Morgunblaðið - 05.05.1992, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ VmSHÖPTIJaVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1992
35
virðist einkunn við hæfi því ónógur
vilji virðist standa honum nokkuð
fyrir þrifum. Þess ber að sjálfsögðu
að geta að hesturinn er aðeins 5 vetra
gamall og í ljósi þeirrar staðreyndar
að Náttfaraafkvæmi koma seint með
viljann má gera ráð fyrir að hann
eigi eftir að blómstra því ganghæfni
og rými virðist fyrir hendi. Næstur
kom Glæðir frá Hafsteinsstöðun und-
an Feyki 962 og Glóð Sörladóttur
653 frá sama stað. í Morgunblaðinu
á föstudag ar sagt að Farsæll og
Glæðir hafi staðið jafnir og efstir sem
ekki reyndist rétt en þó samkvæmt
upplýsingum frá stóðhestastöðinni
sem leiðrétt var svo á sýningunni á
laugardag. Glæðir hlaut í einkunn
8,03, 7,88 fyrir byggingu og 8,33
fyrir hæfileika, m.a. 9,0 fyrir skeið.
Þriðji varð Ernir frá Efri-Brú, undan
Kjarval 1025 og Pamelu 5348,
Hrafnsdóttir 802 frá sama stað.
Hlaut hann fyrstu einkunn 8,03, 7,93
fyrir bygingu og 8,13 fyrir hæfileika.
Hvað sem heildareinkunnum viðkem-
ur var Ernir sá af eldri hesunum sem
kom hvað best fyrir-enda með hæstu
einkunn þeirra fyrir fegurð í reið.
Léttir frá Grundarfirði hlaut 7,98 í
aðaleinkunn, 7,98 og 7,99 fyrir bygg-
ingu og hæfileika en hann á mögu-
leika á að vinna sig upp í fyrstu ein-
kunn á fjórðungsmótinu í sumar.
Á sýningunni komu einnig fram
folar sem hafa verið í tamningu og
þjálfun á stöðinni án þess þó að telj-
ast stöðvarhestar. Af þeim vakti
mesta athygli Seimur frá Sveina-
tungu sem náði þeim einstaka árangri
að hljóta 8,5 fyrir öll atriði hæfileika
og þykir mikill snillingur en svo vand-
ast málið þegar að byggingunni kem-
ur. Fyrir höfuð fær hann 6,5 sem að
öllu jöfnu telst geldingardómur en
það má horfa í gegnum fingur sér
með það því í reið koma ekki fram
áberandi sjáanlegir gallar hvorki
varðandi eyrnastöðu eða annað en
þetta er bara ekki allt. Fyrir fótagerð
fær hann einnig 6,5 sem er öllu alvar-
legra mál og ekki síður þegar við
bætist einkunn fyrir réttleika 7,0.
Þorkell Bjarnason hrossaræktarráðu-
nautur hafði mörg orð um þetta og
þótti eins og öðrum leitt að staðreynd-
irnar lægju fyrir með þessum hætti.
Hvað á að gera? sagði ráðunauturinn
og líklegt er að margir spyrji hins
sama. Er ekki óhætt að nota svona
undrabarn ef valdar eru eingöngu
undir hann hryssur með góða fætur
og dettur manni þá fyrst í hug hrýss-
urnar á Laugavatni sem virðast gefa
öðrum hrossum fremur góða fætur.
Þá kom fram á sýningunni stóðhest-
urinn Kveikur frá Miðsitju sem stóð
efstur fjögurra hesta á Landsmótinu
á Vinheimamelum 1990 og var eftir
mótið talinn einn dýrasti stóðhestur
landsins. Var hann dæmdur fyrr í
vikunni og hlaut þá fyrir byggingu
Einkunnir folanna sem dæmdir
voru á stöðinni í ár bera þess greini-
lega merki að farið er að nota ein-
kunnaskalann víðar en gert var. Ein-
kunnir eins og 6,5 og 7,0 sjást nú
oftar en áður en kannski minna farið
í háu tölurnar enda verið að dæma
unga hesta og eiga sumir þeirra háu
tölurnar til góða. Telja verður alla
folana sem nú voru sýndir ágæt reið-
hestsefni en það eitt dugar ekki leng-
ur til, kynbótadómarar eru farnir að
herða kröfumar sem telja verður
sjálfsagt og eðlilegt með auknu fram-
boði góðra hrossa. Eins og Þorkell
sagði þá er hrossarækt alvörumál.
hrossa vakti að venju nokkra at-
hygli og virðist sem sýningargestir
séu síhungraðir í að sjá ný og ný
hross. Að þessu sinni komu mörg
athyglisverð hross fram sem lítið eða
ekki hafa sést á sýningarvöllunum.
Hinrik Ragnarsson mætti með
fjölskyldu sína vel ríðandi og vakti
það óneitanlega kátínu og athygli
er þulur tilkynnti að Hinrik yrði í
húsnotkun í Skipasundi 9 í allt sum-
ar. Alexander Hrafnkelsson rataði
réttu leiðina í sýningu sinni þar sem
hann hleypti á fullri ferð á skeið með
bundið fyrir augun.
