Morgunblaðið - 05.05.1992, Síða 36

Morgunblaðið - 05.05.1992, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1992 JBkTnVrINI N1I Sölumaður Skrifstofustarf Umboðs-, heildsölu- og dreifingarfyrirtæki á matvælasviði óskar eftir að ráða sölumann til starfa í söludeild fyrirtækisins. Boðið er upp á lifandi starf á spennandi markaði. Umsækjandi verður að hafa reynslu af sölu- mennsku, hafa góða framkomu og hann þarf að geta unnið sjálfstætt. Þeir, sem hafa áhuga á starfi þessu, sendi umsóknirtil auglýsingadeildar Morgunblaðs- ins merktar: „U - 9682“ fyrir 12. maí næst- komandi. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar unglingadeild, Vesturgötu 17, s. 622760 Yf i rfélagsráðgjaf i Laus er staða yfirfélagsráðgjafa - forstöðu- manns í hverfaskrifstofu fjölskyldudeildar fyrir Breiðholtshverfi, Álfabakka 12. Umsækjendur skulu hafa lokið félagsráð- gjafanámi og hafa a.m.k. 3 ára starfsreynslu á sviði barnaverndar og meðferðarstarfs. Upplýsingar gefur yfirmaður fjölskyldudeildar. Umsóknarfrestur er til 15. maí nk. Umsóknum skal skilað til Félagsmálastofn- unar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á um- sóknareyðublöðum, sem þar fást. Verktakafyrirtæki í Kópavogi óskar að ráða starfskraft í hlutastarf, sem fyrst. Reynsla í bókhaldsstörfum áskilin. Möguleiki á sveigj- anlegum vinnutíma. Umsóknum, ásamt upplýsingum um menntun, aldur og fyrri störf, sé skilað á auglýsingadeild Mbl. fyrir 11. maí nk., merktum: „R - 3461 “. Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi auglýsir lausar stöður Næsta skólaár eru lausar kennarastöður í: Eðlisfræði 1/2 Hjúkrunarfræði fyrir sjúkraliða 1/2 Rafvirkjun 1/1 Sérkennsla (sérkennari eða sambæril. menntun) 1/1 Einnig eru auglýstar lausar til umsóknar stöður í: Málmiðnagreinum, sálfræði, rafeindavirkjun, stærðfræði, viðskiptagreinum og stunda- kennsla í nokkrum greinum. Umsóknarfrestur er til 22. maí. Umsóknir sendist Fjölbrautaskóla Vesturlands, Voga- braut 5, 300 Akranes. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 93-12544. Skólameistari. Sjávarútvegsdeildin á Dalvík - VMA Kennarar - stýrimenn Lausar eru stöður deildarstjóra og kennara frá 1. ágúst 1992. Kennslugreinar: íslenska, tungumál, raun- greinar og siglingafræðigreinar. Umsóknarfrestur er til 20. maí. Upplýsingar í símum 96-61380 og 96-61162. Skólastjóri. □ EDDA 5992557 - Lf. I.O.O.F. Rb. 4= 141558 - 8V2.I. Ljósheimar ísl. heilunarfélagið Föstudaginn 8. maí kl. 20.00 að Hverfisgötu 105 mun gestafyrir- lesari halda fyrirlestur um and- lega þróun á nyöld. Fyrirlesarinn heitir Asger Lorentsen. Ein af mörgum bóka hans, „Andleg uppbygging mannsins", hefur verið þýdd og gefin út á islensku. Auk þess að sinna ritstörfum er hann forsvarsmaður andlegrar miðstöðvar í Danmörku þar sem fram fer iðkun og kennsla í dul- raenum fraeðum Aðgangseyrir 500 kr. Veitingar innifaldar. Allir velkomnir. RAÐ/A UGL YSINGAR HÚSNÆÐIÓSKAST íbúðarhúsnæði óskast Óskum að taka á leigu sérbýli á Stór- Reykjavíkursvæðinu frá og með 1. júli. Þrennt fullorðið í heimili. Æskilegur leigutími 1 -2 ár. Upplýsingar sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Góð umgengni - 2288“. Til sölu er eldisfiskur úr þrotabúi ísnó hf. Um er að ræða seiði í seiðaeldisstöð á Öxna- læk í Ölfusi og seiði og fisk undir 1 kg að þyngd í laxeldisstöðinni í Lóni í Kelduhverfi. Nánari upplýsingar gefur Már Hallgrímsson, afurðalánadeild Landsbanka íslands, Hafnar- hvoli, Reykjavík, sími 606310. ÓSKASTKEYPT Hrossarækt Bújörð hentug til hrossaræktar óskast til kaups, skilyrði er að hrossastóð af góðu kyni fylgi. Einnig má fylgja annarskonar bú- fénaður. Upplýsingar í síma 672716 eftir kl. 20 næstu kvöld. A'it „Stuttur frakki" tekinn Vegna framleiðslu á kvikmyndinni „S.F.