Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
23
Hámarksvinnutími evrópskra flugmanna:
Tillögurnar fela í sér
slökun á öryggiskröfum
- segir Tryggvi Baldursson, formaður FIA
SAMTÖK evrópskra flugmanna hafa brugðist harðlega við tillögum
Samtaka evrópskra flugmálayfirvalda, JAA, að samræmdum reglum
um hámarksvinnutíma flugmanna innan Evrópubandalagsins og EFTA-
ríkjanna. Hámarksflugstundir íslenskra flugmanna eru 8 tímar innan
15 tíma hámarksvaktar en 6 tímar hjá starfsbræðrum þeirra á Norður-
löndunum hjá SAS en ef tillögurnar ná fram að ganga verður hámarks-
flugstundir evrópskra flugmanna 11 á dag.
að tveggja manna áhöfn ynni 12
stunda vinnudag fimm nætur í röð,
eða 60 stunda vinnuviku. íslensk lög
kvæðu á um 40 stunda vinnuviku,
en vinnuvika norrænna flugmanna
hjá SAS væri að hámarki 42 stund-
ir. Hann sagði að flest stærri flugfé-
lög í Evrópu hefðu miklu þrengri
reglur varðandi hámarksvinnutíma
þannig að þessar tillögur snertu þau
ekki. Hins vegar óttuðust menn að
á sameinuðum markaði Evrópu yrði
aukinn þrýstingur á flugfélög og
þar af leiðandi flugmenn líka að
taka upp hámarksvinnutíma.
Tryggvi Baldursson, formaður
Félags íslenskra atvinnuflugmanna,
segir að verði tillögurnar samþykkt-
ar, en þær eru lagðar fram meðal
annars vegna þrýstings frá flugfé-
lögum, yrði með þeim slakað á ör-
yggiskröfum og bendir hann á að
talið sé að 75% allra flugslysa megi
rekja til mannlegra mistaka, m.a.
af völdum þreytu flugmanna. Þetta
hlutfall myndi án efa aukast ef til-
lögur JAA ná fram að ganga.
Tiyggvi sagði að í tillögunum
væri gert ráð fyrir að leyfilegt yrði
Landspítalinn:
Tæki er fjarlægir valbrá
bráðlega tekið í notkun
LANDSSPÍTALINN hefur fengið nýtt tæki, sem fjarlægir valbrá á
fólki með lasertækni, og verður byijað að nota það í aprílmánuði
næstkomandi. Að sögn Olafs Einarssonar, sérfræðings á lýtalækn-
ingadeild Landspítalans, er nú hægt að bjóða upp á lasermeðferðir
til þess að fjarlægja valbrá hér á landi, en hingað til hefur fólk
þurft að fara erlendis í slíkar meðferðir. Tryggingastofnun ríkisins
liefur jafnframt hætt að aðstoða fólk við að fara til útlanda í með-
ferð af þessu tagi.
Tækið var fengið í lok síðasta
árs og að sögn Olafs hefur hann
ásamt tæknimanni farið í þjálfun
erlendis á tækið og búist er við að
það verði tekið til notkunar fyrir
páska. „Þar til fyrir fáum árum var
í raun engin góð meðferð til, til að
ijarlægja valbrá. Fólk hefur sett á
sig farða og þannig falið valbrána
og stundum hefur einnig verið reynt
að taka hana og setja húð yfir, en
þá sést það og það kemur ör og ■
húðin er miklu hvítari,“ segir Olaf-
ur.
Hann segir að fólk þurfi að koma
fjórum til sex sinnum í meðferðina
á sex til átta vikna fresti og að í
hvert skipti fölni valbráin þannig
að á endanum hverfi hún svo til
alveg. Ennfremur segir hann þetta
vera bestu meðferðina til að fjar-
lægja valbrá.
Mennirnir keyptu 650 grömm af
hassi í Amsterdam í seinni hluta
júlí 1990. Um 350 grömm fluttu
þeir til landsins í 110 smokkum,
sem þeir gleyptu, en afganginn
skildu þeir eftir hjá kunningjafólki
í Lúxemborg. Eftir að þeir höfðu
selt efnið hér, fyrir 1000 krónur
hvert gramm, fór annar þeirra aftur
til Amsterdam og keypti þar 800
grömm af hassi, sem. hann fékk
útlending til að flytja hingað til
lands. Sjálfur náði hann í 200
grömm af hassi til kunningjanna í
Lúxemborg og flutti það heim.
