en þá flutti hann sig aftur um set og hóf störf hjá Baader-þjónustunni 1973 og nokkm síðar hjá fyrirtækinu Vélar og stýri (Atlas hf.) uns hann réðist sem aðalbókari tií Kreditkorta hf. 1985 og þar vann hann meðan heilsan leyfði. Pétur mun á skólaámm sínum hafa verið góður námsmaður. Hann lagði ríka áherslu á enska tungu og var mjög fær í henni. Eitthvað mun hann hafa iðkað íþróttir á ámnum 1946—1953, einkum hlaup, og gerðist virkur félagi í íþróttaklúbb í Bandaríkjunum. Hann gekk að eiga eftirlifandi konu sína, Dagbjörtu Ragnheiði Bjamadóttur, sjúkraliða, frá Ber- serkseyri, Eyrarsveit, 12. maí 1951 og eignuðust þau fimm börn. Eitt misstu þau en fjögur lifa föður sinn, allt mannvænlegt og dugmikið fólk. Pétur gerðist félagi í Oddfellow- reglunni 1966 með inngöngu sinni í stúkuna Þorgeir. Það kom brátt í ljós að hér var kominn góður og traustur félagi og voru honum brátt falin þýðingarmikil störf fyrir stúk- una, sem hann leysti af hendi með prýði. Hann var hrókur alls fagnað- ar í félagslífínu og stundaði stúku- starfíð af alúð. Reglunni, okkur Þorgeirsbræðram svo og öðmm þeim, er þekktu Pétur og unnu með honum, er harmur kveðinn að frá- falli hans. Stúkubræður hans senda eiginkonu hans, börnum og öðmm ættingjum innilegustu samúðar- kveðjur með fullvissu um að minn- ing um góðan dreng muni lifa út yfir gröf og dauða. Kona mín og ég vottum frú Dagbjörtu og börnum þeirra okkar dýpstu samúð og biðjum þeim huggunar Drottins. Erlingur Dagsson. Fæddur 11. júní 1955 Dáinn 8. mars 1992 Þegar starfsfólk Sláturhúss KEA mætti til vinnu mánudagsmorgun- inn 9. mars barst okkur sú sorgar- fregn að einn vinnufélagi okkar hefði látist kvöldið áður. Ásgeir Jónasson fæddist 11. júní 1955 og var því aðeins þrjátíu og sex ára er hann lést. Foreldrar hans vom hjónin Þrúður Gunnarsdóttir og Jónas Aðalsteinsson og vár hann þriðji í röð átta systkina. Ásgeir hóf störf við Sláturhúsið haustið 1976 og má því segja að starfsvettvangur hans hafi að mestu verið þar, enda maður sem allir vildu hafa vegna heiðarleika, dugnaðar og þeirrar hlýju sem frá honum stafaði. Utan vinnu voru hans gleðigjafar eiginkona hans Halla Árnardóttir og bömin þeirra, Silley Hrönn, fædd 1. maí 1978, og Fannar Geir, fædd- ur 6. desember 1980, og nutu þau í ríkum mæli umhyggju hans og ástúðar. Halla mín, við á Sláturhúsinu biðjum Guð að veita þér, bömunum og fjölskyldunni allri styrk. Við vit- um að seinna meir verða það ljúfar minningar liðins tíma sem eiga eft- ir að ylja ykkur um ókomin ár. Megi gæfa og gengi fylgja ykkur. Björg Finnbogadóttir. Öðlingurinn hann Ásgeir er allur. Hvílík sóun á því besta sem vor jörð hefur uppá að bjóða, kornung- ur maður í blóma lífsins, hraust- menni sem aldrei gaf eftir, maður sem bar með sér heilbrigði hollra lífshátta. Þegar okkur barst sú fregn, laugardaginn 7. mars, að Ásgeir hefði veikst hastarlega og verið fluttur á sjúkrahús gmnaði Ég vil minnast með nokkrum orðum vinar míns og samstarfsfé- laga Péturs Einarssonar. Pétur réðst til starfa sem bókari hjá Kreditkorti hf. í september 1985 og starfaði hjá fyrirtækinu síðan. Pétur var einstakur starfsmaður, trúr og tryggur og starfskraftur slíkur að undmn sætti á stundum. Hann mætti yfirleitt fyrstur manna og var þá jafnvel búinn að fara í sund áður. En á sínum yngri ámm var hann mikill íþróttamaður og keppti m.a. í hlaupi á Ólympíuleik- um fyrir íslands hönd. Það var mikið kapp í honum og kom það vel fram í öllu starfi hans og síðar veikindum. Ég tel það hafa verið mikla gæfu að fá að kynnast honum Pétri, slíkir vom mannkostir hans. Hann lét ekki mikið yfir sér en af einlægni og góðvild hafði hann nóg og naut samstarfsfólkið þess. En þau hjónin Pétur og Dagbjört, hans elskulega eiginkona, áttu sér sælu- reit en það er að Berserkseyri þar sem Dagbjört er fædd. Þar dvöldu þau mörgum stundum og þar er gott að koma. Minnumst við hjónin þess er við heimsóttum þau sumar- ið 1990 og áttum saman ógleyman- lega helgi. Það er sárt að sjá á eft- ir vinum sínum en það er aðeins okkur síst hvílík alvara væri á ferð- um, sólarhring síðar var hann allur. En það er nú svo að eigi má sköpum renna og þó okkur finnist það sárt og óskiljanlegt þegar klippt er á svo trausta strengi eins og nú er gert þá er ekki um annað að ræða en lúta höfði og treysta á skapara lífsins, að hann hafí þau rök sem réttlæta það að taka hann Ásgeir til sín. Kynni mín af Geira hófust fyrir fímmtán