Morgunblaðið - 19.03.1992, Síða 53
53
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
BIKARKEPPNIN / URSLITALEIKUR KARLA
Morgunblaðið/Sverrir
Hvor hefur betur I kvöld, John Rhodes eða Rondey Robinson.
Ráðast úrslitin
á vítalínunni?
Stefnir í einvígi Robinson og Rhodes
ÞEGAR tölulegar upplýsingar
um Hauka og Njarðvíkinga eru
skoðaðar kemur ýmislegt í Ijós
Ef árangur lykilmanna er bor-
inn saman er munurinn mestur
á vítalínunni, þar hafa Njarðvík-
ingar vinninginn og getur það
skipt sköpum í jöfnum leik.
Njarðvíkingar hafa betur í frá-
köstum. Fimm sterkustu
Njarðvíkingarnir hafa tekið 286
sóknarfráköst í vetur og 463 varn-
arfráköst, en hjá Haukum eru sömu
tölur 255 og 453. John Rhodes hjá
Haukum er með 18,7 fráköst að
meðaltali í leik en Ronday Robinson
hjá Njarðvíkingum hefur tekið 15,8.
Vítahittni leikmanna getur skipt
sköpum í jöfnum leik. Þeir fimm
Njarðvíkingar sem flest vítaskot
hafa tekið í vetur eru með 70,9%
hittni en hjá Haukunum er sam-
svarandi tala 68,5%. Rhodes hefur
ekki gengið vel á línunni, hefur
tekið 94 skot og hitt úr 36, sem
gerir 38,30% nýtingu. Robinson
hefur hins vegar skotið 126 sinnum
og hitt 79 sinnum, 62,70%.
Rhodes hefur hins vegar vinning-
inn hvað varðar skot innan teigs,
gerir að meðaltali 11,3 stig í leik
þaðan en Robinson 8,8. Haukar
hafa sjö leikmenn sem hafa gert
fleiri en 100 stig í vetur, alls 2.231
stig, en Njarðvíkingar eru með átta
slíka sem hafa gert 2.333 stig.
Langskyttur liðanna, Jón Arnar
Ingvarsson í Haukum og Teitur
Örlygsson í Njarðvík eru með mjög
svipaðan árangur í þriggja stiga
skotum. Jón Arnar með 143/65, eða
45,45% nýtingu. Teitur er með
147/61, eða 41,50% nýtingu.
Morgunblaðið/Sverrir
Tilbúnar í slaginn. Haukastúlkurnar Guðbjörg Norðfjörd og Sólveig Pálsdótt-
ir (til vinstri) togast á við Önnu Maríu Sveinsdóttur og Elínborgu Herbertsdótt-
ur frá Keflavík.
Stelpumar lofa
spennandi leik
BIKARÚRSLITALEIKUR kvenna
í körfuknattleik verður í Laug-
ardalshöllinni í dag og hefst
klukkan 18. Þar leika IBK, sem
hefur verið svo til ósigrandi í
kvennakörfunni undanfarin ár,
og Haukar. Liðin lofa skemmti-
legum og spennandi leik.
Stelpurnar eru tilbúnar í slaginn
og allar heilar. Það tala allir
um að Keflvíkingar séu sterkari en
við og ég get tekið undir það að
hluta,“ sagði Ingvar Jónsson þjálf-
ari kvennaliðs Hauka.
„Við ættum að geta unnið þrjá
leiki af tíu og það er á hreinu að
við erum ekki búin að tapa bikarúr-
slitaleiknum fyrr en mótheijar okk-
ar hafa unnið okkur," sagði Ingvar.
Hannes Ragnareson, formaður
körfuknattleiksdeildar ÍBK, sagðist
geta tekið undir með Ingvari um
að ÍBK væri með betra lið. „Stúlk-
urnar eru tilbúnar í leikinn og ætla
sér sigur. Við höfum leikið fjórum
sinnum til úrslita og unnið þrisvar.
