Morgunblaðið - 19.03.1992, Qupperneq 20
mm
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
Kynbótamat Búnaðarfélags ís-
lands fyrir undaneldishross
eftir Kristin Hugason
í lok fyrri greinar undirritaðs
um kynbótamat Búnaðarfélags ís-
lands fyrir undaneldishross, sem
birtist í Morgunblaðinu þann 18.
desember síðastliðinn, var þess
getið að síðar yrði svarað ýmsum
fullyrðingum Halldórs Gunnarsson-
ar úr Morgunblaðsgrein hans frá
14. nóvember síðastliðnum. Nokk-
uð er nú umliðið, og hér í Morgun-
blaðinu hafa birst greinar um efnið
þar sem mistúlkanir Halldórs
Gunnarssonar um hina svonefndu
BLUP-aðferð eru leiðréttar það vel
að ég hef litlu við að bæta. Á ég
þar við greinar þeirra Stefáns Aðal-
steinssonar frá 4. janúar síðastliðn-
um og Þorvaldar Árnasonar í febrú-
ar. Hins vegar sé ég ástæðu til að
gera fáein atriði að umtalsefni, sem
ég sum hver ætlaði mér að taka
fyrir í síðari grein, í tilefni greinar
Gríms Gíslasonar (Stefán Aðal-
steinsson og Blup-ið) frá 21. janúar
síðastliðnum.
Hver er lagður í einelti?
í grein sinni lætur Grímur Gísla-
son, ritari Félags hrossabænda, að
því liggja að Halldór Gunnarsson,
sóknarprestur í Holti og varafor-
maður Félags hrossabænda m.m.,
sé lagður í einelti, já í einelti, af
hverjum og hvers vegna? Jú, hann
sé málsvari almennings innan
hrossaræktar og hestamennsku og
að honum sæki flokkur hrokafullra
menntamanna, sem vanti bæði
bijóstvitið og reynsluna í þeim við-
urkennda þætti alþýðumenningar í
landinu sem hrossaræktin sé.
Það er fjarri öllu lagi að halda
því fram að Halldór Gunnarsson
sé lagður í einelti vegna persónu-
legra skoðana sinna á hrossarækt
eða öðru, hann hefur fullan rétt til
að hafa þær skoðanir í friði.
Ástæða þess að afstaða Halldórs
Gunnarssonar í þeim atriðum er
snerta kynbótastarfið í hrossarækt-
inni hefur verið tekin til sérstakrar
umfjöllunar er sú að hann hefur
talið sig hafa umboð frá félagasam-
tökum til að halda uppi linnulausu
skítkasti út í þá starfshætti í grein-
inni sem byggja á viðurkenndum
fræðum. Það kom gleggst í ljós á
meðan Halldór sat í Hrossaræktar-
nefnd Búnaðarfélags íslands, að
hann gat með engu móti sætt sig
við að unnið væri í samræmi við
fræðin eða það sem best er vitað.
Þessum atriðum öllum voru gerð
rækileg skil í fyrri grein undirritaðs
og verða ekki frekar endurtekin
hér.
Alþýðumenning og hrossarækt
Hver skyldi alþýðumenning í
hrossarækt vera? Spyr sá sem ekki
veit. Hins vegar þekki ég þátt
hestsins í íslenskri þjóðmenningu
'og veit hvert rúm í sál manna þessi
ferfætta vera getur skipað. Hesta-
mennskan er íþrótt sálar og lík-
ama, hestamennskan er elsta og
þjóðlegasta íþrótt landsmanna.
Ríðandi kom Skarphéðinn að Mar-
karfljóti þegar hann vann lang-
stökksafrekið. Það er svo allt annað
mál að halda því fram að gamlar
kerlingabækur um hrossakynbætur
standi á þjóðlegum merg. Sérstak-
lega í ljósi þess að ég hygg að
bestu hrossaræktarmenn hvers
tíma hafí þegar betur er að gáð
alltaf notfært sér það sem best var
vitað af bókum og af reynslu. Það
er svo enn í dag.
Á íslandi hefur umræða um
hrossarækt eigi að síður æði oft
verið á huglægum nótum, líkt og
umsögn mín hér að framan um
hestamennskuna ber vitni. í ann-
arri búfjárrækt landsmanna er
umræðan mikið frekar með vísinda-
m> W
*Tertudiskur
*Mót til páskaeggja-
og konfektgerðar
*Electrolux uppþvottavél
Juðari Peugeot
Nýjung! Bjálkaklæðning
olíufúavarin (kr./m)
W.C. m/setu-Roca
Eldhús/baðvifta
Eldhúsinnrétting, 2 gerðir
Verðdæmi: Yfirskápar 40 cm
Innihurðarhúnar
* Vasaljós,
tvö í pakka m/rafhlöðum
*Fæst einnig í Heimasmiðjunni í Kringlunni
Áður Nú Afsl.
1154 796 31%
1006 694 31%
64.500 51.600 20%
6.231 4.673 20%
311,25 265 15%
24.995 19.996 20%
4.516 3.613 20%
7.085 5.314 25%
907 726 20%
637 509 20%
Skútuvogi 16, Reykjavik
Helluhrauni 16, Hafnarfirði
legu (líffræðilegu) yfírbragði. Þetta
er viss ókostur fyrir hrossaræktina
en helgast af sérstöðu hennar sem
felst í að skapa draum, gæddan
holdi og blóði. Aflvaki hesta-
mennskunnar er þráin eftir þeim
draumi í líki gæðings. Draumur án
tengsla við raunveruleikann í huga
þess er vakir nefnist skýjaborg.
