Morgunblaðið - 05.05.1992, Side 28

Morgunblaðið - 05.05.1992, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992 29 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Flaraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal- stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar- gjald 1200 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 110 kr. eintakið. Undirritun EES- samninga Með undirritun samning- anna um Evrópska efna- hagssvæðið í Portúgal sl. laug- ardag verða ákveðin kaflaskil. Hingað til hafa þessir samning- ar verið umræðuefni embættis- manna og ráðherra og þá fyrst og fremst á erlendri grund. Nú hefjast umræður um samning- ana eins og þeir liggja fyrir í hveq'u aðildarríki EFTA og þ.á m. hér heima. Framundan eru mjög annasamir mánuðir á Alþingi, sem væntanlega mun starfa að töluverðu leyti í sum- ar við að fara yfír samningana og fylgiskjöl og leggja mat á kosti og galla þeirra frá hags- munasjónarmiði okkar Islend- inga. Þótt skipulegar umræður hafi ekki farið fram hingað til um þessa samningagerð liggja allir helztu efnisþættir samn- inganna fyrir. Ljóst er, að brýn- ustu hagsmunir íslendinga eru vel tryggðir með þessum samn- ingum. Frá sjónarhóli þeirra, sem telja aðild að Evrópubanda- laginu ekki henta okkur íslend- ingum hljóta þessir samningar að teljast góður kostur. Miklar umræður urðu um samningana á miðstjórnarfundi Framsókn- arfiokksins um helgina. Niður- staða miðstjómarfundarins er vísbending um, að Framsóknar- flokkurinn hallist fremur að því að styðja samningana. Þessa ályktun verður að draga af þeim fyrirvömm, sem settir eru í ályktun fundarins. Efnislega eru þeir ekki þess eðlis, að þeir komi í veg fyrir stuðning flokksins við samningana. Ekki fer á milli mála, að töluverður skoðanamunur er innan flokks- ins um málið og þess vegna er það sérstakt fagnaðarefni, að forystumenn Framsóknar- flokksins sýnast hafa beitt sér til þess að milda þá andstöðu, sem fyrir hendi er. Afstaða Alþýðubandalagsins virðist vera neikvæðari, en þó segir Ólafur Ragnar Grímsson, formaður flokksins í samtali við Morgunblaðið í dag, að endan- leg afstaða hafa ekki verið tek- in. Þetta mál hlýtur að vera mikið umhugsunarefni fyrir Alþýðubandalagsmenn. Þátt- taka okkar í þessari samninga- gerð hófst í tíð fyrri ríkisstjórn- ar, sem Alþýðubandalagið átti aðild að og flokkurinn stóð að því á þeim tíma, að við yrðum aðilar að samningaviðræðum um Evrópska efnahagssvæðið. Ætla mætti, að Alþýðubanda- lagið teldi samningana kær- komið tækifæri fyrir flokkinn til þess að snúa baki við fortíð- inni og taka í eitt skipti í bráð- um hálfa öld þátt í jákvæðri afgreiðslu samninga á alþjóða- vettvangi, sem skipta máli fyrir okkur Islendinga. Hingað til hefur Alþýðubandalagið lagst gegn öllum helztu alþjóðasamn- ingum, sem við höfum gert og fengin reynsla sýnir að hafa reynzt þjóðinni til farsældar. Ef Alþýðubandalagið fórnar þessu tækifæri er það staðfest- ing á því, að í grundvallaratrið- um hefur engin sú breyting orðið á flokknum, sem orð er á gerandi. Með andstöðu við þessa samningagerð mundi Al- þýðubandalagið dæma sig enn einu sinni úr leik. Þingmenn Alþýðubandalags- ins ættu að taka sér fyrir hend- ur að lesa ræður þingmanna flokksins frá því að umræður fóru fram á Alþingi um aðild íslands að EFTA fyrir rúmurp tveimur áratugum