“ (vinnuheiti) óskum við eftir leikurum. Við erum að leita að fólki á aldrinum 20-30 ára. Ekki er nauðsynlegt að viðkomandi hafi reynslu af kvikmyndaleik. Áhugasamir mæti, vel greiddir, í viðtal í Skútuvogi 13, 2. hæð (Bónushúsið), á morg- un og fimmtudag milli kl. 10-16. Fiskkaup á Patreksfirði Höfum byrjað móttöku á handfærafiski á Patreksfirði. Tryggið ykkur viðskipti og að- stöðu strax. Upplýsingar á skrifstofutíma, símar (91) 11748 - 11748 - 622343 - 622363. FISK^SX KAUPHF s 3 ón xzAsbfótnsson ÚTFLUTNINGS-.OG HEILDVERZLUN Þrotabú ísno hf. auglýsir til sölu eftirtaldar eignir: 1. Fiskeldisstöð að Öxnalæk í Ölfusi. Stöðin er hönnuð til seiðaeldis, en þar má einnig ala vatnafisk til slátrunar. Allt vatn til eldisins er sjálfrennandi, bæði heitt og kalt. Eldisrýmið er bæði innan- húss og utan, alls um 830 rm. 2. Eldisaðstaða í Lónum í Kelduhverfi. Þar er um að ræða tvö seiðeldhús alls með um 650 rm eldisrými, bæði inni og úti. íbúð fylgir þeirri samstæðu. Þar eru einnig stór stálbogaskemma sem er fóðurskemma með skrifstofurými í hluta húss. Einnig sérbyggt steinhús fyrir verkun og pökkun á fiski. í þriðja lagi þriggja herbergja íbúðarhús úr timbri, með öllu innbúi. Eldisaðstöðu þessari fylgja eftirtaldar eld- iskvíar: 12 einingaraf teg. jamek (12.000 rm) 8 einingaraf teg. Viking (8.000 rm) 8 einingaraf teg. Turmec (8.000 rm) Einnig lyftari, vörubíll, mjnni flutningabíll og bátar. 3. Eldiskvíar, 10 einingar af tegundinni Tumec Wavemaster, staðsettar í Vest- mannaeyjum. Frekari upplýsingar eru gefnar hjá bústjórum, Jóhanni Níelssyni, hrl. í síma 812566 og Sig- urði Jónssyni, hdl. Einnig í Framkvæmdasjóði íslands í síma 624070. Tilboðsfrestur er til miðvikudagsins 20. maí 1992. Úrelding Óska eftir úreldingu, allt að 160 tonnum. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 10. maí merkt: „0 - 2229“. w I vörslu óskilamunadeildar lögreglunnar er margt óskilamuna, svo sem: Reiðhjól, fatn- aður, lyklaveski, lyklakippur, seðlaveski, handtöskur, úr, gleraugu o.fl. Er þeim, sem slíkum munum hafa glatað, bent á að spyrjast fyrir um þá á skrifstofu óskilamuna, Hverfisgötu 113 (gengið inn frá Snorrabraut), frá kl. 14.00-16.00. Þeir óskilamunir, sem búnir eru að vera í vörslu lögreglunnar ár eða lengur verða seld- ir á uppboði í portinu í Borgartúni 7, laugar- daginn 9. maí 1992. Uppboðið hefst kl. 13.30. Lögreglustjórinn í Reykavík. Allsherjaratkvæðagreiðsla um miðlunartillögu ríkissáttasemjara Verkamannafélagið Dagsbrún efnir til alls- herjaatkvæðagreiðslu um miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Kosið verður: Þriðjudaginn 5. maí kl. 10-22. Miðvikudaginn 6. maí kl. 10-22. Allir skuldlausir félagsmenn Dagsbrúnar hafa rétt á að greiða atkvæði um miðlunartillöguna. Kosið verður á Lindargötu 9, 1. hæð, á skrifstofu verkamannasambandsins. Menn eru beðnir um félagsskírteini, persónu- skilríki eða launaseðil til staðfestingar á rétti sínum að ganga í félagið ef þeir eru ekki fullgildir félagsmenn. Stjórn Dagsbrúnar hvetur alla félagsmenn að taka þátt í atkvæðagreiðslunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.