Morgunblaðið - 05.05.1992, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 05.05.1992, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992 Fornám við Háskóla íslands: Líst á margan hátt vel á hugmyndina - segir Sveinbjöm Björnsson háskólarektor Uppástunga Páls Skúlasonar, prófessors, um að taka upp fyrsta árs nám í Háskóla íslands, sem veiti almenna þjálfun fyrir störf í tæknivæddu upplýsingaþjóðfélagi, verður rædd í þróunarnefnd Há- skólans. Ef hún mælir með að tillagan verði að veruleika er ekki ólíklegt að svo verði raunin en í fyrsta lagi haustið 1993, að sögn Sveinbjarnar Björnssonar háskólarektors. Sveinbjörn sagði að sér litist á margan hátt vel á hugmynd Páls. Hún væri ein að þeim hugmyndum sem nú væru á kreiki um hvernig best væri að haga hlutum í byrjun náms. Sjálfur sagði hann að sér fyndist jákvætt að nemendur fengju þarna ákveðinn undirbúning en kennarar hefðu oft haft orð á því að við upphaf náms væru nemendur ekki nógu vel að sér í rökfræði, aðferðarfræði og gagnrýninni hugs- un. ÁTVR hættir fram- leiðslu áfengis: Óskað eftir kauptilboð- um í tæki, vöruheiti og uppskriftir ÁFENGIS- og tóbaksverslun rík- isins hættir framleiðslu flestra tegunda áfengra drykkja 30. júní nk. og hefur verið óskað eftir kauptilboðum í tæki sem notuð hafa verið við framleiðsluna, vöruheiti og uppskriftir að Brennivíni, Oðalsbrennivíni, Hvannarótarbrennivíni, Gömlu brennivíni, Kláravíni, Tindavodka og Dillons gini. Að sögn Höskuldar Jónssonar, forstjóra Á.T.V.R., var ákveðið að bjóða framleiðsluna út þar sem óeðli- legt þykir að fyrirtækið s'é með fram- leiðslu á sínum vegum eftir að einka- aðilum hefur verið heimiluð fram- leiðsla áfengis. „Þetta er meðal annars stutt þeirri staðreynd að við höfum einkaleyfi á dreifingu áfengis og núverandi framleiðendur áfengis kynnu að halda að þeir nytu verri söiumeðferð- ar hjá okkur ef við værum samhliða að selja okkar eigin vöru,“ segir Höskuldur. Þá segir hann að eftir að Eldurís framleiðslan hætti hafi framleiðslu- magnið dregist saman og nýmæli þyrftu að koma til í framleiðslunni svo hægt yrði að halda sama fram- leiðslukostnaði og verið hefur. Höskuldur segir að minjagripir eins og Hekluglóð og Merkurdögg verði framleiddir áfram. íslenskt brennivín hefur verið framleitt hjá ÁTVR í 57 ár og segir Höskuldur að það sé með vissum söknuði sem fyrirtækið skilji við þá framleiðslu. Hins vegar nefndi hann að hug- myndin hefði fengið á sig þá gagn- rýni að hún gæti orðið til að lengja námstíma háskólastúdenta en nú væri meira verið að hugsa um að gera sérhæfinguna að eins konar vali. Nemendur myndu velja hvort þeir færu beint í fagnám eða fyrst í eins árs námið. „Mér fínnst að sá möguleiki kæmi til greina,“ sagði Sveinbjörn, „að bjóða upp á námið í byijun fyrir þá sem væru ekki vissir hvað þeir ætluðu sér að gera eða þá sem vildu treysta sig með þessum hætti. Líka er hugsanlegt að í sumum greinum vildu menn taka námið sem eðlilegan hluta af almennri menntun. Það væri þá í þeim náms- brautum þar sem menn væru ekki beinlínis í starfsþjálfun heldur að verða sér út um almenna menntun t.d. innan heimspekideildar og fé- lagsvísindadeildar. Og þar myndi árið ekki vera hugsað sem fornám heldur byijun á menntun.