Morgunblaðið - 05.05.1992, Side 15

Morgunblaðið - 05.05.1992, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1992 15 Ekið var á þrjú hross TVENNT slasaðist þegar ekið var á þrjú hross og þau særð til ólífis á Suðurlandvegi, skammt ofan við borgina aðfaranótt 1. maí. Ekið var á hesta konu sem hafði tvo til reiðar við Lögbergs- brekku. Konan slapp ómeidd en annar hesturinn drapst sam- stundis en hinn varð að aflífa. Konan mun hafa verið ölvuð að sögn lögreglu og var hún færð á lögreglustöð. Farþegi úr bíln- um sem ók á hrossin ætlaði sjálf- ur á slysadeild vegna minnihátt- ar áverka. Við Gunnarshólma varð hross fyrir bíl og drapst. Flytja varð far- þega úr bílnum sem ók á það á slysadeild með sjúkrabifreið. í báðum fyrrgreindum tilvikum urðu bílarnir óökufærir. -----♦ ♦ ♦ Húsavík: Nýr vígslubisk- up til áramóta SR. SIGURÐUR Guðmundsson vígslubiskup mun þjóna Húsavik- urprestakalli fram til áramóta í forföllum sr. Sighvats Karlsson- ar, sem fer í námsleyfi til Banda- ríkjanna í rúmt ár. Akveðið hefur verið að sr. Björn H. Jónsson, sem áður þjónaði á Húsavík, taki við um áramótin og verði þar til sr. Sighvatur kemur heim frá námi. Að sögn hr. Ólafs Skúlasonar biskups, mun sr. Sig- hvatur kynna sér störf sjúkrahúss- prests við háskólann í Minnapolis í Minnisota. Reiðhjól hvarf LÍTIÐ bleikt og hvítt Barbie-stúlkn- areiðhjól með hjálpardekkjum hvarf frá Laugarnesveg 48 eða þar í grennd á sunnudag á tímabilinu frá klukkan 14.30 til klukkan 18.30. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta gefíð um hvarf hjólsins eru vinsamlegast beðnir að hafa sam- band í síma 687028. Safnahúsið er safnahús Ódýr og spennandi lúxusferð til Tælands fyrir aðeins 99.900 kr. eftirÞórarin Eldjárn Merkilegt er það hvað íslending- um er illa við að opinberar bygg- ingar séu reistar beint og milliliða- laust til sinna nota. Hvenær sem uppi eru ráðagerðir um slíkt rís alda mótmæla um gervallt þjóð- félagið: Seðlabankinn átti aldrei að fá 'að reisa sér bankahús, Ríkis- útvarpið skyldi aldrei komast í út- varphús. Hitaveitan mátti ekki reisa sér sitt mónúment af því að það var frá upphafi hugsað sem slíkt, ekki átti Reykjavíkurborg að fá að leyfa sér þá ósvinnu að byggja sér ráðhús. Og allir ættu að vita hvernig gengið hefur að koma upp Þjóðarbókhlöðunni, enda var hún teiknuð sem Þjóðarbók- hlaða. Standi hins vegar til að þreyta húsi sem fyrir er, ríkir ánægjan ein. Ef ákveðið er að gera ís- hús/danshús/brunarústir/ að lista- safni, bíó að óperu, vélsmiðju að leiklistarskóla, banka að dómhúsi, mjólkurstöð að skjalasafni, pylsu- gerð að listaháskóla — og þannig mætti lengi telja — þá fagnar allur almenningur og fer viður- kenningarorðum um ráðdeildar- semi og nýtni stjórnvalda, og eng- inn hugleiðir það, að iðulega verða slíkar breytingar jafnvel kostnað- arsamari en nýbygging, auk þess sem útkoman verður af eðlilegum ástæðum mjög oft í skötulíki bæði hvað útlit og notagildi húsanna varðar. Eg kann ekki skýringu á þess- ari einkennilegu áráttu, en kannski Verö miöast viö einstakling I tveggia manna herbergi. 1250 kr. flugvallarskattur er ekki innifalinn í veröi. er þetta arfur frá liðinni tíð, þegar í fá hús var að venda, frá þeim tíma þegar fangelsi varð Stjórnar- ráð. í ljósi þessa ber að fagna því, að ríkisstjórnin skuli nú nýverið afdráttarlaust hafa hafnað einni slíkri fyrirhugaðri hústöku. Hæsti- réttur hefur lengi búið þröngt og þarf nýtt hús. Og þá var eins og við manninn mælt, menn vildu endilega hrifsa hús Landsbóka- safnsins, Safnahúsið við Hverfis- götu og nauðga því í nýtt hlut- verk. Þessu hefur ríkisstjórnin góðu heilli vísað á bug og ákveðið að reist skuli nýtt hús gagngert með þarfir Hæstaréttar í huga. Framtíð Safnahússins er þó enn í óvissu. Þórarinn Eldjárn Nú er tækifæriö til aö hverfa á vit framandi menn- ingar og ævintýra í Tæiandi. Royai Cliff hóteliö er dval- arstaöur sem er þekktur fyrir þægindi og glæsileika. Fjögur ár í röö hefur hóteliö veriö kosiö besti hótelstaður- inn í allri suö-austur Asíu. Hvergi er auðveldara að lifa í vellystingum en einmitt þarna. Á hótelsvæðinu er t.d. aö finna sundlaugar, fjóra 18 holu golfvelli, glæsilegar versl- anir, spennandi námskeiö í tælenskri matargerð auk bestu þjónustu og aðbúnaðar sem hægt er aö hugsa sér. Stutt er í iðandi mannlífið á Pattaya ströndinni og aðeins tveggja tíma akstur til Bangkok. SAS býður ferö og lúxus- dvöl á Royal Cliff hótelinu í tvær vikur á aðeins 99.900 kr. Tekið er á móti farþegum á flugvellinum í Bangkok við komu ef óskað er og ekið aftur við brottför. Láttu draumaferðina til Tælands verða aö veruleika - það er mögulegt meö SAS! Hafðu samband við SAS eöa feröaskrifstofuna þína. /////SÆr SAS á íslandi - valfrelsi í flugi! Safnahúsið er eitt fegursta hús landsins, ein af örfáum opinberum byggingum hér á landi þar sem upprunalegt andrúmsloft hefur varðveist. Lestrarsalur Landsbóka- safnsins er helgidómur. Húsið er og á að vera Safnahús, ætlað fyrir bókasafn og sýningar og aðra skylda menningarstarfsemi. Dómstofnanir, ráðuneyti, há embætti og samkvæmishald eiga þangað ekkert erindi, ekkert frekar en bankar, diskótek, sólbaðsstofur eða myndbandaleigur. Þessi grein er rituð til að hvetja alla, jafnt stjórnvöld sem almenn- ing, til að taka undir hugmyndir sem fram hafa komið um að Stofn- un Arna Magnússonar og e.t.v. ýmis smærri sérsöfn fái inni í Safnahúsinu þegar (og ef) smíði Þjóðarbókhlöðunnar lýkur. Höfundur er rithöfundur. Færíbönd - færíbanémímr Allt til viÖgerða á færiböndum Gott verð G. Pálmason, Súðarvogi 9, sími 685099, fax 685456.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.