Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 56
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Bifreiðaskoðun af- salar sér einokun STJÓRN Bifreiðaskoðunar fs- lands hefur fallist á þá ósk Þor- steins Pálssonar dómsmálaráð- herra að fyrirtækið falli frá því ákvæði í samningi stofnunarinn- ar við ríkið sem tryggir henni einokun á skoðun bifreiða til aldamóta. Að sögn ráðherra fer senn í gang vinna við þær reglu- Sjávarútvegsráðherra: 11.000 tonna —kvóta úthlut- að á næstunní ÞORSTEINN Pálsson sjávarút- vegsráðherra segir að innan skamms verði úthlutað um 11.000 tonna þorskígilda kvóta til fiski- skipa í hlutfalli við þær aflaheim- ildir sem þau hafa fyrir. Hér er um að ræða kvóta þann sem til er í Hagræðingarsjóði sjávarút- vegsins og nemur um 5% af heild- --arkvóta landsmanna. Á almennum fundi um sjávarút- vegsmál sem haldinn var í Hafnar- firði í gærkvöldi kom þetta fram í svari ráðherra við fyrirspum. „Við ætluðum að nýta þennan kvóta Hag- ræðingarsjóðs í úthlutun til loðnu- skipa ef loðnuvertíðin hefði brugðist, í samræmi við lög um stjómun físk- veiða,“ sagði Þorsteinn. „Þessa ger- ist nú ekki þörf þar sem loðnuvertíð hefur gengið vel og ég reikna með að kvóta þessum verði úthlutað innan skamms til fiskiskipa í samræmi við kvóta þeirra." gerðir sem gefa þarf út til að unnt verði að taka upp sam- keppni á þessu sviði frá 1. jan- úar 1994. Stefnt er að því að reglugerðirnar liggi fyrir í haust, eða svo timanlega að þeim fyrirtækjum sem hyggjast reyna fyrir sér í samkeppni við Bifreið- askoðun íslands gefist rúmt ár til undirbúnings til að uppfylla ströng skilyrði sem sett verða og styðjast munu við alþjóðlega staðla. í svarbréfi stjórnar Bifreiðaskoð- unar til ráðherrans, sem farið hafði fram á að fyrirtækið gæfi kost á því að samningur þess við ríkið yrði endurskoðaður, segir að Bif- reiðaskoðun telji að ekki þurfi að taka upp samninginn heldur sætti það sig við að ráðuneytið heimili öllum þeim sem uppfylla kröfur ráðuneytisins að skoða ökutæki almennri skoðun. „Það verða gerðar mjög stífar kröfur þannig að menn geti ekki hlaupið inn í þetta án þess að hafa viðeigandi tækjakost því að um- ferðaröryggissjónarmið verða látin sitja í fyrirrúmi,“ sagði Þorsteinn Pálsson, aðspurður um hvaða kröf- ur þeir aðilar sem vildu keppa við Bifreiðaskoðun þyrftu væntanlega að uppfylla. Hann sagði að Bifreiðaskoðun yrði þátttakandi í þessari sam- keppni en ríkissjóður hygðist selja sín. hlutabréf í fyrirtækinu þegar samkeppnin væri komin í gang. Hins vegar hefði verið talið óeðli- legt að selja fyrirtækið meðan það hefði einokunaraðstöðu á þessum markaði. Morgunblaðið/Sverrir 26 dagar til vígslu ráðhússins Ráðhús Reykvíkinga verður tekið í notkun eftir | vinna að uppsetningu á innréttingum og stillingu tæpar fjórar vikur en vígsla hússins á að fara fram loftræstikerfa. Þá er unnið að frágangi utanhúss, 14. apríl kl.15. Samkvæmt upplýsingum Stefáns m.a. við göngubrúna frá ráðhúsinu að Iðnó. Hermannssonar borgarverkfræðings er nú verið að I Kanna sölu á skipum til þriðja heims landa Fjárlagagerð fyrir árið 1993 hafin: Stefnt að hallalausum fjárlögum næsta ár ÚTFLUTNINGSRÁÐ íslands, Landsamband íslenskra útvegsmanna og ICECON hafa undanfarna mánuði, eða allt frá miðju síðasta ári, unnið að sameiginlegri athugun á möguleikum íslendinga á sölu eða leigu íslenskra fiskiskipa til erlendra aðila, auk þess sem kannaðir hafa verið möguleikar á að fá verkefni fyrir íslensk fiskiskip á fjar- lægum miðum. FJÁRLAGAGERÐ fyrir árið 1993 er hafin en á ríkisstjórnar- fundi í fyrradag var fjallað um útgjaldastefnu ríkisins fyrir næsta fjárlagaár. Er stefnt að því að útgjaldarammar fjárlaga- frumvarps liggi fyrir um næstu mánaðamót og að ákvörðun um hámarksútgjöld einstakra ráðu- neyta liggi fyrir áður en þau ■■—Jiefja undirbúning að tillögugerð sinni í næsta mánuði. Ríkisstjórn- in stefnir að halialausum fjárlög- um á næsta ári. Þetta er nýmæli að sögn Hall- dórs Árnasonar, skrifstofustjóra fjárlagaskrifstofu fjármálaráðu- neytisins, en á undanförnum árum hefur fjárlagavinnan venjulega byijað hjá einstökum ráðuneytum og stofnunum sem skila tillögum sínum