eða umræð- ur um samningana, sem gerðir voru í Ósló 1976 um lyktir land- helgisdeilunnar við Breta til þess að rifja upp hve röng af- staða flokksins hefur verið í meginmálum á sviði utanríkis- mála. Það er líka ástæða til að benda á, að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið er öruggasta leiðin til þess að koma í veg fyrir, að hér hefjist hatrammar deilur um það, hvort ísland eigi að sækja um aðild að EB eins og aðrar Norð- urlandaþjóðir eða ekki. Hefur Alþýðubandalagið sérstakan áhuga á slíkum umræðum eða að það mál komist á dagskrá yfirleitt? Nú^erandi formaður Alþýðubandalagsins hefur haft ákveðinn metnað til þess að færa flokkinn inn í nútímann, ef svo má að orði komast. Hér er tækifærið og eftir því verður tekið, hvernig Alþýðubandalag- ið bregzt við. Hin pólitíska vígstaða í EES- umræðunum er að færast í þann farveg, að innan stjórnar- flokkanna verði nokkuð almenn samstaða um að samþykkja samningana og innan Fram- sóknarflokksins er verulegt fylgi við samningana. Búast má við, að eftir því sein umræð- ur um samningana verða meiri, eflist fylgi almennings við aðild okkar að hinu Evrópska efna- hagssvæði. Með aðild að því t-ryggjurc1 við þá hagsmuni gagnvart Evrópuþjóðunum, sem máli skipta. Samningur um Evrópska efnahagssvæðið undirritaður í Portúgal: Hafið er viðamesta og mikilvægasta efnahags- samstarf í heiminum Utanríkisráðherrar við undirritun samningsins í Portúgal á laugardag, frá vinstri: Hans Dietrich Genscher, Þýskalandi, Konstantin Mitsotakis, Grikklandi, Francisco Oronez, Spáni, Roland Dumas, Frakklandi, og Gianni di Michelis, Italíu. „EES-samningurinn, sem skapa mun Hið evrópska efnahagssvæði og marka upphaf nýs fyrirkomu- lags í Evrópu, var undirritaður í Óportó í dag, 2. maí 1992. Hafið er viðamesta og mikilvægasta efna- hagssamstarf í heiminum. Grunnur nýrrar Evrópu er byggist á friði, lýðræði og mannréttindum," segir í formála sameiginlegrar yfirlýs- ingar ráðherra EFTA-ríkja, Evr- ópubandalagsins og aðildarríkja þess sem gefin var út í Portúgal á laugardag að undirritun lokinni. Undirritunin fór fram við formlega athöfn í Óportó að viðstöddum Cavavo Silva forsætisráðherra Portúgals og forseta EB-ráðsins. Við sama tæki- færi voru einnig undirritaðir eftirtald- ir samningar: Erindaskipti um tvíhliða samninga milli EB og Austurríkis, Finnlands, íslands, Noregs, Svíþjóðar og Sviss um landbúnað. Erindaskipti um tvíhliða samninga um sjávarút- vegsmál milli EB og Islands, Noregs og Svíþjóðar. Tvíhliða samningar við Austurríki og Sviss um gegnumflutn- inga á vegum. Þessu til viðbótar sam- þykktu fulltrúar aðildarríkja banda- lagsins og EFTA-ríkjanna tvær yfir- lýsingar um einföldun landamæraeft- irlits og pólitískt samráð. Fyrir hönd íslands undirrituðu Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra og Hannes Hafstein sendiherra, fastafulltrúi íslands hjá EB, samning- inn. Jón Baldvin er formaður EFTA- ráðsins og í ávarpi við athöfnina þakk- aði hann samningamönnum EB og ráðherrum fyrir samstarfið, eins og hann gerði á fundi EFTA-ráðherranna fyrr um daginn. Hann sagði að nú myndu EFTA-ráðherrarnir gefa þjóð- um sínum og þingum lokaskýrslu sem gæti verið í tveimur orðum: Verkinu lokið. „Með tilkomu Evrópska efnahags- svæðisins hefst nýr kafli í samskiptum Evrópubandalagsins og aðildarríkja þess og