“ Hann sagði að sumir hefðu haft á orði að það ætti að gera þá kröfu til stúdentanna að þeir væru komnir með þessa þjálfun þegar þeir hæfu nám. „Önnur hugmynd sem hefur verið dálítið á lofti hér er að láta nemendur, um leið og þeir taka stúdentsprófið, taka könnunarpróf sem reyndi á rökfimi, ályktunr- hæfni og almenna námsgetu án þess að verið væri að prófa beint fagþekkingu," sagði Sveinbjörn og benti á að slíkt próf gæti verið vís- bending fyrir Háskólann ásamt stúdentsprófi. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Það var vetrarlegt um að litast á Akureyri síðast í apríl þó hita- stig væri yfir meðallagi þennan mánuð. Veður; Aprílmánuður ná- lægt meðallagi FÓLK bíður nú með óþreyju eftir sumri og eflaust hefur mörg- um fundist aprílmánuður í kaldara lagi. Engu að síður var veðr- áttan nálægt meðallagi að flestu leyti. Þó gerði óvenju mikið hvassviðri við suðurströndina í kringum sumardaginn fyrsta. Meðalhiti í Reykjavík var 0,3 eyri (24 mm). Á Hveravöllum var úrkoma í tæpu meðaltali (47 mm) en í Hjarðarnesi var rúmlega meðalúrkoma á þeim slóðum (104 mm). í Reykjavík voru 147 sólskins- stundir í aprílmánuði en 71 stund á Akureyri sem er hið minnsta frá 1956. Á Hveravöllum mæld- ust 105 sólskinsstundir. gráður undir meðallagi eða 2,6 gráður og hefur ekki verið hlýrra í höfuðborginni frá þvi vorið 1986. Á Akureyri var meðalhiti aftur á móti 0,3 gráður yfir með- allagi eða 1,9 gráður. Á Hvera- völlum var meðalhiti -3,8 gráður en _2,7 gráður á Hjarðarnesi. Urkoma var undir meðallagi í Reykjavík (38 mm) og á Akur- Vöruskiptajöfn- uðurinn; Hagstæður um hálfan milljarð í febrúar Vöruskiptajöfnuðurinn í febrúar var hagstæður um hálf- an milljarð króna en í sama mánuði í fyrra var hann óhag- stæður um 0,4 milljarða króna á föstu gengi. Út voru fluttar vörur fyrir 6,7 milljarða en inn fyrir 6,2 milljarða króna að því er fram kemur í frétt frá Hag- stofu íslands. Fyrstu tvo mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 11,5 milljarða en inn fyrir 11,6 millj- arða. Vöruskiptajöfnuðurinn var því óhagstæður um 0,1 milljarð króna en sama tímabil í fyrra var hann óhagstæður um 0,6 milljarða. Verðmæti alls vöruútflutnings- ins var 0,4% minna á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávaraf- urðir voru 77% alls útflutningsins og voru 1% meiri en á sama tíma í fyrra. Útflutningur var 5% minni og útflutningur kísiljárns var 13% meiri en á síðasta ári. Útflutnings- verðmæti annarrar vöru var 8% minna fyrstu tvo mánuði síðasta árs. Verðmæti vöruinnflutningsins fyrstu tvo mánuði ársins var 4% minna en á sama tíma í fyrra. Verðmæti innflutnings til stóriðju var 1% meira en í fyrra og verð- mæti olíuinnflutnings fyrstu tvo mánuði ársins var 10% meira en á sama tíma í fyrra reiknað á föstu gengi. Þessir innflutningsliðir ásamt innflutningi sérstakrar fjár- festingai’vöru svo sem skipa og flugvéla eru breytilegir frá einum tíma til annars, en þegar þeir eru frátaldir þá reyndist allur innflutn- ingur hafa verið 6% minni en í fyrra. Samningur Tannlæknafélagsins og Tryggingastofnunar: Reykvísk skólaböm greiða minna en böm úti á landi SKÓLABÖRN á aldrinum 6-15 ára sem búa utan Reykjavíkur, þar sem ekki er völ á skólatann- lækningum, munu eftir 1. maí þurfa að greiða meira fyrir tannlækningar en börn í Reykja- vík sem geta notfært sér skóla- tannlækningar. Reykvísk börn þurfa aftur á móti að greiða meira fyrir tannlæknaþjónustu hjá einkatannlæknum en börn utan Reykjavíkur, skv. samningi Tannlæknafélags íslands og