ti! fjármálaráðuneytis og rík- isstjómar í maí sem þá fyrst hefur —tekið afstöðu til þeirra. „Unnið er að því að móta ramma um heildarútgjöld og fyrir hvert ráðuneyti þannig að tekin verði af- staða til rekstrarumfangs ríkis- stofnana og hversu miklu fé verði varið til fjárfestinga á næsta ári,“ sagði Halldór. Ef aðstæður breytast mun ríkis- stjórnin væntanlega endurskoða útgjaldarammana í sumar. „Með þessu móti skapast líka rýmri tími til að gera þær ráðstafanir sem augljóslega þarf að grípa til ef á að takast að ná hallanum niður á næsta ári. Þess vegna er mikilvægt að hefja vinnu strax í þessum mál- um,“ sagði Halldór. Eins og áður sagði háði hvor- ugt málverkið því lágmarksverði sem fyrirhugað var að selja það á en slíkt verð er aldrei gefíð upp opinberlega. Hins vegar hafði ver- ið búist við að verkið eftir Jón Stefánsson myndi ná 10-15 þús- und pundurri en hætt var að bjóða það upp þegar komið var í 5.500 pund. Þá var hætt að bjóða upp Kjarvalsverkið í 1.600 pundum en búist hafði verið við að það Könnunin hefur einkum tekið til möguleika í ákveðnum löndum Suður-Ameríku, Afríku og Rúss- landi. Magnús Gunnarsson, formað- ur Útflutningsráðs, sem auk þess er formaður Samstarfsnefndar at- vinnurekenda í sjávarútvegi (SAS) segist binda ákveðnar vonir við að myndi ná yfír 5.000 pundum. Listfræðingur á staðnum sagði það vissulega vera svekkjandi að íslensku verkin hefðu ekki selst en það væri samt ekki eins alvar- legt og það virtist vera við fyrstu sýn. Verkin voru númer 36 og 37 í röð þeirra sem boðin voru upp en einungis þijú þeirra verka sem boðin höfðu verið upp á undan komust nálægt því lágmarksverði sem beðið var um. Þá seldist ein- með þessu megi draga úr afkasta- getu íslenska fiskveiðiflotans, þótt hann vari sterklega við því að menn líti á þessa möguleika sem ein- hveija allsheijarlausn. Þegar séu komin á skrá liðlega 40 fiskiskip, sem möglegt kunni að reynast að selja eða leigja úr landi. ungis rúmlega helmingur verk- anna á uppboðinu þrátt fyrir að fullt væri út úr dyrum og mikið af símatilboðum. Loks má nefna að það verk sem talið var perla uppboðsins, olíumálverk eftir danska málarann Mönsted, og átti að ná 25-30 þúsund pundum, seldist á aðeins þrettán þúsund pund. Taldi listfræðingurinn þetta bera því vitni hversu aðkreppt væri á listmarkaðinum í dag. Hann tók einnig fram að ís- lensk myndlist væri að mestu leyti óþekkt stærð á alþjóðlegum list- mörkuðum og voru íslensku verk- in tvö þannig þau einu sem upp- boðshaldarinn þurfti að kynna sérstaklega. „Ég held að við verðum að kanna þetta til hins ítrasta, bæði hvað varðar sölu á skipunum og sölu á þekkingu og sölu á tækjum til veiða og vinnslu," segir Magnús í sam- tali við Morgunblaðið. Magnús segist telja að þegar búið sé að úrelda fiskiskip og færa veiðiheimildir þeirra yfír á önnur skip sé komið svigrúm til þess að ná því sem eftir stendur í verðmæt- um í þessum skipum með því að selja þau til fjarlægari landa, þótt því fylgi áhætta. Áhættan sé hvort sem er fyrir hendi, en það sé eng- inn annar möguleiki fyrir hendi til þess að nýta eignirnar. Þess vegna kunni nú að vera kominn grundvöll- ur til að hrinda svona hugmyndum í framkvæmd. Sjá viðtal við Magnús Gunnars- son í miðopnu. -----»-4 4----- Sprautur og pípur í trjárunna ÝMIS áhöld til fíkniefnaneyslu fundust í trjárunna _ við rann- sóknastofu Háskóla íslands við Barónsstíg á þriðjudag. Starfsfólk rannsóknarstofunnar fann 12 sprautur og 3 pípur í runn- anum. Hópur fólks kemur oft sam- an í tröppum rannsóknarstofunnar á kvöldin og næturnar, þar sem hlýjan straum leggur frá hitablás- ara. Talið er að áhöldin séu frá þessum hópi komin. íslensku málverkin seldust ekki á uppboði Sotheby’s London. Frá Birnu Helgadóttur, fréttaritara Morgrunblaðsins. TVO íslensk málverk voru boðin upp hjá Sotheby’s í London í gær en hvorugt þeirra náði því verði sem seljandi óskaði eftir og voru því ekki seld. Um var að ræða tvö olíumálverk, „Fjalla- landslag“ eftir Jón Stefánsson og „Landslag" eftir Kjarval. Voru listamennirnir kynntir í bæklingi sem fremstu myndlistarmenn tuttugustu aldarinnar á íslandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.