Morgunblaðið - 19.03.1992, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
25
Ráðstefna M. V. B. um íbúðarhúsnæði:
Forsjárhyggja hins
opinbera gagnrýnd
MIKIL gagnrýni kom fram á for-
sjárhyggju hins opinbera í hús-
næðismálum á ráðstefnu, sem
Meistara- og verktakasamband
byggingarmanna gekkst fyrir að
Hótel Loftleiðum s.l. þriðjudag.
Sagði Orn Isebarn, formaður
Meistarafélags húsasmiða, að
nánast á hverju ári væri reglum
Húsnæðisstjórnar breytt og að
minnsta kosti þrisvar á undan-
förnum 10 árum hefði verið um
stórvægilegar breytingar að
ræða og kerfinu nánast umsnúið.
Þetta hefði haft slæm áhrif á
alla starfsemi og áætlanagerð
byggingafyrirtækjanna. Ríkj-
andi húsnæðislánakerfi væri
andstætt einkaframtakinu og
með því væri nánast verið að ýta
fólki inn í félagslega húsnæði-
skerfið.
Ráðstefnan, sem bar yfirskriftina
íbúðarhúsnæði: Einkaeign - opinber
forsjá, var haldin vegna óvissunar,
sem nú ríkir á byggingamarkaðnum
og var ætluð byggingaraðilum íbúð-
arhúsnæðis á frjálsum markaði og
forráðamönnum fyrirtækja í hús-
byggingageiranum, fasteignasöl-
um, steypu- og efnisssölum, húsein-
ingaframleiðendum, iðnrekendum
auk ijölda annarra aðila.
Á fundinum kom fram að ástæð-
ur samdráttarins í þjóðfélaginu
væru ekki aðeins að finna í áföllum
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
í TILEFNI af 65 ára afmæli
Heimdallar, félags ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík, verður
Ráðstefna
um náttúru-
vernd
FÉLAG leiðsögumanna og Land-
varðafélag Islands efna til ráð-
stefnu laugardaginn 21. mars í
Odda húsnæði _ félagsvísinda-
deildar Háskóla Islands og verð-
ur þar fjallað um náttúruvernd
á íslandi og hlutverk landvarða
og leiðsögumanna. Ráðstefnan
hefst klukkan 14 og er áætlað
að hún standi fram til klukkan
18.
Á ráðstefnunni er gert ráð fyrir
að fulltrúar Ferðamálaráðs, Nátt-
úruverndarráðs og frá stjórnmála-
flokkunum sitji fyrir svörum um
framtíðarstefnu í náttúruvernd og
ferðamálum.
Morgunblaðið/Sverrir
Jóhanna Sigurðardóttir flytur
ávarp sitt á ráðstefnunni.
vegna ytri aðstæðna. Ríkisútgjöld
til bygginga á félagslegu íbúðarhús-
næði hefðu verið aukin til muna. Á
síðasta ári námu útlán úr Bygging-
arsjóði verkamanna til bygginga á
félagslegum íbúðum rúmum 5,2
milljörðum kr. og eftirspurn eftir
slíku húsnæði væri meiri en fram-
boð. Þetta hefði m. a. leitt til mik-
Davíð Scheving Thorsteinsson
framkvæmdastjóri.
efnt til afmælisfagnaðar laugar-
daginn 21. marz í Valhöll, Háa-
leitisbraut 1. Heiðursgestur
verður Davíð Oddsson formaður
Sjálfstæðisflokksins og forsætis-
ráðherra en veizlustjóri Davíð
Scheving Thorsteinsson fram-
kvæmdastjóri.
Fagnaðurinn byijar kl. 19.00
með fordrykk en síðan hefst borð-
hald. Eftir hátíðarkvöidverðinn
verður ýmislegt gert til skemmtun-
ar og meðal annars munu þingmenn
og borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins bregða á leik.
Afmælisfagnaðurinn verður op-
inn öllum fyrrverandi og núverandi
Heimdellingum sem og öðrum vel-
unnurum félagsins. Þá er hátíðin
tilvalin fyrir fyrrverandi stjórnar-
menn sem vilja hittast og rifja upp
liðna tíma.
Miðaverð er kr. 2.000 en kr.
1.500 fyrir skólafólk. Eftir hátíðar-
kvöldverðinn, kl. 22.30, verður hús-
ið opnað fyrir aðra en matargesti
og verður aðgangur þá ókeypis og
öllum heimill. Miða- og borðapant-
anir verða í Valhöll.