EFTA-ríkjanna, samtímis því sem það er mikilvægur þáttur í ný- sköpun Evrópu,“ segir í yfírlýsingunni sem gefin var út að undirrituninni lokinni. Þar segir einnig: „Evrópska efnahagssvæðinu er ætl- að að vera nýr drifkraftur í samskipt- um Evrópubandalagsins og EFTA- ríkjanna, sem þegar voru nánari en gengur og gerist um samskipti ríkja. Samskipti ríkjanna byggjast á land- fræðilegri nálægð, mikilvægi efna- hagssamskipta, sameiginlegu gildis- mati þeirra um mikilvægi Iýðræðis og markaðshagkerfisins, auk samkennd- ar þeirra sem Evrópubúa. Við tilkomu Evrópska efnahags- svæðisins mun Evrópubandalagið og aðildarríki þess og EFTA-ríkin verða stærsta og mikilvægasta efnahags- svæði í heimi. Það nær til nítján ríkja og gerir tæplega 380 milljónum borg- urum álfunnar kleift, með auknu sam- starfi, að öðlast betri lífskjör og hafa aukin áhrif á alþjóðavettvangi, sér- staklega í Evrópu. Markmið samningsins um Evrópskt efnahagssvæði er að koma á umfangs- miklu og samræmdu fyrirkomulagi, sem byggt er á sameiginlegum reglum og jöfnum samkeppnisskilyrðum og sem býr yfir nauðsynlegum leiðum, þ.m.t. lagalegum, til að framfylgja þeim. Það byggist á jafnræði, gagn- kvæmni og heildaijafnvægi hags- muna, réttindum og skyldum samningsaðila. Samningurinn tryggir fijáisa flutninga vöru, fjármagns, fólks og þjónustu innan EES-svæðis- ins (hið svonefnda fjórfrelsi) á grund- velli núgildandi gerða Evrópubanda- lagsins („acquis communautaire"), sem mótast hafa á undanförnum þijá- tíu árum, með nokkrum undanþágum og aðlögunartíma í vissum tilvikum. a) Frjáls vöruviðskipti: Tii við- bótar algjöru afnámi tolla á iðnaðar- vörum, sem náðist með fríverslunar- samningunum 1972, hefur samning- urinn í för með sér afnám næstum allra annarra hindrana í vöruviðskipt- um. Sérstaklega er mikils virði að nefna: bann við magntakmörkunum og öðrum aðgerðum, sem hafa sömu áhrif, bættar upprunareglur með því markmiði að koma á „EES-uppruna“, hindrun mismununar af hálfu ein- okunarfyrirtækja, mismununar milli fyrirtækja og einstaklinga innan EES og skilyrða til vöruframleiðslu- og markaðssetningar. Ekki má grípa til undirboðstolla innan EES, tæknilegar viðskiptahindranir verða afnumdar, landamæraeftirlit einfaldað sem og eftirlit með vöruviðskiptum. Komið verður á einum markaði um opinber útboð og greitt fyrir viðskipti með unnar landbúnaðarafurðir. b) Fijálsir flutningar fólks: EES opnar iaunþegum og sjálfstætt starf- andi fólki nýja möguleika. Engin mismunun verður leyfð á grundvelli þjóðernis við ráðningu, þóknun eða önnur starfsskilyrði. Ríkisborgurum EES-ríkja verður fijálst að flytja milli landa og leita sér að vinnu hvar sem er á svæðinu. Hvað varðar almanna- tryggingar verður öllu launafólki, óháð því frá hvaða EES-ríki það kem- ur, gert kleift að njóta almannatrygg- inga á jafnréttisgrundvelli. Réttur til staðfestu er sérstaklega viðurkenndur í samningnum, þ.e. að einstaklingur og fyrirtæki frá hvaða EES-ríki sem er hefur rétt til að stofn- setja fyrirtæki, umboðsskrifstofur, útibú o.s.frv. og vera sjálfstætt starf- andi hvar sem er innan EES. Prófskír- teini og aðrar viðurkenningar munu gilda jafnt hvar sem er á efnahags- svæðinu og nemendur verða hvattir til að stunda nám, hljóta þjáifun og taka þátt í rannsóknum utan heima- lands síns. Ákvæði samningsins um frjálsa flutninga fólks mun