Hestadagar í Reiðhöllinni að þessu
sinni voru eins og aðrar sýningar
vetrarins ágæt skemmtun þótt ekki
byðu þær upp á neina nýja spenn-
andi hluti þar sem fagmennskan var
höfð í fyrirrúmi heldur er boðið upp
frekar hraðsoðinn atriði að undaskil-
inni sýningu Sigurbjörns og Höfða.
Er ekki orðið tímabært að bjóða upp
á eina verulega vandaða sýningu
næsta vetur ef Reiðhallarinnnar nýt-
ur við þá?
CORDIS
Skrifstofa
Rannsókna-
ráðs tengi-
liður
gagnabanka
VIÐURKENNING ■— Handhafar viðurkenningar Lagnafélags íslands. í aftari röð eru frá vinstri:
Ellert Ingvarsson, Þorgeir og Ellert hf., Reynir Valgeirsson, Vökvalagnir Guðjón Jónsson, Harka hf., Krist-
ján Magnússon, Vélsmiðja KM, Valdimar og Garðar, Blikk & Stál hf. í fremri röð sitja frá vinstri: Gunnar
Ingi Gunnarsson, Rafteikning hf., Hreinn Frímannsson, Hitaveita Reykjavíkur og Jóhann Þór Magnússon,
Rafhönnun hf. Á myndina vantar fulltrúa frá Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns hf. og Teiknistofunni hf.
Viðurkenning
Viðurkenning vegna orku-
vers á Nesjavöllum
FORRÁÐAMENN orkuvers Hitaveitu Reykjavíkur á Nesjavöllum
ásamt þeim sem hönnuðu og settu upp lagnakerfin í hús orkuvers-
ins fengu viðurkenningu á nýafstöðnum aðalfundi Lagnafélags ís-
lands. Viðurkenningin tekur til vélbúnaðar, blikksmíði og stjórnkerf-
Viðurkenningarnefnd Lagnafé-
lags íslands var sammála um að
mæla með loftræstikerfi og öllum
vatns- og gufulögnum í orkuveri
Hitaveitu Reykjavíkur á Nesjavöll-
um til viðurkenningar fyrir vel
hannað og vel unnið verk. í frétta-
skýringu frá Lagnafélagi íslands
segir að þarna sé um að ræða eitt
af fáum loftræstikerfum hér á landi
þar sem skápar séu að mestu leyti
smíðaðir innanlands. Viðurkenning-
arnefndinni hafi þótt kerfin lýtalaus
og bera vott um gott handverk.
Eftirtaldir aðilar hafa hlotið við-
urkenningu Lagnafélags íslands
fyrir árið 1991. Verkfræðistofa
Guðmundar og Kristjáns hf.,
Reykjavík, Blikk & Stál hf., Reykja-
vík, Vökvalagnir, Selfossi, Vél-
smiðja Kristjáns Magnússonar,
Ytri-Njarðvík, Harka hf., Reykja-
vík, Rafhönnun hf., Reykjavík, Raf-
teikning hf., Reykjavík, Þorgeir og
Ellert hf., Akranesi, Teiknistofan
hf., Reykjavík, Hitaveita Reykjavík-
ur.
SKRIFSTOFA Rannsóknaráðs
ríkisins hefur nýlega gerst tengi-
liður fyrir CORDIS-gagnabank-
ann (The Community Research
and Development Information
Service) í Lúxemborg. í gegnum
þennan gagnabanka geta íslensk-
ir aðiiar, sem eru að vinna að
rannsóknum eða markaðssetn-
ingu, leitað að samstarfsaðilum
í Evrópu og fengið birtar niður-
stöður verkefna sem gætu leitt
til samstarfs.
Markmið bankans er að veita
upplýsingar og auka vitneskju
manna um rannsóknir og tæknilega
þróunarstarfsemi í Evrópu, koma á
samstarfi milli aðila á þessu sviði
og stuðla að samræmingu á verk-
efnum og stefnumótun. En bankinn
á að vera gagnlegur bæði fyrirtækj-
um sem stunda nýsköpun og rann-
sóknastofnunum sem stuðla að ný-
sköpun.
í frétt frá skrifstofu Rannsókna-
ráðs ríkisins segir að talið sé að
heppileg leið til að bæta samkeppn-
isstöðu fyrirtækja sé að auka upp-
lýsingastreymi til þeirra um niður-
stöður verkefna, auðvelda nýtingu
þeirra og beita sér fyrir auknu sam-
starfí milli landa Evrópu. í þessu
skyni standi til að stækka CORDIS-
gagnabankann verulega og auka
notagildi hans. Öll samskipti við
gagnabankann eru án endurgjalds.
