Morgunblaðið - 05.05.1992, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992
27
Reuter
Skæruliðaforinginn Gulbuddin Hekmatyar á tali við einn manna sinna
í Logar-dal suður af Kabúl. Hann hefur hótað að ráðast gegn borg-
inni verði ekki orðið við ýmsum kröfum hans.
Afganistan:
Atök við skæru-
liða Hekmatyars
Kabúl. Reuter.
Búrma:
Friðarverðlaunahafinn
hittir eiginmann sinn
Bangkok. Reuter.
MICHAEL Aris, eiginmaður Aung San Suu Kyi, friðarverðlauna-
hafa Nóbels 1991, heimsótti konu sína í fyrsta sinn í nærri tvö ár
í Rangoon um síðustu helgi. Aung San Suu Kyi var leiðtogi helsta
andstöðuflokksins í Búrma, Lýðræðisfylkingarinnar, sem vann yfir-
burðarsigur í allsherjarkosningum 1990. Herforingjastjórnin í
Búrma, sem neitar að leggja niður völd, hefur haldið Aung San
Suu Kyi í stofufangelsi frá því 1989.
LIÐSMENN skæruliðaforingj-
ans Gulbuddins Hekmatyars létu
eldflaugum rigna yfir Kabúl,
höfuðborg Afganistans, í gær
og felldu að minnsta kosti 13
manns og særðu 77. Svöruðu
hermenn nýju valdhafanna í
Kabúl árásinni með mikill fall-
byssuskothríð en Hekmatyar
hafði hótað að ráðast á borgina
nema orðið yrði við ýmsum kröf-
um hans, meðal annars að sumar
sveitir núverandi sljórnar verði
fluttir á brott.
Najibullah Mojadidi, sem sæti á
í öryggisráðinu í Kabúl og bróðir
Sibghatullah Mojadidi, leiðtoga
bráðabirgðastjórnarinnar, sagði, að
yfirvöld hefðu neyðst til að veija
hendur sínar gegn skæruliðum
Hekmatyars. Við hann hefði verið
reynt að semja en hann hefði svar-
að sáttaumleitunum með skothríð.
Var boðað til skyndifundar í örygg-
isráði borgarinnar í gær og þá haft
eftir Ahmad Shah Masood, varnar-
málaráðherra og einum mesta vald-
amanni í Afganistan nú, að verið
væri að ræða ástandið og til hvaða
ráða ætti að grípa.
Tveimur ráðherrum í fyrri ríkis-
stjóm var rænt um helgina og
fannst lík annars þeirra, fyrrum
dómsmálaráðherra, á sunnudag.
Ekkert er vitað um hinn, Wadier
Safie, fyrrum flugmálaráðherra, en
fjölskylda hans telur, að hann sé
enn á lífi. Hafa mannránin vakið
ótta við frekari hefndaraðgerðir
gegn embættismönnum fyrrverandi
stjórnar.
Aris, sem tók við friðarverðlaun-
unum fyrir hönd eiginkonu sinnar
í Ósló 1991, fékk síðast leyfi til
að hitta hana í Búrma 1989. Fjöl-
skyldan hefur ekki haft samband
við hana síðan um mitt ár 1990.
Orðrómur hefur reglulega komist
á kreik um að hún eigi við heilsu-
brest að stríða.
Herforingjastjórnin í Búrma
liefur mildast nokkuð í afstöðu
sinni til stjórnarandstæðinga frá
því að Than Shwe herforingi tók
við völdum af harðlínumanninum
Saw Maung í apríl sl. í tilkynningu
frá stjórninni sagði að Aris og
tveimur sonum þeirra hjóna væri
heimilt að heimsækja Aung San
Suu Kyi og eiga þar „fjölskyldu-
fund“. Synirnir voru ekki í för með
Aris. í tiikynningu herforingja-
stjórnarinnar sagði ennfremur að
hún myndi láta lausa alla pólitíska
fanga nema þá sem taldir væru
ógna þjóðaröryggi. Síðan þessi
yfirlýsing var gefin hafa 58 póli-
tískir fangar verið leystir úr haldi,
þar á meðal margir • áhrifamenn
innan Lýðræðisfylkingarinnar og
persónulegir aðstoðarmenn Aung
San Suu Kyi. Hins vegar var ekk-
ert minnst á framtíð hennar í yfir-
lýsingu stjórnarinnar. Stjórnar-
erindrekar og mannréttinda-
frömuðir telja að mörg þúsund
stjórnarandstæðingar séu í fang-
elsum landsins og pyntingar séu
þar daglegt brauð.
Herforingjastjórnin hefur lýst
því yfir að því aðeins verði Aung
San Suu Kyi leyst úr haldi að hún
láti af stjórnmálaafskiptum og fari
úr landi. Sumir stjórnarerindrekar
telja að herforingjastjórnin vonist
til þess að Aris fái eiginkonu sína
til að flytjast úr landi.