þ.a.l. gera ríkis- borgurum EES kleift að færa sér í nyt það tækifæri að geta sinnt flestöll- um störfum á jafnréttisgrundvelli hvar sem er innan EES-svæðisins. c) Fijáls þjónustuviðskipti: EES- samningurinn tryggir að heimilað verður að bjóða fram þjónustu hvar sem er innan svæðisins. Ríkin sem undirrituðu samninginn hafa skuld- bundið sig til að mismuna ekki ein- staklingum eða fyrirtækjum frá öðr- um ríkjum innan EES. Hvað varðar íjármagnsþjónustu sérstaklega er grundvallarreglan sú að „eitt starfsleyfi" nægi fyrir lána- stofnanir á öllu EES og grundvallar- reglan um „heimastjórn" gerir heima- ríkið ábyrgt fyrir því að fylgjast með starfsemi lánastofnana frá sínu ríki hvar sem þær hafa starfsemi sína innan EES. Samningurinn nær einnig til verð- bréfaviðskipta og svo að vernda megi hagsmuni þeirra sem fjárfesta felur hann í sér strangar reglur um lág- marksijárhæð og upplýsingaskyldu fyrirtækja sem skráð eru á opinberu verðbréfaþingi. Samningurinn nær einnig til trygg- inga, þ.m.t. líftrygginga, annarra trygginga og bílatrygginga. Samningurinn felur einnig í sér ákvæði um fjarskipti og sjónvarps- og upplýsingaþjónustu. Ákvæði eru um að samgöngur skulu byggðar á gagnkvæmni og gagn- kvæmum markaðsaðgangi samnings- aðila. Aukið frelsi í þjónustu á sviði samgangna verður á marghliða grundvelli, og tæknileg ákvæði og vinnuskilyrði verða samræmd. Ákvæðin ná tii allra samgangna, jafnt innanlands, sem í lofti og á sjó. Sér- stakir tvíhliða samningar hafa verið gerðir við Austurríki og Sviss um flutninga á vegum. Tilgangurinn með þessum samningi er að efla samstarf samningsaðila í að hvetja til aukinna flutninga með lestum og til þess að tengja samgöngukerfi lesta og vöru- flutningabíla til að vernda umhverfið og almannaheill á sama tíma og mark- aðsaðgangur er bættur. í þessu sam- hengi hafa samningsaðilar skilgreint fjölda flutningsleyfa. d) Frjálsar hreyfingar fjár- magns: Samningurinn gerir ráð fyrir umfangsmiklum ramma fyrir ljár- magnshreyfíngar, beinar og óbeinar fjárfestingar milli landa, lánastarf- semi milli landa o.fl., án mismununar vegna þjóðernis. Samningurinn gerir ekki aðeins ráð fyrir afnámi gjaldeyr- iseftirlits sem hefur bein áhrif á íjár- magnshreyfmgar, heldur einnig af- námi annarra óbeinna hindrana. Einn- ig á þessu sviði munu landslög um íjármagnshrejrfingar gilda jafnt um aðila með erlent ríkisfang en eru bú- settir í landinu, sem og ríkisborgara. ísland og Noregur geta haldið eigin löggjöf er varðar Ijárfestingu og stað- festurétt í sjávarútvegi. Samkeppnisreglur án mismununar eru eitt af höfuðmarkmiðum EES- samningsins. Þessu markmiði verður náð með því að fella inn í samkomu- lagið þær reglur er gilda í Evrópu- bandalaginu og með því að EFTA-rík- in setji á fót skilvirkt eftirlit, svipað eftirliti Evrópubandalagsins. Þ.e. EFTA-eftirlitsstofnun sem ber ábyrgð á því að EES-reglur taki gildi innan EFTA og EFTA-dómstól sem tryggi dómseftirlit. Með tvíhliða samningum náðist samkomulag í landbúnaði og sjávar- útvegi sem miðar að því að auka við- skipti innan EES. Með þróunarákvæði er varðar land- búnað skuldbinda samningsaðilar sig tl að auka fijálsræði á þessu sviði í áföngum, að því er varðar innlenda löggjöf með tilliti til niðurstaðna Ur- úgvæ-lotunnar í GATT. Tvíhliða ráð- stafanir verða gerðar til að auka við- skipti með