Seint verða skýjaborgir að veru-
leika.
í íslenskri hrossarækt felast
miklir möguleikar. Þeir felast í að
gera draum sem flestra hesta-
manna um heim allan að veruleika
á þann hátt að gera þeim kleift að
eiga gæðing frá íslandi og njóta
hans. Leiðin til að geta uppfyllt
þennan draum liggur hins vegar
eftir stigum raunveruleikans þar
sem vísindin eru haldreipið. Af
þessu helgast stefna Búnaðarfélags
Islands að færa sér í nyt vísindaleg-
ar nýjungar í leiðbeiningarþjónustu
félagsins í hrossarækt sem og í
öðrum þáttum starfsemi félagsins.
Búnaðarfélagi íslands er enda
fengið það hlutverk af löggjafanum
að vinna með faglegum hætti að
vexti og viðgangi íslensks landbún-
aðar.
Merking hugtaka
í umræðu um hrossakynbætur
þarf, rétt eins og í öðrum greinum,
að nota fræðiorð og hugtök af
stakri nákvæmni, eigi skilningur
að nást og efnið að komast til skila.
Það nægir ekki að segja bara það
sem manni fínnst. Hér á eftir verða
nokkur grundvallarhugtök búfjár-
kynbótafræðinnar gerð að umtals-
efni í þessu sambandi.
Kynbótamarkmið - úrvalsmark.
Þessum tveimur hugtökum er iðu-
lega ruglað svo mjög saman í um-
ræðu um búfjárrækt hér á landi,
og ekki einungis í hrossarækt, að
öll umræðan fer út um víðan völl.
í hrossaræktinni er úrvalsmarkið
(selection criteria) skilgreint í dóm-
stiga kynbótahrossa. Það eru 14
eiginleikar sem mynda úrvalsmark-
ið og þeir eru nánar skilgreindir í
stigunarkvarða kynbótadóma, sjá
fyrri grein höfundar.
Kynbótamarkmiðið (breeding
objective) er aftur á móti miklu
víðfeðmara hugtak sem líklega er
erfíðara að skilgreina í hrossarækt
en flestallri annarri búfjárrækt.
Úrvalsmarkið er hluti kynbóta-
markmiðsins en ýmsir fleiri mikil-
vægir eiginleikar, sem tengdir eru
hreysti, fijósemi o.fl., koma þar til
sögunnar. Auk þess ber ætíð að
hafa í huga í kynbótastarfí í hrossa-
rækt að breytileiki stofnsins er
auðlind. Erfðabreytileiki er verð-
mætur þar á sama hátt og í ann-
Kristinn Ilugason
„í ljósi þess að ég hygg
að bestu hrossaræktar-
menn hvers tíma hafi
þegar betur er að gáð
alltaf notfært sér það
sem best var vitað af
bókum og af reynslu.“
arri búfjárrækt en einnig á fleiri
vegu því að góð hross eru ekki öll
góð á sama hátt. Því ber að við-
halda sem fjölbreytilegustum eigin-
leikum og að sami eiginleikinn sé
til í mörgum útgáfum ef svo má
segja. Það gefur ræktendum færi
á að selja hross við hvers hæfí og
hrossabúskapurinn í heild fær séð
við sveiflum á mörkuðum innan-
lands sem erlendis. Því er breyti-
leiki stofnsins hluti kynbóta-
markmiðsins í íslenskri hrossarækt.
Kynbótadómar - kynbótamat. Á
kynbótasýningum sem fara fram í
samræmi við ákveðnar reglur eru
hrossin sem koma til sýningar
dæmd kynbótadómi. Dómur á
hveiju hrossi er nefndur einstakl-
ingsdómur. Þá er dæmt svipfar,
útlitsgervi eða hæfíleikar hross-
anna í þeim eiginleikum sem ganga
inn í úrvalsmarkið. Einstaklings-
dómarnir eru huglægir en eru
framkvæmdir á kerfisbundinn hátt
á grunni stigunarkvarðans. Rann-
sóknir hafa sýnt að nákvæmni að-
ferðarinnar er mjög viðunandi. Ein-
staklingsdómi má líkja við vigtun.
Á kynbótasýningunum eru einnig
dæmd hross með afkvæmum sem
felst í því að einstaklingsdómar
allra dæmdra afkvæma hrossanna
eru vegnir saman.
Kynbótamatið er aftur á móti
mælikvarði á eðlisfar, þ.e. erfða-
eðli hrossanna, hvað eiginleika úr-
valsmarksins varðar. Kynbótamati
má líkja við að vigta þann hluta
atgervis eða fegurðar hrossanna
sem þau munu geta skilað til af-
kvæmanna. Út á það gengur kyn-
bótamat undaneldisgripa. Kynbóta-
matið er reiknað út með ákveðinni
VESTURUND
Fundir með sjávarútvegsráðherra Þorsteini Pálssyni og
alþingismönnum Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi Sturlu
Böðvarssyni og Guðjóni Guðmundssyni:
Stykkishólmi fimmtudaginn 19. mars kl. 20.30
i Hótel Stykkishólmi.
Ólafsvík föstudaginn 20. mars kl. 20.30
í safnaðarheimilinu.
Fundirnir eru öllum opnir.
Kjördæmisráð Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi