Morgunblaðið - 19.03.1992, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 19. MARZ 1992
HANDKNATTLEIKUR / B-KEPPNIN IAUSTURRIKI
Sigurður Sveinsson er bjartsýnn á leikinn í dag.
Ekki þrándur
í götu okkar
- segirSigurðurSveinsson, aldursforseti
íslenska landsliðsins, um Hollendinga
„VIÐ SÁUM leik Hollands og
Egyptalands á myndbandi rétt
áðan. Hollendingar eiga ekki
að vera þrándur í götu okkar
hér í Linz,“ sagði Sigurður
Sveinsson, aldursforseti ís-
lenska landsliðsins. „Við verð-
um að gefa allt sem við eigum
í leikinn og reyna að taka Hol-
lendinga á taugum i byrjun.
Hollendingar leika flata vörn, en
sóknarleikur þeirra er í ró-
legri kantinum. Þeir hanga mikið
með knöttinn. Við
þurfum að þétta
vörn okkar á miðj-
unni þar sem Hol-
lendingar eru með
hávaxna leikmenn, sem geta skotið
- flest mörk Hollendinga gegn
Egyptum komu með langskotum
fyrir utan miðjuna.
SigmundurÓ.
Steinarsson
skrifar
frá Linz
Við þurfum ekki að ná toppleik
til að leggja Hollendinga og Belga
að velli, en Norðmenn verða eflaust
erfiðari viðureignar. Við verðum að
vinna þá til að komast með fjögur
stig í milliriðilinn. Þegar við leikum
gegn þeim á að vera kominn ákveð-
in stígandi hjá okkur.
Þetta verkefni hér í Austurríki
leggst vei í mig. Við erum ákveðnir
að láta verkin tala og slá á þær
umræður sem hafa verið heima, en
margir hafa ekki trú á að við gerum
stóra hluti,“ sagði Sigurður Sveins-
son, sem hefur leikið í sautján ár
með landsliðinu. Hann lék sinn
fyrsta landsleik 17 ára, 1976, gegn
Dönum í Vestmannaeyjum. „Það
er alltaf jafn skemmtjlegt að taka
þátt í svona mótum. Ég mun leika
handknattleik eins lengi og heilsan
leyfir," sagði Sigurður.
Vonandi náum við
upp réttum dampi
- segir Þorbergur Aðalsteinsson, sem velur ekki liðið gegn Hol-
landi fyrr en Ijóst verður hvort Júlíus Jónasson kemst í tæka tíð
„ÞAÐ ER góð stemmning í
hópnum og við erum komnir
hingað til Austurríkis til að ná
einu af fjórum efstu sætunum
og tryggja okkur farseðilinn á
HM í Svíþjóð," sagði Þorbergur
Aðalsteinsson, landsliðsþjálf-
ari íslands. Fyrsti leikur ís-
lenska liðsins verður gegn Hol-
lendingum í dag. „Við eigum
að leggja Hollendinga að velli,
síðan verður hver leikur tekinn
fyrirsig.*1
Þorbergur sagði að það væri oft
erfitt að komast í gang. „Von-
andi náum við upp réttum dampi
gegn Hollendingum. Leikurinn
gegn þeim er aðeins fyrsta skrefíð
af mörgum sem verða tekin hér -
næst verða það Belgíumenn og síð-
an Norðmenn," sagði Þorbergur,
en hann mun ekki velja endanlegt
lið fyrir leikinn gegn Hollandi fyrr
en séð verður hvort Júlíus Jónasson
kemst í tæka tíð frá Spáni.
„Það er ljóst að Guðmundur
Hrafnkelsson og Bergsveinn Berg-
sveinsson verða i markinu. Valdi-
mar Grímsson og Bjarki Sigurðsson
verða hægri hornamenn og Sigurð-
ur Sveinsson og Kristján Arason
fyrir utan hægra megin.
Konráð Olavson verður í vinstra
horninu og Birgir Sigurðsson og
Geir Sveinsson á línunni, en síðan
er óljóst hveijir verða fyrir utan
vinstra megin, eða þá sem leik-
stjórnendur. Ef Júlíus kemur ekki
verða Héðinn Gilsson og Sigurður
Bjarnason fyrir utan hægra megin
og þá yrði einn leikmaður í hlut-
verki leikstjórnanda, líklega Gunnar
Gunnarsson," sagði Þorbergur.
Kristján Arason kemur til með
að leika mest i vörninni og vera
lykilmaður í að útfæra hraðaupp-
hlaup. „Kristján er ekki orðinn það
góður að hann geti beitt sér af full-
um krafti í sókninni, en hann er
allur að koma til,“ sagði Þorbergur.
Héðinn Gilsson snéri sig á ökkla
vinstri fótar á æfingu í gærmorg-
un, en hann snéri sig einnig á sama
ökkla fyrir þremur vikum. „Þetta
er ekki það slæmt að ég geti ekki
leikið. Okklinn verður „teipaður“
fyrir leikinn," sagði Héðinn.
■ JANUSZ Czerwinski, sem var
landsliðsþjálfari íslands í B-keppn-
inni í Austurríki 1977, er einnig
hér núna. Hann er formaður pólska
handknattleikssambandsins og að-
alfararstjóri liðsins.
■ FYRIRKOMULAGIÐ í B-
keppninni breytist þegar Evrópu-
keppni landsliða verður tekin upp
haustið 1993. „Það er stórkostleg
breyting. Þá förum við að leika al-
vöruleiki heima og heiman,“ sagði
Þorbergur.
■ BOGDAN Kowalczyk, sem
þjálfaði landsliðið áðuren Þorberg-
ur tók við því, er einnig hér í Aust-
urríki. Hann er þjálfari í Inns-
bruck.
■ REIKNAÐ er með að um 500
áhorfendur verði á leikjum í A-riðl-
inum hér í Linz, en um 700 í B-riðl-
inum í Salzborg. Aðgöngumiði á
tvo leiki kostar kr. 600, en að-
göngumiði á alla þrjá leikdagana
kostar kr. 1.500.
■ ÍÞRÓTTAHÖLLIN í Vín, þar
sem úrslitaleikurinn fer fram, tekur
6.000 áhorfendur. Það er ekki
reiknað með svo mörgum áhorfend-
um og það þó svo að Austurríkis-
menn leiki til úrslita.
■ TÍU fermetra rauð auglýsing
er á miðju gólfinu í íþróttahöllin
þar sem Islendingar leika. Þegar
leikmenn sáu auglýsinguna varð
Kristjáni Arasyni að orði: „Nú,
það verður þá ekkert sjónvarpað
heim.“
■ LANDSLIÐ ísraels á að vera
vel samæft. Það eru hvorki fleiri
né færri en tólf leikmenn af sextán
frá sama félaginu - Rision Lezion.
■ LEIKMENN verða lyfjapróf-
aðir í B-keppninni og fer einn úr
hveiju liði í próf eftir hvern leik.
■ ISLENSKA fékk óvænt æfingu
í íþróttahúsi barnaskóla í gærmorg-
un. Menn voru drifnir úr morgun-
mat og á æfingu. Frí var gefið í
skólanum á meðan og krakkarnir
'horfðu á, og höfðu gaman af.
■ BJARNI Felixson var ánægður
þegar hann kíkti á æfingu hjá liðinu
í gær, því Konráð Olavson var í
KR-búningi.
■ NOKKRIR íslendingar komu
hingað í gær til að fylgjast með
íslenska liðinu. Ekki var það þó
breiðfylking, því _út úr langferða-
bílnum stigu 11 íslendingar.
■ ÞAÐ verða dómarar frá Aust-
urríki sem dæma leik Islands og
Hollands í dag.
Allt er þegar
þrennt er!
Góður árangur landsliðsins
í keppni í Alpalöndunum
1986: B-keppni í Sviss
Þjálfari: Bogdan Kowalczyk
1992: B-keppni í Austurríki
Þjálfari: Þorbergur Aóalsteinsson*
1978: HM í Danmörku
1988: OL í Seoul
1993: HM í Svíþjóð ??
'Þorbergur lék með landsliðinu í B-keppninni bæði í Austum'ki 1977 og í Sviss 1986
Gott klifur í Ölpunum
íslenska landsliðinu hefur alltaf gengið vel í mótum í Alpalöndunum Austur-
ríki og Sviss. Það er eins og snjórinn, kuldinn og fjallalofið hafi góð áhrif á
íslenska handknattleiksmenn. 1977 varð íslenska liðið í fjórða sæti í B-keppninni
í Austurríki og tryggði sér rétt til að leika í heimsmeistarakeþpninni í Dan-
mörku árið eftir. 1986 hafnaði íslenska liðið í sjötta sæti í heimsmeistarakeppn-
inni í Sviss og tryggði sér rétt til að leika á Ólympíuleikunum í Seoul 1988. Allt
er þegar þrennt er. Nú er íslenska liðið í Austurríki að beijast um rétt til að
taka þátt í heimsmeistarakeppninni í Svíþjóð 1993.
Förum í úrslK
- segir Kandija þjálfari Austurríkismanna
Austurríkismenn eru bjartsýnir
á gengi sinna manna í B-
keppninni. Þeir ætla sér farseðilinn
til Svíþjóðar, þar sem heimsmeist-
arakeppnin fer fram 1993.
„Við höfum undirbúið okkur vel
og ætlum að standa uppi sem sigur-
vegarar,“ sagði Vinko Kandija,
þjálfari Austurríkismanna.
„Ég hef trú á að við leikum um
fyrsta sætið gegn Islendingum, sem
eru með öflugt lið. Það sýndu þeir
hér á móti á dögunum, en þá lögðu
þeir okkur að velli, 23:14, í úrslita-
leik. Hollendingar eru einnig með
sterkt lið og til alls líklegir. Við
beijumst líklega við Svisslendinga
um að leika úrslitaleikinn, en ég
spái því að Austurríki, ísland, Sviss
og Holland verði í fjórum efstu
sætunum hér í B-keppninni.“
Austurríkismenn, sem leika í
D-riðli ásamt Finnum, Bandaríkja-
mönnum og Japönum, léku æfinga-
leiki gegn Króatíu um sl. helgi og
unnu örugglega, 29:22, og töpuðu
síðan 24:20.
Austurríkismenn eru taldir sigur-
stranglegastir í D-riðli, en ekki má
afskrifa Finna með þá Jan Rönne-
berg, sem leikur á Spáni, og Mika-
el Kallmann, sem leikur með
Wallan-Massenheim í Þýskalandi.
Danir eru taldir sigurstrangleg-
astir í B-riðli, en leik þeirra stjórnar
gamla kempan Erik Veje Rasmuss-
en.
Svisslendingar eru taldir sigur-
stranglegastir í C-riðli og íslending-
ar í A-riðli.
Fyrstu leikirnir fara fram í dag,
en þá leika:
A-Riðill: fsland - Holland, Noregur - -
Belgía.
B-riðill: Pólland - ísrael, Danmörk - -
Egyptaland.
C-riðill: Sviss - Búlgaría, Argent-
ína - Kína.
D-riðill: Finnland - Bandaríkin,
Japan - Austurríki.