ákveðna vöruflokka (ost, ávexti, grænmetissafa, áfengi, kjöt og garðyrkjuafurðir). I því augnamiði að draga úr efnahagslegri og félags- legri mismunun (jöfnunarákvæði til handa Miðjarðarhafslöndunum og ír- landi), verður ýtt undir markaðssetn- ingu ýmissa afurða frá vanþróaðri héruðum Evrópubandalagsins í EFTA-ríkjunum. Samningurinn inni- heldur jafnframt ákvæði sem ætlað er að draga eins mikið og mögulegt er úr tæknilegum hindrunum í við- skiptum með landbúnaðarafurðir, sem stafa af mismunandi reglugerðum um heilbrigði dýra og plantna. Viðskipti með sjávarafurðir innan EES verða smám saman færð í ftjáls- ræðisátt. Við gildistöku samningsins munu EFTA-ríkin afnema alla tolla á innfluttar sjávarafurðir frá Evrópu- bandalaginu. Evrópubandalagið mun fyrir sína parta ýmist fella niður, eða lækka í áföngum, tolla á innfluttar sjávarafurðir frá EFTA-ríkjunum, að undanskildum nokkrum viðkvæmum tegundum. Að því er varðar aðgang að auðlind- um, veita Noregur og Svíþjóð Evrópu- bandalaginu auknar veiðiheimildir. Tvíhliða samningur íslands og Evr- ópubandalagsins gerir ráð fyrir gagn- kvæmum skiptum á veiðiheimildum. Auk ijórfrelsisins gerir EES-samn- ingurinn jafnframt ráð fyrir víðtækri samvinnu svo sem: - Á sviðum er snerta samkeppn- ishæfni fyrirtækja, að hluta að minnsta kosti, og sem tengjast beint fullgjörð íjórfrelsisins. Hér er um al- tæk málefni að ræða og tiltekur samn- ingurinn sérstaklega félagsmál, neyt- endavemd, umhverfismál, tölfræði og fyrirtækjalöggjöf. - Jaðarmálefni Evrópubandalags- ins, þar sem gert er ráð fyrir þátttöku EFTA-ríkja í rammaáætlunum, verk- efnum og öðrum aðgerðum Evrópu- bandalagsins á sviði rannsókna og tækniþróunar, menntunar og þjálfun- ar, æskulýðsmála, málefna sem tengj- ast umhverfisvemd, félagsmála og neytendaverndar, lítilla og meðal- stórra fyrirtækja, ferðamannaþjón- ustu, hljóðvarps og sjónvarps og al- mannavama. EFTA-ríkin hafa samþykkt til við- bótar við það fyrirkomulag sem þegar hefur verið samþykkt í landbúnaði og sjávarútvegi að setja á stofn sjóð, sem veitir Portúgal, írlandi, Grikklandi og tilteknum héruðum Spánar §ár- hagsstuðning á fimm ára tímabili, í því augnamiði að draga úr efnahags- legu og félagslegu ójafnvægi milli svæða. Um er að ræða lán með lágum vöxtum að upphæð 1.500 millj. ECU og styrki að upphæð 500 millj. ECU. Samningurinn miðar að því að tryggja einsleitni þeirra reglna er gilda á svæðinu án þess að draga úr sjálfstæði samningsaðila til að taka ákvörðun. Hann gerir því ráð fyrir stöðugu upplýsingaflæði og samráði samningsaðila á öllum stigum undir- búnings lagasetningar Evrópubanda- lagsins, í því markmiði að auðvelda samræmda túlkun ákvæða. Loks inni- heldur samningurinn reglur um eftir- lit og fullnustu (og eins og áður hefur verið minnst á stofnun sjálfstæðrar eftirlitsstofnunar EFTA og EFTA- dómstóls) og sérstakar reglur til að setja niður ágreining, þ.m.t. beitingu öryggisákvæða sem lokaúrræði og gerðardóm snúist deilur ekki um túlk- un atriða er efnislega samrýmast gerðum Evrópubandalagsins. Stofnanir EES-samningsins eru eftirfarandi: - EES-ráðið. Æðsta stofnun EES- samningsins verður EES-ráð sem samanstendur af fulltrúum EB-ráðs- ins og framkvæmdastjórnar EB og einum fulltrúa frá hverri ríkisstjórn EFTA-ríkjanna. Hlutverk ráðsins verður að móta pólitíska stefnu í fram- kvæmd