(Frétljitilkynning)
ils samdráttar í sölu á nýjum íbúð-
um, sem byggðar eru á ftjálsum
markaði.
Einar Kr. Guðfinnsson alþingis-'
maður sagði, að félagslega íbúða-
kerfið hefði skapað sjálfheldu úti á
landsbyggðinni, ekki vegna þess að
fólki væri auðveldað að eignast þak
yfir höfuðið heldur vegna þess að
þar væri öryggið fyrir því að geta
selt aftur sökum kaupskyldu sveit-
arfélaganna. Við endursöluna væri
upphaflegt kostnaðarverð fram-
reiknað að frádregnum afskriftum.
Með þessu væri ekki einungis búið
að koma á fót félagslegu kerfi til
að hjálpa fólki við að kaupa sér
húsnæði, heldur líka félagslegu
kerfi til þess að selja, á meðan
mjög erfitt væri að selja íbúðir á
ftjálsum markaði úti á landi.
Þórólfur Halldórsson, formaður
Félags fasteignasala, sagði vanda
byggingariðnaðarins nú vera fyrst
og fremst heimatilbúinn. Ríkjandi
viðhorf byggingarmanna væri að
halda áfram að byggja, hvað sem
öllum öllum markaðslögmálum liði.
Enginn hefði hvatt byggingariðnað-
inn til að byggja svo mikið, sem
raun ber vitni, hvorki einkaaðilar,
bankar né lánastofnanir og allra
sízt markaðurinn sjálfur.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra vísaði allri gagnrýni
á bug og varpaði fram þeirri spurn-
ingu, hvort hægt væri að tala hér
um velferðarþjóðfélag, þegar þeir
sem kröppust kjörin hafa, sæju
engar lausnir aðrar en að greiða
40.000-50.000 kr. af 60.000-
70.000 kr. launum í húsaleigu á
mánuði. í máli hennar kom fram,
að hún hyggst á næstunni leggja
fram frumvarp um húsaleigulög,
sem feli m. a. í sér jöfnun á hús-
næðiskostnaði láglaunafólks á leig-
umarkaði.
Talið væri, að um 14.000 íbúðir
væru á leigumarkaði, þar af nærri
3.000 íbúðir á vegum sveitarfélaga
og félagasamtaka. Sagði Jóhanna,
að stór hluti leigjenda væri lág-
launafólk og líkt og íbúðareigendur
fengju vaxtabætur, væri það mikið
réttlætismál að koma á jöfnun á
húsnæðiskostnaði þessa fólks.
Ráðherrann sagði ennfremur, að
núverandi framgangsmáti við und-
irbúning og framkvæmd bygginga
á félagslegum íbúðum fæli ekki í
sér nægilega hvatningu til að lækka
kostnað þessara íbúða og hægt
ætti að vera að ná fram töluverðum
sparnaði og betri nýtingu fjár-
magns. Þetta sæist m. a. þegar
skoðað er uppgjör Byggingarsjóðs
verkamanna vegna félagslegra
íbúða árin 1990-1991. Þar kæmi
t. d. fram töluverður munur á með-
alverði á fermetra á því húsnæði,
sem byggt var í Reykjavík og á
Suðurnesjum eða rúml. 13.000 kr.
Á árinu 1991 hefði byggingar-
kostnaður félagslegra fjölbýlishúsa-
íbúða verið frá 53.200 kr. á fer-
metra þar sem hann var lægstur
og upp í 92.200 kr., þar sem hann
var hæstur. Munur milli hæsta og
lægsta verðs væri því 73%, en sam-
svarandi hlutfali árið áður var enn
verra eða rúm 78%. Þessi mikli
verðmunur gæfi til kynna töluvert
svigrúm til að lækka kostnaðarverð
félagslegra íbúða.
Auk framangi-eindra fluttu erindi
á ráðstefnunni þeir Ragnar Önund-
arson, framkvæmdastjóri íslands-
banka, Yngvi Örn Kristinsson, for-
maður stjórnar Húsnæðisstofnunar
ríkisins, Þorlákur Helgason, var-
formaður Neytendafélags höfuð-
borgarsvæðisins og Guðmundur
Eiríksson, framkvæmdastjóri Loft-
orku Borgarnesi. Ráðstefnustjóri
var Hreinn Loftsson, aðstoðarmað-
ur forsætisráðherra.
65 ára afmælishátíð
Heimdallar á laugardag
HLBOÐ
VIKUNNAR
HAGKAUP
- allt í eintti ferö