Þegar útlendingurinn kom hing-
að til lands tók sá mannanna, sem
ekki fór utan, á móti honum, greiddi
honum 204 þúsund krónur fyrir
flutninginn, hýsti hann um tíma og
geymdi hassið heima hjá sér, að
sögn til að erfiðara væri að tengja
útlendinginn og veru hans hér við
íslensk flugmálayfirvöld hafa
ekki sett neinar reglur um hámarks-
vinnutíma flugmanna og eingöngu
er farið eftir kjarasamningum flug-
félaga við flugmenn. Flugmála-
stjórn er aðili að JAA og mun því
væntanlega taka upp nýju reglurnar
verði þær að veruleika. Tryggvi
sagði að þó svo að tillögur JAA
næðu fram að ganga giltu kjara-
samningar einstakr-a flugfélaga
áfram gagnvart þeirra flugmönn-
um. Hins vegar gætu flugféiög eft-
ir að reglurnar tækju gildi nýtt sér
hámarkstimann til fulls í gegnum
sína kjarasamninga.
Hann segir þessa meðferð fyrst
og fremst vera ætlaða fyrir fólk
með valbrá í andliti en jafnvel megi
nota hana vegna valbrár annars
staðar á líkamanum. Hann segir
að talsverður hópur fólks hér á landi
hafi valbrá í andliti þar sem með-
ferð af þessu tagi hafi ekki verið
til staðar hérlendis, en að meðal-
tali fæðist um sex börn á ári með
valbrá í andliti bæði stórar eða
smáar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Tryggingastofnun ríkisins fóru 19
sjúklingar í 62 ferðir alls til útlanda
vegna slíkrar meðferðar og nam
kostnaður um 21 milljón króna.
Þess má geta að mikil aukning
hefur verið í þessum ferðum, en
árið 1988 fóru 5 sjúklingar utan í
þessu skyni.
Ný sending
Gæðaflísar á góðu verði.
— — Wa — """ ,*"1"*** T □ — □
> f
p m hqppíi T m ILL!U
ft’J iiWGA r
D B L L H t
Stórhöfða 17, við Gullinbrú, sími 67 48 44
Dæmdir fyrír smygl og
sölu á 1,3 kg af hassi
TVEIR menn, báðir á 23. aldursári, hafa verið dæmdir í 5 og 7
mánaða fangelsi í sakadómi í ávana- og fíkniefnamálum. Mennirnir
fluttu um 1,3 kíló af hassi til landsins á árinu 1990, en efnið keyptu
þeir í tveimur ferðum til Amsterdam.
félaga hans. Þegar lögreglan gerði
húsleit hjá öðrum mannanna í ág-
úst 1990 fundust 94 grömm af
hassi.
í dómi sakadóms er það virt
mönnunum til þyngingar refsingar
að þeir sammæltust um að fremja
brot. Annar þeirra hlaut 5 mánaða
fangelsi. Hinn hafði með brotum
sínum rofið skilorð dóms frá desem-
ber 1988 fyrir tékkafals og var
refsing hans ákveðin 7 mánaða
fangelsi. Að auki var honum gert
að greiða 60 þúsund króna sekt í
ríkissjóð, þar eð hann lét af hendi
fíkniefni gegn fégjaldi og hafði
hagnað af. Greiðist sú sekt ekki
kemur fangelsi í 15 daga í hennar
stað. Upptækar voru gerðar 61
þúsund krónur og 100 belgískir
frankar, sem fundust við húsleitina
og efnið sem fannst við sömu leit
var einnig gert upptækt til eyðing-
með Norrænu ?
Sigling með Norrænu er ævintýri, sem allir ættu að láta eftir sér,
og frekar fyrr en síðar! Hvers vegna ekki að láta nú drauminn
rætast og drífa sig með Norrænu í sumar ?
Norræna siglir frá Seyðisfirði vikulega 4/6-1/9 til
nágrannalanda okkar, Færeyja, Danmerkur, Hjaltlands og
Noregs. Og nú bætist einn áfangastaður við, Skotland, með
gamla góða Smyrli, sem siglir frá Seyðisfirði til Aberdeen
og til baka frá Scrabster á norðurströnd Skotlands.
Norræna getur flutt 1050 farþega og 300 bíla.
Öll aðstaða um borð er eins og best verður á kosið. Lúxusklefar
með tvöföldu rúmi, tveggja manna klefar, fjögurra rnanna klefar
eða svefnpokapláss. Leikherbergi fyrir bömin, sólbaðsþilfar
og verslanir með mikið úrval af tollfrjálsum vamingi.
Fyrsta flokks veitingastaður og ágætur skyndibitastaður. i
Notalegur bar og næturklúbbur með lifandi tónlist fyrir nátthrafna.
Sigling meb Norrænu -
ævintýralegt sumarfrí.
NORRÆNA
FERÐASKRIFSTOFAN
Öll almenn farseblasala
Laugavegi 3, Rcykjuvík, sírni 91-626362 og Fjarðargötu 8, Seyðisfirði, sími 97-21111
NÝR DAGUR AUGL ÝSINGASTOFA