samningsins og leggja línurn- ar fyrir sameiginlegu nefndina. - Sameiginlega EES-nefndin. í henni munu eiga sæti fulltrúar samn- ingsaðila og er hlutverk hennar í fyrsta lagi að vera vettvangur fyrir skoðanaskipti og skipti á upplýsing- um, í öðru lagi að taka ákvarðanir (sér í lagi þær sem varða samþykkt nýrra gerða) og stjórnun framkvæmd- ar samningsins. í þriðja lagi er hlut- verk hennar að leitast við að samræma túlkun samningsins eins og kostur er og í Ijórða lagi að kanna og leita lausna á ágreiningsmálum sem upp kunna að koma á milli samningsaðila varðandi túlkun og framkvæmd samn- ingsins. - Sameiginlega þingmannanefnd- in. Hana munu sitja 66 þingmenn (33 frá Evrópuþinginu og 33 frá þjóðþing- um EFTA-ríkjanna) og er hlutverk hennar að auka skilning milli Evrópu- bandalagsins og EFTA-ríkja. Nefndin mun skila áliti sínu og koma skoðun- um sínum á framfæri í sérstökum skýrslum og ályktunum. - Ráðgjafanefnd EES. Hún verður vettvangur fyrir tengsl fulltrúa aðila vinnumarkaðarins. Sviss: Baráttan fyrir samþykkt EES hafin ZUrich. Frá Onnu Bjarnadóttur, fréttarit- ara Morgunblaðsins. S AMNIN GURINN um evrópskt efnahagssvæði, EES, hafði ekki fyrr verið undirritaður í Portúgal á laugardag en svissnesku ráðherr- arnir tveir sem voru í Porto hófu kosningabaráttu fyrir þjóðarat- kvæðagreiðsluna um samninginn og þjóðaratkvæðagreiðslu um nýtt járnbrautanet í Sviss sem verður haldin í september. Enn er óákveð- ið hvort atkvæðagreiðslan um EES verður haldin í byrjun desember eða á næsta ári. Jean-Pascal Dela- muraz, viðskiptaráðherra, sagði að Svisslendingar myndu ekki láta Svía, Finna og íslendinga reka á eftir sér þótt ríkisstjórnir þeirra vildu að samningurinn tæki gildi um næstu áramót. Adolf Ogi, samgöngumálaráðherra, undirritaði samgöngusamning Sviss við Evrópubandalagið (EB) á laugar- dag. Svisslendingar skuldbinda sig þar til að byggja ný járnbrautagöng í gegnum Alpana til að auðvelda vöru- flutninga með lestum í stað flutninga- bíla í gegnum landið. Þjóðin mun taka ákvörðun um framkvæmdirnar í at- kvæðagreiðslu í september og búist er við að þær verði samþykktar. Rétt rúmur meirhluti svissnesku þjóðarinnar er nú hlynntur EES sam- kvæmt skoðanakönnunum. Þingið mun fjalla um samninginn í sumar og umræðan þar og baráttan fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna mun hafa áhrif á afstöðu fólks. Ríkisstjórnin þarf að sannfæra þjóðina um að hún græði meira á aðild en hún tapar. Delamuraz sagði á laugardag að and- stæðingar samningsins einblíndu í bakspegilinn í stað þess að horfa fram á við. Svisslendingar eru íhaldssamir þannig að baráttan verður hörð. Þeim gæti litist betur á það sem þeir sjá í þakspeglinum en framundan. Svissneska ríkisstjórnin stefnir á aðild að EB, en hefur ekki ákveðið hvort hún sækir um hana fyrir eða eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um EES. Nágrannaríkið Liechtenstein er bundið Sviss með tollasamningum en Roland Búchel, talsmaður ríkisstjórn- arinnar, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að Liechtenstein myndi ekki endilega sækja um EB-aðild þótt Sviss gerði það. Hann sagði að EES hefði verið takmark sem ríkisstjórn Liechtenstein væri ánægð með að væri náð. Enn er óvíst hvort þjóðarat- kvæðagreiðsla verður haldin um samninginn í smáríkinu. EES líklega varanlegra fyrir Svía