Liðinu hefur gengið vel að undan-
förnu og við erum því bjartsýn á
kvöldið," sagði Hannes.
Þess má geta að liðin hafa leikið
fjóra leiki í vetur. Staðan er 2:2.
Keflavík hefur unnið tvo af þremur
leikjum í deildinni og Haukar einn
auk þess sem Haukar unnu ÍBK í
Reykjanesmótinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Fyrirliðar og þjálfarar liðanna við hinn glæsilega bikar sem DV gaf og nú
er keppt um í fimmta sinn. Frá vinstri eru Friðrik Rúnarsson, þjálfari UMFN,
Ástþór Ingason, fyrirliði UMFN, Henning Henningsson, fyrirliði Hauka og
Ólafur Rafnsson, þjálfari Hauka.
Vöm UMFN
geysisterk og
sóknarleikur.
Hauka öflugur
Bergur Steingrímsson og
Kristinn Óskarsson dæma
úrslitaleik karla. Dómarar á
kvennaleiknum verða Kristinn
Albertsson og Jón Otti Ólafsson.
Ingvar Jónsson Haukamaður
mun væntanlega fylgjast
með báðum bikarúrslitaleikjun-
um. Hann þjálfar kvennalið
Hauka og í karlaliðinu á hann
tvo syni, Jón Amar og Pétur.
Kefiavíkurdömur teljast lík-
legri til sigurs í kvenna-
leiknum þó ekki sé nema vegna
þess að þær unnu ÍS á leiðinni
í úrslitain. ÍS hefur komið mikið
við sögu í bikarnum undanfarin
ár og það lið sem leggur ÍS
hefur alltaf unnið, nema þegar
ÍS hefur orðið meistari.
Aldur leikmanna karlalið-
anna er ekki ósvipaður,
og óhætt er að fullyrða að þjálf-
ararnir eru ekki aldraðir. Friðrik
Rúnarsson er aðeins 23 ára og
trúlega yngsti þjálfari sem verið
hefur í bikarúrslitum. Ólafur
Rafnsson er 28 ára.
Rondey Robinson hjá Njarð-
vík er geysisterkur mið-
heiji. í vetur hefur hann gert
590 stig, 22,6 að meðaltali í
leik. Hann hefur tekið 413 frá-
köst, tekið 126 vítaskot og innan
teigs hefur hann skotið 335
skotum og hitt úr 229, sem ger-
ir 68,36% nýtingu.
Ingi Gunnarsson formaður
körfuknattleiksdeildar
UMFN hefur verið í eldlínunni
í 40 ár. Hann vonast eftir
skemmtilegum leik, leik sem
hægt er að tala um lengi, lengi.
Nike-umboðið, Austurbakki
hf., gefur verðlaun til
þeirra leikmanna úrslitaleikj-
anna sem útnefndir verða bestu
menn leikjanna. Það eru blaða-
menn sem velja bestu leikmenn
leikjanna.
Njarðvíkingar eiga mögu-
leika á að vinna tvöfalt í
ár, eins og árið 1987. Svo gæti
farið að sambýlisfólk fagni sigri
í kvöld. Friðrik Ragnarsson úr
UMFN og Svandís Gylfadóttir
úr ÍBK leika nefnilega bæði til
úrslita í kvöld.
BIKARURSLITALEIKUR Hauka
og Njarðvíkinga verður í Laug-
ardalshöll í dag og hefst klukk-
an 20. Búast má við skemmti-
legum og fjörugum leik því
Haukarnir hafa verið á mikilli
siglingu sfðari hluta vetrar og
um styrkleika Njarðvíkinga
þarf ekki að fjölyrða.