árum eða svo þegar þau Halia mágkona mín hófu samvistir. Hann var ekki maður sem tranaði sér fram eða lét mikið á sér bera en traustið og dugnaðinn bar hann svo augljóslega með sér að við hjón- in töluðum strax um það okkar á milli að traustari lífsfömnaut gæti hún Halla vart fundið. Ekki höfðu þau lengi búið saman þegar þau af stórhug og bjartsýni festu kaup á stórri raðhússíbúð sem var í bygg- ingu og þau fengu afhenta fok- helda. Þá tók við þáttur Ásgeirs sem var ótrúlegur, hann múraði og smíð- aði og lagði pípur og rafmagn með algjörri lágmarksaðstoð því þó hann væri allra manna greiðviknastur þá féll honum ekki vel að biðja aðra að hjálpa sér. Þama komu þau sér upp yndislegu heimili sem alltaf var gott að koma á, því hlýleiki, og snyrtimennska réðu þar ríkjum. Nú hin seinni árin eftir að við hjónin fluttum með börn og bú austur í Neskaupstað og fórum að koma sem gestir til Akureyrar stóð ævin- lega allt opið í Steinahlíðinni hjá Höllu og Geira, þar var allt jafn sjálfsagt. Ekki metum við síður þann vinskap og ættrækni sem fólst í öllum heimsóknum þeirra austur til okkar, t.d. þegar sonur okkar var fermdur og fáir ættingjar ná- lægir. Þá lögðu þau á sig langa einn sem öllu ræður og við hann þýðir ekki að deila. Dagbjört mín, ég bið góðan guð að styrkja þig og börnin í ykkar miklu sorg, en minningin um góðan dreng mun létta ykkur sorgarstund- ir. Megi minning hans lifa, hans er sárt saknað. Gunnar R. Bæringsson. Pétur Einarsson, gamall íþrótta- félagi úr ÍR á fimmta áratugnum, lést í Reykjavík 10. mars sl. eftir árs hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Hann varð aðeins 65 ára gamall, fæddist 6. júlí 1926. Kynni okkar Péturs hófust á gamla góða Melavellinum árið 1946, þar sem við æfðum hlaup og aðrar fijálsar íþróttir. Hann var ljúfur og jákvæður drengur, sem gott var að kynnast. Pétur komst fljótt í fremstu röð íslenskra hlaupara á millivegalengd- um en aldrei ofmetnaðist hann af velgengninni á hlaupabrautinni. Hann var mikill keppnismaður og seint gleymist einvígi hans við hinn heimsfræga danska hlaupara Gunn- ar Nielsen í 800 m hlaupi á Melavell- inum árið 1950. Við fráfall Péturs Einarssonar er fyrsta skarðið höggv- ið í hina frábæm keppnissveit Is- lands á Evrópumeistaramótinu í Briissel 1950. Það var gaman að iðka fijálsar íþróttir á síðustu ámm fimmta ára- tugarins. Áhugi mikill og árangur góður. Þetta vom guilaldarár fijáls- íþrótta. Árið 1947 efndi ÍR til Norð- urlandafarar frjálsíþróttamanna fé- lagsins. Ferðin heppnaðist með mikl- um ágætum. Við Pétur vomm meðal þátttakenda í ferðinni og þá kynnt- ist ég enn betur hinum góðu hliðum og kostum hins látna félaga. Pétur er sá fyrsti, sem fellur frá af þeim fimmtán manna flokki. Fyrir hönd gamalla ÍR-inga og annara íþróttavina votta ég eigin- konu, börnum og öðmm ættingjum samúð mína. Blessuð sé minning Péturs Einarssonar._ Orn Eiðsson. ferð í snjó og fannfergi til að gleðja okkur. Eins vil ég nefna sérstaka ræktarsemi hans við tengdaföður sinn, Árna Kristjánsson, sem alltaf átti traustan vin þar sem Ásgeir var. Ekki voru þau alveg laus við mótlæti því frá blautu barnsbeini hafði Halla barist við fötlun og þurfti oft að leggjast inn á sjúkra- hús. Þá gætti Geiri bús og bama og fórst vel úr hendi. Þeim Ásgeiri og Höllu varð tveggja barna auðið. Þau heita Silley Hrönn, fædd 1. maí 1978, hún á að fermast núna á pálmasunnudag, og Fannar Geir, fæddur 16. desember 1980. Þau sakna nú sárt góðs föður sem gaf þeim svo mikið og var þeim svo góður félagi. Elsku Höllu, Silleyju og Fannari, foreldram Ásgeirs, systkinum og fjölskyldum þeirra, Árna, tengda- föður, börnum hans og fjölskyldum þeirra sendum við hjónin okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að varðveita þau og blessa. Á þessum vegamótum skilja leiðir um stund en endurfundir verða um síðir. Fari okkar kæri vinur í friði. Bogga og Steini. Erfidrykkjur í hlýlegu og notalegu umhverfí Við höfum um árabil tekið að okkur að sjá um erfídrykkjur fyrir aih að 300 manns. I boði eru snittur með margvíslegu áleggi. brauðtertur, flatbrauð með hangikjöti, heitur eplaréttur með rjóma, rjómapönnukökur, sykurpönnukökur, marsípantertur, rjómatertur, formkökur, 2 tegundir o.fl. Með virðingu, FLUGLEIDIR HÖTEL LOFTLEIDIR R e Y KJ A V IK U R F L U G V E L L I. IOI REYKJAVlK SlMI: 9 1-12122 Ásgeir S. Jónas- son — Minning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.