Morgunblaðið - 05.05.1992, Page 41

Morgunblaðið - 05.05.1992, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAI 1992 41 Einar G. Guðmundsson aðalbókari - Minning Fæddur 21. janúar 1905 Dáinn 1. apríl 1992 Ég var þeirrar gæfu aðnjótandi að alast upp á heimili móðurfor- eldra minna. Á því heimili kynntist ég mörgu góðu vinafólki afa og ömmu. Meðal þeirra var Magga, systir ömmu minnar og eiginmaður hennar, Einar Gunnar Guðmunds- son, sem nú er nýlátinn. Fyrstu minningar mínar af Ein- ari voru frá æskuheimili mínu við Bræðraborgarstíginn. Þau hjóna- kornin Magga og Einar voru oft gestir á heimili móðurforeldra minna. Ennfremur minnist ég þess þegar ég var barn og starfaði sem sendill fyrir Stálsmiðjuna að oft þurfti ég að erinda fyrir húsbændur mína hjá Hamri. Einar starfaði hátt í 60 ár fyrir hlutafélagið Ham- ar, hann var farsæll í starfi. Þegar ég birtist á skrifstofunni hjá honum þá gaf hann sér alltaf tíma til að tala við mig, það þótti mér vænt um. Einar og Magga höfðu þann skemmtilega sið að bjóða tveimur nánum starfsmönnum Einars úr Hamri ávallt í skötu í hádeginu á Þorláksmessu, ömmu minni var allt- af boðið með. Þessum sið héldu þau þó Einar var löngu hættur störfum hjá Hamri. Ég held að þetta hafi gefið Einari mikið. Einar var heimakær maður og þótti fjarskalega vænt um konu sína. Fyrir nokkrum árum fór Magga ein út til Danmerkur með ömmu minni. Einar hringdi daglega í hana. Hann varð að heyra í henni Möggu sinni. Einnig sagði amma mér þá sögu að þegar þau hjóna- korn buðu ömmu til Mallorca og Magga fór með henni en Einar varð eftir heima, að þegar þær systur komu til hótelsins á Mallorca, beið Möggu fallegt bréf frá Einari í af- greiðslu hótelsins. Hanri var ávallt með hugann við hana Möggu sína. Einar var vingjarnlegur og róleg- ur maður og þægilegur í allri um- gengni. Hann reykti sína vindla, enda mikill vindlareykingamaður. Ég minnist þess að sem barn þurfti ég ávallt að fara út í búð og kaupa „London Docks“ þegar Einar og Magga komu í heimsókn. Það varð að geta boðið honum Einari vindla. Einar var víst mikill laxveiðimaður enda fóru þau hjón oft austur að Sogi í Grímsnesi hér áður fyrr til veiða. Ég er Einari og Möggu frænku ákaflega þakklátur hvað þau reynd- ust mér vel fyrir nokkrum árum, þegar þau leigðu mér húsnæði þeg- ar ég hóf minn fyrsta búskap. Lífið er ekki búið þó andinn hafi yfirgefið líkamann, lífíð sjálft er aðeins dyrnar að eilífðinni. Minning um góðan mann geymist. Elskuleg frænka, í sorg þinnþ skaltu skoða huga þinn og þú sérð að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. Ég sendi þér og fjölskyldu þinni mínar dýpstu samúðarkveðj- ur. Svenni. Þjóðháttadeild Þjóð- minjasafns Islands: Oskar upp- lýsinga um trúlofarnir o g giftingar GEFIN hefur verið út spurninga- skrá frá Þjóðháttadeild Þjóðminja- safns íslands og er hún sú 79. sem komið hefur verið út. í þetta skipt- ið er spurt um trúlofanir og gift- ingar í gamla daga og þeim breyt- ingum, sem orðið hafa í þeim efn- um á 20. öldinni. Það sem af er þessu ári hafa Þjóðháttadeidinni borist um 100 handrit frá eldri borgurum um útsaum, meindýr og æðarfugl. Þeir sem geta veitt upp- lýsingar um ofangreint efni eða vilja fá sendan spurningalista geta haft samband við starfsmenn Þjóð- háttardeildar, Árna Björnsson eða Hallgerði Gísladóttur. BLÓM SEGJA ALLT Mikið úrval blómaskreytinga fyrir öll tækifæri. Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070. Suðurtandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opiðöllkvöld til kl. 22,-einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. r YFIR 150 BÍLAR Á STAÐNUM VEITUM ABYRCÐ A MÖRGUM NISSAN OC SUBARU BlLUM BILAB SÆVARHöfða 2 674848 i húsi Ingvars Helgasonar OPIÐ: LAUGARDAC frá 10-1700 Örugg bflasala á góðum stað Munið að við höfum 30 bíla Við bjóðum greiðslukjör til þriggja ára og í hverjum mán sem við bjóðum jafnvel enga útborgun á tilboðsverði og tilboðskjörum NISSAN PATR0L TURBÓ DISEL ÁRG. 1991 ekih 23 þ.km, 5 gira, splittað drif, álfelgur, spil, 33‘'dekkofl. Ath. skipti á ódýrari, verð 2800 pús. stgr. Höfum flestar árg. af Patrol. SUBARU LECACY1800 ST 4X4 ÁRC. 1990 ekinn 48 p.km, 5 gíra„ samlæsing, rafm. rúður ofl. Ath. skipti á ódyrari, verð 1250 pús. stgr. Höfum einnig árg. 1991 NISSAN SUNNY1600 SLX 4X4 ÁRC. 1991 ekinn aðeins7p.km, 5 gíra, rafm. rúður, samlæsing ofl. Aðeins bein sala, verð 1050 pús. stgr. Höfum flestar árg. af Nissan Sunny. MMC PAJER0 TURBÓ DISEL ÁRC. 1989 ekinn 68 p.km, 5 gira, intercooler, samlæsing 31" dekk, ofl. Ath. skipti á ódýrari, verð 1950 pús. stgr. Höfum allarárg. afPajero á skrá. DAIHATSU FER0SA EL - IIÁRC. 1990 ekinn 31 p.km, 5 gíra, upphækkaður, álfelgur ofl. Ath. skipti á ódýrari, verð 1120 pús. stgr. Höfum einnig árg. 1989 MMC L-300 4X4 árg 1990 ekinn 40 þ.km, 5 gíra, aukadekk, rafm. rúðurofl. Ath. skipti á ódýrari, verð 1470 pús. stgr. Höfum einnig árg. 1988

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.