en talið var Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgnnblaðsins. ULF Dinkelspiel, utanríkisvið- skiptaráðherra Svíþjóðar, sem undirritaði fyrir hönd Svía samn- inginn um Evrópska efnahags- svæðið, EES, segist trúa því, að Svíar verði orðnir aðilar að Evr- ópubandaiaginu, EB, árið 1995 en Jón Baldvin Hannibalsson, utan- ríkisráðherra íslands og formaður EFTA-ráðsins, er á öðru máli. Hann telur, að EB muni ekki taka við nýjum aðildarríkjum fyrr en 1997 í fyrsta lagi og er undir það tekið í mörgum, sænskum fjöl- miðlum. „Samningarnir um Evrópska efna- hagssvæðið tóku miklu lengri tíma en nokkurn óraði fyrir og það er meira en sennilegt, að viðræður EB og þeirra ríkja, sem sótt hafa um aðild, dragist mjög á langinn. Það er því mitt mat, að aðildarríkjum EB muni ekki verða fjölgað fyrr enn 1997,“ segir Jón Baldvin Hannibals- son. I leiðurum sænsku blaðanna er samningunum um Evrópska efna- hagssvæði almennt fagnað þótt í sumum gæti nokkurra efasemda um væntanlega aðild Svía að Evrópu- bandalaginu. Margir eru einnig sam- mála íslenska utanríkisráðherranum og benda á, að eftir Maastricht- samninginn hafi komið í ljós, að leið- in í átt til pólitískrar einingar í Evr- ópu sé grýttari en menn hugðu og því geti verið, að EES-samningurinn muni standa lengur hvað Svía varðar en nokkur bjóst við fyrir aðeins miss- eri síðan. Pertti Salolainen, utanríkis- ráðherra Finna, er einnig sammála Jóni Baldvin um að aðild að EB komi ekki til fyrr en 1997 eða seinna. Ulf Dinkelspiel leggur áherslu á, að fyrir Svía sé EES mikilvægur áfangi að EB-aðild og geri hana miklu auðveldari en ella vegna þess, að þegar þar að komi verði búið að vinna mestalla undirbúningsvinnuna. Hann segist líka vera viss um, að tímasetningar muni standast þrátt fyrir allt og Evrópska efnahagssvæð- ið verði að veruleika 1. janúar 1993. Einn af þremur þýðingarmestu atburð- um í utanríkissögu Islands eftir stríð segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra „ÉG HEF alla tíð haft sannfæringu fyrir því að þetta væri ómet- anlegt hagsmunamál íslensku þjóðarinnar. Ég tel að þessi samning- ur verði að teljast sem einn af þremur þýðingarmestu atburðum í utanríkissögu Islands eftir stríð, í framhaldi af aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og útfærslu landhelginnar," sagði Jón Bald- vin Hannibalsson utanríkisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær um samninginn um Evrópska efnahagssvæðið sem undirritaður var í Oportó í Portúgal á Iaugardag. „Ég átti alltaf von á því að menn yrðu tortryggnir og fullir efasemda til að byija méð en ég hef gert ráð fyrir því að þeim efasemdum verði eytt, alveg eins og gerðist þegar við gerðumst aðilar að EFTA 1970. Þá voru höfð uppi stór orð um að þetta væru endalok íslensks sjálf- stæðis en það var að sjálfsögðu allt á misskilningi byggt. Það mun einnig koma á daginn hvað varðar þennan samning. Ég má ekki til þess hugsa hvað hefði gérst ef þessi samningur hefði farið forgörðum. Þá hefðum við verið í alvarlegri kreppu,“ sagði Jón Baldvin. Óvíst hvenær Svisslendingar geta staðfest Utanríkisráðherra sagði að með undirritun samningsins yrði að vera hægt að treysta því að óvissu um staðfestingu hans hafi að verulegu leyti verið eytt. „Ráðherrar undir- rita fyrir hönd ríkisstjórna sinna með fyrirvara um samþykki