Samkvæmt öllu eðlilegu verða
Njarðvíkingar að teljast sig-
urstranlegri en í bikarkeppni, getur
allt gerst og aldrei hægt að bóka
neitt. Víst er að augu margra munu
beinast að miðherjum liðanna,
Rondey Robinson hjá Njarðvík og
John Rhodes hjá Haukum, en þeir
eru trúlega sterkustu erlendu mið-
heijarnir í körfunni.
„Við erum taldir með lakara lið
en þegar tölulegar upplýsingar um
liðin eru skoðaðar, og þá sérstak-
lega eftir áramótin, kemur margt
skemmtilegt í ljós,“ sagði Ólafur
Rafnsson, þjálfari Hauka. „Eftir
áramótin höfum við unnið 11 leiki
og tapað 6 og er það svipað og hjá
Njarðvíkingum. Við höfum gert 106
stig að meðaltali í leik og er það
meira en Njarðvíkingar hafa gert.
Vömin hjá þeim er hins vegar gríð-
arlega sterk og við þurfum að finna
leið til að sigrast á henni.“
Ingi Gunnarsson formaður körfu-
knattleiksdeildar UMFN sagðist
vonast eftir skemmtilegum leik þar
sem betra liðið færi með sigur. „Ég
vona bara að drengimir mínir skili
báðum titlunum heim,“ sagði Ingi.
Njarðvíkingar hafa fjómm sinn-
um orðið bikarmeistarar. Fyrst árið
1987 og síðan þrjú ár þar á eftir.
Haukarnir hafa hins vegar tvívegis
orðið bikarmeistarar, 1985 og 1986.
Leikir liðanna hafa oftast verið
skemmtilegir og spennandi og er
skemmst að minnast leiksins í
Njarðvík fyrr í vetur en þar fóra
heimamenn með sigur af hólmi,
92:90 í jöfnum leik.
Rútuferðir í Laugardalinn
Mikil stemmning er fýrir úr-
slitaleik Hauka og UMFN
og verða rútuferðir frá báðum bæj-
arfélögunum þannig að enginn ætti
að missa af leiknum þess vegna.
Heiðursgestir á leikjunum verða
bæjarstjórar þeirra þriggja bæja
sem hlut eiga að máli. Jóna Ósk
Guðjónsdóttir forseti bæjarstjórnar
Hafnarfjarðar verður fulltrúi bæjar-
ins í fjarveru Guðmundar Árna
Stefánssonar bæjarstóra en af Suð-
urnesjum koma Kristján Pálsson
úr Njarðvík og Ellert Éiríkssosn úr
Keflavík. Báðir eru þeir miklir
áhugamenn um körfuknattleik,
enda sjálfsagt vandfundir Suður-
nesjamenn sem ekki hafa áhuga á
körfuknattleik, og eru báðir fasta-
gestir á heimaleikjum sinna liða.
Fulltrúi þess bæjarfélags sem
tapar mun afhenda fyrirliða sigur-
liðsins bikarinn í lok leiks.
Weriólfur h(.
PantiS tímantega fyrir
Bila og hópa
24.-29. júní
Þau lið sem óska eftir að taka þátt í
SHELLMÓTI TÝS 1992, er verður haldið
i Vestmannaeyjum 24. júní til 29. júní n.k.
tilkynni þátttöku eigi síðar en 20. mars til:
Knattspyrnufélagið Týr
Pósthólf 395
902 Vestmannaeyjar
eða
Knattspyrnufétagið Týr
Símbréf: 98-12751
'U
1992
í þátttökutilkynningu skal koma fram
nafn félags, nafn þjálfara og símanúmer,
áætlaður fjöldi þátttakenda.
Einnig nafn, heimili og símanúmer
ábyrgðarmanns hópsins.
Allar nánari upplýsingar veitir
Ævar Þórisson, framkvæmdastjóri Týs
í síma 98-12861.
Þetta skip er í smiðum hjá skipasmíða-
stöðinni SIMEK A/S í Noregi.
Er væntanlegt til Eyja i júni 1992 og
þá upp ferðir milli lands og Eyja.