Tryggingastofnunar um gjald- skrár vegna endurgreiðslna sjúkratrygginga, sem tekur gildi 1. maí. Samningurinn er byggður á breytingum á greiðsluþátttöku almannatrygg- inga sem gerðar voru með lög- um um ráðstafanir í ríkisfjár- málum í vetur, en með þeim var stefnt að því að draga úr þátt- töku almannatrygginga í tann- lækningum annarra en skóla- tannlækninga, en þær eru nú eingöngu starfræktar í Reykja- vík. Samningurinn, sem var undirrit- aður 15. apríl, hefur verið sam- Vestmannaeyjar: Óbreyttar tölur um atvinnuleysi ATVINNULEYSI í Vestmannaeyjum var svipað í apríl og tvo mánuð- ina á undan. Þannig höfðu 114 látið skrá sig atvinnulausa fyrir síðustu helgi og 89 voru enn atvinnulausir, 46 karlar og 43 konur. í febrúar og mars skráðu 128 og 124 sig atvinnulausa hvorn mán- uð en samsvarandi tölur fyrir síðasta ár voru 79 í febrúar, 33 í mars og 24 í apríl. Stærstur hluti þeirra sem skráðu atvinnuleysisskrá, 10 vöru- og sig atvinnulausa í aþríl var verka- sendubílstjórar og 6 verslunar- fólk, eða 27, 19 sjómenn voru á menn, svo stærstu hóparnir séu nefndir. Að sögn Kristínar Jónu Guðjóns- dóttur hjá Vinnumiðlun Vest- mannaeyja hefur atvinnuleysi ekki aukist merkjanlega eftir lok vetr- arvertíðar. Þó hafa nokkrir loðnu- sjómenn skráð sig atvinnulausa og lausamenn í loðnubræðslunum. þykktur í Tryggingaráði og á fé- lagsfundi Tannlæknafélagsins sem fram fór sl. þriðjudag. Skv. samningnum hækkar gjaldskrá sem tekur til allra tann- lækninga sem Tryggingastofnun tekur þátt í, nema vegna skóla- tannlækninga og tannréttinga, um 0,16%. Einnig eru gerðar tilfærslur á einstökum þáttum sem fela m.a. í sér að forvarnarliðir vegna flúor- meðferðar og skorufyllinga lækka um 20% en tannfyllingar hækka hins vegar um 10%. Auk þeirrar gjaldskrár sem sam- ið var um mun heilbrigðisráðherra setja sérstaka gjaldskrá vegna skólatannlækninga, skv. upplýs- ingum Jóns Sæmundar Sigur- jónssonar, deildarstjóra í heilbrigð- isráðuneytinu. Tannlæknafélagið og Tryggingastöfnun sömdu um að gjaldskrá heilbrigðisráðherra yrði 20% lægri en almenna gjald- skráin. Þetta þýðir að börn sem fara í skólatannlækningar í Reykjavík fá endurgreiddan 85% kostnaðarins miðað við gjaldskrá ráðherra. Reykvísk börn sem fara til einkatannlækna þurfa að greiða 15% af gjaldskrá ráðherra og auk þess mismuninn sem á vantar til að tannlæknirinn fái sína gjaldskrá að fullu greidda. Börn utan Reykjavíkur, sem eiga ekki mögu- leika á skólatannlækningum, greiða 15% af almennu gjald- skránni sem Tryggingastofnun samdi um við Tannlæknafélagið. Skoðun, flúorpenslun, skorufyll- ing og röntgengreining vegna tannskoðunar verður ókeypis, hvort sem er hjá einkatannlækni eða skólatannlækni. Að sögn Kristjáns Guðjónsson- ar, deildarstjóra í Tryggingastofn- un, nær samningurinn ekki til greiðslna vegna tannréttinga og þarf ráðherra væntanlega að setja sérstaka gjaldskrá um endur- greiðslur vegna þeirra,- að sögn hans. Það nýmæli er í samningnum að Tryggingastofnun getur ákveð- ið hversu stóran hlut sérfræðiálags tryggingarnar endurgreiða, en í samningnum er samið um að sér- fræðingar megi leggja allt að 32% á þá liði sem þeir eru sérfræðingar í. Launahluti gjaldskrárinnar mun hækka í samræmi við hugsanlegar launahækkanir sem verða í samn- ingum BHMR og ríkisins. Samn- ingurinn gildir til 15 mánaða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.