Nú er í undirbúningi að auk skrif-
stofu Rannsóknaráðs geti Útfiutn-
ingsráð, Rannsóknaþjónusta há-
skólans, Félag íslenskra iðnrekenda
og Iðntæknistofnun veitt aðstoð við
tengingu CORDIS og leit upplýs-
inga.
Danir flytja ú t
tæknikunnáttu
Þekking Dana á uppsetningu
og rekstri fjarvarmaveitna er
Fundur
Virk samkeppni
í viðskiptum
FRUMVARP til samkeppnislaga
verður efni morgunverðarfundar
Verslunarráðs (VÍ) nk. föstudag,
en lögunum er ætlað að koma í
staðinn fyrir gildandi lög um verð-
lags- og samkeppniseftirlit. Ætl-
unin er að skerpa samkeppnisregl-
ur, auka upplýsingamiðlun og
draga úr opinberum samkeppnis-
höinlum.
Með lögunum er auk þess ætlunin
að treysta samkeppnishæfni ís-
lenskra viðskipta með samræmingu
við gildandi reglur annars staðar í
Evrópu.
Framsögumenn verða Björn
Friðfinnsson ráðuneytisstjóri í við-
skiptaráðuneytinu og Vilhjálmur
Egilsson framkvæmdastjóri VÍ.
Ásamt þeim situr Georg Ólafsson
verðlagsstjóri fyrir svörum. Fundar-
stjóri verður Einar Sveinsson, for-
maður VI. Fundurinn verður í hlið-
arsal Súlnasalar Hótel Sögu, frá
kl.8.00-9.30. Þáttaka er opin en mjög
áríðandi er að tilkynna hana fyrir-
fram til Verslunarráðs.
að verða að traustri útflutnings-
grein, sem fer vaxandi með ári
hverju. Er markaðurinn aðal-
lega í Austur-Evrópu, Ungverj-
alandi og Tékkóslóvakíu, og
einnig í Austurríki en útflutn-
ingsverðmætið á þessu ári er
áætlað um 2,5 milljarðar ÍSK.
Aðeins á þremur árum hefur
útflutningur DEG, Dansk Energi
Gruppe, fímmfaldað útflutninginn
til áðurnefndra landa og samtökin,
sem 11 fyrirtæki standa að, þakka
það fyrst og fremst ötulu starfí
sérstaks viðskiptafulltrúa síns,
Steens Hansens, en hann hefur
aðsetur í Vín. Auk þessu hefur
yfirstjórn orkumála í Danmörku,
Anne Birgitte Lundholdt orku-
málaráðherra og ýmsar danskar
stofnanir lagst á eitt um að greiða
götu dönsku fyrirtækjanna.
Útflutningur DEG felst meðal
annars í endurnýjun fjarvarma-
veitna og fræðslu- og þjálfunar-
námskeiðum en auk þess er mikil
áhersla lögð á samstarfsverkefni
ýmiss konar. Eru þá jafnan skoð-
aðir ofan í kjölinn allir möguleikar
á aðstoð frá Evrópubandalaginu
og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Auk
Ungveijalands og Tékkóslóvakíu
eru að koma til verkefni í Póllandi
og farið er að hilla undir þau í
Eystrasaltslöndunum.
Grindavík:
HUIIIII.II.I.IIIf
Bókhalds- og fasteigna-
þjónusta stofnsett
TÖLVÍK sf. er nafn á fyrirtæki
í Grindavík sem hóf nýlega starf-
semi sína á nýjum stað, í nýju
húsnæði Verkalýðsfélags
Grindavíkur við Víkurbraut.
Hlutverk fyrirtækisins er að sjá
um bókhald fyrirtækja, launaút-
reikninga, uppgjör virðisaukaskatts
og gerð skattskýrslna. Auk þess
verður fyrirtækið með fasteigna-
þjónustu en slík þjónusta hefur ekki
staðið Grindvíkingum til boða í
nokkuð mörg ár.
Halldór Halldórsson rekur og á
Tölvík sf. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann teldi að góð-
ur rekstrargrundvöllur væri fyrir
fyrirtæki af þessu tagi í Grindavík
því hér væru mörg smáfyrirtæki
sem sæktu eftir slíkri þjónustu og
svo væri náttúrlega hugsunin að
geta sótt þessa þjónustu á heima-
slóðum en ekki að leita út fyrir
bæinn að henni.
„Ég sé fyrst og fremst um að
færa bókhald fyrirtækja en býð
einnig úpp á hvaða aðra þjónustu
sem lýtur að rekstri þeirra. Þá mun
einnig vera rekin fasteignaþjónusta
og hús verða tekin á skrá og aug-
lýst með því að leggja fram auglýs-
ingar í verslunum á svæðinu og
mun ég ekki endilega einskorða
mig við Grindavík. Ég er bjartsýnn
á þetta fyrirtæki, annars hefði ég
ekki farið út í þetta,“ sagði Halldór
að lokum.
FÓ
Morgunblaðið/Frimann Ólafsson
Halldór Halldórsson — í bjartri og rúmgóðri skrifstofu
Tölvíkur.