Bardagar í
Egyptalandi
ÞRETTÁN manns biðu bana og
fimm særðust í bardögum milli
múslima og kristinna manna í
Egyptalandi í gær. Bardagarnir
blossuðu upp eftir að tvær íjöl-
skyldur í þorpinu Manshiet Nass-
er í Assiut-héraði tóku að deila
um kaup á húsi. Skotvopnum var
beitt í átökunum og yfirvöld sök-
uðu „öfgamenn" um að hafa kynt
undir úlfúð milli íjölskyldnanna.
12 dæmdir til
dauða í Alsír
HERRÉTTUR í Alsír kvað í gær
upp dauðadóma yfir tólf heittrú-
uðum múslimum, félögum í
íslömsku hjálpræðisfylkingunni,
sem hefur verið bönnuð. Þeir
voru sakfelldir fyrir árás á landa-
mæravarðstöð þar sem þrír verð-
ir voru drepnir. Ráðgert er að
50 múslimar til viðbótar verði
dregnir fyrir rétt síðar, meðal
annars fyrir samsæri og undir-
róður gegn ríkinu, stofnun vopn-
aðra sveita og stuld á vopnum
er óeirðir blossuðu upp á meðal
múslima fyrr á árinu.
Nýr yfirmað-
ur NATO
í Evrópu
BANDARÍSKI hershöfðinginn
John Shalikashvili hefur verið
skipaður eftirmaður John Galvins
sem yfirmaður herja Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, í Evrópu.
Fær hann það erfiða verk ásamt
öðrum að endurskilgreina
hernaðarhlutverk bandalagsins í
álfunni að kalda stríðinu loknu
og á tímum mikils niðurskurðar
í útgjöldum til varnarmála. Shal-
ikashvili er fæddur í Varsjá fyrir
55 árum og var móðir hans pólsk
en faðir hans Georgíumaður.
Talar hann pólsku og þýsku reip-
rennandi.
Lið Jeltsíns tapaði
Borís Jeltsín Rússlandsforseti, sem er vanur að ná sínu fram í rússneska þinginu og innan ríkisstjórnarinnar,
varð að játa sig sigraðan er knattspyrnulið ríkisstjórnarinnar beið lægri hlut í leik gegn borgarráði Moskvu-
borgar á laugardag. Lið stjórnarinnar, sem Jeltsín stjórnaði af hliðarlínunni, tapaði með einu marki gegn engu
að viðstöddum 3.000 áhorfendum á Luzhniki-leikvanginum í Moskvu. Áhorfendur skemmtu sér konunglega
við að sjá frammámenn borgarinnar, sem margir hvetjir hafa komið sér upp myndarlegri ístru, velta um koll
og rekast hver á annan í kapphlaupi utn knöttinn. Garríj Kasparov, heimsmeistari í skák og þingmaður í
Rússlandi, lék í liði Rússlands. „Skák er mun auðveldari en fótbolti," sagði hann andstuttur að leik loknum.
PUmn> SKÓR - GÆÐASKÓR Á GÆÐAVERÐI
Teg. 6310 Raider Low. Sterkir leðurskór
Litur: Hvítt/svart. Staerðir: 36-45.
Verð kr. 4.980,-
Teg. 2019 Mercuny. Joggingskór
m/riflás. Litur: Grátt/blátt.
Stærðir: 41-47. Verð kr. 3.190,-
Teg. 5519 King Junior. Gervigrasskór
Litur: Svart/hvitt. Stærðir: 28-39.
Verð kr. 3.165,-
Teg. 2053 Lady Trinomic. Topp hlaupa-
skór m/dempara i hæl. Litur: Hvítt/bleikt.
Stærðir: 37-42. Verð kr. 5.790,-
Teg. 5309 King Junior. Fótboltaskór
Litur: svart/hvítt. Stærðir: 28-39.
Verð kr. 2.980,-
—^
Teg. 1910 Mirage. Joggingskór Teg. 1903 Skipper. Joggingskór Litur: Ljósgrátt/lilla. Stærðir: 36-47. m/riflás. Litur: Ljósgrátt/bleikt/lilla.
Teg. 4333 Max Q Hicut. Uppháir leður-
skór. Litur: Hvítt/bleikt. Stærðir: 37-42.
Verð kr. 5.780,-
Teg. 6330 Raider Hi. Uppháir leðurskór
Utur: Hvitt/svart. Stærðir: 36-47.
Verð kr. 5.290,-
Teg. 6331 Unlimited High. Uppháir leður- Verð kr. 2.480,-
skór. Litur: Svart/hvítt. Stærðir: 39-46.
Verð kr. 5.290,-
Stærðir: 28-41. Verð kr. 2.195,-
»hu(!srnel^
Sendum I póstkröfu, símar 813555 og 813655. Opið laugard. frá kl. 10-14 sportbúðin
ÁRMÚLA 40 • símar 813555 og 813655.