Morgunblaðið - 05.05.1992, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1992
EVROPSKA VINNUVERNDARARIÐ 1992-1993:
Vinnuvemd á íslandi
eftir Eyjólf
Sæmundsson
Vorið 1991 ákvað Evrópuband-
alagið að tímabilið frá mars 1992
til febrúar 1993 skyldi helgað
vinnuvernd í aðildarlöndunum og
nefnt „Evrópskt vinnuverndarár".
Síðar var ákveðið að EFTA-ríkin
(Austurríki, Finnland, ísland, Lic-
htenstein, Noregur, Sviss og Sví-
þjóð) héldu einnig vinnuverndarár.
Af þessu tilefni er í þessari grein
reynt að gera í stuttu máli grein
fyrir þróun og stöðu vinnuverndar
á íslandi og setja hana í alþjóðlegt
samhengi.
Hvað er vinnuvernd?
Með hugtakinu vinnuvernd er
átt við viðleitni til að koma í veg
fyrir vinnuslys og atvinnusjúk-
dóma og stuðla að góðri líðan
starfsmanna á vinnustöðum. Sem
dæmi um viðfangsefni má nefna
hvers kyns slysavarnir á vinnu-
stöðum, varnir gegn heyrnar-
skerðingu vegna meðhöndlunar
hættulegra efna við vinnu. Góður
aðbúnaður starfsmanna er einnig
mikilvægur þáttur vinnuverndar.
Á undanförnum árum hefur at-
hyglin beinst mjög að tíðum sjúk-
<1?
Vinnuvernd
í verki
dómum í stoð- og hreyfikerfi lík-
amans, en röng beiting líkamans
við vinnu og óheppilegar vinnuað-
stæður eru taldar meðal áhættu-
þátta slíkra sjúkdóma. Athyglin
hefur einnig beinst í vaxandi
mæli að sálrænum og félagslegum
þáttum í vinnustað sem geta haft
mikil áhrif á líðan manna. Á því
sviði skipta samskipti stjórnenda
og starfsmanna einna mestu máli.
Löggjöf um vinnuvernd
Lög um eftirlit með vélum og
verksmiðjum munu vera fyrstu
íslensku rammalögin um vinnu-
vernd. Þau voru sett árið 1928 og
tóku gildi 1. júní 1929. Áður höfðu
verið sett lög um einstök atriði
(hin umdeildu „vökulög" 1922) og
einnig voru ákvæði sem lutu að
vinnuvernd í öðrum lögum (t.d.
hjúalögum frá 1866). Lögin frá
1928 voru endurskoðuð með lög-
um um öryggisráðstafanir á vinn-
ustöðum sem tóku gildi 1952, en
einnig komu inn ákvæði um vinnu-
vernd í löggjöf um heilbrigðismál,
t.d. í lög um heilbrigðiseftirlit og
hollustuhætti 1969.
Vorið 1980 voru sett lög um
aðbúnað, hollustuhætti og öryggi
á vinnustöðum og tóku þau gildi
1. janúar 1981. Þau leystu af hólmi
flest eldri lagaákvæði og eru í
daglegu tali þeirra sem um þessi
mál fjalla nefnd „Vinnuverndar-
lögin“. Sjómenn og flugáhafnir eru
þó undanskildar í þessum lögum,
en ákvæði um vinnuvernd þessara
stétta er að finna í öðrum lögum.
Lögin frá 1980 eru að flestu leyti
hliðstæð þeim lögum sem gilda á
hinum Norðurlöndunum.
Vinnuvernd á alþjóðavettvangi
ísland er aðili að Alþjóðavinnu-
málaskrifstofunni (ILO) í Genf, en
hún er ein af sérstofnunum Sam-
einuðu þjóðanna. Vinnuvernd er
eitt af mikilvægustu viðfangsefn-
um þeirrar stofnunar og á vegum
hennar hafa verið gerðar allmarg-
ar alþjóðasamþykktir um þessi
mál. Vorið 1991 samþykkti Al-
þingi að fuligilda tvær þeirra, þ.e.
JACOBS
freiíJtandi
renna
Ekki bam tekex
beldur JACOB'S . ; '
r
tekex. 1
Eyjólfur Sæmundsson
„Vinnuslys og atvinnu-
sjúkdómar leiða til
mannlegrar þjáningar
sem allir eru sammála
um að forðast beri með
tiltækum ráðum.“
nr. 155 um öryggi og heilbrigði
við vinnu og nr. 139 um varnir
gegn krabbameinsmyndandi efn-
um á vinnustöðum. Annars hafa
íslendingar staðfest fremur fáar
samþykktir ILO enn sem komið er.
ísland hefur staðfest félagsmál-
asáttmála Evrópu, en í honum er
að finna ákvæði um vinnuvernd
sem skuldbinda aðildarþjóðirnar
til að gera vissar ráðstafanir til
að vernda verkafólk gegn vinnu-
slysum og atvinnusjúkdómum.