þjóð- þinga. Þeir gera það í trausti þess að meirihluti sé í þjóðþingum og sá meirihluti ætti einnig að endur- speglast í Evrópuþinginu í Strass- borg. Nokkur óvissa ríkir þó í einu til- viki, það er að segja hvað varðar Sviss vegna þess að samkvæmt sérstökum stjórnskipunarreglum og hefðum þar í landi verður að leggja málið fyrir í þjóðaratkvæðagreiðslu og þarf að fást meirihlutafylgi þjóð- arinnar og þeirra 22 héraðsstjórna sem mynda sambandsríkið Sviss til staðfestingar samningnum. Óviss- an hefur þó einkum verið um það hvort Svisslendingum tækist að fá samninginn staðfestan að fullu og öllu fyrir áramót þannig að hann gæti tekið gildi þá, eins og stefnt er að. Það hafa heyrst fréttir um að þetta sé ólíklegt en utanríkisráð- herra Sviss fullvissaði okkur ráð- herra annarra EFTA-landa um að þeir myndu gera allt sem í þeirra valdi stæði til að koma þessu í kring. Þeir þurfa að leita afbrigða í báðum deildum svissneska þings- ins til að hraða afgreiðslu í þinginu því einungis með því móti ná þeir að uppfylla skilyrði um tímamörk í aðdragana þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar. Þeir stefna ákveðið að þessu en viðurkenna að það geti brugðið til beggja vona. í versta falli getur það dregist einhveija mánuði fram yflr áramótin," sagði utanríkisráð- herra. Til að samningurinn um Evr- ópskt efnahagssvæði taki gildi um áramót, eins og stefnt er að, þurfa allir aðilar hans, það er Evrópu- bandalagið og aðildarríkin tólf og fimm aðildarríki EFTA, að vera búnir að staðfesta hann fyrir þann tíma. Áhrif aðildarumsókna EFTA-ríkja að EB Hugsanlegt er að sex af þeim sjö ríkjum sem nú mynda EFTA verði búin að sækja um aðild að Evrópubandalaginu innan fárra mánaða. Aðspurður um áhrif þess á Evrópska efnahagssvæðið og stöðu íslands sagði Jón Baldvin: „Það er viðurkennt að ákvarðan- ir um að Svíþjóð og Finnland fylgi í kjölfar Austurríkis, á meðan samningarnir voru á viðkvæmu stigi, veikti samningsstöðu EFTA. Nú þegar samningunum er lokið breytir þetta ekki öðru en því að samningurinn hefur tímabundið gildi fyrir þau ríki sem ganga í EB. Það breytir engu um að þau lögðu öll jafn mikla áherslu á mikilvægi og nauðsyn þess að ná þessum samningum núna vegna þess að það líða þónokkur ár þar til þau geta gert sér vonir um að verða fullgild- ir aðilar EB. Þar að auki er þessi samningur svo víðtækur að hann auðveldar ríkjunum samningsgerð um það sem eftir er við EB. Fyrir þau EFTA-lönd sem ekki gerast aðilar, við vitum ekki á þessari stundu hvað mörg þau verða, hefur samningurinn ómetanlega og var- anlega þýðingu." - Fari svo að Island verði eina EFTA-landið sem ekki gengur í EB áttu þá von á að EES-samningnum verði breytt í beinan samning okkar og EB? „Fari svo, sem ekki verður þá fyrr en á seinni hluta þessa áratug- ar, geri ég ráð fyrir að þeir kaflar samningsins sem fjalla um eftirlit með framkvæmd og lausn deilu- mála verði teknir upp og einfaldað- ir. Eðlilegast virðist að álykta að framkvæmdin verði svipuð því sem verið liefur í þeim tvíhliða fríversl- unarsamningum sem EB gerði við EFTA-löndin á áttunda áratugnum. Það þýðir að sameiginleg nefnd líti eftir framkvæmdinni. Að öðru leyti hljótum við að gera ráð fyrir því að samningurinn með réttindum sínum og skuldbindingum standi," sagði Jón Baldvin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.