Evrópubandalagið hefur unnið
talsvert mikið starf í vinnuvernd-
armálum og reyndar gefið út fleiri
tilskipanir um þau mál en nokkurt
annað svið félags-og heilbrigðis-
mála. Hreinar vinnuverndartil-
skipanir eru nú 16 talsins og
nokkrar eru í smíðum. í þeim flest-
um eru sett lágmarksákvæði um
forvarnir gegn vinnuslysum og
atvinnusjúkdómum, en einstökum
löndum er heimilt að gera strang-
ari kröfur. Auk þessa hefur EB
gefið út tilskipanir um öi-yggi véla
og tækja sem notuð eru á vinnu-
stöðum og um flokkun og merk-
ingu varasamra efna. Hundruðir
staðla sem varða þessi mál hafa
verið samdir eða eru í smíðum.
Ákvörðun EB um sérstakt vinnu-
verndarár er reyndar til marks um
áhei'Slu bandaiagsins á vinnu-
vernd. Hitt er ljóst að verulega
skortir á að farið sé eftir tilskipun-
um þessum í öllum aðildarlöndun-
um, einkum í löndum Suður-Evr-
ópu.
Staða vinnuverndar á Islandi
Ekki er svigrúm til þess að gera
í þessari grein úttekt á stöðu
vinnuverndar á íslandi. í fjöltnörg-
um fyrirtækjum er búið vel að
starfsmönnum, en ljóst er þó að
við stöndum nokkuð að baki þeim
sem lengst eru komnir í þessum
málum. Þetta gildir t.d. um fyrir-
byggjandi starfsmannaheilsu-
vernd sem er umfangsmikill þáttur
vinnuvemdar á hinum Norður-
löndunum og víða í Evrópu og
Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Innra starf að þessum málum er
einnig minna í fyriitækjum hér á
landi en t.d. hjá grönnum okkar á
Norðurlöndum.
Takmarkaðar rannsóknir hafa
verið gerðar á tíðni vinnuslysa og
atvinnusjúkdóma hér á landi.
Áætlað hefur verið að vinnuslys
sem koma til meðferðar á sjúkra-
húsum og heilsugæslustöðvum séu
að minnsta kosti 12.000 á ári
hveiju. Lítið er vitað um tíðni at-
vinnusjúkdóma nema helst heyrn-
E4 EGGERT KRISTJANSSON H/F SIMI 685300
eftir Laufeyju
Steingrímsdóttur
Það er af sem áður var þegar
nýmjólk, súrmjólk, skyr og tjómi
voru nánast einu mjólkurvörurnar
í verslunum landsins, að ógleymd-
um ostinum með rauðu skorpunni.
Nú er fjölbreytnin orðin slík að
margir þekkja vart allar þær vörur
sem fylla mjólkurkæla stórmarkað-
anna. Þar er þykkmjólk og létt-
mjólk, biomjólk og AB-mjólk,
engjaþykkni og eðaljógúrt, léttjóg-
úrt og þykkjógúrt, svo eitthvað sé
nefnt. Listinn er langur og vörurnar
hver annarri bragðbetri svo ekki
ætti að vera erfitt að finna eitthvað
við hæfi hvers-og eins. Vandinn er
aðeins að kunna að velja.
Því er ekki að neita að eftir því
sem fjölbreytnin eykst á matvöru-
markaðnum verður sífellt vanda-
samara og flóknara að velja rétt í
matarkörfuna. í stað þess að ganga
rakleitt að einni gamalkunnri teg-
und þarf neytandinn að gera upp á
milli ljölda vörutegunda sem oft
virðast fremur sambærilegar en
hafa þó við nánari athugun gjör-
ólíkt hollustugildi.
Það sem öðru fremur gerir gæfu-
muninn hvað varðar hollustu mjólk-
urvara er fitumagn þeirra. Mjólkin
er eins og allir vita mikill og góður
næringargjafi, ekki síst vegna kalks
og B-vítamína. En hún er líka feit
Af léttum vör-
um og þykkum
„Þær fituskertu mjólk-
urvörur sem nú eru á
boðstólum gera okkur
kleift að njóta hollustu
mjólkurinnar án þess
að fæðið verði óhóflega
feitt. Léttmjólk og sýrð
léttmjólk eru þannig
frábærar hollustuvörur
sem nú þegar hafa haft
veruleg áhrif til að
minnka fituneyslu hér
á landi.“
og orkurík, enda ætluð ungviði í
örum vexti. Þær fituskertu mjólkur-
vörur sem nú eru á boðstólum gera
okkur kleift að njóta hollustu mjólk-
urinnar án þess að fæðið verði óhóf-
lega feitt. Léttmjólk og sýrð létt-
mjólk eru þannig frábærar hollustu-
vörur sem nú þegar hafa haft veru-
leg áhrif til að minnka fituneyslu
hér á landi.
En nýjungarnar eru ekki allar í
hollustuátt. Rjóminn sem til fellur
við Iéttmjólkurframleiðsluna virðist
nú hafna í fjölbreyttu úrvali sýrðra
mjólkurvara, til dæmis þykkmjólk,
þykkjógúrt og nú síðast engja-
þykkni. Þessar vörur eru allar
blandaðar tjóma þótt í mismiklum